Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 41
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 41 Kringlunni 4 -12, sími 568 6211 Skóhöllin, Firði, Hf., sími 555 4420 ÚTSÖLULOK ENN MEIRI AFSLÁTTUR 20-70% af öllum dömu- herra og barnaskóm afsláttur Dömu-, herra- og barnaskór Mörg spennandi tilboð t.d. Moonboots Áður 4.490 Nú 1.990 Barnakuldaskór Áður 4.990 Nú 1.990 50-60% af öllum barnakuldaskóm 50% af dömu- og herrakuldaskóm 30% af gönguskóm Dömukuldaskór Áður 7.990 Nú 3.490 Mörkinni 3, sími 588 0640 Opið mán.-fös. kl. 11-18, lau. kl. 11-15 Húsgögn Sérpantanir UNDANFARNAR vikur hafa áhafnir varðskipanna Týs og Ægis sótt öryggisfræðslu hjá Slysa- varnaskóla sjómanna. Það er skil- yrði fyrir lögskráningu sjómanna á skip að þeir hafi lokið slíku nám- skeiði og síðan þarf að sækja þá fræðslu á fimm ára fresti. Æfð var björgun úr sjó, reyk- köfun og eldvarnir. Áhafnir Ægis og Týs eru fyrstu skipshafnir sem fara á endurfræðslunámskeið hjá Slysavarnaskóla sjómanna. Hluti námskeiðsins var haldinn á æfingasvæði Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins við Úlfars- fell en þar var æfð reykköfun og slökkvistarf. Gæslumenn á námskeiði LISTASAFN Einars Jónssonar á Skólavörðuholti verður aftur opnað almenningi laugardaginn 1. febrúar eftir vetrarhlé. Opið verður um helgar kl. 14-17 til loka maímánaðar, en daglega nema mánudaga á sama tíma yfir sumar- mánuðina. Höggmyndagarður safns- ins við Freyjugötu er hins vegar allt- af opinn. Á síðasta ári var lögð skábraut inn í garðinn og að inn- gangi inn í safnið frá garðinum sem gerir fólki í hjólastól kleift að koma þar inn. Þessar framkvæmdir voru styrktar af BM Vallá, Íslenskum að- alverktökum og Íslandsbanka FBA. Listasafn Einars Jónssonar opnað á ný Bætt aðgengi fatlaðra FORSETI Ník- aragva, Enrique Bolanos Geyer, hefur skipað Margréti S. Björnsdóttur, forstöðumann Stofnunar stjórn- sýslufræða og stjórnmála við Háskóla Íslands, kjörræðismann Níkaragva á Íslandi. Þetta er í fyrsta skipti sem Ník- aragva skipar hér kjörræðismann. Aðsetur kjörræðismanns er á Lauf- ásvegi 45 í Reykjavík. Skipuð kjör- ræðismaður Níkaragva Margrét S. Björnsdóttir Systkini Þóreyjar Eiríksdóttur Í formála minningargreina um Þóreyju Eiríksdóttur í blaðinu í gær misrituðust upplýsingar um systkini hennar. Þórey átti 12 systkini, þau eru: Skarphéðinn, lát- inn, Ólína, Ragnheiður, látin, Valdi- mar, látinn, Árni, Vermundur, lát- inn, Sigurgeir, Sigríður, Dýrólína, Haukur og Karl. Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. Mistök í krossgátu Vegna mistaka í vinnsluferli sunnudagskrossgátunnar komust tvær meinlegar villur í gegn í síð- ustu sunnudagskrossgátu. Réttar eru vísbendingarnar: Lárétt 14. Grámi í margföldunar- töflu. (3) 26. Óseyri sem kemur fjórða í röðinni. (5) Beðist er velvirðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT Rísum ofar rasisma 4. febrúar næstkomandi stendur Heimsþorp – samtök gegn kynþáttafordómum á Íslandi fyrir tónleikum undir yf- irskriftinni Rísum ofar rasisma. Fjöldamargar hljómsveitir leiða þar saman hesta sína í þágu góðs mál- efnis sem mikil þörf er á að vera vakandi yfir, segir í fréttatilkynn- ingu. Heimsþorp eru samtök sem trúa að samfélagi án kynþátta- fordóma muni vegna betur. Sam- tökin hafa verið starfandi síðan í maí 2001 og beita sér einna helst fyrir jákvæðri umræðu um fjöl- menningarlegt samfélag. Tónleikarnir hefjast kl. 19 á Gauki á Stöng. Það er frír aðgangur og ekk- ert aldurstakmark. Fram koma Maus, Stjörnukisi, Forgotten Lor- es, Vígspá, Dys, Innvortis og Dáða- drengir. Einnig verða gefins Heims- þorpsbolir meðan birgðir endast. Tónleikana styrkja Gaukur á Stöng, Edda, Skífan, Jómfrúin, Hitt húsið, Mál og menning, Flytjandi, Casa grande og On rush design. Á NÆSTUNNI Meistaraprófsfyrirlestur Mar- grét Dóra Ragnarsdóttir flytur fyrirlestur um meistaraverkefni sitt við tölvunarfræðiskor verk- fræðideildar Háskóla Íslands á morgun, föstudaginn 31. janúar, kl. 16.15, í stofu 158 í VR-II, Hjarðarhaga 2–6. Do you copy? Notkun tungutækni til að styðja samskipti í flugumferðarstjórn. Leiðbeinendur eru Ebba Þóra Hvannberg, dósent við tölv- unarfræðiskor verkfræðideildar Háskóla Íslands, og Helga Waage, tæknistjóri Hex. Umsjónarkennari er Hjálmtýr Hafsteinsson, dósent við tölvunarfræðiskor verk- fræðideildar Háskóla Íslands. Prófrýnir er Prófessor Oddur Benediktsson við tölvunarfræði- skor verkfræðideildar Háskóla Ís- lands. Fyrirlesturinn er öllum op- inn meðan húsrúm leyfir. Fyrirlestur um fötlunarrann- sóknir verður haldin á morgun, föstudaginn 31. janúar, kl. 12–13 í stofu 101 í Odda, Háskóla Íslands og er öllum opinn. Hanna Björg Sigurjónsdóttir flytur erindið Sjónarhorn og reynsla stuðnings- aðila seinfærra/þroskaheftra for- eldra. Fyrirlesturinn fjallar um reynslu og sjónarhorn starfsfólks/ fagfólks sem veitir seinfærum/ þroskaheftum foreldrum og börn- um þeirra stuðning og þjónustu. Fyrirlesturinn er hluti af fyr- irlestraröð um fötlunarrannsóknir sem uppeldis- og menntunarfræði- skor við félagsvísindadeild Há- skóla Íslands gengst fyrir í vetur í samstarfi við Landssamtökin Þroskahjálp og Öryrkjabandalag Íslands. Samtökin ’78 og Mannréttinda- skrifstofa Íslands bjóða til mál- þings um atvinnumál í Norræna húsinu föstudaginn 31. janúar kl. 15–17 og nefnist það Samkyn- hneigðir á vinnumarkaði. Frum- mælendur eru Rannveig Trausta- dóttir, dósent við HÍ; Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður; Páll Hreins- son, prófessor við HÍ og formaður stjórnar Persónuverndar; Berg- þóra Ingólfsdóttir, fulltrúi á lög- mannsstofu; Árelía E. Guðmunds- dóttir, lektor við HR, og Halldór Guðmundsson útgefandi. Fund- arstjóri er Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður. Fjallað er um íslenska löggjöf eins og hún snýr að samkynhneigðum á vinnu- markaði. Rætt er persónuvernd, einkalíf og siðferði í starfs- mannaráðningum o.fl. Almennar umræður og fyrirspurnum svarað. Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir. Þróun í málefnum fatlaðra Í til- efni af Evrópuári fatlaðra heldur Margrét Margeirsdóttir, félagsráð- gjafi og fyrrverandi deildarstjóri málefna fatlaðra í félagsmálaráðu- neytinu, opinberan fyrirlestur á vegum félagsráðgjafar við Háskóla Íslands sem ber heitið Fötlun og samfélag: Þróun í málefnum fatl- aðra hér á landi. Fyrirlesturinn verður í hátíðarsal Háskóla Íslands, Aðalbyggingu, föstudaginn 31. janúar kl. 16.15. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Vatnaskúfur Föstudaginn 31. jan- úar mun Marienne Jensdóttir, meistaranemi við líffræðiskor, vera með fyrirlestur á Líffræðistofnun kl. 12.20 í stofu G-6 á Grensásvegi 12. Fyrirlesturinn ber heitið: Vatna- skúfur (Aegagropila linnaei) sem búsvæði fyrir mýlirfur (Chirono- midae) og kornátu (Eurycercus lamellatus). Þetta er hluti af MS-verkefni við Náttúrurannsóknarstöðina við Mý- vatn. Fyrirlesturinn fjallar um tilraunir sem gerðar voru sumarið 2002. „Vatnaskúfur (Aegagropila linna- ei), einnig þekktur sem kúluskítur er mjög algengur grænþörungur í suðurhluta Mývatns. Rannsóknir hafa sýnt að mikið af smádýrum notar vatnaskúf og annan algeng- an grænþörung að nafni Clado- phora glomerata sem búsvæði. Jafnframt virðist sem önnur dýr forðist þessa þörunga og velji fremur setyfirborð án grænþör- unga. Lítið er þó vitað um þátt vatnaskúfs og annarra grænþör- unga sem búsvæði fyrir þessi smá- dýr í Mývatni. Fyrirlesturinn fjallar um tilraunir sem gerðar voru til að rannsaka val kornátu (Eurycercus lamellatus) og mýlirfa (Chironomidae) á þrem ólíkum bú- svæðum þar sem vatnaskúfur var miðpunktur tilraunanna,“ segir í fréttatilkynningu. Á MORGUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.