Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 13
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 13 ELLEFU norrænir rithöfundar hafa verið tilnefndir til bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár og munu sjö þeirra lesa brot úr verkum sínum í Norræna hús- inu í kvöld kl. 19.30. Þeir eru Jó- hann Hjálmarsson, Álfrún Gunn- laugsdóttir, Pirjo Hassinen, Jørgen Norheim, Liv Kølzow, Morten Søndergaard og Kelly Berthelsen. Jórunn Sigurðardóttir dagskrár- gerðarmaður mun kynna þá til leiks og leiða gesti inn í heim verka þeirra með stuttri saman- tekt áður en þeir lesa úr verkum sínum. Kynnisferð fyrir tilnefnda rithöfunda Rithöfundarnir hófu hringferð í boði Nordbok um Norðurlöndin í Helsinki 23. janúar síðastliðinn og munu heimsækja Aabenraa, Eskil- stuna, Mariehamn, Asker, Þórs- höfn og Stokkhólm. „Þetta er eins- konar kynnisferð, þar sem þeir höfundar sem eru tilnefndir til verðlaunanna eru kynntir. Verk- efnið er nýtt í þessu starfi bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs og hófst í fyrra, þegar verðlaunin áttu 40 ára afmæli. Höfundarnir fóru þá einnig um Norðurlönd, sem þótti takast vel, svo það var endurtekið í ár,“ segir Jóhann Hjálmarsson, annar tveggja ís- lenskra rithöfunda sem tilnefndur hefur verið til bókmenntaverð- launa Norðurlandaráðs í ár. Til- nefninguna hlaut hann fyrir síð- ustu ljóðabók sína, Hljóðleika. Jóhann var nýverið í Mariehamn á Álandseyjum við upp- lestur, en að upp- lestrinum hér í Reykjavík loknum er ferðinni heitið til Færeyja, og þaðan til Stokkhólms, þar sem Jóhann les upp ásamt fleiri höfundum 13. febrúar. „Þetta er einkum í höfuðborg- unum, en það eru nokkrar undantekn- ingar frá því. Stað- irnir sem lesið er upp á eru af margvíslegum toga, á Álandi las ég til dæmis upp á bókasafni borgarinnar, þar sem mikil menningarstarfsemi fer fram, og hér á Íslandi verður lesið í Norræna húsinu.“ Mikill áhugi áheyrenda Jóhanni líst mjög vel á verk- efnið. „Ég geri ráð fyrir að það skipti máli fyrir lesendur og þá sem koma á þessarar dagskrár að kynnast höfundunum. Við lesum ekki úr tilnefndu verkunum ein- göngu, heldur eru verk höfund- arins í heild á dagskrá. Áheyr- endum gefst svo tækifæri til þess að ræða við höfundana um verkin – við fáum tækifæri til að svara spurningum og spjalla um efni bókanna og aðferðir við það að skrifa. Einnig er það gott mál fyrir höfundana sjálfa að kynnast hinum rithöfundunum sem eru tilnefndir og fræðast um þá í leiðinni.“ Á hverjum stað er dreift bæk- lingi sem gefinn hefur verið út í tilefni ferðarinnar, þar sem nálg- ast má upplýsingar um höfundana og verk þeirra, sem og lýsingar dómnefndarmanna. „Ég hef orðið var við mikinn áhuga áheyrenda sem koma á þessa upplestra,“ seg- ir Jóhann. Dómnefnd bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs mun koma sam- an í Stokkhólmi 21. febrúar og til- kynna hver hlýtur verðlaunin í ár. Verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandráðsþingi í Osló sem haldið verður 27.–29. október. Norrænir höf- undar lesa úr verkum sínum Álfrún Gunnlaugsdóttir Jóhann Hjálmarsson ÞJÓÐKIRKJAN undirbýr nú um- fangsmikla stefnumótunarvinnu og sendi í gær út vinnugögn til sókn- arnefnda um land allt, félaga og stofnana innan kirkjunnar að því er segir í fréttatilkynningu. Búast má við að vel á annað þúsund manns taki þátt í vinnunni þar sem rúmlega eitt þúsund manns sitja í sóknarnefndum auk þeirra sem sitja í nefndum. Stefnumótunin er unnin í sam- ræmi við samþykkt kirkjuþings 2002. Tvennt er einkum haft að leiðarljósi, þ.e. að greina stöðu þjóðkirkjunnar í samtíðinni og að fá vitneskju um hvaða skoðun fólk í þjóðkirkjunni hefur á því hvert kirkjan skuli stefna. Samkvæmt ályktun kirkjuþings skal virkja sem flesta innan þjóðkirkjunn- ar til þátttöku. Áhugasamt fólk innan kirkjunnar getur myndað hópa og fengið stefnu- mótunargögn send eða nálgast þau á vef stefnumótunar, www.kirkjan.is/ stefnumotun. Yfir þúsund manns í stefnumót- unarvinnu Þjóðkirkjan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.