Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR 8 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ Viltu frekar að ég slái þig eldsnöggt í hausinn, ormurinn þinn. Málþing um samkynhneigða á vinnumarkaði Áherslurnar eru fjölbreyttar SAMTÖKIN ’78 efnaá morgun, föstu-dag, til málþings um atvinnumál í sam- vinnu við Mannréttinda- skrifstofu Íslands. Það er haldið í Norræna húsinu og hefst klukkan 15. Flutt verða sex stutt erindi á þinginu sem er öllum op- ið. Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður stýrir fundi og umræðum. Þorvaldur Kristinsson er formaður Samtakanna ’78 og svaraði hann nokkrum spurningum Morgun- blaðsins. – Hverjar verða áhersl- urnar á málþinginu, hverjir taka til máls og um hvað ætla viðkomandi að tala? „Áherslurnar eru fjölbreyttar. Rætt er um reynslu samkyn- hneigðra á vinnustöðum, lög og rétt, sýnileika og feluleik, einka- líf og siðferði og nýjar áherslur í starfsmannamálum. Rannveig Traustadóttir dósent segir frá erlendum rannsóknum á reynslu lesbía og homma á vinnumark- aði. Halldór Guðmundsson útgef- andi skoðar málin frá sjónarhóli atvinnurekenda. Árelía E. Guð- mundsdóttir lektor svarar spurn- ingunni „Skiptir kynhneigð máli á vinnustað?“ og Atli Gíslason hæstaréttarlögmaður fjallar um lagaumhverfið. Páll Hreinsson prófessor lýsir almennum reglum um meðferð persónuupp- lýsinga við ráðningu í starf og Bergþóra Ingólfsdóttir fulltrúi fjallar um persónuvernd og ráðningar í erindi sínu „Spurt og svarað um kynhneigð vegna sér- stakra aðstæðna“.“ – Hvers vegna er ástæða til að efna til slíks málþings? „Á hverju ári leita þó nokkrir til Samtakanna ’78 vegna mis- mununar á vinnumarkaði, þeim hefur þá verið sagt upp starfi eða neitað um ráðningu þegar ljóst varð um kynhneigð viðkom- andi. En vandinn er sá að erfitt er að sanna að kynhneigð hafi verið tilefni uppsagnar. Ef ástæða er tilgreind þá gerist það gjarnan á tveggja manna tali án vitna og hvergi staf um það að finna. En dæmi eru um að mál komist í dagsljósið og það nær- tækasta var ákvörðun félags- málastjóra Kópavogs um að gera kynhneigð umsækjenda um starf að ásteytingarsteini í viðtali sem fylgdi atvinnuumsókn viðkom- andi sl. vor. Fjölmiðlar fjölluðu á ábyrgan hátt um það mál, við- komandi hefur nú leitað réttar síns fyrir dómstólum en því máli er ekki lokið.“ – Hefur ástandið ekki skánað síðustu árin? „Tvímælalaust. Mestu skiptir, að samkynhneigt fólk, sem ekki leynir kynhneigð sinni, er víða í áhrifastöðum á virtum vinnu- stöðum og sú staðreynd felur auðvitað í sér ein- dregna afstöðu at- vinnurekanda. Þá nefna einstaka vinnu- staðir nú samkyn- hneigða í jafnréttis- ákvæðum starfs- mannastefnu sinnar. Þetta er það sterkasta sem hægt er að gera til að breyta viðhorfum og tryggja jafnrétti.“ – Hvað segja nokkur dæmi um misrétti eða áreitni á vinnustöð- um um útbreiðslu vandans? „Sennilega berst aðeins brot af illri reynslu samkynhneigðra á vinnustöðum til Samtakanna ’78 vegna þess að þeir sem helst verða fyrir slíku leyna iðulega kynhneigð sinni og treysta sér ekki til að ræða vandann. Stund- um ber þetta fólk sig upp við jafnréttisfulltrúa stéttarfélaga. Eina svarið við þessu er opinská umræða. Um leið skora ég á alla samkynheigða sem verða fyrir misrétti eða einelti á vinnustað að segja okkur sögu sína. Sam- tökin ’78 fara með slíkt sem trúnaðarmál, en vitneskjan er okkur nauðsynleg til að geta „kortlagt landið“. – Samtökin ’78 eru 25 ára á þessu ári, væntanlega hefur margt breyst í málefnum sam- kynhneigðra á aldarfjórðungi? „Já, með réttarbótum síðustu ára og opinni umræðu hefur landslagið gjörbreyst. Þar ber ekki síst að þakka íslenskum fjölmiðlum sem að mínu viti bera núna af öðrum slíkum á Vest- urlöndum þegar kemur að mál- efnalegri umfjöllun og skilningi á þörf fyrir umræðu og upplýs- ingu. Enda sýna rannsóknir að Íslendingar eru komnir í fremstu röð þjóða þegar kemur að for- dómaleysi gagnvart hommum og lesbíum. Nú brennur fyrst og fremst á okkur að efla vandað og málefnalegt fræðslustarf og að upplýsa betur það unga fólk sem er að vakna til vitundar um sam- kynhneigð sína.“ – Hvað verður gert til hátíð- arbrigða? „Nú er hafin röð fyrirlestra í Háskóla Íslands sem Samtökin ’78 efna til í samstarfi við fé- lagsvísindadeild há- skólans og önnur mannréttindasamtök. Fyrsta íslenska kvik- myndin um líf og reynslu samkyn- hneigðra er frumsýnd í apríl og í haust er von á kvik- myndahátíð. Að vanda tökum við höndum saman við önnur félög um að halda „Hinsegin daga – Gay Pride“ í ágúst og minnumst afmælisins sérstaklega með veislu á vordögum. Þegar litið er til baka hafa samkynhneigðir á Íslandi sannarlega drjúga ástæðu til að gleðjast.“ Þorvaldur Kristinsson  Þorvaldur Kristinsson fæddist í Hrísey á Eyjafirði 1950. Hann nam íslensku og bókmenntafræði við Háskóla Íslands og stundaði einnig nám í bókmenntafræðum við háskóla í Bandaríkjunum og Danmörku. Í tvo áratugi hefur hann verið bókmenntaritstjóri í Reykjavík, síðustu árin hjá Eddu hf. Þorvaldur hóf störf að mál- efnum samkynhneigðra í Kaup- mannahöfn árið 1980 og er nú formaður Samtakanna ’78. … það sterk- asta sem hægt er að gera

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.