Morgunblaðið - 30.01.2003, Qupperneq 6
FRÉTTIR
6 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DANIR hafa samþykkt að afhenda
Íslendingum til varðveislu ýmis skjöl
ráðuneytis Íslandsmála 1848 til 1904,
og þar á meðal fyrstu stjórnarskrá
Íslands frá 1874. Eftir á að ganga frá
samkomulaginu formlega en gert er
ráð fyrir að afhendingin fari fram í
vor, að sögn Tómasar Inga Olrich
menntamálaráðherra.
Tómas Ingi Olrich og Brian Mich-
elsen, menningarmálaráðherra Dan-
merkur, áttu fund í Kaupmannahöfn
í gær. Þeir ræddu ýmis málefni varð-
andi viðræður þeirra um samvinnu í
menningarmálum og ekki síst í sam-
bandi við hugmyndir, sem Tómas
Ingi hefur sett fram um aukið sam-
starf á þessu sviði og óskir um við-
ræður við Dani um frekari afhend-
ingu á menningarminjum.
„Nú liggur fyrir samkomulag milli
okkar ráðherranna um að Íslending-
um verði afhent til varðveislu þau
skjöl ráðuneytis Íslandsmála frá
1848 til 1904, sem ekki féllu í hlut Ís-
lands við sambandslagasamninginn,“
segir Tómas Ingi. „Þarna er um að
ræða grundvallarheimildir íslenskr-
ar sögu á þessu tímabili og á meðal
skjalanna er fyrsta stjórnarskrá Ís-
lands frá 1874. Þetta eru mjög mik-
ilvæg gögn fyrir okkur og í sjálfu sér
afar ánægjulegt að þetta skuli gerast
á 120 ára afmæli Þjóðskjalasafns Ís-
lands.“
Gengið var frá því að þjóðskjala-
vörðum landanna yrði falið að gera
drög að samkomulagi um afhendingu
þessara gagna sem vonir standi til að
hægt verði að staðfesta fyrir vorið.
Ráðherrarnir skoðuðu líka fram-
kvæmdir við Norðurbryggju, þar
sem m.a. verður vestnorrænt menn-
ingarsetur Íslands, Færeyja og
Grænlands í Kaupmannahöfn og ís-
lenska sendiráðið, en stefnt er að því
að vígja húsið í haust. Þeir gengu frá
því að íslenskir forngripir í vörslu
Dana verða sýndir þegar sýningar-
salur verður opnaður í Íslands-
bryggjuhúsinu. Ennfremur var rætt
um að við opnum Þjóðminjasafns Ís-
lands 2004 yrðu íslenskir forngripir í
vörslu Dana sýndir við það tækifæri.
Hróður Dana fer víða
„Ég tel þetta mikinn feng fyrir
okkur og það er ekki lakara að fá
stjórnarskrána heim, þó að hún hafi
verið prentuð og sé öllum kunn,“ seg-
ir Ólafur Ásgeirsson þjóðskjalavörð-
ur.
Ólafur segir að við sambandslaga-
samningana hafi, samkvæmt ósk
Dana, þessi hluti af skjölum úr ís-
lenska stjórnarráðinu og áður ís-
lensku stjórnardeildinni, sem hafi
verið hér frá 1904, verið sendur til
baka til Kaupmannahafnar. 1928 hafi
Danir afhent Íslendingum gríðarlega
mikið af skjölum úr dönskum söfnum
til varðveislu og þau hafi skipt miklu
máli í sambandi við rannsóknir og
fleira. Hreyft hafi verið við skjala-
samskiptunum fyrir um áratug og
eftir viðræður undanfarin misseri
hafi danska ríkisskjalasafnið lýst sig
reiðubúið til að afhenda þessi skjöl
hingað og fylla þannig í skörðin í
skjölum stjórnardeildarinnar. Þetta
séu m.a. tillögubækur til konungs um
lagasetningu og annað þvíumlíkt og
því rök fyrir lögum og þar með
stjórnarskránni, bréfabækur, kon-
ungsúrskurðir og fleira. „Þetta eru
frumgögn Íslandsráðherra á þessum
tíma og þau hafa gríðarlegt gildi,“
segir hann.
Að sögn Ólafs var í framhaldi af
þessari ákvörðun um afhendingu
skjalanna sett af stað verkefni við að
taka afrit af skjölum sem eru í Dan-
mörku og verða þar áfram. „Við er-
um að hefja áframhaldandi samstarf
sem hefur verið mjög einstakt,“ segir
hann. „Danir hafa haft mjög ein-
stæða afstöðu í þessum málum og
hróður þeirra fer víða í heiminum út
á þetta.“
Ljósmynd/Jens Dige
Morten Meldegaard sýnir Þorsteini Pálssyni sendiherra, Tómasi Inga Olrich menntamálaráðherra, Brian Michel-
sen menningarmálaráðherra og Guðmundi Árnasyni ráðuneytisstjóra framkvæmdir við Norðurbryggju.
Danir afhenda skjöl
ráðuneytis Íslandsmála
MYNDARDRENGUR fæddist í
sjúkrabíl á leiðinni frá Stykkis-
hólmi til Akraness í síðustu viku.
Með í för var ljósmóðir og aðstoð-
armaður sem tóku á móti barninu.
Foreldrar drengsins, Alda Páls-
dóttir og Báður Eyþórsson, ætluðu
að keyra á eigin bíl til Akraness
en ákváðu á síðustu stundu að
koma við á sjúkrahúsinu í Stykk-
ishólmi. „Það var eins gott,“ segir
Bárður, „ég sé mig í anda einn á
Mýrunum um hánótt að taka móti
barni í bílnum hjá mér. Ég hefði
sjálfsagt reynt að bjarga mér, því
þetta er ekki fyrsta fæðingin sem
ég er viðstaddur. Ef svo hefði far-
ið held ég að það hefði tekið mig
ekki skemmri tíma að jafna mig
eftir fæðinguna en Öldu.“
Bárður er körfuboltamaður sem
þjálfar lið Snæfells sem leikur í
úrvalsdeild Íslandsmótsins í körfu-
bolta. En það er fleiri krefjandi
verkefni sem hann hefur þurft að
sinna síðustu daga því hann var
ásamt konu sinni í sjúkrabílnum
aðfaranótt 23. janúar þegar sonur-
inn kom í heiminn.
Þar sem ekki er aðstaða til að
fæða á St. Fransiskusspítalinum í
Stykkishólmi átti að flytja Öldu á
Akranes. Á miðri leið gat barnið
ekki beðið lengur og vildi sjá
heiminn. Varð sjúkrabílinn að
stöðva úti í vegkanti við Kaldár-
mela við Eldborg og um leið hann
hafði stöðvast kom 16 marka
hraustlegur piltur í heiminn. Sem
betur fór voru ljósmóðir og að-
stoðarmaður með í för svo að
reyndi ekki á kunnáttu Bárðar í
ljósmóðurstörfum. Fæðingin í
sjúkrabílnum gekk vel þó að að-
stæður væru ekki þægilegar.
Þarna fæddist þeim Öldu og Bárði
fjórða barn sitt.
Fæddist í
sjúkrabíl á
Kaldármelum
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
Alda Pálsdóttir og Bárður Eyþórsson heima með drenginn. Þar tóku á móti
þeim systkinin, Kristþóra Auður 8 ára, Páll 9 ára og Bárður Jens 6 ára.
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
dæmdi í gær hálfþrítugan karlmann
í sex mánaða fangelsi fyrir að hafa
samfarir við konu gegn hennar vilja
en hún gat ekki spornað við verkn-
aðinum vegna svefndrunga. Maður-
inn neitaði að hafa haft samfarir við
konuna en breytti framburði sínum
eftir að DNA-rannsókn leiddi hið
gagnstæða í ljós.
Maðurinn var fyrrverandi kærasti
konunnar en atvikið átti sér stað á
heimili hennar. Dómnum þótti fram-
burður konunnar vera skýr og trú-
verðugur en hún lýsti því að hún
hefði vaknað við að maðurinn hafði
dregið niður um hana nærklæði og
var að hafa samfarir við hana. Þá var
hún nýsofnuð, en hún hafði neytt
áfengis um nóttina og ekki sofið í um
sólarhring. Framburður mannsins
var aftur á móti á reiki. Við lögreglu-
yfirheyrslu sagði hann m.a. að engar
samfarir hefðu átt sér stað, hann
myndi muna eftir því ef svo væri.
Þegar honum voru kynntar niður-
stöður DNA-rannsóknar þar sem
staðfest var að sáðfrumur úr honum
voru í leggöngum konunnar, neitað
hann enn samförum en taldi að hann
hefði annað hvort athafnað sig í
svefni eða sjálfur verið misnotaður.
Þessar skýringar þótti dómnum
ótrúverðugar. Auk fangelsisrefsing-
ar var maðurinn dæmdur til að
greiða konunni 200.000 krónur í
miskabætur auk málskostnaðar.
Héraðsdómararnir Hjördís Há-
konardóttir, Arngrímur Ísberg og
Hervör Þorvaldsdóttir kváðu upp
dóminn. Sigríður Jósefsdóttir sak-
sóknari sótti málið af hálfu ríkissak-
sóknara en Björn Ólafur Hallgríms-
son hrl. var skipaður verjandi.
Réttargæslumaður konunnar var
Þórdís Bjarnadóttir hdl.
Fangelsisdómur fyrir kynferðisbrot
Breytti framburði
eftir DNA-rannsókn
FYRSTA opnun Bláfjalla í vetur
varð hálfendaslepp í gær. Aðeins
nokkrum mínútum eftir að stóla-
lyfta í Kóngsgili hafði verið opnuð
þurfti að loka henni að nýju vegna
hvassviðris. Aðeins forstöðumað-
ur og framkvæmdastjóri Bláfjalla
fengu far með lyftunni áður en
þurfti að loka. Borgarlyftu var þó
haldið opinni fyrir það skíða- og
brettafólk sem komið var á svæð-
ið. Grétar Hallur Þórisson for-
stöðumaður Bláfjalla sagði snjó-
inn nægan til að opna stólalyftu í
Kóngsgili, borgarlyftu og byrj-
endalyftu um leið og veður leyfði.
Nú stendur yfir átak meðal
skíðasvæðanna um að auka öryggi
í skíðabrekkum. Fyrir liggur að
hengja upp reglur varðandi ör-
yggi skíðabrettanotenda. „Við
höfum frétt af mjög alvarlegum
slysum úti í Evrópu, þar á meðal
tveimur dauðaslysum, þar sem
laus bretti hafa runnið af stað nið-
ur brekkur og lent á fólki,“ sagði
Grétar. „Við viljum ekki bíða eftir
slysi. Við ætlum að reyna að fá
brettafólk og aðra í lið með okkur
og gera alvöru átak í þessum mál-
um.“ Hann sagði alltof algengt
hér á landi að bretti rynnu frá
brettafólki og stjórnlaus áleiðis
niður brekkurnar. Slíkt gerðist
einmitt sl. laugardag á Heng-
ilssvæðinu. Brettið lenti á skíða-
manni sem var heppinn að sleppa
við meiðsli. Af þessum völdum er
brettafólki skylt að hafa bretti
alltaf fast við annan fótinn með ör-
yggisól. . Einnig er mælst til þess
að brettafólk setjist ekki í troðnar
skíðaleiðir, né heldur búi þar til
stökkbretti.
Endaslepp opnun í Bláfjöllum í gær
Átak til að auka ör-
yggi í skíðabrekkum