Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 16
ERLENT
16 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÍSRAELSKI herinn jafnaði í gær
við jörðu heimili herskás Palest-
ínumanns í flóttamannabúðum á
Gazasvæðinu og bönuðu þar með
aldraðri konu, Kamla Saaed, sem
grófst undir braki úr húsinu. Þá
skutu ísraelskir hermenn palest-
ínskan lögreglumann til bana á
Vesturbakkanum, eftir því sem
vitni greindu frá.
Talsmenn Ísraelshers sögðu
ennfremur að fimmtán eftirlýstir
Palestínumenn hefðu verið hand-
teknir í áhlaupum á Vesturbakk-
anum snemma í gærmorgun, og sjö
aðrir Palestínumenn færðir til yf-
irheyrslu.
Á miðju Gaza-svæðinu ruddust
ísraelskir hermenn með jarðýtur
inn í Moghazi-flóttamannabúðirnar
og rifu þar hús sem var í eigu Baha
Abu Said, herskás Palestínumanns
sem var drepinn í árás í nóvember
2000 fyrir að hafa drepið tvo ísr-
aelska hermenn. Stjúpmóðir Abu
Saids, Kamla Abu Said, var í hús-
inu er það var jafnað við jörðu og
dó úr þeim áverkum sem hún
hlaut. Ekki var fullljóst hvers
vegna hún var enn í húsinu er það
var rifið. Konan kvað hafa verið
heyrnardauf.
Áhyggjur af
efnahagsástandi
Samtímis þessum umdeildu að-
gerðum fjölgaði viðvörunarröddum
í Ísrael, sem lýsa vaxandi áhyggj-
um af efnahagsástandinu í landinu,
bæði vegna áhrifa niðursveiflunnar
í heimsviðskiptum sem og hinum
mikla kostnaði af því að halda úti
stríðinu gegn intifada-uppreisn
Palestínumanna. Fundur um 50
forystumanna úr ísraelsku atvinnu-
lífi gaf á þriðjudagskvöld út álykt-
un, þar sem hvatt er til þess að
mynduð verði þjóðstjórn pólitískr-
ar breiðfylkingar sem einsetti sér
að bjarga ísraelsku efnahagslífi frá
hruni.
Fjárlagahallinn í Ísrael var met-
hár í janúar, sem fulltrúar fjár-
málaráðuneytisins skýrðu með
lækkun skatttekna, en sú lækkun
endurspeglar hve fyrirtækin í
landinu standa mörg illa.
Kona grófst undir
húsarústum á Gaza
Umdeildar að-
gerðir Ísraels-
hers á Gaza
Reuters
Útför Kamla Saeed, sem var 65 ára og dó í árásinni á húsið, var gerð í gær.
Talið er að hún hafi ekki heyrt hvað var að gerast og því ekki forðað sér.
Jerúsalem. AP, AFP.
ATVINNULEYSI í Þýzkalandi
jókst í 11,1 prósentustig í janúar-
mánuði, er 4,62 milljónir vinnufærra
manna voru skráðir án atvinnu í
landinu, eftir því sem þýzka vinnu-
málastofnunin greindi frá í gær.
Atvinnuleysisstigið hefur aldrei
fyrr náð svo hátt í rúmlega fjögurra
ára ríkisstjórnartíð Gerhards
Schröders kanzlara. Fyrra hámark
var 4,46 milljónir atvinnulausra í
febrúar 1999, þegar tæpt hálft ár var
liðið af fyrra kjörtímabili stjórnar-
innar. Í desember sl. fór atvinnu-
leysishlutfallið yfir hið pólitískt við-
kvæma 10%-mark, er fjöldinn
mældist 4,25 milljónir.
Florian Gerster, forstöðumaður
þýzku vinnumálastofnunarinnar,
sagði að fyrstu merkin um að hag-
sveiflan væri aftur á uppleið væru
enn ekki farin að koma í ljós á vinnu-
markaðnum. Mikill munur er á at-
vinnuleysisstiginu í austurhluta og
vesturhluta Þýzkalands. Í austrinu
mælist það nú 19,5% en 8,8% í vestri.
Þýzkaland
Atvinnuleysi
yfir 11%
Frankfurt. AP.
STJÓRNVÖLD í Norður-Kóreu
sögðust í gær hafa gangsett
kjarnaofna sína á ný og yrði starf-
semi kjarnorkuvera haldið áfram
með reglubundnum hætti, en
henni var hætt í tengslum við
samkomulag við Bandaríkin sem
gert var 1994. Opinber fréttastofa
Norður-Kóreu hafði eftir ónafn-
greindum talsmanni utanríkis-
ráðuneytisins að kjarnorkuverin
yrðu notuð til að framleiða raf-
magn „eins og stendur“.
Ónafngreindur embættismaður
í bandaríska utanríkisráðuneytinu
sagði ákvörðun kommúnista-
stjórnar Kim Jong-ils „mjög al-
varlegt mál“ og yrðu þeir hvattir
til að endurskoða hana.
Hóta að hætta að
viðurkenna öryggisráð SÞ
„Norður-Kóreumenn verða að
hætta við áætlun sína um smíði
kjarnorkuvopna og gera það svo
öllum sé það ljós, þannig að hægt
sé að færa sönnur á það og
tryggja að áætlunin verði ekki
sett aftur í gang,“ sagði embættis-
maðurinn.
Norður-Kóreumenn sögðu
einnig að þeir myndu hætta að
viðurkenna öryggisráð Samein-
uðu þjóðanna ef ráðið tæki Banda-
ríkjamenn ekki á beinið fyrir það
sem stjórnvöld í Norður-Kóreu
kalla „ranga stefnu“ í málefnum
Kóreuskagans. Þá vöruðu Norð-
ur-Kóreumenn við því að þeir
myndu grípa til ráðstafana ef
Bandaríkin gerðu sig líkleg til að
senda aukinn herliðsafla til Kór-
euskagans.
Bandarískir embættismenn og
kjarnorkusérfræðingar segja að
Norður-Kóreumenn geti aðeins
framleitt lítið eitt af rafmagni í
kjarnorkuverum sínum. Óttast
þeir að hið raunverulega markmið
Norður-Kóreu sé að hefja fram-
leiðslu á ný á plútoni, sem notað
yrði til gerðar kjarnorkuvopna.
Kjarnorkuver
ræst á ný í
Norður-Kóreu
Talið að markmiðið sé að fram-
leiða efni í kjarnorkusprengju
Seoul. AFP.
RUUD Lubbers, yfirmaður Flótta-
mannahjálpar Sameinuðu þjóðanna
(UNHCR), segir að hugsanlegt
stríð í Írak geti orðið til þess að um
það bil 600.000 Írakar reyni að flýja
til grannríkjanna.
Lubbers telur líklegt að um
helmingur flóttafólksins reyni að
komast til Írans, aðallega sjítar í
suðurhluta Íraks og íbúar miðhlut-
ans. Búist sé við að Kúrdar í norð-
urhlutanum reyni að flýja til Tyrk-
lands og aðrir haldi til Sýrlands eða
Jórdaníu. Ólíklegt þykir að Írakar
reyni að fara til Kúveits vegna mik-
ils vígbúnaðar við landamærin.
Að sögn Lubbers stefna Sádi-
Arabar að því að halda landamær-
um sínum lokuðum en líklegt er að
þeir bjóði grannríkjunum aðstoð
taki þau á móti flóttafólki.
Lubbers segir að varlega áætlað
kunni um 600.000 Írakar að reyna
að komast úr landi bresti stríð á.
„Reynslan sýnir að mat okkar er
aldrei nákvæmt,“ bætti hann þó
við. „En þetta er besta ágiskun
okkar.“
Þessi tala er í samræmi við trún-
aðarskýrslu embættismanna SÞ
sem komst í hendur hreyfingar sem
berst gegn stríði í Írak. Í skýrsl-
unni var varað við því að um þrjár
milljónir af 23 milljónum íbúa Íraks
kynnu að svelta og allt að hálf millj-
ón gæti þurft á læknisaðstoð að
halda vegna átaka eða farsótta.
Flóttamannahjálpin óskaði í des-
ember eftir andvirði tæpra þriggja
milljarða króna til að hægt yrði að
flytja matvæli og önnur hjálpar-
gögn á Persaflóðasvæðið. Lubbers
segir að þjóðir heims hafi ekki enn
orðið við þessari beiðni.
Lubbers kveðst vona að hægt
verði að komast hjá stríði en
Flóttamannahjálpin þyrfti að vera
við öllu búin.
Talsmaður Alþjóðaheilbrigðis-
málastofnunarinnar, WHO, sagði
að henni bæri skylda til að búa sig
undir að bregðast við hugsanlegum
afleiðingum stríðs í Írak, meðal
annars kólerufaraldri. „Við búum
okkur undir það versta en vonum
það besta,“ sagði hann.
Óttast mikinn
flóttamanna-
straum frá Írak
Reuters
Liðsmenn Baath-stjórnarflokksins í Írak hlusta á liðsforingja á æfingu í
Bagdad í gær. Baath er sósíalískur og hefur stýrt landinu í nokkra áratugi.
Talið að um 600.000 manns kunni að
reyna að flýja frá landinu
Genf. AP.