Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 18
SUÐURNES 18 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ BÚMENN munu byggja upp miðbæ Sandgerðis ef samningar nást við Sandgerðisbæ að lokinni undirbún- ingsvinnu sem hafin er. Þeir reisa tvö hús við Miðnestorg ásamt tengi- byggingu. Í þeim verða íbúðir af ýmsu tagi, bæjarskrifstofur, bóka- safn og þjónusta við aldraða auk þess sem gert er ráð fyrir aðstöðu fyrir aðra þjónustu við bæjarbúa, svo sem heilsugæslustöð, banka- útibú og endurskoðunarskrifstofu. Húsnæðissamvinnufélagið Bú- menn byggði átta íbúðir við Miðhús þar sem fyrir voru tíu íbúðir fyrir aldraða og þjónusturými. Íbúðirnar sem Búmenn byggðu eru ætlaðar fyrir 50 ára og eldri, eins og aðrar íbúðir sem félagið byggir. Í fram- haldi af því náðist samkomulag um að Búmenn tækju smám saman við íbúðunum í Miðhúsum af Sandgerð- isbæ, þegar þær losnuðu. Bæjarstjórn Sandgerðis hefur haft áform um uppbyggingu miðbæj- arkjarna, á svæði sem nefnt er Miðnestorg en þar er nú risið versl- unarhús Samkaupa. Þar hefur meðal annars verið gert ráð fyrir ráðhúsi. Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjar- stjóri segir að fyrri samvinna við Bú- menn hafi leitt til þreifinga um að fé- lagið kæmi að uppbyggingu í miðbænum og hafi þá einkum verið hugað að byggingu íbúða. Málið hafi síðan þróast í það að félagið hafi komið fram með hugmyndir um að annast uppbyggingu þeirra mann- virkja sem þar eru fyrirhuguð. Daníel Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri Búmanna, segir að fé- lagið hafi áhuga á að útvíkka starf- semi sína, einkum á sviði þjónustu við aldraða. Hafi félagið sýnt áhuga á að byggja ákveðna gerð að dvalar- heimili á þessu svæði ásamt þjón- ustumiðstöð fyrir aldraða, auk íbúða, og hugmyndin síðan þróast út í það að félagið hafi tekið að sér að kanna möguleika á að taka að sér byggingu þessara húsa í heild. Það sé vissulega nýtt í starfsemi Búmanna sem hafa einbeitt sér að byggingu íbúða fyrir 50 ára og eldri. 700 milljóna króna fjárfesting Undirritaður hefur verið ramma- samningur milli Sandgerðisbæjar og Búmanna um undirbúning þessarar uppbyggingar. Að sögn Daníels felst hann meðal annars í hönnun bygg- inganna og athugun á fjármögnun. Að þeirri vinnu lokinni verði gengið frá samningum um uppbygginguna. Byggð verða tvö hús, annað tveggja hæða og hitt þriggja og tengibygging á milli. Íbúðir verða á efstu hæð beggja húsanna. Ekki hef- ur verið ákveðið hvernig íbúðirnar verða leigðar út, það verður að sögn Sigurðar að fara eftir þörfinni. Ljóst er þó að bæði yngri og eldri íbúar bæjarins munu eiga kost á að komast þangað inn. Íbúðirnar munu ýmist fara inn í leigukerfi Búmanna, fé- lagslega leiguíbúðakerfið eða á al- mennan leigumarkað. Bæjarskrifstofurnar fá aðra hæð þriggja hæða hússins til afnota og á jarðhæðinni verður bókasafn, þjón- usturými fyrir aldraða og jafnvel aðrar stofnanir. Á neðri hæð hins hússins er gert ráð fyrir heilsu- gæslu, og öðrum þjónustustofnunum svo sem bankaútibúi og endurskoð- unarskrifstofu. Markmiðið með þessu er að safna sem flestum þjón- ustustofnunum bæjarbúa á einn stað, í miðbæ Sandgerðis. Heildarstærð húsanna er um 3000 fermetrar og má búast við að kostn- aður við byggingu þeirra nálgist 700 milljónir króna. Gert er ráð fyrir að stærra húsið verði tekið í notkun á næsta ári og hitt um ári síðar. Uppbyggingu lýkur Reynir Sveinsson, formaður bæj- arráðs Sandgerðis, segir að með því að semja við Búmenn um uppbygg- ingu miðbæjarins með fyrirkomulagi einkaframkvæmdar sé hægt að byggja hann upp á stuttum tíma og ljúka uppbyggingunni eins og nauð- synlegt sé til þess að hann verði að- laðandi og aðgengilegur. Segir Reynir að mikil þörf sé orðin á því að koma bæjarskrifstofunum í betra og stærra húsnæði. Búið sé að byggja upp alla aðra vinnustaði bæj- arfélagsins og koma til nútímahorfs. Hins vegar sé uppbygging ráðhúss dýr framkvæmd. Bærinn hafi staðið í mikilli uppbyggingu á síðustu ár- um, meðal annars í skólamálum, og hann hafi ekki bolmagn til að byggja ráðhúsið fyrir eigin reikning. Sandgerðisbær mun taka á leigu húsnæði bæjarskrifstofanna og ann- arra stofnana bæjarins sem þar verða. Sigurður Valur vekur athygli á því að þær nýju tekjur af fasteigna- gjöldum sem renni til bæjarsjóðs af húsunum í miðbænum muni duga til að greiða leigugjald bæjarins. Þá segir hann að eftir ákveðinn ára- fjölda geti bærinn fengið kauprétt á því húsnæði sem hann leigir. Búmenn byggja upp miðbæ með ráðhúsi Forystumenn Sandgerðisbæjar við Miðnestorg þar sem byggður verður upp miðbæjarkjarni, f.v. Reynir Sveins- son, formaður bæjarráðs, Sigurður Valur Ásbjarnarson bæjarstjóri og Óskar Gunnarsson, forseti bæjarstjórnar. Sandgerði FIMMTÁN ára stúlka hefur í hér- aðsdómi verið dæmd í 40 daga skil- orðsbundið fangelsi fyrir eignaspjöll og þjófnað í tveimur afbrotum í Keflavík í fyrrasumar. Ákvörðun um refsingu þriggja samverkamanna hennar, á aldrinum 15-17 ára, var frestað. Ungmennin fjögur, þrjár stúlkur og einn piltur, játuðu brot sín ský- laust. Saman brutust þau fjögur í ágúst í fyrrasumar inn í Heilbrigð- isstofnun Suðurnesja og ollu skemmdum og eyðilögðu tölvuprent- ara auk þess að stela tölvulyklaborði, tölvumús og segulbandsupptöku- tæki. Stúlkan sem dæmd var braust ásamt annarri 15 ára stúlku inn í söluturn í Keflavík að nóttu til í októ- ber og stal 3.000 krónum í seðlum auk skiptimyntar og 80 pökkum af sígarettum. Við refsiákvörðun var höfð hlið- sjón af því að ákærðu voru mörg saman er þau frömdu brotin og að seinna innbrotið var fyrirfram skipu- lagt. Á hinn bóginn var litið til ungs aldurs fjórmenninganna og til þess að ekki var mikið tjón af brotunum. Var refsiákvörðun í máli þriggja frestað um tvö ár þar sem þau hafa ekki áður gerst sek um auðgunar- brot og kemur ekki til hennar haldi þau almennt skilorð. Sömuleiðis var fullnustu refsingar stúlkunnar sem dóminn hlaut frestað og fellur hún einnig niður að liðnum tveimur árum standist hún skilorðið. Bótakrafa Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í málinu þótti ekki studd nægilegum gögnum til þess að lagð- ur yrði á hana dómur gegn mótmæl- um og var henni því vísað frá dómi. Stúlka dæmd fyrir eignaspjöll og þjófnað Keflavík SKEMMDIR reyndust ekki veru- legar á botni togarans Berglínar GK 300 sem strandaði í innsiglingunni til Sandgerðis í gærmorgun. Þó varð að taka skipið í slipp og var það gert í Skipasmíðastöð Njarðvíkur í gær. Upp úr klukkan níu í gærmorgun drapst á vélum Berglínar þar sem skipið var að sigla inn til Sandgerð- ishafnar til löndunar. Skipverjunum tókst ekki að koma vélunum strax í gang svo skipið rak í áttina að landi. Starfsmenn stjórnstöðvar Land- helgisgæslunnar heyrðu tilkynn- inguna klukkan 9.17 og fór björg- unarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar í Sandgerði, Hannes Þ. Hafstein, til aðstoðar ásamt nær- stöddum bátum. Fljótlega tókst skipverjum á dragnótarbátnum Rúnu RE að koma taug í togarann til að reyna að halda honum frá landi. Um klukkan tíu slitnaði taugin og togarann rak hratt að landi þar til hann tók niðri á grynningum. Brimskaflar gengu þar yfir skipið. Var þá áhöfn þyrlu Landhelgis- gæslunnar kölluð út enda ljóst að um neyðarástand var að ræða. Um kortér yfir tíu komu skipverjar á Hannesi og Rúnu taugum um borð í Berglínu og um svipað leyti komust vélar skipsins aftur í gang. Tókst skipunum í sameiningu að ná togar- anum á frían sjó. TF-LÍF var lögð af stað frá Reykjavík þegar togarinn losnaði. Var þó farið á staðinn þar sem áhöfnin fullvissaði sig um að hennar aðstoðar væri ekki þörf. Skipstjórinn taldi að ekki hefði komið leki að skipinu og var því siglt fyrir eigin vélarafli til Njarðvíkur þar sem aflanum var landað og kaf- arar könnuðu skemmdir. Ingibergur Þorgeirsson, útgerðarstjóri hjá Nes- fiski, segir að skemmdir séu litlar, helst á hæl og botnstykki. Verði þó að taka skipið í slipp til að kanna skemmdirnar nánar og gera við þær. Tekinn í slipp til skoðunar og viðgerða Sandgerði bílar ALLTAF Á MIÐVIKUDÖGUM SMÁAUGLÝSING AÐEINS 995 KR.* Áskrifendum Morgunblaðsins býðst smáauglýsing fyrir aðeins 995 kr.* Pantanafrestur er til kl. 12 á þriðjudögum. * 4 línur og mynd. HAFÐU SAMBAND! Auglýsingadeild Morgunblaðsins sími 569 1111 eða augl@mbl.is  , -   3   $%,  .  1                 .  -( /& 0( & &!1 &% & 2 (   & %  +  ' %  . ' .(     $$* ' !   $%,  4% $ &     & ' $)  ',  +      '    $%,   & $ '$ $/ $! 2     *3 !4 %   -' %! $%,   )'    ' * ' !+ # ! 5 %-    $! 2     .%! & $%,    567 *3 !4 %   $ '*%! -%! !  5 ) 8  $ 9&8 

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.