Morgunblaðið - 09.01.2003, Qupperneq 64
FRAKTSKIP í eigu Samskipa hafa
átt í miklum erfiðleikum í Eystra-
salti síðustu daga vegna kulda og
íss. Leiguskipið Nordic Frost var í
gær fast í ís og tvö önnur skip eru
að berjast áfram með aðstoð ís-
brjóta. Frostið á svæðinu er yfir 20
stig og ísinn er um 40–50 cm þykk-
ur. Í gær voru um 60 skip föst í ís í
Eystrasalti.
Nordic Frost komst inn til
Sankti Pétursborgar á Þorláks-
messu eftir að hafa verið fast í ís í
sólarhring. Skipið þurfti að bíða í
fjóra daga eftir að komast inn í
höfnina. Þrjá daga tók að losa skip-
ið en það var með fullfermi af fros-
inni síld. Nordic Frost lagði af stað
frá Pétursborg á gamlársdag en
þann dag var 30 stiga frost í borg-
inni og 38 stiga frost fyrir utan
hana. Í gær var skipið fast í ís
ásamt 25–30 öðrum skipum rétt við
eyjuna Hogland og beið aðstoðar
ísbrjóts.
Á ekki eftir að batna
Sigurjón Markússon, yfirmaður
skrifstofu Samskipa í Rússlandi,
sagði að ferð Nordic Frost væri bú-
in að taka viku lengri tíma en reikn-
að hefði verið með. Tvö önnur
frystiskip á vegum Samskipa,
Greenland Saga og Ice Bird, eru á
leið inn Eystrasaltið. Sigurjón
sagðist vonast eftir að þeim gengi
siglingin betur.
„Það er 40–50 cm þykkur ís fyrir
utan Pétursborg og staðan á ekki
eftir að batna. Þegar fer að hlýna
þiðnar ísinn og svo frýs aftur og þá
þenst hann út. Þetta verður því
ekki auðveldara. Það er búið að
hækka mörkin sem sett eru um vél-
arstærð. Skip sem eru með minni
en 3.500 hestafla vélar fá ekki einu
sinni að koma inn á svæðið. Rúss-
neskir og finnskir ísbrjótar ryðja
skipunum leið gegnum ísinn. Skipa-
lestir sem í eru 7–10 skip fylgja ís-
brjótunum eftir. Ef eitthvert skip
er gangminna en hin skipin er það
einfaldlega skilið eftir. Það er síðan
tekið með í næstu ferð,“ sagði Sig-
urjón.
Sigurjón sagði að mikill vöxtur
hefði verið í viðskiptum Samskipa í
Rússlandi og við Eystrasalt. Veltan
hefði tvöfaldast á hverju ári síðustu
þrjú árin. Hann sagði að Samskip
tækju um 1.000 gámaeiningar í
gegnum höfnina í Pétursborg í
hverjum mánuði.
Skip Samskipa fast í ís
Berjast áfram í yfir 20 stiga frosti í gegnum 40–50 cm þykkan ís
Aðstæður í Eystrasalti eru mjög
erfiðar. Frostið er yfir 20 gráður
og ísinn er 40–50 cm þykkur.
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 9. JANÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
VEGNA hagstæðrar tíðar hefur
verið unnt að nýta lögreglubif-
hjól óvenjumikið en sjaldgæft
er að þeim sé ekið að vetrar-
lagi. Lögreglan í Reykjavík á 6
bifhjól og hafa þau verið í notk-
un í allan vetur ef frá er talinn
einn dagur í október. Reyndir
lögreglumenn muna þó þá tíð
er bifhjólin voru notuð að vetr-
arlagi. Var málið leyst með því
að setja keðjur á dekkin.
Vetrarakstur á lögreglubifhjólum
Morgunblaðið/Golli
ÍRAFÁR er horfin af Tónlistanum,
marktækasta plötusölulista lands-
ins, en þar hefur hún einokað topp-
sætið svo vikum skiptir enda var
platan sú söluhæsta fyrir jólin og
var dreift í yfir 15 þúsund eintökum,
að sögn framleiðenda. Skýringin á
því að platan er nú sviplega horfin af
sölulista er sú að síðustu vikuna hafa
skil á jólagjöfum verið í algleymingi.
„Eðli skila er nú þannig að þegar
um vinsælar plötur er að ræða er
eðlilegt að einhverjir sitji uppi með
umframplötur,“ útskýrir Eiður Arn-
arsson hjá Skífunni, sem er útgef-
andi plötunnar. „Algeng heildarskil
til heildsölu eru svona 5% til 10% af
upplagi plötu.“
Samkvæmt því má gera ráð fyrir
að upp undir 2 þúsund plötum verði
skilað aftur til framleiðenda og end-
anleg sala á söluhæstu plötunni fyrir
jólin verði því tæp 14 þúsund.
Írafár horfin
af lista
Sól um jól/59
Söluhæstu
bókunum
mest skilað
BÓKASKIL eftir jólin kallast á við
sölu í desember. Söluhæstu bókun-
um er mest skilað. Þetta er mat
nokkurra bóksala sem Morgunblaðið
ræddi við. Þannig er mestu skilað af
bókunum Jón Baldvin – Tilhugalíf
eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur,
Röddinni eftir Arnald Indriðason og
Sonju eftir Reyni Traustason en
þessar bækur röðuðu sér í efstu sæti
bóksölulistans sem Félagsvísinda-
stofnun tók saman fyrir Morgun-
blaðið og Félag íslenskra bókaútgef-
enda.
Bóksalar segja að skil séu nokkuð
jöfn í ár og engin bók skeri sig úr.
Það er mat sumra að skil séu með
minnsta móti að þessu sinni og aðrir
segja að topparnir í bóksölunni jafn-
ist út þegar skilum sé lokið.
Algengast/31
BJÖRK Guð-
mundsdóttir tón-
listarmaður seg-
ir í grein, sem
hún ritar í Morg-
unblaðið í dag,
að það sé úrelt
hugsun að fórna
náttúrunni til að
verða tæknivædd
nútímaþjóð. Hún
segir að verndun
sé oft besta nýtingin á náttúrunni.
Náttúran sé sérstaða Íslendinga,
með henni séu þeir ósigrandi.
Í grein Bjarkar segir m.a.: „Þjóð-
garður – náttúruvernd – mun skapa
hundruð starfa á Austurlandi. Þjóð-
garður mun auka hróður Íslands og
verða tákn fyrir Ísland líkt og Big
Ben er fyrir London eða Eiffelturn-
inn er fyrir París eða Empire State
Building fyrir New York. Þjóðgarð-
ur er tækifæri.“
Ekki missa/38
Björk
Guðmundsdóttir
Verndun
besta
nýtingin
Björk segir náttúruna
vera sérstöðu Íslands
BANDARÍSKI álrisinn Alcoa til-
kynnti í gær að tap fyrirtækisins á
síðasta fjórðungi ársins hefði numið
sem svarar 18 milljörðum íslenskra
króna. Vegna þessarar niðurstöðu
ætlar félagið að segja upp 8.000 af
129.000 starfsmönnum, selja þætti
úr starfseminni og endurskipu-
leggja rekstur.
Jake Siewert, upplýsingafulltrúi
Alcoa, segir að þessi tíðindi og að-
gerðir hafi ekki neikvæð áhrif á fyr-
irætlanir félagsins hér á landi, en
það hefur sem kunnugt er í hyggju
að reisa álver í Reyðarfirði. „Ef
eitthvað er ættu þessar aðgerðir
jafnvel að hafa þveröfug áhrif, því
þær veita okkur svigrúm til að ein-
beita okkur að grunnstarfsemi fyr-
irtækisins og auka við hana,“ segir
hann, „álverið í Reyðarfirði er hluti
af þeirri starfsemi.“
Í fréttatilkynningu frá Alcoa er
haft eftir Alain Belda, stjórnarfor-
manni fyrirtækisins, að samdráttur
í framleiðslu í heiminum hafi varað
lengur en búist hafi verið við.
„Aukin tækifæri til vaxtar“
„Nánar tiltekið hafa geirar á
borð við flugiðnaðinn, markað fyrir
gashverfla og fjarskiptamarkaðinn
verið í lægð og neytt okkur til að
auka sparnað í rekstri og endur-
skipulagningu. Þessar aðgerðir
veita okkur aukið svigrúm til að
grípa tækifæri til vaxtar í grunn-
starfsemi félagsins.“ Siewert segir
að þarna eigi forstjórinn meðal
annars við álverið á Íslandi.
Heildarvelta Alcoa á árinu var
20,26 milljarðar dollara; 1.641 millj-
arður króna, en árið áður var hún
22,5 milljarðar dollara, eða 1.822
milljarðar króna. Heildarhagnaður
ársins nam 47 sentum á hlut, en ár-
ið áður nam hann 1,05 dollurum á
hlut.
Útlit fyrir betri rekstur
Siewert segir að búist sé við
bættri afkomu Alcoa á þessu ári og
enn betri árið 2004. „Markaðurinn
er erfiður þessa stundina. Við gríp-
um til aðgerða núna til að bregðast
við því að vöxtur í efnahagslífi
heimsins er minni en hann hefur
verið,“ segir Siewert.
„Hefur ekki áhrif á
áætlanir á Íslandi“
Alcoa tapaði/B1
Tap og endur-
skipulagning
hjá Alcoa
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦
Á ANNAÐ hundr-
að verkefnalaus og
úrelt skip liggja nú
í höfnum landsins
og valda höfnunum
verulegum kostn-
aði, auk þess sem
af þeim stafar
mengunarhætta og
óprýði. Fá úrræði
eru til að farga
þessum skipum en
samkvæmt ís-
lenskum lögum er
óheimilt að sökkva
úr sér gengnum skipum í sæ.
Samkvæmt lauslegri athugun sem um-
hverfisnefnd Hafnarsambands sveitarfé-
laga gerði í árslok 2000 á langlegu- og reiði-
leysisskipum voru 158 verkefnalaus skip í
höfnum landsins. Talið er að í þessum skip-
um séu um 70 þúsund tonn af járni en kostn-
aður við förgum stálskipa er um 15 þúsund
krónur á tonn. Því má áætla að förgunar-
kostnaður þessara skipa sé rúmlega einn
milljarður króna. Þá eru skipin sögð taka
um 5 kílómetra viðlegupláss í höfnunum.
Kostnaður við gerð viðlegukanta er um 1,2–
1,3 milljónir króna á hvern metra og því má
áætla að skipin teppi viðlegupláss sem kost-
ar ríflega 6 milljarða króna. Þess ber þó að
geta að skipin liggja venjulega hvert utan á
öðru í höfnunum og taka því minna viðlegu-
pláss en ef þeim væri raðað hverju fram af
öðru.
Þá fellur verulegur kostnaður á hafnirnar
vegna eftirlits með skipunum, auk þess sem
í mörgum tilfellum gengur erfiðlega að inn-
heimta hafnargjöld vegna þeirra, enda út-
gerðir þeirra í sumum tilfellum gjaldþrota.
Þingmennirnir Einar Kristinn Guðfinns-
son og Kristján Pálsson lögðu á yfirstand-
andi þingi fram frumvarp til breytinga á lög-
um um varnir gegn mengun sjávar þar sem
lagt er til að heimilað verði að sökkva úr sér
gengnum skipum til ársloka 2004, enda yrði
kostnaður af því hverfandi samanborið við
eyðingu með öðrum hætti.
Á annað hundrað verk-
efnalaus og úrelt skip
í höfnum landsins
Reiðileysi/B6
Förgun
kostar um
milljarð
króna
Hrauney BA lá um
árabil í reiðileysi í
Hafnarfjarðarhöfn.