Morgunblaðið - 30.01.2003, Page 32
MINNINGAR
32 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Hún Áslaug okkar
er farin. Ég kynntist
henni þegar ég kom til
starfa í sendiráðinu í
Stokkhólmi í febrúar
1976. Hún tók okkur
Einari opnum örmum og með okkur
mótaðist vinátta sem haldist hefur
síðan. Áslaug hélt alltaf góðu sam-
ÁSLAUG
SKÚLADÓTTIR
✝ Áslaug Skúla-dóttir var fædd í
Danmörku 1. ágúst
1924. Hún andaðist á
Líknardeild Land-
spítalans 20. janúar
síðastliðinn og var
útför hennar gerð
frá Dómkirkjunni 29.
janúar.
bandi við Stokkhólm
þó hún væri flutt til
Reykjavíkur og vildi
gjarnan fylgjast með
málum í Svíþjóð og
hélt sterkum tengslum
við vini og kunningja.
Áslaug var mikill
viskubrunnur. Það var
gott að geta leitað til
hennar með ýmsar
fyrirspurnir. Hún var
ótrúlega minnug.
Gleymdi t.d. ekki af-
mælisdögum vinanna.
Þá tók hún fram litlu
munnhörpuna og
hringdi í vinina og spilaði „Hún á
afmæli í dag.“ Einar, Kristján og ég
erum þakklát fyrir að hafa kynnst
þessari góðu og skemmtilegu konu.
Blessuð sé minning hennar.
Elín.
Áslaug Skúladóttir hefur undan-
farin ár verið ötull sjálfboðaliði í
Samhjálp kvenna. Áslaug var
heimskona. Hún bjó yfir miklum
persónutöfrum. Glaðværð hennar,
frásagnargleði og smitandi hlátur
hafði einkar góð áhrif á alla sem í
kringum hana voru. Við félagar
hennar í Samhjálp kvenna þökkum
henni óeigingjarnt framlag til
stuðnings þeim hópi kvenna sem
greinast með brjóstakrabbamein.
Ættingjum sendum við samúðar-
kveðjur.
Samhjálp kvenna.
Ég á svo margar minningar um
Áslaugu Skúladóttur, svo margar,
svo indælar. Sú seinasta er frá sex-
tugsafmælisdeginum mínum í fyrra.
Síminn hringdi heima, ég tók upp
tólið og sagði „halló“. Þá heyrði ég
afmælissönginn spilaðan á munn-
hörpu. Ekki áttaði ég mig alveg
strax en heyrði svo kunnuglegan
smitandi hlátur Áslaugar. Elsku,
elsku besta vinkona.
Ég var bara sex ára gömul þegar
við fluttumst til Svíþjóðar 1948.
Pabbi tók við stöðu sem sendiherra
Íslands og heimili okkar var í sömu
íbúð og sendiráðsskrifstofurnar. Ás-
laug var þar ritari. Hún var ung og
glæsileg og varð strax meira en
bara ritari. Hún varð vinkona, fjöl-
skyldumeðlimur og stóra systir. Ég
var einbirni, fjarri öllum ættingjum
nema pabba og mömmu. Áslaug tók
þátt í öllu með okkur, afmælisboð-
um, jólum og Íslendingasamkomum
í Stokkhólmi. Ef þurfti að passa
mig vegna vinnuferðar foreldra
minnar erlendis, flutti hún bara inn.
Hún þekkti alla vini mína og löngu
eftir að ég varð fullorðin og búsett
hér heima flutti hún mér stundum
kveðju frá einhverjum þeirra sem
hún hafði hitt á förnum vegi.
Eftir sjö ára dvöl í Svíþjóð flutt-
umst við til Þýskalands og Áslaug
fór með. Sem barn gerði ég mér
ekki grein fyrir því hvað hún var
greind og klár, fannst það svo sjálf-
sagt. En ég veit það núna að það
var auðvitað mjög merkilegt að
hún, svona ung þegar við kynnt-
umst, ekki nema 22 ára, talaði þeg-
ar reiprennandi ensku og sænsku.
Ekki vorum við búin að vera lengi í
Þýskalandi þegar hún talaði líka
þýsku reiprennandi.
Eftir fimm ár í Þýskalandi og 12
ára samveru við Áslaugu skildu
leiðir okkar. Við fórum heim til Ís-
lands, en Áslaug varð áfram í
Þýskalandi um sinn en fór svo aftur
til Svíþjóðar. Eftir að hún hætti
störfum hjá utanríkisráðuneytinu
og kom heim sáumst við aðeins oft-
ar. Ég hugsa með innilegri ánægju
til þess þegar hún vaktaði sænska
sýningu í nokkra daga á vinnustað
mínum hér í ráðhúsinu. Þá sátum
við saman í matarhléum og rifj-
uðum upp gömlu góðu dagana og
það var svo gaman. Mér þótti svo
vænt um Áslaugu og ég sakna
hennar mikið. Guð blessi minningu
hennar.
Álfheiður Sylvia Briem.
Á starfsferli okkar
kynnumst við mörgu
fólki. Anna Óskars-
dóttir var ein þeirra.
Hún vann í Bakkaborg
í mörg ár og endaði þar starfsferil
ANNA
ÓSKARSDÓTTIR
✝ Anna JóhannaÓskarsdóttir
fæddist í Svefneyjum
á Breiðafirði 20. des-
ember 1929. Hún lést
á líknardeild Land-
spítalans í Kópavogi
3. janúar síðastliðinn
og var útför hennar
gerð frá Breiðholts-
kirkju 14. janúar.
sinn. Við kvöddum
hana þá með þakklæti
og virðingu og svo ger-
um við einnig nú. Anna
var ein af þeim sem
setti lit sinn á um-
hverfið. Hún hafði
ákveðnar skoðanir og
lá ekkert á því ef henni
fannst eitthvað gagn-
rýnivert. Aldrei datt
manni í hug að sárna
við hana, vegna þess
að væntumþykja henn-
ar í okkar garð var svo
eindregin og afdráttar-
laus. Í huga Önnu var
til ráð við öllu nema ráðaleysi.
Henni fannst erfitt að horfa upp á
fólk gera sér hlutina erfiðari en
þurfti og var fljót að gera athuga-
semd þegar svo bar undir. Hún
sagði t.d. að allir gætu að sjálfsögðu
bakað sem kynnu að lesa. Hún sagði
líka að lítið mál væri að rata í borg,
kynni maður að tala. Hún sagði að
hjónaband snérist um samlögun,
ekki yfirráð og svo mætti lengi
telja. Eftir að Anna fór á eftirlaun
var hún mjög dugleg að koma og
heimsækja okkur í Bakkaborg og
alltaf fannst manni sem hún hefði
verið hér í gær síðast, svo sterk
voru böndin. Á sama hátt mun hún
og hennar góða lífssýn lifa í huga
okkar sem urðum þeirrar gæfu að-
njótandi að vinna með henni.
Við vottum eftirlifandi eigin-
manni, börnum, tengdabörnum og
barnabörnum innilega samúð.
F.h. samstarfsfólks í Bakkaborg,
Elín Erna Steinarsdóttir.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir og amma,
HILDUR KRISTÍN JAKOBSDÓTTIR,
Borgarsíðu 12,
Akureyri,
sem andaðist á Seli, hjúkrunardeild Fjórðungs-
sjúkrahússins á Akureyri, 23. janúar, verður jarð-
sungin frá Akureyrarkirkju föstudaginn 31. janúar
og hefst athöfnin kl. 13.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á að láta Parkinson-samtökin á Íslandi eða líknarstofn-
anir njóta þess.
Gunnar Valgeir Sigurðsson,
Þórdís Gunnarsdóttir,
Valur Gunnarsson, Hermína Gunnarsdóttir,
Örn Gunnarsson,
Sara Benediktsdóttir,
Ólöf Guðnadóttir,
Birgitta Maggý Valsdóttir,
Hildur Valsdóttir,
Gunnar Valsson,
Vikar Valsson,
Jóhann Sigurðarson,
Gunnar Máni Arnarson.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ÞÓRHILDUR GUNNÞÓRSDÓTTIR,
sem lést aðfaranótt þriðjudagsins 21. janúar,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 31. janúar kl. 15.00.
Jón Þórarinn Sverrisson, Sigrún Skúladóttir,
Sverrir Jónsson,
Hildur Björk Jónsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Séra BJÖRN SIGURBJÖRNSSON,
Dambakken 47,
3460 Birkerød,
verður jarðsunginn frá Christianskirken í Lyng-
by, Kaupmannahöfn, laugardaginn 1. febrúar.
Minningarathöfn um hann verður í Hallgríms-
kirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 15.00.
Magnea Þorkelsdóttir, Sigurbjörn Einarsson
og fjölskylda.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi,
bróðir, mágur og tengdasonur,
JÓN OTTI GÍSLASON
lögreglumaður,
Rauðagerði 22
lést sunnudaginn 26. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Berglind Eyjólfsdóttir,
Katrín Dagmar Jónsdóttir,
Jón Eyjólfur Jónsson,
Birna Dögg Jónsdóttir, Halldór G. Hauksson,
Þorsteinn Otti Jónsson,
Einar Gíslason, Halldóra Jóhannsdóttir,
Ragnar Gíslason, Ingibjörg Gunnarsdóttir,
Gísli Þór Gíslason,
Eyjólfur Jónsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HILDUR ÁRNASON
frá Vestur-Sámsstöðum í Fljótshlíð,
til heimilis á Kirkjuhvoli,
Hvolsvelli,
sem lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi
fimmtudaginn 23. janúar, verður jarðsungin frá
Breiðabólstaðarkirkju í Fljótshlíð laugardaginn
1. febrúar kl. 14.00.
Unnur Sigurðardóttir, Alfred Rohloff,
Valborg Sigurðardóttir,
Sara H. Sigurðardóttir, Gunnar Ólafsson,
Árni Þ. Sigurðsson, Aagot Emilsdóttir,
Þórunn B. Sigurðardóttir, Árni M. Emilsson,
Hrafnhildur I. Sigurðardóttir, Óskar Magnússon,
Þórdís A. Sigurðardóttir, Gunnar B. Dungal,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, fóstur-
móðir, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR RÓSA MEYVANTSDÓTTIR,
Grensásvegi 60,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 31. janúar kl. 10.30.
Magnús Steingrímsson,
Magnús Þór Einarsson, Carmen Einarsson,
Sigurlín Einarsdóttir Prather,
Steindór Björnsson, Helga Jónsdóttir,
Guðrún Fanný Björnsdóttir, Birkir Friðbertsson
og aðrir aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
KRISTJÁN EINARSSON,
Þórufelli 12,
Reykjavík,
sem lést sunnudaginn 26. janúar, verður jarð-
sunginn frá Dómkirkjunni mánudaginn
3. febrúar kl. 15.00.
Margrét Magnúsdóttir,
Ragnhildur Kristjánsdóttir, Hannes R. Richardsson,
Gunnar Örn Jónsson,
Kristján Már Gunnarsson,
Gísli Þór Gunnarsson,
Ólafur Gunnarsson,
Fannar Freyr Hannesson,
Richard Rafn Hannesson,
Margrét Mist Hannesdóttir.