Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 26
26 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BANDARÍKJAMENN munu leggja fram nýjar sannanir um vopnaáætlanir Íraka í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna í næstu viku. Þetta kom fram í stefnuræðu George W. Bush Bandaríkjaforseta í fyrrakvöld en Bush fullyrti m.a. í ræðunni að tengsl væru á milli stjórnvalda í Bagdad og al-Qaeda- hryðjuverkasamtakanna. Sagði forsetinn að Bandaríkin myndu ekki skirrast við að fara með hernaði gegn Írak ef þarlend stjórn- völd yrðu ekki við kröfum öryggisráðsins um afvopnun. „Við munum hafa samráð [við aðra] en það þarf enginn að velkjast í vafa um að ef Saddam Hussein [forseti Íraks] afvopnast ekki að fullu þannig að öryggi okkar borg- ara sé að fullu tryggt, og til að tryggja frið í heiminum, þá munum við fara fyrir banda- lagi ríkja með það í huga að afvopna hann,“ sagði Bush m.a. í stefnuræðunni sem var sjónvarpað beint í Bandaríkjunum. Forsetinn vék að ýmsum öðrum stefnu- málum, s.s. þeim skattalækkunum sem hann vill að Bandaríkjaþing samþykki og umbótum á heilbrigðis- og sjúkratrygginga- kerfinu. Þá hvatti hann þingið til að afgreiða áætlun stjórnarinnar í orkumálum sem þar dagaði uppi í fyrra. Ennfremur tilkynnti Bush að hann vildi eyða 15 milljörðum Bandaríkjadala á næstu fimm árunum til baráttunnar gegn alnæmi (AIDS) í þriðja heiminum. Voru demókratar ekki lengi að gagnrýna ræðu forsetans hvað þessi mál varðar en þeir segja að halli á ríkissjóði og skatta- lækkanir forsetans muni gera það að verk- um að stjórnin hafi ekki efni á að uppfylla þau loforð sem Bush gaf á þriðjudag. „Ef þetta er ekki illska“ Íraksmálin svifu þó alltaf yfir vötnum þegar forsetinn flutti ávarp sitt og telja má víst að sá ásetningur Bush að ná sínu fram í Íraksdeilunni, muni skyggja á öll önnur verk hans á næstu misserum. Bush lýsti því ekki yfir að stríð væri óumflýjanlegt en af tóni ræðunnar mátti ráða að hann teldi tímabært að búa bandarísku þjóðina undir það að sennilega muni koma til hernaðar- átaka. Vitað var að fylgst yrði vel með þessari ræðu Bush, bæði heima og heiman. Forset- inn varð hins vegar ekki að þessu sinni við kröfum um beinharðar sannanir á þeim full- yrðingum Bandaríkjastjórnar að Írakar væru brotlegir við ályktun öryggisráðsins frá því í haust. Í staðinn lagði Bush áherslu á að reyna að eyða efasemdum, sem tekið hafa að gera vart við sig meðal almennings í Bandaríkjunum, um nauðsyn þess að ráðast á Írak ef Saddam verður ekki við kröfum um afvopnun. Gerði hann því m.a. skóna að um siðferði- legt álitamál væri að ræða. „Ef þetta er ekki illska,“ sagði Bush eftir að hann hafði rakið hvernig Saddam hefði pyntað eigin þjóð, „þá hefur orðið illska enga merkingu.“ „Fyrir næstum þremur mánuðum gaf ör- yggisráð Sameinuðu þjóðanna Saddam Hussein lokatækifæri til að afvopnast,“ sagði Bush. „Hann hefur hins vegar sýnt Sameinuðu þjóðunum megnustu fyrirlitn- ingu og um leið íbúum þessa heims. Einræð- isherrann í Írak er ekkert að afvopnast. Þvert á móti þá er hann að blekkja fólk.“ Sagði Bush að Saddam myndi ekki breyta hegðun sinni fyrr en hann væri neyddur til þess. „Hann hefur greinilega margt að fela,“ sagði forsetinn. Þá tengdi Bush Írak beint við baráttuna gegn hryðjuverkum og þó að hann færði engar sannanir fyrir stað- hæfingu sinni fullyrti hann að stjórnvöld í Bagdad hefðu átt samvinnu við al-Qaeda. „Ýmis njósnagögn, leynilegar fullyrðing- ar og framburður manna, sem nú eru í haldi, sýna að Saddam Hussein hjálpar og heldur hlífiskildi yfir hryðjuverkamönnum, þ. á m. liðsmönnum al-Qaeda,“ sagði Bush. Powell færir öryggisráðinu sönnunargögn í næstu viku Bush lagði áherslu á að sönnunarbyrðin væri ekki á Bandaríkjunum eða vopnaeft- irlitsmönnum SÞ. Það væri Íraka að sanna að þeir ættu ekki gereyðingarvopn. „Sumir hafa sagt að við ættum ekki að beita valdi fyrr en ógnin [af Írak] er yfirvofandi,“ sagði Bush. „En síðan hvenær hafa hryðjuverka- menn og harðstjórar tilkynnt fyrirfram um áætlanir sínar? [...] Að leggja traust sitt á geðheilbrigði Saddams Husseins og getu hans til að sýna stillingu er ekki gáfulegt og kemur ekki til greina.“ Þrátt fyrir þessi orð forsetans brást hann engu að síður við óánægju Evrópumanna og ýmissa í Bandaríkjunum er tengist afstöðu Fullyrti að tengsl væru milli Íraks og al-Qaeda George W Cheney va Washington. AFP, Los Angeles Times, Washington Post. George W. Bush Bandaríkjaforseti tók á þriðju- dagskvöld að búa þjóð sína undir hernaðarátök við Írak en þá flutti hann stefnuræðu sína í húsakynn- um Bandaríkjaþings. Hann boðar sönnunargögn um brot Íraka á ályktunum öryggisráðs SÞ. MARGIR b eftir því að Colins Pow isráðherra með örygg þjóðanna n verður jaf fundur öry 25. októbe Í eftirm skiptum þ dag skora þáverandi Bandaríkj erian Zori étríkjanna ist tafarla „Neitar þú herra, að S séu að kom orkuflaug beinskeytt eftir því að spurningu Fe sp KÝRIN Skræpa, sem er í eigu Jó- hanns Nikulássonar og Hildar Ragnarsdóttur, bænda í Stóru- Hildisey II í A-Landeyjum, mjólk- aði mest allra kúa á Íslandi í fyrra. Hún er ekki óvön því að vera á toppnum því að hún var í þessu sama sæti árið 2001 og hún var í öðru sæti árið 2000. Frá því að Skræpa bar í fyrsta skipti árið 1995 hefur hún mjólkað rösklega 50 tonn. Í fyrra mjólkaði Skræpa 10.523 kg, árið 2001 mjólkaði hún 12.038 kg og árið 2000 mjólkaði hún 11.519 kg. Meðalafurðir hennar í þau rúmlega fimm ár sem hún er búin að mjólka eru nálægt 9.000 kg. Hildisey II að meðaltali 7.1 Þetta er annað afurðamest landinu, næst á eftir félags Baldursheimi í Mývatnssve það hefur verið á toppnum toppinn í mörg ár. Jóhann og Hildur bjuggu Jón Viðar Jónmundsson naut- griparæktarráðunautur segir þetta frábæran árangur. Fá dæmi væru um jafnmiklar og stöðugar afurðir hjá einum grip. „Skræpa er einstaklega góður gripur. Hún er þægileg í allri um- gengni og gott að mjólka hana,“ sagði Jóhann í Stóru-Hildisey. Skræpa er heilsuhraust að sögn Jóhanns og sagðist hann ekki sjá fram á annað en að hún ætti nokk- ur ár eftir enn. Jóhann hefur eign- ast þrjár kýr sem eru undan Skræpu og sagði hann að ein af þeim ætlaði að koma mjög vel út en hinum hefur verið slátrað. Í fyrra mjólkuðu kýrnar í Stóru- Skræpa heldur fyrsta sætinu Skræpa hefur mjólkað um FLEIRI KOSTIR EN STÓRIÐJA Sú fullyrðing Halldórs Halldórs-sonar, bæjarstjóra Ísafjarðar-bæjar, að hann vilji nýta kraft- inn sem býr í unnendum náttúrunnar til uppbyggingar á Vestfjörðum verð- skuldar athygli. Ekki einungis vegna þess að á Vestfjörðum eru ekki sömu möguleikar á sviði stóriðju og í öðrum landshlutum, heldur einnig vegna þess að náttúruverndarsinnar hafa legið undir ámæli fyrir að leggja ekki fram raunhæfar tillögur er komið gætu í stað stóriðju til lausnar bág- bornu atvinnuástandi, svo sem á Aust- fjörðum. Enginn sem lætur sig framtíð Ís- lands varða getur horft framhjá þeim djúpstæða ágreiningi sem fyrirhuguð Kárahnjúkavirkjun hefur valdið með- al þjóðarinnar. En þó að hæpið megi teljast að hægt verði að sætta þær fylkingar er greinir svo mjög á í þessu máli, er fullvíst að margir í báðum fylkingum hafa mátt kljást við æði blendnar tilfinningar í afstöðu sinni, þar sem langtímahagsmunir þeirra kynslóða sem erfa munu landið eru vegnir á móti hagsmunum þeirra sem hér og nú standa frammi fyrir því að sjá sér og sínum farborða á stöðum þar sem atvinnumöguleikar eru mjög takmarkaðir. Nýjar leiðir í atvinnu- uppbyggingu gætu því skipt sköpum varðandi afstöðu almennings í fram- tíðinni. Bæjarstjóri Ísafjarðar telur Vest- firðinga eiga samleið með fólki sem vill nýta náttúruna á annan hátt en með virkjun fallvatna og stóriðju. Áeggjan hans er eftirtektarverð að því leyti að ef náttúruverndarsinnar taka henni af alvöru mætti nota Vest- firði – þótt þeir séu ekki í bráðri hættu frá náttúruverndarsjónarmiði – til þróunarstarfs, þar sem sýnt væri og sannað að aðrar leiðir en stóriðja séu færar í atvinnuuppbyggingu og eflingu efnahagslífsins. Þær forsend- ur sem þannig yrðu til á Vestfjörðum gætu, ef vel tekst til, orðið raunhæfur valkostur við stóriðju í framtíðinni og þannig komið í veg fyrir að enn lengra sé seilst í þá átt að skerða ósnortin öræfi landsins. Náttúrufegurð á Vestfjörðum er stórbrotin og sérstök hvort heldur sem litið er til þeirra staða sem enn eru í byggð eða hinna sem afskekktari eru og nánast ósnortnir af mannavöld- um. Þó að möguleikar á sviði nýsköp- unar virðist ekki margir í sjónmáli nú, mætti með samstilltu átaki þróa nýjar leiðir auk þeirra sem oftast eru nefnd- ar á sviði ferðaþjónustu, hátækni og matvælaframleiðslu. Áform um Kára- hnjúkavirkjun voru m.a. knúin fram með fyrirheiti um bætta afkomu allrar þjóðarinnar. Það er því ekki nema sanngjarnt að einhver hluti þess arðs sem fæst fyrir það sem þjóðin hefur fórnað af hálendinu skili sér til baka með þeim hætti að fjárfest sé í nýjum lausnum annars staðar. Til þess að slíkt fyrirbyggjandi starf eigi sér stað gætu andstæðingar stóriðju og virkj- anaframkvæmda í óbyggðum snúið vörn á þeim vígstöðvum sem tapast í sókn á öðrum. TILNEFNING ÞINGVALLA Á HEIMSMINJASKRÁ Því heyrist iðulega fleygt að við bú-um um þessar mundir í heims- þorpi, svo hafi heimurinn skroppið saman á tímum greiðra samgangna og fjölmiðlunar sem tryggir að unnt sé að fylgjast með atburðum hinum megin á hnettinum um leið og þeir gerast. En heimsþorpið vísar ekki aðeins til fjöl- miðlunar og samgangna, heldur einnig þess að hversu ólíkar, sem þjóðir heims kunna að vera, er menningar- arfur mannkyns sameiginlegur í allri sinni fjölbreytni og fjöldi staða í heim- inum er einstakur og á ábyrgð viðkom- andi lands að tryggja að þeim verði ekki fargað, heldur haldið við og þeir verndaðir. Á vegum Menningarstofnunar Sam- einuðu þjóðanna er svokölluð heims- minjaskrá. Á henni eru 730 staðir í 125 löndum. Þeir eru taldir einstakir í heiminum og hluti af sameiginlegri arfleifð mannkyns. Á heimsminjaskrá UNESCO eru meðal annars pýramíd- arnir í Egyptalandi, Stonehenge á Englandi, Kínamúrinn, Taj Mahal á Indlandi, Galapagos-eyjar og Mikla- gljúfur í Bandaríkjunum. Á þriðjudag var undirritað í Þjóð- menningarhúsinu samkomulag um að tilnefna Þingvelli á heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna og verður til- nefningin afhent í höfuðstöðvum UNESCO í París fyrir 1. febrúar. Það er rökrétt að hefjast handa á því að tilnefna Þingvelli á heimsminja- skrána. Þingvellir gegna ekki aðeins stóru hlutverki í huga og sögu okkar Íslendinga heldur má segja að það þinghald, sem þar fór fram eftir að landið byggðist sé einn liðurinn í þróun þess stjórnarfars sem við nú búum við og er fólgið í því að dreifa valdi og til- urð réttarríkisins. Um leið eru Þing- vellir einstök náttúruperla þar sem álfurnar mætast í jarðfræðilegum skilningi, Evrópa og Ameríka, gamli og nýi heimurinn, ef svo má að orði komast. Tilnefningunni fylgir rækileg grein- argerð um staðinn með nákvæmum staðarlýsingum og rökstuðningi fyrir vægi Þingvalla í menningarsögulegum og náttúrufarslegum skilningi. Einnig er gerð grein fyrir réttarstöðu stað- arins og verndun hans. Björn Bjarna- son, formaður Þingvallanefndar, og Davíð Oddsson forsætisráðherra und- irrituðu tilnefninguna. Kvaðst Björn telja að enn frekar yrði vandað til verka í tengslum við uppbyggingu á Þingvöllum fengi staðurinn þá viður- kenningu, sem felst í að komast á heimsminjaskrá, enda gerðu menn sér miklar væntingar þegar þeir kæmu á slíka staði. Nú tekur við mat nefndar um arf- leifð þjóðanna og er niðurstöðu hennar að vænta á næsta ári þegar lýðveldið verður 60 ára. Einnig hefur verið ákveðið að tilnefna Skaftafell á heims- minjaskrá og er stefnt að tilnefningu fyrir 1. febrúar á næsta ári. Aðrir stað- ir, sem hugsanlegt er að verði tilnefnd- ir eru Breiðafjörður, Núpsstaður, Keldur, Gásir, Reykholt, Víðimýri, Surtsey, Mývatn, Herðubreiðarlindir og Askja. Þessar tilnefningar eru mikilvægur þáttur í að varðveita þjóðlega og menningarlega arfleifð okkar Íslend- inga.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.