Morgunblaðið - 30.01.2003, Side 48
Stjörnuflotinn var á staðnum: Haukur Guð-
mundsson, Tanja Dögg Arnardóttir, Reynir
Örn Björnsson og Úlfhildur Ævarsdóttir og
í fremri röð eru Haukur Páll Finnsson og
Jónatan Jónsson.
VERSLUNIN Nexus stóð á þriðjudagskvöldið fyrir sér-
stakri forsýningu á nýjustu Star Trek myndinni, Nemes-
is, í Kringlubíói. Sýningin var textalaus og hlélaus eins
og venja er á Nexus-forsýningum.
Hefð er fyrir því að hörðustu aðdáendur mæti í viðeig-
andi Star Trek-búningum á þessar forsýningar og varð
engin undantekning á því nú. Einn, af um tíu manns, sem
mættu prúðbúnir að hætti Star Trek, fékk að launum
DVD-sett að eigin vali með Next Generation-þáttunum
frá Nexus.
Nemesis er nýjasta myndin um ævintýri Jean-Luc
Picards og félaga hans í áhöfn Enterprise. Talið er að
þetta verði síðasta mynd geimskipstjórans og eru því
aðdáendur hans og þáttanna að vonum spenntir.
Star Trek: Nemesis verður frumsýnd föstudaginn 7.
febrúar.
M
orgunblaðið/K
ristinn
Guðjón Sigmundsson, Ólafur Jakobsson, Tómas Sigmundsson og
Baldur Jóhannsson höfðu fyrir því að klæða sig upp í tilefni dagsins.
Prúðbúin á
lokaævintýri
TENGLAR
.................................................................................
www.nexus.is
Nexus-forsýning á Star Trek
48 FIMMTUDAGUR 30. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
DV
Frábær mynd frá leikstjóra L.A.Confidential
þar sem rapparinn EMINEM fer á
kostum í sínu fyrsta hlutverki.
Sýnd kl. 6 og 8.
H.TH útv. Saga. HL MBL
Kvikmyndir.is
Vönduð grínmynd með öllum uppáhaldsstjörnum Bretlands
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.05.
Kvikmyndir.is Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Radio X
Sýnd kl. 8. Síðasta sýning.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.15. B i 14 Forsýnd kl. 10.15.
Yfir 57.000 áhorfendur
Sýnd kl.5.50.
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 10.10.
2 vinsælustu myndir frönsku kvikmyndahátíðarinar
Stranglega bönnuð innan 16 ára
DV
MBL
DVMBL
ÓHT Rás 2
ÁLFABAKKI
ÁLFABAKKI
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 og 10. B. I. 16.
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.
KRINGLAN ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. / Sýnd kl. 4. Ísl. tal. /
/
ÓHT Rás 2
/ /
ÞAU Auður Benjamínsdóttir og Jens B. Helgason höfðu
heppnina með sér og voru dregin úr hópi þátttakenda í
HM leik Flugleiða og Morgunblaðsins á mbl.is. Þátttak-
endur eiga að þekkja mynd af landsliðsmanni í hand-
knattleik og allir sem svara rétt eiga möguleika á vinn-
ingi. Þátttaka er mjög góð í leiknum enda vinningarnir
ekki af verri endanum eða flugmiði að eigin vali á einn
af áfangastöðum Flugleiða í Evrópu.
Það voru Helga Árnadóttir sölustjóri Icelandair á Ís-
landi og Konráð Olavsson starfsmaður markaðsdeildar
Morgunblaðsins sem afhentu vinningshöfunum, Auði
Benjamínsdóttur og Jens B. Hafliðasyni, gjafabréf frá
Icelandair.
Morgunblaðið/Golli
HM-leikur Flugleiða og Morgunblaðsins
Hver er hand-
boltakappinn?
HJÓNIN Jóhanna Ármann og Þorlákur Friðriksson á
Skorrastað í Norðfirði héldu upp á gullbrúðkaup sitt í
Sigfúsarhúsi, húsi eldri borgara, á gamlársdag. Margt
var um manninn í veislunni, ættingjar og vinir sam-
fögnuðu þeim á þessum tímamótum. Það er ekki al-
gengt að hjón nái þessum tímamótum og enn sjaldgæf-
ara að þrjár systur fagni slíkum tímamótum með stuttu
millibili.
Systur Jóhönnu, þær Friðný Ármann og Jóna Ár-
mann, fagna einnig slíkum tímamótum um þessar
mundir. Friðný á Akranesi ásamt manni sínum Bjarna
Aðalsteinssyni nú í haust og Jóna á Skorrastað ásamt
manni sínum Júlíusi Þórðarsyni nú síðar í janúar.
Morgunblaðið/ Sigurður Aðalsteins
Hjónin ásamt svaramanninum.
Gullbrúðkaup í
Sigfúsarhúsi
Norður-Héraði. Morgunblaðið.
Kvikmyndaleikarinn Peter O’Toole
hefur farið fram á það við bandarísku
kvikmyndaakademíuna að því verði
frestað að sæma
hann heið-
ursverðlaunum
akademíunnar þar
sem hann keppi
enn að því að vinna
til almennra ósk-
arsverðlauna.
O’Toole hefur sjö
sinnum verið tilnefndur til ósk-
arsverðlauna sem besti leikari í aðal-
hlutverki en hann hefur þó aldrei
unnið til verðlaunanna.
Kvikmyndaakademían ákvað að
sæma O’Toole heiðursverðlaunum að
þessu sinni en leikarinn, sem er sjö-
tugur, hefur nú skrifað henni bréf og
beðið um að því verði frestað um tíu
ár.
Frank Pierson, forseti akademíunn-
ar, segir aðstandendur hennar
hrygga yfir viðbrögðum O’Tooles þar
sem þeir telji tímabært að hann eign-
ist sína eigin óskarsverðlaunastyttu
og að þeir voni að honum snúist hug-
ur.
O’Toole hefur m.a. verið tilnefndur
fyrir hlutverk sín í myndunum Lawr-
ence of Arabia, Becket, Goodbye Mr
Chips og My Favorite Year…
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur
staðfest þann úrskurð undirréttar að
lag dönsku hljómsveitarinnar Aqua,
„Barbie Girl“, brjóti ekki gegn rétti
Mattel-fyrirtækisins sem er einka-
leyfishafi Barbie-dúkkunnar.
Mattel stefndi MCA-útgáfufyrirtæk-
inu og öðrum þeim sem stóðu að út-
gáfu lagsins, vegna brota á einkaleyf-
islögum. Þá sagði fyrirtækið lagið
skaða ímynd dúkkunnar þar sem það
lýsi henni sem heimskri og óraun-
verulegri léttúðardrós.
Lagið naut á sínum tíma mikilla vin-
sælda og seldist í 1,4 milljónum ein-
taka í Bandaríkjunum… Stjórar í
höfuðstöðvum Columbia kvikmynda-
framleiðandans eru komnir á
skjálftavaktina vegna fregna af
meintum brestum í ástarsambandi
stórstjarnanna Ben Affleck og
Jennifer Lopez.
Ekki mun það vera
sökum umhyggju
fyrir velferð þeirra
og hamingju heldur
vegna þess að þau
hafa samþykkt að
leika saman í
myndinni Gigli fyr-
ir fyrirtækið. „Við erum æði hræddir
um að fari svo að þau hætti saman þá
muni þau heldur ekki geta unnið sam-
an,“ segja talsmenn fyrirtækisins.
Parið sjálft hefur samt ekkert tjáð sig
eftir meint rifrildi sem á að hafa átt
sér stað milli þeirra á Sundance-
kvikmyndahátíðinni í síðustu viku…
Britney Spears gekk út af heims-
frumsýningu myndarinnar The Sing-
ing Detective á Sundance-hátíðinni
vegna þess að henni þótti myndin svo
leiðinleg. Myndin skartar þeim Mel
Gibson og Robert Downey yngri í
aðalhlutverkum en söngkonunni var
alveg sama og gafst upp eftir 45 mín-
útur. „Mér fannst þessi mynd alltof
furðuleg.“ Reyndar bar hún við að
hún hefði þurft að fara vegna annarra
skuldbindinga en viðurkenndi að
henni hefði þótt myndin skrýtin, og
ekki bara myndin heldur þessi Sun-
dance-hátíð líka. „Myndirnar hérna
eru allar skrýtnar, það þarf að hugsa
svo mikið við að horfa á þær.“
FÓLK Ífréttum
Himinn og jörð að farast
(Sky is Falling)
Drama/gaman
Bandaríkin, 2000. Skífan VHS. (108
mín) Ekki við hæfi ungra barna. Leik-
stjórn og handrit: Florrie Laurence. Aðal-
hlutverk: Dedee Pfeiffer, Teri Garr, Bert
Remsen, Laura Leighton.
SKY is Falling er ein af þessum
litlu myndum sem leyna á sér, byrja
e.t.v. ekki of vel, en luma á fínum
persónum og
óvenjulegri at-
burðarás. Þar leik-
ur Dedee Pfeiffer,
systir hinnar
þekktu leikkonu
Michelle Pfeiffer
aðalhlutverkið og
stendur sig ágæt-
lega í hlutverki
Emily, ungrar konu sem er að sigla
inn í nokkurs konar þrítugskreppu.
Hún og kærastinn ranka við sér þeg-
ar staðið er frammi fyrir 10 ára út-
skriftarafmæli úr framhaldsskóla.
Þeim virðist lítið hafa áunnist á þess-
um tíu árum og fer sambandið að
losna í reipunum í kjölfarið. Og
áfram halda vandræði Emily, starfs-
ferillinn er enginn, hana langar að
senda frá sér skáldskap en fær ekk-
ert birt, fjölskyldumálin taka óvænta
stefnu þegar Emily kemst að sann-
leikanum um föður sinn, sem reynist
á lífi en ekki fallinn frá, eins og hin
annars indæla og bjartsýna móðir
Emily vildi vera láta.
Dregin er upp gráglettin mynd af
lífsraunum Emily, sem málar stöð-
ugt skrattann á vegginn, allt þar til
að góðir hlutir taka að gerast eftir að
starfsferill Emily tekur óvænta
stefnu. Bráðskondin mynd á köflum,
sem þó skilur mátulega lítið eftir sig.
Heiða Jóhannsdóttir
Myndbönd
Ung í sálarkreppu