Morgunblaðið - 30.01.2003, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 39
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
CRANIO-NÁM
2003-2004
Skráning hafin. 6 námsstig.
A-hluti 22.-27.feb. Námsefni á
ísl. Ísl. leiðbeinendur. Uppl.
Gunnar, s. 564 1803/699 8064.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 5 1831308 5.H-FI
Landsst. 6003013019 X
I.O.O.F. 11 1831308½ I.*
Í kvöld kl. 20.00.
Við höldum upp á 75 ára afmæli
Heimilasambandsins. Valgerður
Gísladóttir talar. Veitingar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Fimmtudagur 30. janúar
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Hafliði Kristinsson.
Þema samkomunnar verður
Samhjálp í 30 ár.
Sérstök hátíðarsamkoma verður
auglýst síðar.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskrá næstu viku:
Föstudagur 31. janúar
Opinn AA-fundur kl. 20.00.
Mánudagur 3. febrúar
ungSaM kl.19.00.
www.samhjalp.is
Hlaðhömrum 1 • Grafarvogi • sími 577 4949
Næs
Franskar dragtir í stærðum 38-52
Opnunartími
miðvikudag kl. 14-18 • fimmtudag kl. 14-18 og 20-22
föstudag kl. 14-18 • laugardag kl. 11-14
FASTEIGNASALAN GIMLI – GRENSÁSVEGI 13
SÍMI 570 4800 • FAX 570 4810
TRAUST ÞJÓNUSTA Í 20 ÁR
ÁRNI STEFÁNSSON VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR
GIMLI GIMLI
EINBÝLI
SEIÐAKVÍSL - EINBÝLI Vorum að fá í
einkasölu fallegt 156 fm einbýli ásamt 37
fm bílskúr. Húsið sendur innst í botnlanga.
Þrjú stórherb. og tvær stórar stofur með
arni. Fallegar innr. Glæsilegur garður. Fal-
legt útsýni. Bílskúr er sérsæður með mikilli
lofthæð. Glæsileg garður með heitum potti.
LAUST FLJÓTLEGA. Verð 24,5 millj.
BREKKUTÚN - TVÆR ÍBÚÐIR Sér-
lega fallegt og vandað hús, alls 274 fm.
Fjögur svefnherb., tvær stofur og svefn-
herbergi. Fallegur garður. Skemmtilegt
umhverfi neðarlega í Fossvogsdalnum.
Eign sem vert er að líta nánar á. Áhv. 8,8
millj.
5 HERB. OG STÆRRI
HRAUNBÆR - M/AUKAHERB. Vor-
um að fá í einkasölu bjarta og rúmgóða
120 fm íbúð á annarri hæð í nýviðgerðu
fjölbýli. Íbúðin skiptist í stóra stofu, gott
eldhús og 3 góð herbergi. Baðherbergi og
14 fm herbergi í kjallara. Íbúðin er öll ný-
tekin í gegn, s.s gólfefni og innréttingar.
Parket, dúkar og flísar á gólfum. Húsið er
klætt að utan m/steni. Verð 13,6 millj.
4RA HERBERGJA
ÞINGHÓLSBRAUT - KÓPAV. Nýtt á
skrá. Vel skipulögð 63 fm risíbúð í tvíbýli á
þessum eftirsótta stað. Þrjú svefnherbergi
og stofa. Búið er að endurn. ofna og ofna-
lagnir ásamt rafmagnstöflu. Kubbaparket
og flísar á gólfi. Verð 10,5 m. Áhv. 6,5 millj.
MIÐBÆR - LAUS STRAX - LYKL-
AR Á GIMLI Björt og afar rúmgóð 125
fm 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í lyftuhúsi,
byggðu 1985, auk stæðis í bílskýli. Íbúðin
er staðsett í húsi á horni Vitastígs og
Laugavegar. Innan íbúðar eru þrjú mjög
stór og rúmgóð svefnherbergi, hjónaher-
bergið er með sér baðherbergi og fata-
skáp og gengt út á flísalagðar suðursvalir.
Verð 17,0 millj.
2JA HERB.
LANGHOLTSVEGUR - SÉRINN-
GANGUR Stór og afar vel skipulögð 2ja
herb. 66,3 fm íbúð á jarðhæð með sérinn-
gangi. Íbúðin er mikið endurn., s.s. raf-
magnstafla + endurídregið, gler, ofnar og
ofnalagnir, nema í svefnherb. Járn á þaki
og skolp að hluta til. Verð 10,0 millj. Áhv.
4,2 millj.
SELJENDUR Í FOSSVOGI ATHUGIÐ
Höfum fjársterka kaupendur að einbýli eða raðhúsi með innbyggðum bílskúr. Um
er að ræða ríflegan afhendingartíma t.d. um mitt næsta sumar. Óskað er eftir
eignum á verðbilinu 25-35 millj. Ef þú ert í söluhugleiðingum hafðu þá samband
við Hákon eða Grétar á skrifstofu Gimlis.
JÓLAMERKI Barnauppeldis-
sjóðs Thorvaldsensfélagsins, Fram-
tíðarinnar á Akureyri, Rotaryklúbbs
Hafnarfjarðar, Líknarsjóðs Lions-
klúbbsins Þórs, Ungmennasam-
bands Borgarfjarðar, Kaþólska safn-
aðarins, Rauða kross Íslands, Hins
íslenska biblíufélags og Félags frí-
merkjasafnara.
Enn skal þeirri venju haldið að
greina í upphafi nýs árs á frá þeim
jóla-, líknar og styrktaramerkjum,
sem gefin voru út fyrir síðustu jól og
ég hef haft spurnir af. Þessi merki
eru eins konar hliðargrein við frí-
merkjasöfnun, og hefur söfnun
þeirra farið vaxandi, bæði hér á landi
og eins á öðrum Norðurlöndum og
trúlega víðar. Þá held ég, að söfnun
umslaga með þessum merkjum á
samhliða frímerkjum hafi eitthvað
aukizt. En þá verða þau að líta fal-
lega út og frímerkið, sjálft burðar-
gjaldið, að vera vel stimplað.
Eins og jafnan áður hefur Bolli
Davíðsson í Frímerkjahúsinu látið
þættinum þessi merki í té og eins
þær upplýsingar um þau, sem hon-
um er kunnugt um.
Eru honum enn færðar þakkir fyr-
ir hvort tveggja.
Að þessu sinni hafa tvenn samtök
helzt úr lestinni. Eru það Neistinn,
Styrktarfélag hjartveikra barna.
Hafði það gefið þrisvar út jólamerki.
Ég á von á, að einhverjir sakni
merkja frá Neistanum, því að þau
voru að mínum dómi mjög falleg,
ekki sízt merki frá 2001. Þá eru
Sunnuhlíðarsamtökin ekki með að
þessu sinni, en þau höfðu tvívegis
gefið út jólamerki.
Í fyrra fékk þátturinn upplýsingar
frá nokkrum útgefenda þessara
merkja. Að þessu sinni hafa þær ver-
ið heldur færri en áður, en hér verð-
ur því tjaldað, sem til er. Ég hef hins
vegar orðið þess var, að söfnurum
þykir fengur í að fá á einn stað sem
gleggstar upplýsingar um merkin og
tilgang þeirra og eins myndefnið og
svo um höfund eða hönnuð merkj-
anna. Og sé það rétt, að þeim sé að
fjölga, sem safna jólamerkjum og
öðrum þeim merkjum, sem við köll-
um líknar- og styrktarmerki, er
æskilegt að fá sem bezta vitneskju
um ofangreind atriði. Þetta ætti að
sjálfsögðu og ekki síður að vera um
leið fengur fyrir þau félög, sem gefa
merkin út til styrktar málefnum sín-
um.
Fyrst verður að venju jólamerki
Barnauppeldissjóðs Thorvaldsens-
félagsins, sem er langelzta íslenzka
jólamerkið. Hönnuður merkisins að
þessu sinni er Þröstur Magnússon,
sem er vel þekktur meðal frímerkja-
safnara fyrir falleg frímerki. Hygg
ég þetta sé í fyrsta skipti, sem hann
teiknar jólamerki fyrir Thorvald-
sensfélagið. Grafískur hönnuður
merkisins er Robert Gulliermette.
Ágóði af sölu merkjanna rennur að
þessu sinni til barnadeildar Land-
spítalans í Fossvogi og annarra
sjúkra barna.
Merki félagsins eru til sölu í Thor-
valdsensbasarnum, Austurstræti 4 í
Reykjavík. Á heimasíðu félagsins
www.thorvaldsens.is má skoða öll
jólamerki þess Þá má einnig panta
þau og eins eldri merki á netfangi fé-
lagsins, thorvaldsens@isl.is.
Næst í aldursröðinni er svo jóla-
merki Framtíðarinnar á Akureyri.
Er Framtíðin nú deild innan Félags
eldri borgara á Akureyri. Áður hafði
Kvenfélagið Framtíðin, sem stofnað
var 1894, gefið út jólamerki frá árinu
1935. Merkið teiknaði að þessu sinni
Hreggviður Ársælsson, grafískur
hönnuður. Myndefnið skýrir sig
sjálft. Er það prentað í Ásprenti á
Akureyri.
Þriðja merkið er gefið út af Rot-
aryklúbbi Hafnarfjarðar. Skúli Þórs-
son hefur tjáð mér, að sami félagi
klúbbsins og hannaði merki þeirra í
fyrra, Níels Árnason, hafi einnig
hannað jólamerkið 2002. Myndefnið
mun vera sótt í Almannagjá, þar sem
Öxarárfoss fellur niður í gjána.
Fjórða merkið gefur Líknarsjóður
Lionsklúbbsins Þórs út í 37.
skiptið. Hefur líknarsjóður Þórs
um árabil styrkt Tjaldanesheimilið í
Mosfellsdal og barnadeildir sjúkra-
húsanna í Reykjavík o.fl. Merkið
prýðir mynd af Laugarneskirkju í
Reykjavík. Er það hannað af Þór-
hildi Jónsdóttur auglýsingateiknara,
en hún teiknaði einnig merki klúbbs-
ins í fyrra.
Ungmennasamband Borgarfjarð-
ar gefur út jólamerki 16. árið í röð
samkv. tilkynningu sambandsins. Að
þessu sinni er teikning af kirkjunni á
Leirá í Leirársveit, sem reist var
1914. Guðmundur Sigurðsson teikn-
aði merkið eins og öll fyrri merki
sambandsins. Hefur hann teiknað
alls 22 merki af kirkjum um Borg-
arfjörð og Mýrar, svo að Ungmenna-
sambandið á enn teikningar til nokk-
urra ára. Merkin eru fáanleg bæði
tökkuð og ótökkuð.
Fást þau á skrifstofu UMSB,
BORGARBRAUT 61 í Borgarnesi,
en svo má panta þau í síma eða um
tölvupóst, umb@mmedia.is.
Kaþólski söfnuðurinn gefur aftur
út fallegt merki, þar sem myndefnið
er svipað og í fyrra, þ.e. María guðs-
móðir með Jesúbarnið í fanginu.
Fyrir ofan myndina stendur CARIT-
AS ÍSLAND og að neðan JÓLIN
2002. Caritas á Íslandi er hluti af
Caritas Internationalis, sem starfar
innan rómversk-kaþólsku kirkjunn-
ar og er umsvifamikil hjálparstofn-
un.
Caritas á Íslandi stendur fyrir
tveimur árlegum söfnunum, um jól
og páska.
Orðrétt sagði svo í fyrra um þenn-
an félagsskap: „Meginhlutverk
Caritas er að styðja við bakið á þeim,
sem minna mega sín. Ágóði af jóla-
merkjum Caritas rennur í hjálpar-
starf kirkjunnar innanlands.“ Hið ís-
lenska biblíufélag sendir í fimmta
sinn jólamerki. „hverjum sem þau
vilja og ræður fólk hve mikið það gef-
ur í söfnunina“, eins og segir í frétta-
tilkynningu. Það fé, sem safnaðist að
þessu sinni, rann til styrktar starfi
Biblíufélagsins í Bangladesh „við að
kenna fátæku fólki að lesa og skrifa
með hjálp Biblíunnar og til að útvega
nauðsynleg kennslugögn“. Hverju
merkjanna fylgir viðhengi með hluta
af jólaguðspjallinu, alls átta. Allt er á
einni örk, sem í eru tíu merki, hvert
með sínu myndefni. Örkin er eigu-
legur safngripur sem heild og með
sama sniði og hinar fyrri. Hér eru
fjögur merki sem sýnishorn með
tveimur viðhengjum. Í miðið er svo
sérstakt viðhengi, þar sem stendur:
Hið íslenska Biblíufélag – Jólin 2002.
Einnig er þar nafn listakonunnar,
sem heitir Gitte Engen.
Rauði kross Íslands bætir enn
verulega við safn jólamerkja, eins og
hann hefur gert um nokkur ár. Hann
sendi félagsmönnum sínum sams
konar jólakveðju og í fyrra með 36
merkjum með sex mismunandi út-
færslum.
Jafnframt fylgdu með kort og
merkispjöld. Áslaug Jónsdóttir
myndlistarkona og rithöfundur,
gerði jólaheftið að þessu sinni. Gíró-
seðill fylgdi með, ef menn vildu
styrkja með 600 króna framlagi starf
við neyðarathvarf fyrir börn og ung-
linga.
Öll þau félög, sem hér hafa verið
nefnd og hafa gefið út jóla- eða
styrktarmerki, hafa gert það til þess
að styrkja ýmis áhugamál sín og not-
að ágóðann til margvíslegra hluta.
Þá hefur Félag frímerkjasafnara
gefið út jólamerki í annað sinn.
Er það útgáfa míns gamla félags
til styrktar starfsemi sinni. Ég vék
rækilega að þessu framtaki þeirra í
fyrra, en þá var það gert í samvinnu
við Myntsafnarafélag Íslands. Vafa-
laust muna einhverjir eftir því, að ég
var þá og er vissulega enn lítt hrifinn
af þessu framtaki og finnst það fara
nokkuð „á skjön“ við megintilgang
jóla- og líknarmerkja, eins og ég orð-
aði það þá. En hvað um það? Hér
hafa aðrir aðra skoðun, og við því
verður ekkert sagt. Að þessu sinni
róa frímerkjasafnarar hins vegar
einir á báti. Myndefnið virðist alldul-
arfullt við fyrstu sýn, og svo ætla ég,
að fleiri en mér muni finnast. En
þegar ég hafði fengið skýringu frá
kunnugum manni, mun mega greina
jólaköttinn með jólasveinahúfu sitja
vinstra megin úti í glugga og horfa út
í náttmyrkrið. Eru það einu tengslin
við jólin auk textans: Jól 2002. Merk-
ið fæst einnig ótakkað. Hönnuður
þessa merkis er Sigrún Ásta Gunn-
laugsdóttir, en hún hannaði einnig
merki félagsins í fyrra.
Ég vona, að öllum þeim jóla-, líkn-
ar- og styrktarmerkjum, sem út voru
gefin fyrir síðustu jól, hafi verið gerð
sæmileg skil í þessum þætti.
Jóla-, líknar-
og styrktar-
merki 2002
Jóla-, líknar- og styrktarmerki 2002.
Frímerki
Jól 2002
Jón Aðalsteinn Jónsson