Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 34
MINNINGAR 34 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Veitingahúsið Við Tjörnina Templarasundi 3 óskar eftir matreiðslumeistara í fullt starf sem fyrst. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „S — 13310“. Afgreiðslustarf Við óskum eftir líflegum og reglusömum starfs- krafti til afgreiðslustarfa á aldrinum 20—50 ára. Heildagsstarf/framtíðarstarf. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. merktar: „A — 13314“ eða í box@mbl.is fyrir 10. febrúar. FÉLAGSSTARF Sjálfstæðisfélögin Kópavogi Fundur Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins til Alþingis í Suðvesturkjördæmi boða til fundar í Hamra- borg 1, 3. hæð, fimmtudaginn 6. febrúar kl. 20. Dagskrá: 1. Frambjóðendum kjördæmisins reifa stjórn- málaviðhorfið. 2. Kosningabaráttan framundan. 3. Önnur mál. Allir sjálfstæðismenn velkomnir, kaffi á könnunni. Stjórnir fulltrúaráðsins og sjálfstæðisfélaganna. TILKYNNINGAR Hafnarfjarðarbær Auglýsing um afgreiðslu bæjarstjórnar Hafnarfjarð- ar á skipulagsáætlun Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar- laga nr. 73/1997, m.s.br., er hér með auglýst samþykkt bæjarstjórnar Hafnarfjarðar á nýju deiliskipulagi fyrir „Velli miðsvæði, 1. áfanga“ í Hafnarfirði. Tillagan var samþykkt á fundi bæjarstjórnar þann 20. ágúst 2002. Skipulagsstofnun hefur yfirfarið deiliskipu- lagið. Auglýsing um gildistöku birtist í B-deild Stjórn- artíðinda 10. febrúar nk. Nánari upplýsingar eru veittar á bæjarskipulagi Hafnarfjarðar, Strandgötu 8—10, 3. hæð, Hafnarfirði. Skipulagsstjóri Hafnarfjarðar. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 5  183268  II* Landsst. 6003020619 VIII I.O.O.F. 11  183267½  G.H. Í kvöld kl. 20.00. Kvöldvaka í umsjón starfsfólks gistihússins. Happdrætti og veitingar. Allir hjartanlega velkomnir. Fimmtudagur 6. febrúar Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20.00. Mikill söngur og vitnisburðir. Prédikun: G. Theodór Birgisson. Allir hjartanlega velkomnir. Dagskrá næstu viku: Föstudagur 7. febrúar Opinn AA-fundur kl. 20.00. Mánudagur 10. febrúar ungSaM kl.19.00. www.samhjalp.is R A Ð A U G L Ý S I N G A R annan hvern miðvikudag ATVINNUAUGLÝSINGAR sendist á augl@mbl.is á ný til að takast á við lífið. Berglind eiginkona hans hefur verið klettur- inn í lífi hans, stutt hann og hvatt með dáðum, enda kona gædd ein- stökum persónuleika. Hennar og barnanna er missirinn mestur. Síðast þegar ég hitti Nonna voru nokkrir dagar síðan hann hafði unn- ið mikið þrekvirki er hann synti sjó- sund á nýársdag. Við áttum góða stund saman þar sem við ræddum lífið og tilveruna af mikilli alvöru. Ég hafði orð á því við Nonna að ég hefði áhyggjur af þessu sjó-busli, þetta gæti ekki verið hollt fyrir neinn mann! Hann hló bara að mér og sagði að þetta gerði sér svo gríð- arlega gott, hann fyndi fyrir svo miklu andlegu jafnvægi og styrk þegar hann væri að synda í ísköldum sjónum. Ég er óendanlega þakklát fyrir að hafa fengið tækifæri til hitta þig og eiga þetta samtal við þig, Nonni minn. Þetta var okkar kveðju- stund. Elsku Nonni minn, nú ertu lagður í þitt hinsta sund. Hver áfangastað- urinn er veist aðeins þú, en ég veit að amma og afi taka vel á móti stráknum sínum. Sársauki og sorg nísta hjarta mitt er ég rita þessar línur, en ég ætla að gera eins og þú sjálfur myndir hafa gert, virða val þitt. Vertu sæll, Nonni bró. Elsku Berglind, Birna Dögg, Þor- steinn Otti, Kallý og Jón Eyjólfur. Orð mega sín lítils á stundu sem þessari. Við fjölskyldan biðjum þess að algóður Guð styðji ykkur og styrki til að takast á við sorgina og lífið sem framundan er. Bræðrunum sem og öðrum aðstandendum og samferðamönnum Jóns Otta sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðj- ur. Góður drengur er fallinn frá. Kristín Einarsdóttir. Mig langar með þessum fátæk- legu línum að minnast Jóns Otta eða „Nonna“ föðurbróður míns. Þegar pabbi hringdi með þau sorglegu tíð- indi að Nonni bróðir hans væri dáinn setti mig hljóða. Af hverju Nonni? Minningarnar þutu í gegnum huga mér, ég man eftir því þegar ég var lítil stelpa og þú komst í heimsókn. Þú tókst mig alltaf upp til að vita hvað ég væri nú orðin stór og þung, og alltaf var viðkvæðið það sama: „Vá, það er aldeilis að þú ert orðin stór stelpa.“ Þessu hættir þú þó al- veg árið sem ég varð 15 ára, enda frænkan orðin „fullorðin kona“. Þú varst mikill íþróttamaður og sýndir sundiðkun minni mikinn áhuga og hvattir mig til dáða á þeirri braut. Mesta sportið var samt þegar þú varst í umferðarlögreglunni og varst á löggumótorhjóli og leist inn í kaffi á Hellisgötuna. Þá hópuðust að krakkarnir úr hverfinu og fengu að skoða gripinn og ekki spillti fyrir að ég naut auðvitað mikilla vinsælda í kjölfarið. Eftir því sem árin liðu urðu samskipti okkar minni, ég flutt- ist til Þórshafnar með fjölskyldu minni, en þegar við hittumst hafðir þú gaman af því að ræða Þórshöfn við mig því þar varst þú eitt sumar í afleysingum í lögreglunni. Þegar við fluttum svo á Reyðarfjörð, þar sem við bjuggum í fjögur ár, rifjaðir þú upp minningar þínar frá Eskifirði þar sem þú bjóst sem unglingur með afa Gísla og mér fannst við eiga svo mikið sameiginlegt. Þú varst mikill grínisti og hafðir einstaka frásagnarhæfni og áttir auðvelt með að kalla fram bros og gleði hjá þeim sem á hlustuðu. Ég veit að líf þitt var ekki slétt og fellt og vona að þú hafir fengið frið. Ég veit að amma Sigga og afi Gísli hafa tekið á móti drengnum sínum opnum örmum. Ég hitti þig síðast á nýársdag þar sem þú syntir nýárssundið með fé- lögum þínum í lögreglunni í Naut- hólsvíkinni, stór og stæðilegur frændi minn stakk sér til sunds og að sundferð lokinni steigst þú upp úr sjónum með báðar hendur á lofti og bros á vör. Ég var bæði hrærð og stolt af frænda mínum og í mínum augum varstu hetja og þannig vil ég minnast þín, elsku frændi. Elsku Berglind, Kallý, Eyjólfur, Þorsteinn Otti, Birna Dögg, Halldór, Ívar Már og Kristófer Logi, megi góður Guð styrkja ykkur á erfiðri stundu. Þóra Einarsdóttir. Jón Otti frændi var nokkrum ár- um eldri en ég og á þeim tíma sem við vorum að alast upp á Bergstaða- strætinu var eitt ár sem áratugur í huga barnsins. Ég leit upp til stóru frændanna í næsta húsi. Einar er töframaðurinn í minningunni, þar sem hann gekk á höndum á gang- stéttinni, Ragnar var dúfnameistar- inn og Jón Otti prakkarinn. Það sit- ur í minningunni, nú sem góð minning, þegar hann tók lítinn frænda með sér í geymsluskúrana á baklóðinni við nr. 12 til að sýna hon- um drauga og litli frændinn hljóp hljóðandi út. Þá varð Jóni Otta ekki um sel þótt það hlakkaði eflaust í honum líka. Því hann var stríðinn en líka kíminn og glaðlyndur. Svo skildi leiðir en alltaf hittumst við af og til og það urðu alltaf fagn- aðarfundir því Jón Otti var frænd- rækinn og hlýr maður. Hann bjó yfir góðri frásagnargáfu. Minnisstæð er grein eftir Jón Otta sem birtist í fréttabréfi lögreglumanna þar sem hann fjallaði á bráðfyndinn hátt um örtröðina sem aldrei varð á Kristnihátíð á Þingvöllum. Nú er þessi góði frændi skyndi- lega horfinn úr lífi okkar og það myndast dimmt tóm. Nú rifjum við ekki lengur upp prakkarasögur af Bergstaðastrætinu eða skiptumst á sögum. Sagt er að tíminn lækni öll sár og él stytti upp um síðir. En á þessari stundu bið ég æðri máttar- völd að styrkja Berglindi, börnin, bræður og aðra ástvini Jóns Otta í þeirra miklu sorg. Guðjón Guðmundsson. JÓN OTTI GÍSLASON  Fleiri minningargreinar um Jón Otta Gíslason bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, HÖSKULDUR BJARNASON frá Burstafelli, Drangsnesi, andaðist á Hrafnistu í Reykjavík laugardaginn 1. febrúar. Kveðjuathöfn fer fram frá Fossvogskirkju í dag, fimmtudaginn 6. febrúar, kl. 13.30. Útförin fer fram frá Drangsneskapellu laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Hrafnistu í Reykjavík. Anna Guðrún Halldórsdóttir, Gunnhildur Höskuldsdóttir, Erling Birkir Ottósson, Jóhanna Björk Larsen, Hans John Larsen, Bjarnveig Höskuldsdóttir, Ragnar Sigbjörnsson, Friðgeir Höskuldsson, Sigurbjörg H. Halldórsdóttir, Anna Guðrún Höskuldsdóttir, Guðmundur Ingvarsson, Auður Höskuldsdóttir, Jón Anton Magnússon, Halldór Höskuldsson, Sunna Jakobína Einarsdóttir, afa- og langafabörn. Lokað Vegna útfarar GÍSLA I. JÓNSSONAR verða skrifstofur okkar lokaðar í dag, fimmtudaginn 6. febrúar, frá kl. 13.00-15.00. Sjóvá-Almennar tryggingar hf., Kringlunni 5. Tjónaskoðunarstöðin, Draghálsi 14-16. Innilegar þakkir sendum við öllum þeim er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður minnar, tengdamóður og ömmu, ÞÓRHILDAR GUNNÞÓRSDÓTTUR. Jón Þórarinn Sverrisson, Sigrún Skúladóttir, Sverrir Jónsson, Hildur Björk Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.