Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ SkarphéðinnGuðmundsson fæddist á Siglufirði 7. apríl 1930. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 20. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Guðmundur Skarp- héðinsson skóla- stjóri, f. 1895, d. 1932, og Ebba Guð- rún Brynhildur Fló- ventsdóttir, f. 1907, d. 1935. Systkini Skarphéðins eru: 1) Ari, f. 1927, kvæntur Birgit Gudmundsson, búsett í Sví- þjóð, 2) Birgir, f. 1929, kvæntur Mary A. Marinósdóttur, búsett í Hafnarfirði og 3) Brynhildur Guð- munda, f. 1932, d. 1933. Skarphéðinn kvæntist árið 1951 Esther Önnu Jóhannsdóttur, f. 13.8. 1930, dóttur hjónanna Guð- nýjar Kristjánsdóttur, f. 1907, d. 2000, og Jóhanns Byström Jóns- sonar, f. 1900, d. 1955. Börn Skarphéðins og Estherar eru: 1) Ebba leikskólastarfsmaður, f. 1949, sambýlismaður Hjálmar Þ. Baldursson vélfræðingur, f. 1945. Sonur Ebbu er Róbert Benedikts- son verkamaður, f. 1971, unnusta Lára Tryggvadóttir, f. 1978. 2) Guðmundur fjármálastjóri, f. 1951, maki Margrét Sigmanns- dóttir sjúkraliði, f. 1951. Börn þeirra eru: a) Skarphéðinn sagn- fræðingur og blaðamaður, f. 1972, maki Hrund Þrándardóttir sál- fræðingur, f. 1972, sonur þeirra er Guðmundur, f. 2000, og b) Mar- hildur húsmóðir, f. 1965, maki Valur Blomsterberg markaðs- fræðingur, f. 1959, synir þeirra eru Bjarni, f. 1991, og Valur, f. 1993. Skarphéðinn útskrifaðist frá Samvinnuskólanum árið 1950 og hóf síðan störf hjá Kaupfélagi Siglfirðinga, við verslunar- og skrifstofustörf til ársins 1961, er hann tók við sem kaupfélagsstjóri félagsins, og gegndi því starfi til ársins 1971, en þá hóf hann störf hjá Kaupfélagi V-Skaftfellinga í Vík í Mýrdal og starfaði þar til ársins 1972. Hann hóf störf sem skrifstofustjóri Kaupfélags Hafn- firðinga árið 1972 og gegndi því starfi til ársins 1974 er hann tók við stöðu skrifstofustjóra Sam- vinnubankans í Hafnarfirði (síðar Landsbanki Íslands), og gegndi hann því starfi þar til hann veikt- ist mjög skyndilega í maí 1993. Skarphéðinn tók þátt í ýmsum fé- lagsstörfum, meðal annars var hann í stjórn Skíðafélags Siglu- fjarðar, Skíðaborg, í stjórn Íþróttabandalags Siglufjarðar, í stjórn Skíðasambands Íslands og Bláfjallanefndar. Hann var einn af stofnendum Félags aldraðra í Hafnarfirði og í stjórn þess, einnig var hann í stjórn og starfaði í ýms- um nefndum fyrir Alþýðuflokkinn á Siglufirði og í Hafnarfirði: Skarphéðinn var félagi í Oddfell- ow-reglunni Bjarna riddara í Hafnarfirði. Skarphéðinn keppti í skíðastökki á flestum landsmótum frá 1948–1964 og varð Íslands- meistari í þeirri grein 1953, 1958, 1960 og 1962. Árið 1960 keppti hann í skíðastökki á vetrarólymp- íuleikunum í Squaw Walley í Kali- forníu. Útför Skarphéðins verður gerð frá Seljakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13.30. grét þjónustustarfs- maður, f. 1979, unn- usti Kjartan Rútsson, f. 1980. Fyrir átti Guðmundur soninn Kára Arnar, f. 1971. 3) Guðný kirkjuvörð- ur, f. 1952, maki Sig- urður Emil Einarsson verslunarmaður, f. 1950. Börn þeirra eru: a) Davíð lagermaður, f. 1971, sambýliskona Gréta Guðmundsdótt- ir verslunarmaður, f. 1973, dóttir þeirra er Hólmfríður Erla, f. 2002. b) Erla skrifstofumaður, f. 1970, sambýlismaður Marsel Ost- heimer framkvæmdastjóri, f. 1967. c) Esther leikskólastarfs- maður, f. 1978, sambýlismaður Friðrik Egilsson bakari, f. 1976, dætur þeirra eru Anita Björk, f. 1996 og Eva Rut, f. 1998. 4) Jó- hann skrifstofumaður, f. 1953, maki var Hanna Jóna Björnsdóttir bankastarfsmaður, f. 1959, þau skildu. Börn þeirra eru: a) Inga Björk nemi, f. 1981, unnusti Guð- jón Hildibrandsson verkamaður, f. 1980, b) Brynjar Örn, f. 1983, c) Sandra Björk, f. 1995. Fyrir átti Jóhann dótturina Esther Önnu skrifstofumann, f. 1970, sonur hennar er Hafþór, f. 1989. 5) Val- ur auglýsingateiknari, f. 1956, d. 2. júní 2000. 6) Gunnar Rafn far- maður, f. 1964, maki Bergþóra K Jóhannsdóttir hjúkrunarfræðing- ur, f. 1961, synir þeirra eru Jó- hann Andri, f. 1989, Davíð Þór, f. 1993, og Hafþór, f. 1995. 7) Bryn- Í dag verður jarðsunginn ástkær faðir minn, sem hefur háð langa bar- áttu við erfið veikindi undanfarin 10 ár. Það kom eins og reiðarslag á okk- ar stóru fjölskyldu þegar faðir okkar veiktist mjög skyndilega þann 26. maí 1993, þá aðeins 63 ára að aldri. Hann hafði varla kennt sér nokkurs meins fyrr en að áfallið reið yfir þennan örlagaríka dag. Það var ótrúlegt á sínum tíma, miðað við allar tækniframfarir og nýjungar sem höfðu orðið í læknavís- indum, að ekki skyldi vera hægt að koma þér fyrr til frekari hjálpar, til að gera þér lífið léttbærara, heldur en raun varð á. Vera má að veikindi þín hafi í fyrstu ekki verið álitin eins alvarleg og kom á daginn, vegna þess hversu vel þú barst þig. Viðkvæði þitt var nefnilega ætíð: „Það er allt í lagi með mig.“ En við þínir nánustu vissum miklu betur, strax á fyrstu dögum misstir þú þína fallegu skrift, og lesturinn fór fljótlega. Fór þér mjög hrakandi, og var mjög erfitt að horfa uppá hversu af þér dró núna á síðustu vikum. Því var það mikil líkn fyrir þig að fá hvíldina langþráðu. Það hefur verið aðdáunarvert að fylgjast með ykkur foreldrunum í gegnum þessi erfiðu veikindi, hversu mamma hefur hjúkrað þér og stutt þig að öllu leyti, verið vakin og sofin öll þessi ár, með umhyggju fyrir þér til að létta þér þessa erfiðu baráttu eftir fremsta megni. Þegar maður sest niður og lætur hugann reika til uppvaxtaráranna á Siglufirði kemur margt upp í hug- ann. Þar standa uppúr allar skíða- ferðirnar, veiðiferðirnar, vinnan í síldinni, útilegurnar, o.fl. o.fl. En ávallt skal ég minnast þess hversu natinn og skapgóður þú varst við all- an barnaskarann þinn. Ég man varla eftir því að þú hafir skammað okkur að nokkru ráði, heldur hafðir þú lag á okkur með þinni léttu lund, sem þú hélst til hinstu stundar. Þó maður væri ekki meðvitaður um hvað þú skynjaðir síðustu vikurnar, þá gat maður greint kímnina úr andlits- drætti þínum ef maður var með grín eða glens, og þá sérstaklega ef við vorum með góðlátlegt grín gagnvart mömmu, eins og þú sýndir svo oft með stríðni þinni, sem sumir hafa sem betur fer erft frá þér og telja góðan kost. Við kveðjum þig, pabbi minn, og þökkum fyrir samfylgdina. Við vitum að hvíldin var þér orðin kærkomin og nú getur þú verið samvistum við Val bróður, foreldra, systur og tengda- foreldra í nýjum heimkynnum. Við systkinin munum gera okkar besta til að styrkja mömmu og gera henni lífið sem léttbærast, reyna að fylla það tómarúm sem þú hefur skilið eft- ir í lífi hennar. En hún veit það manna best og skynjaði að hvíldin var orðin þér svo sannarlega kær- komin, þó að við höfum kvatt þig með miklum trega og eftirsjá. Að lokum vil ég fyrir hönd fjölskyldu okkar þakka vinum foreldra minna, fé- lögum úr Oddfellow-reglunni Bjarna riddara fyrir stuðninginn í erfiðri baráttu, og þó sérstaklega vil ég SKARPHÉÐINN GUÐMUNDSSON Sími 562 0200 Erfisdrykkjur Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Innilegar þakkir færum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, SVÖVU ÞORGERÐAR JOHANSEN, Sóltúni 2, áður Kirkjusandi 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins í Sóltúni 2. Guð blessi ykkur öll. Rolf Johansen, Kristín Johansen, Bertha Ingibjörg Johansen, Hörður Sigurjónsson, Kitty Johansen, Gunnar Ingimundarson, Hulda Gerður Johansen, Steindór I. Ólafsson, Þórhallur Dan Johansen, Anna Lilja Gunnarsdóttir, Thulin Johansen, Sjöfn Har, barnabörn og barnabarnabörn. Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir, stjúpfaðir, afi og langafi, PÁLL M. GUÐMUNDSSON, Engjahlíð 1, Hafnarfirði, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, föstudaginn 17. janúar. Útför hefur farið fram í kyrrþey. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki á deild 3 á Sólvangi fyrir frábæra umönnun og hjúkrun. Þökkum hlýhug og samúð. Esther Halldórsdóttir, Anna Pálsdóttir, Eiður Hilmarsson, Guðrún Pálsdóttir, Sigurgeir Þór Jónasson, Rúnar Pálsson, Sif Eiðsdóttir, Reynir Pálsson, Elín Pálsdóttir, Aðalsteinn Ísaksson, stjúpbörn, barnabörn og barnabarnabörn. Hjartkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍN ÞÓRÐARDÓTTIR, Sæviðarsundi 35, Reykjavík, sem lést sunnudaginn 26. janúar, verður jarð- sungin frá Hvalsneskirkju laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Bergdís Kristjánsdóttir, Guðmundur Bjarnason, Sævar Örn Kristjánsson, Kristín Þórðardóttir, Guðmundur Óli Hreggviðsson, Brynja Ingadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir mín, amma og systir, ÞÓRHILDUR BJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR, Ketilsbraut 5, Húsavík, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugar- daginn 1. febrúar kl. 14.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á minningarkort Styrktarsjóðs Landssambands hjartasjúklinga í símum 552 5744 og 464 1178. Margrét Sigríður Árnadóttir, Hanna Björg Guðmunsdóttir, Guðrún Anna Kristjánsdóttir. Útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, GUÐMUNDAR KRISTJÁNS SIGURÐSSONAR, sem lést af slysförum þriðjudaginn 21. janúar, fer fram frá Hafnarkirkju laugardaginn 1. febrú- ar kl. 14.00. Sigríður Jóhannesdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.