Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 17
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 17
Leikfélag Akureyrar
Leikfélag Akureyrar efndi til samkeppni
í skapandi skrifum undir yfirskriftinni
„Uppistand um jafnréttismál“
Fjórtán handrit bárust í keppnina og nú hafa þrjú handrit
verið valin til sýningar og eru höfundar þeirra: Guðmundur
Kr. Oddsson, Hallgrímur Oddsson og Sigurbjörg
Þrastardóttir. Aðrir höfundar geta nálgast handrit sín í
miðasölu leikfélagsins eða haft samband og fengið þau
send fyrir 1. mars næstkomandi. Eftir þann tíma verður
handritum og upplýsingum um höfunda eytt.
Leikfélag Akureyrar þakkar öllum höfundum fyrir
þátttökuna.
Leikfélag Akureyrar
UPPISTAND UM JAFNRÉTTISMÁL
Tónlist, tákn og ímynd: Afrískar kvikmyndir í 100 ár
Fyrirlesari: Andrew Kaye, dósent við
Albright College, U.S.A.
Fyrirlestur um afríska kvikmyndalist síðustu hundrað árin verður haldinn nk.
laugardag í Háskólanum á Akureyri. Þetta er fyrsti fyrirlesturinn, sem ný deild við
skólann, félagsvísinda- og lagadeild, stendur fyrir. Fyrirlesari er Andrew Kaye,
dósent við tónlistardeild Albright College í Pennsylvaníu, en hann er gistikennari
við Háskóla Íslands á þessu misseri.
Fyrirlesturinn fjallar um það hvernig sú mynd, sem dregin er upp af Afríku í tónlist
kvikmynda, hefur breyst á sl. eitt hundrað árum. Hann rekur með dæmum
breytingarnar frá dögum þöglu myndanna, Tarza-myndanna og mynda frá síðustu
áratugum síðustu aldar.
Fyrirlesturinn verður haldinn laugardaginn 1. febrúar kl. 13:30 í stofu 24 í
húsakynnum Háskólans á Akureyri við Þingvallastræti.
Fyrirlestur á vegum félagsvísinda- og
lagadeildar Háskólans á Akureyri
VINNA við deiliskipulag flugvall-
arsvæðisins við Akureyrarflugvöll
stendur nú yfir. Í þeirri vinnu er
m.a. verið kanna þann möguleika
að finna Flugsafninu á Akureyri
framtíðarstað undir starfsemi
sína innan flugvallarsvæðisins. Að
sögn Sigurðar Hermannssonar
umdæmisstjóra Flugmálastjórnar
er til skoðunar sú ósk forsvars-
manna safnsins að færa starfsem-
ina á væntanlega uppfyllingu á
milli flugbrautarinnar og Drottn-
ingarbrautar, á móts við Gróðr-
arstöðina við Krókeyri.
Sigurður sagði að enn lægi
engin ákvörðun fyrir í málinu og
að mörgu væri að hyggja. Flug-
safnið þarf mjög stórt svæði und-
ir starfsemi sína en uppi eru hug-
myndir um að byggja 7.000-7.500
fermetra hús. Um er að ræða hús
sem yrði svipað að stærð og Bog-
inn, nýja fjölnota íþróttahús Ak-
ureyringa en með mun meiri loft-
hæð. „Þetta yrði mikil bygging og
það er því töluvert mál að finna
henni stað, ekki síst með tilliti til
öryggisþátta og fleiri þátta innan
svæðisins,“ sagði Sigurður.
Hann sagði ljóst að ekki væri
hægt að koma fyrir byggingu af
þessari stærð á núverandi svæði
safnsins á flugvallarsvæðinu. Slík
bygging mætti heldur ekki vegna
stærðar sinnar vera of nálægt
flugstöðinni eða öðrum bygg-
ingum í nágrenni hennar. „Bygg-
ingin má heldur ekki vera hindr-
un við flugvöllinn eða koma niður
á frekari þróun hans. Það er ver-
ið að fara í gegnum þessa hluti og
reyna að verða við óskum þessara
aðila. Hins vegar er ekki ljóst
hvort af þessu getur orðið, né
hver endanleg staðsetning yrði,“
sagði Sigurður. Það er Arkitekt-
ur.is í Grófargili sem er að vinna
deiliskipulag svæðsins fyrir Flug-
málastjórn.
Kostnaður við uppbygginguna
300–400 milljónir króna
Svanbjörn Sigurðsson formaður
stjórnar Flugsafnsins á Akureyri
sagði ekki hægt að nefna neinar
tímasetningar en að þarna væri
verið að tala um framtíðarplön og
drauma forsvarsmanna safnsins.
Ljóst væri þó að kostnaður við
þessa uppbyggingu yrði á bilinu
300-400 milljónir króna.
Flugsafnið á von á Boeing 747
breiðþotu í safn sitt en slík
júmbóþota er engin smásmíði, um
70 metra löng á þremur hæðum,
með um 65 metra vænghaf og um
20 metra stélhæð. Svanbjörn
sagði að umrædd vél yrði í notk-
un hjá Atlanta fram til vors en þá
úreldist hún og fellur úr notkun.
Hann sagði að í kjölfarið stæði til
að vélin kæmi til Akureyrar.
Hugmyndin væri að hýsa vélina í
væntanlegu stórhýsi safnsins,
einnig minni þotur og flugvélar.
„Þannig myndast mikið rými fyr-
ir minni flugvélar og safnmuni,
m.a. undir vængjum stóru vél-
anna. Inni í stóru jumbóþotunni
er svo hugmyndin að koma fyrir
sögusafninu í myndum og texta,
setustofum, kaffistofu og ýmsu
fleiru.“
Svanbjörn sagði að á móts við
það svæði sem safnið hefði óskað
eftir, þ.e. vestan Drottning-
arbrautar, væri gert ráð fyrir
framtíðar safnasvæði Akureyrar,
þar sem ákveðið hefur verið að
Iðnaðarsafnið verði m.a. til húsa.
Ef af verður væri því mögulegt
að tengja svæðin saman með und-
irgöngum undir Drottning-
arbraut.
Til skoðunar að flugsafnið fái nýjan framtíðarstað á flugvallarsvæðinu
Morgunblaðið/Kristján
Mjög er farið að þrengja að starfsemi Flugsafnsins á Akureyri í núverandi húsnæði en forsvarsmenn þess eru stór-
huga og hafa hug á því að byggja 7.000–7.500 fermetra húsnæði undir starfsemina norðar á flugvallarsvæðinu.
Vilja byggja hús sem
hýst getur júmbóþotu
STEFNT er að því að reisa snjó-
leikhús í Hlíðarfjalli og setja þar
upp sýningar alla laugardaga í
mars og apríl.
Guðmundur Karl Jónsson, for-
stöðumaður í Hlíðarfjalli, sagði
að leikhúsið yrði sett upp í sam-
vinnu við Leikfélag Akureyrar
og að fyrsta verkið á snjósviðinu
yrði Uppistand um jafnréttismál
sem frumsýnt verður hjá LA nú
um komandi helgi. Akureyr-
arbær og Síminn taka einnig
þátt í þessu verkefni. „Leik-
félagið mun sjá um sýningarnar,
en ýmsum félögum verður boðið
að sýna t.d. hluta úr leikritum
hér hjá okkur í fjallinu,“ sagði
Guðmundur Karl, en gert er ráð
fyrir að sýningar taki um hálf-
tíma. Útbúnir verða bekkir úr
snjó fyrir áhorfendur, en margir
taka einnig með sér eigin stóla.
„Hugmyndin með þessu er að
fólk geti sameinað holla útiveru
og menningu, rennt sér á skíðum
fyrri hluta dagsins og endað
ferðina á að horfa á skemmtileg
leikrit,“ sagði Guðmundur Karl.
„Með þessu erum við að bjóða
upp á fjölbreytta skemmtun sem
vonandi fellur í kramið hjá okkar
gestum.“
Snjóleikhúsið verður sett upp
á skaflinum ofan við Skíðahót-
elið, en Guðmundur Karl sagði
að enn væri ekki nægur snjór til
staðar í fjallinu til að hefjast
handa við að útbúa sviðið. „Nú
þurfum við á að halda öllum
þeim snjó sem til boða stendur í
brekkurnar.“
Snjóleikhús í fjallinu
NÁMSKEIÐ í ítölsku verða í boði á
vegum Símenntunar Háskólans á
Akureyri í febrúar. Slík námskeið
voru í boði síðastliðinn vetur, bæði
fyrir byrjendur og lengra komna og
voru þau vel sótt þannig að ákveðið
hefur verið að bjóða upp á þau að
nýju. Námskeiðin verða haldin 17. til
28. febrúar næstkomandi.
Markmið byrjendanámskeiðsins
er að þátttakendur æfist í að tala og
skilja algeng atriði í daglegu lífi.
Jafnframt er lagður góður grunnur
að kunnáttu í málfræði. Markmið
framhaldsnámskeiðsins er að auka
málakunnáttu þátttakenda, sérstak-
lega orðaforða og málfræði. Einnig
verður á námskeiðinu fjallað um lífs-
stíl og menningu Ítala. Kennari á
námskeiðunum er dr. Maurizio Tani.
Upplýsingar og skráning á nám-
skeiðin er á skrifstofu Símenntunar.
Ítölsku-
námskeið Á vegum Símenntunar verða á
næstunni haldin námskeið fyrir al-
menning um ráðgjöf í fjármálum.
Fyrra námskeiðið verður haldið
fimmtudaginn 6. og það síðara
fimmtudaginn 20. febrúar.
Kynntar verða ýmsar þær leiðir sem
í boði eru til ávöxtunar fjár. M.a.
verður fjallað um hvernig
einstaklingar geta skoðað og metið
fjárhagslega stöðu sína og uppbygg-
ingu eignasafns.
Einnig verður fjallað um eðli verð-
bréfa og útskýrt á lifandi og raun-
hæfan hátt samspil þeirra við aðrar
eignir einstaklinga og hvers við ann-
að.
Kennari á námskeiðunum er Jóhann
Viðar Ívarsson MBA, lektor í fjár-
málum og alþjóðaviðskiptum við Há-
skólann í Reykjavík. Upplýsingar og
skráning á námskeiðin er á skrif-
stofu Símenntunar.
Á NÆSTUNNI
Alltaf á þriðjudögum