Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 38
38 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Fasteignasalar
Fasteignasala í Rvík óskar eftir kraftmiklum
samstarfsaðila, lögmanni eða lögg. fast-
eignasala. Möguleg eignaraðild eða samein-
ing/samruni við aðra sölu sem gæti verið
báðum til hagræðis. Í boði er m.a. húsnæði
og góður tækjakostur. Aðeins duglegir, ábyrgir
og vel kynntir aðilar koma til greina. Fyllsta
trúnaði heitið þeim, sem senda inn nöfn og
síma á box@mbl.is fyrir 5. febrúar,
merkt: „Fast — 13279.“
Afgreiðslufólk
Bakarameistarinn óskar eftir að ráða líflegt og
áreiðanlegt fólk á skemmtilegan vinnustað.
Æskilegur aldur 25 ára og eldri. Ýmsar vaktir
í boði.
Upplýsingar verða gefnar í Bakarameistaran-
um Suðurveri milli kl. 10 og 14.30.
Menntaskólinn í Kópavogi
Ræsting
Menntaskólinn í Kópavogi óskar eftir að ráða
starfsmann til dagræstingar.
Um er að ræða hálft starf 4 stundir á dag frá
kl. 8.00—12.00.
Laun eru skv. sérstökum samningi Eflingar og
fjármálaráðuneytisins. Nánari upplýsingar eru
veittar á skrifstofu skólans í síma 594 4000 og
þangað ber að skila umsóknum.
Skólameistari.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur samtakanna verður haldinn á
Mannhæðinni, Laugavegi 7, 3. hæð, föstu-
daginn 7. febrúar nk. kl. 18.00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin.
Sjálfstæðisflokkurinn
í Kópavogi
Þorrablót
sjálfstæðisfélaganna í Kópavogi
verður haldið í Lionssalnum,
Auðbrekku 25, laugardaginn
1. febrúar.
Húsið verður opnað kl. 18.30.
Borðhald hefst kl. 19.30.
Heiðursgestur:
Gunnar I. Birgisson.
Veislustjóri:
Sigurrós Þorgrímsdóttir.
Ríó tríó skemmtir.
Hljómsveitin Bræðrabandið
leikur fyrir dansi.
Söngur, grín og gleði.
Mætum öll
Miðar verða seldir í kvöld milli
kl. 20.00 og 22.00 í Hamraborg 1.
Nánari upplýsingar í síma 896 4980
Flugöryggisfundur
í kvöld kl. 20.00
á Hótel Loftleiðum — Bíósal
Hugleiðingar um almenna skynsemi
í fluglæknisfræði.
Þórður Sverrisson, augnlæknir og
fluglæknir hjá Fluglækningastofnun.
Nýr AL200CC flughermir Flugskóla
Íslands kynntur í máli og myndum.
Össur Brynjólfsson, yfirkennari Flugskóla
Íslands.
Lestur á flugsögu úr æviminningum
Þorsteins E. Jónssonar, flugstjóra.
Þórdís Sigurðardóttir, flugumferðar- og
þjálfunarstjóri hjá Flugmálastjórn Íslands.
Fjallað um starfsemi Flight Safety
Foundation og nýstofnaðrar Íslands-
deildar. Kynnt nýtt flugöryggiskerfi
Atlanta og möguleikar á að hagnýta
það í þágu einkaflugsins á Íslandi.
Einar Óskarsson, deildastjóri flugöryggis-
sviðs Flugfélagsins Atlanta hf.
Flugbíó: POWER, GRACE & GLORY.
Nýjasta myndbandið um Spitfire. Raktar
lykilákvarðanir við hönnun og flugprófanir
vélarinnar, fjallað um hinn margslungna
framleiðsluferil og þá skrautlegu flug-
rekstrarsögu sem ein af þessum frægustu
flugvélum heims á að baki.
Ókeypis kaffiveitingar!
NÝTT! - Popp, Prins og Coke til sölu.
FLUGMÁLAFÉLAG ÍSLANDS,
Öryggisnefnd FÍA,
Flugbjörgunarsveitin,
Flugmálastjórn Íslands.
TILKYNNINGAR
Bókaúrvalið
Brot af því besta:
Íslenskt fornbréfasafn 1—12, Safn til Sögu Íslands, Árbók
FÍ, Lesbók Morgunblaðsins 1-33, Ferðabók Þorvaldar
Thoroddsen fp., Tímarit Bókmenntafélagsins, Skírnir
1855-1957, Óðinn, Sunnanfari, Draupnir 1-12, Fiske Coll-
ection, Ævisaga Árna Þórarins 1-6, Ármann á Alþingi 1-4
fp., Lögfræðingur Páls Briem 1-5, Jarðatal Johnsens,
Frumvarp til nýrrar jarðabókar fyrir Ísland, Íslensk bygg-
ing, Úr land- suðri tölusett útg. 1939, Dagblaðið Tíminn 1-
24 árg., Árbækur Espolins ljósprent ób., Búvélar og rækt-
un, Fréttir frá Íslandi, Nýjar kvöldvörkur 1-51.
Gvendur dúllari - alltaf góður
Klapparstíg 35,
Sími 511 1925.
Bridsfélag Reykjavíkur
Föstudaginn 24. janúar var spilað-
ur einskvölds Monrad barómeter tví-
menningur með þátttöku 26 para.
Spilaðar voru 7 umferðir með 4 spil-
um á milli para. Efstu pör voru:
Ómar Olgeirsson – Ísak Örn Sigurðss. +126
Magnús Sverriss. – Guðlaugur Sveinss. +99
Ragnheiður Niels. – Hjördís Sigurjónsd. +55
Einar Guðm.. – Garðar Þór Garðarsson +47
Friðþjófur Einarss. – Björn Eysteinss. +39
Guðrún Jóhannesd. – Kristjana Steingr. +37
Skor þeirra Ómars og Ísaks var
glæsilegt en það jafngildir 68,8%
skori. Allt yfir 60% skor í keppni með
Monrad-fyrirkomulagi þykir gott.
Að tvímenningnum loknum var
spiluð miðnætursveitakeppni með
þátttöku 7 sveita. Sveit Birkis Jóns-
sonar endaði nokkuð öruggur sigur-
vegari með 62 vinningsstig úr 3 leikj-
um. Með Birki spiluðu: Guðbjörn
Þórðarson, Sigurjón Tryggvason og
Hermann Friðriksson. Í 2. sæti með
53 vinningsstig var sveit Maríu Har-
aldsdóttur. Með henni spiluðu Harpa
Fold Ingólfsdóttir, Ísak Örn Sigurðs-
son og Ómar Olgeirsson.
Föstudagskvöld BR eru röð eins-
kvölds tvímenninga sem byrja kl.
19:00 á föstudögum í húsnæði BSÍ,
Síðumúla 37. Spilaðir eru Mitchell og
Monrad barómeter tvímenningar til
skiptis. Alltaf eru forgefin spil og öll
úrslit eru sett inn á heimasíðu félags-
ins www.bridgefelag.is auk þess sem
efstu pör komast í textavarpið á síðu
326.
Pörum er boðið upp á að setja 300
kr. á mann í verðlaunapott sem síðan
rennur til efsta parsins sem tók þátt í
honum.
Að tvímenningnum loknum er boð-
ið upp á Miðnætursveitakeppni. Spil-
aðir eru þrír 6 spila leikir. Skemmti-
leg viðbót fyrir þá sem náðu ekki að
sýna sitt besta í tvímenningnum.
Keppnisstjórar eru Sigurbjörn
Haraldsson og Björgvin Már Krist-
insson og taka þeir á móti öllum með
bros á vör. Engu skiptir hvort menn
eru vanir eða óvanir, stakir eða í pör-
um, tekið er vel á móti öllum. Allir
spilarar velkomnir.
Bridsfélag
Siglufjarðar
Minningarmót um Benedikt Sig-
urjónsson
Föstudaginn 27. desember var
spilað minningarmót um Benedikt
Sigurjónsson fyrrum góðan félaga í
Bridsfélagi Siglufjarðar. Spilaður var
tvímenningur með þátttöku 16 para.
Eftir harða og jafna keppni stóðu
þeir bræður Ólafur og Steinar Jóns-
synir uppi sem sigurvegarar með 39
stig, í öðru sæti urðu einnig bræður,
Anton og Bogi Sigurbjörnssynir með
37 stig, annars urðu úrslit þessi:
Ólafur Jónsson - Steinar Jónsson 39
Anton Sigurbj.son - Bogi Sigurbjörns. 37
Ari Már Arason - Dagur Gunnarsson 34
Sig. Hafliðason - Sigfús Steingr.s. 26
Stefanía Sigurbjd. - Jóhanna Stefánss. 21
Birkir J. Jónss. - Guðlaug Márusdóttir 20
Jón Sigurbj.s. - Björk Jónsd. 19
Einmenningur
Mánudaginn 29. desember var
spilaður einmenningur í Allanum –
sportbar, „Eggertsmót“ Fremur
dræm þátttaka var og mættu aðeins
16 spilarar til leiks. Úrslit urðu þau
að sigurvegari og þar með einmenn-
ingsmeistari félagsins árið 2002 varð
Hreinn Magnússon sem hlaut 84 stig,
í 2.-4. sæti urðu þau Anton Sigur-
björnsson, Þórný Jensdóttir og Jó-
hann Jónsson með 83 stig og í 5. sæti
varð Vilhelm Friðriksson með 82
stig.
Undankeppni Íslandsmóts
Helgina 18.-19. janúar fór fram
undankeppni fyrir Íslandsmótið í
sveitakeppni, en Norðurland vestra á
rétt til að senda 3 sveitir í undan-
keppni Íslandsmótsins í sveitakeppni
sem haldið verður í Borgarnesi 4.-6.
apríl. 40 sveitir af öllu landinu spila
um rétt til þátttöku í úrslitakeppni
Íslandsmótsins þar sem 10 sveitir
berjast um Íslandsmeistaratitilinn.
Þær þrjár sveitir sem komast áfram í
undanúrslitin í Borgarnesi eru: Sveit
Jóhanns Stefánssonar sem vann mót-
ið og hlaut 101 stig, Siglósveitin sem
varð í öðru sæti með 99 stig og sveit
Guðna Kristjánssonar með 82 stig.
Siglufjarðarmót í sveitakeppni
Mánudaginn 13. janúar hófst
Siglufjarðarmót í sveitakeppni. Sjö
sveitir taka þátt í mótinu og er spil-
aður einn 24 spila leikur á kvöldi. Að
loknum tveimur umferðum er staðan
þessi:
1. sveit Þorsteins Jóhannssonar 49 stig
2. sveit Hreins Magnússonar 42 stig
3. sveit Íslandsbanka 29 stig
Bridsfélag Akureyrar
Spennan gífurleg!
Nú er aðeins ein umferð eftir af
undankeppni Aðalsveitarkeppni
Bridgefélags Akureyrar. Fjórar
efstu sveitirnar komast í A-úrslit og
geta orðið Akureyrarmeistarar í
sveitakeppni. Þegar 6 umferðum er
lokið er staðan þannig:
Sveit Frímanns Stefánssonar 115
Sveit Sparisjóðs Norðlendinga 103
Sveit Stefáns Sveinbjörnssonar 96
Sveit Gylfa Pálssonar 95
Sveit Páls Pálssonar 93
Sveit Jóns Björnssonar 89
Ljóst er að aðeins tvær efstu sveit-
irnar eru öruggar í A-úrslitin, en
hörð barátta er milli næstu fjögurra
sveita um hin tvö sætin. Í lokaum-
ferðinni, næstkomandi þriðjudag,
mætast sveitir Frímanns Stefánsson-
ar og Hjalta Bergmann, Sveit Spari-
sjóðs Norðlendinga mætir Sveit Jóns
Björnssonar, Sveit Stefáns Svein-
björnssonar og Sveit Páls Pálssonar
mætast og Sveit Gylfa Pálssonar
mætir Sveit Stefáns Vilhjálmssonar.
Næstkomandi laugardag verður
haldið Svæðamót Norðurlands
eystra í tvímenningi og komast sig-
urvegararnir beint í úrslit Íslands-
mótsins í tvímenningi í Reykjavík
3.–4. 5. 2003.
Spilað verður á Hótel KEA og
hefst spilamennska stundvíslega
kl.10.00 og eru mótslok áætluð kl:
17.30 - 18.00 (fer eftir fjölda þátttak-
enda). Aðstaða til spilamennsku er
frábær og öll umgerð hótelsins til
fyrirmyndar, eins og þeir þekkja sem
hafa spilað þar.
Við skráningum tekur Stefán Vil-
hjálmsson í síma: 462 2468, GSM 898
4475 og netfangi stefan@bugardur.-
is, fram til kl: 19.00 fimmtudaginn 30.
janúar 2003.
Bronsstigabaráttan
Nú hefur Anton Sigurbjörnsson
tekið afgerandi forystu í bronsstiga-
baráttunni, en hann hefur hlotið 243
bronsstig. Næstir koma.
2. Bogi Sigurbjörnsson 189 stig
3. Guðlaug Márusdóttir 159 stig
4. Ólafur Jónsson 158 stig
5. Hreinn Magnússon 157 stig.
Bridsfélag
Borgarfjarðar
Mánudaginn 27. janúar voru spil-
aðar tvær umferðir í aðalsveita-
keppni félagsins. Það bar helst til tíð-
inda að Skagamenn undir forystu
Þorgeirs Jósefssonar tóku „björtustu
von“ Borgfirðinga undir forystu Arn-
ar Einarssonar hreinlega í nefið og
endaði leikurinn 62-2 í IMP-um talið.
Þá hélt Hjálparsveit Hrefnu Jóns-
dóttur (14 ára) uppteknum hætti og
rúllaði yfir tvær af eldri sveitum fé-
lagsins. Staðan eftir fjórar umferðir
er þessi.
Skagamenn 93
Hjálparsveitin 92
Bjartasta vonin 72
Skólastrákarnir 65
Ekki verður spilað næsta mánudag
vegna afmælis Ingólfs Helgasonar á
Lundum en þann dag heldur hann
hátíðlega þá hálfu öld sem hann hefur
lifað. Bridgefélagið sendir hamingju-
óskir.
Nýliðabrids hefst á ný
Fyrsta spilakvöldið hjá nýliðunum
á þessu ári verður föstudaginn 31.
janúar kl. 20.00.
Spilað er í Síðumúla 37, 3. hæð. All-
ir sem kunna undirstöðuatriðin í
brids eru velkomnir. Umsjónarmað-
ur er Sigurbjörn Haraldsson og að-
stoðar hann við að finna spilafélaga
fyrir þá sem mæta stakir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson