Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 33

Morgunblaðið - 30.01.2003, Síða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 33 ✝ Ingólfur Ólafssonfæddist á Pat- reksfirði 22. mars 1935. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. jan- úar síðastliðinn. For- eldrar hans voru Ólafur Kristjánsson, f. 21.7. 1896, d. 1.4. 1973, og Oddný Sölvadóttir, f. 28.12. 1897, d. 5.8. 1994. Ingólfur var sjötti í röð níu systkina. Þau eru Kristján Þórir, f. 4.8. 1924, d. 6.4. 1997, Borghildur Sólveig, f. 29.1. 1926, Þórunn, f. 5.9. 1927, Stefán, f. 8.7. 1929, Haraldur, f. 25.5. 1931, Oddný, f. 10.7. 1932, Elísabet Kristín, f. 20.2. 1939, Sigríður Helga, f. 21.7. 1941, fóstursystir Kolbrún Guðjóns- dóttir, f. 5.6. 1944 og hálfsystir Hulda Ólafsdóttir. Eiginkona Ingólfs er Guðrún Auður Marísdóttir frá Bol- ungarvík, f. 10.8. 1939. Börn þeirra eru; 1) Sölvi, f. 24.4. 1958, d. 21.3. 1987. 2) Marís, f. 7.6.1959, d. 8.9. 1990. 3) Ásdís, f. 28.5. 1961, sam- býlismaður Jón Þ. Gíslason, f. 1.6. 1942. Dóttir Ásdísar er Inga Þóra, f. 31.7. 1980. 4) Auðun, f. 28.7. 1972. Ingólfur átti fyrir Margréti, f. 16.7. 1957. Útför Ingólfs verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku pabbi. Okkur langar til þess að kveðja þig með örfáum orðum. Erfitt er að lýsa tilfinningunum, en við áttum margar góðar stundir saman. Þótt tíminn hafi verið allt of stuttur, þá getum við huggað okkur við það að bræður okkar, Sölvi og Marís, taka nú á móti þér og verða með þér þar til við hittumst öll aftur á ný. Elsku pabbi, þú sem gekkst svo vel frá öllum þínum málum. Þú get- ur horfið rólega á braut, því þú mátt treysta því að við munum hugsa vel um mömmu og hvort ann- að. Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlauztu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn, og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. (V. Briem.) Guð veri með þér, Ásdís og Auðunn. Elsku afi er dáinn. Ég vissi að þú gekkst ekki heill til skógar en mig óraði samt aldrei fyrir að þú yrðir kallaður svona snögglega í burtu frá okkur, ég hefði viljað hafa þig svo miklu lengur hjá mér. Þegar ég kvaddi þig hressan og kátan tveim dögum fyrr hvarflaði ekki að mér að við værum að ræðast við í síðasta sinn. En þetta er víst lífsins gang- ur, elsku afi, og nú ertu kominn í faðm strákanna þinna tveggja sem þú misstir svo allt of fljótt. Margs er að minnast í gegnum tíðina og góðu stundirnar svo marg- ar að ófært er að telja upp nema brot af þeim. Alltaf var jafngaman að koma til ykkar ömmu enda er það mitt annað heimili. Tvisvar fór ég með ykkur í ógleymanlega hringferð um landið og naustu þín vel í þessum ferðum, enda bílstjóri af lífi og sál. Þá er ekki síður minn- isstæð ferðin okkar til Portúgals og Benidorm þar sem margt var brall- að. Aldrei fór á milli mála hversu vel þú barst hag minn fyrir bjósti þér. Þetta kom t.d. skýrt í ljós þeg- ar ég eignaðist íbúðina mína. Þú varst mættur og spáðir og spek- úleraðir í allt milli himins og jarðar, ég skyldi sko fá þá aðstoð sem ég þyrfti. Þá varstu aðeins farinn að gæla við að eignast afabarn og grín- aðist með það við mig hvort ég væri ekkert á leiðinni að uppfylla þá ósk. Elsku afi. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig. Ég mun aldrei fá tækifæri til að þakka þér að fullu, en þess í stað mun ég geyma minn- inguna um þig á meðan ég lifi. Meg- ir þú hvíla í friði og eitt máttu vita, við skulum hugsa vel um ömmu Auði á þessum erfiðu tímum. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Sofðu rótt, elsku afi, þín elsk- andi, Inga Þóra. Minn kæri bróðir hefur lotið í lægra haldi í baráttu við illvígan sjúkdóm. Ég er stolt af honum og þakklát fyrir hans ljúfu nærveru. Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu’ og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Guðs blessun. Sigríður Helga. Elsku bróðir minn. Nú þegar þú hefur fengið hvíldina eftir strangt og erfitt stríð við alvarlegan sjúk- dóm, vil ég kveðja þig og minnast þín með nokkrum fátæklegum orð- um. Þegar ég heimsótti þig, þremur dögum fyrir andlátið, var mér ljóst hvílíkar kvalir þú máttir þola, en þú reyndir að leyna því með bjartsýni um bata. Þú varst hetja. Vinátta okkar var mikil og þú reyndist mér ávallt góður bróðir og samband milli okkar var gott, sér- staklega eftir að þú fluttir frá fæð- ingarstað okkar, Patreksfirði, og settist að í Hafnarfirði með þína fjölskyldu. Á kveðjustundu sem þessari verður manni óhjákvæmi- lega hugsað til æskuáranna. Systk- inahópurinn var stór, sex systur og fjórir bræður og má nærri geta að oft var líflegt í stóra „kotinu“, bæði í leik og starfi. Mér eru, til dæmis, ógleymanlegar stundirnar á laug- ardagskvöldum, þegar við dönsuð- um ásamt mömmu og pabba eftir danslögum í útvarpinu. Það var gaman. Það var margt sem við krakkarnir „brölluðum“ eins og gengur og gerist og of langt mál að tíunda það. Þú, Ingi minn, varst af- ar fjörugur og líflegur strákur og hafðir gaman af að stríða okkur yngri systrum þínum, mér, Helgu og Kollu, en það var auðvelt að fyr- irgefa, því í þeirri stríðni var ekkert illt. Ég kveð þig, kæri bróðir, með þessum ljóðum. Hóglega, hæglega, á hafsæng þýða, sólin sæla, síg þú til viðar. Nú er um heiðar himinbrautir för þín farin yfir frjóvga jörð. – – – Veit ég, hvar von öll og veröld mín glædd er guðs loga. Hlekki brýt ég hugar og heilum mér fleygi faðm þinn í. (J. Hallgrímss.) Nú þegar erfiðleikarnir eru að baki veit ég að þér líður vel, því mamma og pabbi hafa tekið á móti þér og bera þig aftur í faðmi sér. Elsku Auður, Auðunn, Ásdís og Inga. Ég og fjölskylda mín biðjum góðan guð að styrkja ykkur og um- vefja í sorginni. Þín systir Elísabet. INGÓLFUR ÓLAFSSON Okkar ástkæri sonur, bróðir, barnabarn og frændi, RÓBERT BIRKIR VIGGÓSSON, Heimahaga 9, Selfossi, sem andaðist fimmtudaginn 23. janúar, verður jarðsunginn frá Reyniskirkju laugardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Þeir, sem vilja minnast hans, vinsamlega láti Samhjálp njóta þess. Viggó Rúnar Einarsson, Elísa Berglind Adólfsdóttir, Jón Ingi Smárason, Lovísa Dögg Viggósdóttir, Sigurður Rúnar Kristbjörnsson, Hlynur Freyr Viggósson, Einar Klemensson, Hrefna Finnbogadóttir, Eiríkur Einarsson, Stefanía Guðmundsdóttir, Daníel Ingi Jónsson og Viggó Rúnar Sigurðsson. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐMUNDUR EINAR JÚLÍUSSON matreiðslumeistari, Goðheimum 22, Reykjavík, sem lést fimmtudaginn 23. janúar, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 31. janúar kl. 15.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Samtök lungnasjúklinga. Björg J. Benediktsdóttir, Auður R. Guðmundsdóttir, Guðmundur Hermannsson, Bjarni Þór Guðmundsson, Kristín V. Sigurðardóttir og barnabörn. Bróðir okkar og mágur, ÓSKAR ANDRÉSSON frá Saurum, Borgarbraut 70, Borgarnesi, verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju laugar- daginn 1. febrúar kl. 14.00. Hulda Brynjúlfsdóttir, Unnur Andrésdóttir, Jóhann Ó. Sigurðsson, Árni Guðmundsson, Þorsteinn A. Andrésson, Friðbjörg Óskarsdóttir, Guðbjörg S. Andrésdóttir, Jón H. Einarsson, Ragnhildur Andrésdóttir, Ölver Benjamínsson, Bragi Andrésson, María Nielsen. Móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, ÞÓRDÍS PÁLÍNA EINARSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Hulduhlíð, Eskifirði, 25. janúar sl. Útför hennar fer fram frá Eskifjarðarkirkju laug- ardaginn 1. febrúar kl. 14.00. Anna Pálsdóttir, Brynjólfur Pálsson, Guðný Ragnhildur Pálsdóttir, Þórunn Pálsdóttir, Rannveg Pálsdóttir og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, GUÐRÚN SVEINFRÍÐUR JAKOBSDÓTTIR, Smáragrund 12, Sauðárkróki, sem lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 21. janúar, verður jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 1. febrúar kl. 13.30. Gunnlaugur Þórarinsson, Jóhanna Ingibjörg Lúðvíksdóttir, Kristín Lovísa Lúðvíksdóttir, Kolbeinn Sigurjónsson, Halldór Brynjar Gunnlaugsson, Þórunn Ólöf Gunnlaugsdóttir og barnabörnin. EINAR SIGURJÓNSSON fyrrum vegaverkstjóri, Grænumörk 5, Selfossi, lést að kvöldi þriðjudagsins 28. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Kristín Helgadóttir, Hildur Einarsdóttir, Guðmundur P. Arnoldsson, Gunnar Einarsson, Hulda Gunnlaugsdóttir, Garðar Einarsson, Dýrfinna Jónsdóttir, Karolína Hulda Guðmundsdóttir, Helga Einarsdóttir, Sigge Lindkvist, Anna Þóra Einarsdóttir, Halldór Ingi Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg móðir okkar, sambýliskona, stjúp- móðir, dóttir og amma, GUNNÞÓRUNN ÞORSTEINSDÓTTIR, Gauksstöðum, Garði, er látin. Jóhannes Ingi Sigurðsson, Hjaltlína Pálsdóttir, Þórunn Helga Sigurðardóttir,Gunnar Geirsson, Ólafur Sævar Elísson, Sonja Dögg Ólafsd., Eva Rut Ólafsd., Kristín Ingimundardóttir og Kristjana Margrét Jóhannesdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.