Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 27
i þig í
jufullur.
eitt-
tt. Hér er
af sam-
) í írösku
verð-
efnið
Ég skil.“
pta-
m.“
usum
.“
in stafaði
kar hefðu
ölin væru
aunin.
um Íraka
itað að 12
með slíkt
agði hann
æranlegar
lífefnavopnaverksmiðjur. Greindi
hann og frá því að vitað væri að til-
raunir með efnavopn á 1.600 írösk-
um föngum, sem dæmdir hefðu verið
til dauða, til að rannsaka virkni
þeirra. Þeir hefðu látið lífið með
hrikalegum hætti. Þá sýndi hann
myndir af flugvél sem hann kvað
Íraka hafa freistað að breyta í því
skyni að henni mætti beita til að
dreifa eitri úr lofti. Sagði hann Íraka
nú vinna að þróun smærri, fjar-
stýrðra flugvéla í þessu skyni.
Kjarnavopn og eldflaugar
„Saddam Hussein er ákveðinn í að
komast yfir kjarnorkuvopn,“ sagði
Powell er hann vék að hættulegustu
gereyðingarvopnunum. Sagði hann
Íraksforseta nú ráða yfir vísinda-
þekkingu og sprengjutækni til að
framleiða slík vopn. Hann vantaði
hins vegar þriðja og síðasta þáttinn,
tækni til að auðga úraníum.
Powell fullyrti að Írakar hefðu
brotið gegn ályktunum SÞ hvað
burðarkerfi fyrir gereyðingarvopn
áhrærði. Þeir ættu nú „um það bil
12“ eldflaugar sem drægju 600 til
950 kílómetra. Þessi vopnaeign væri
án nokkurs vafa brot gegn ályktun-
um Sameinuðu þjóðanna. Þá kvað
hann stjórn Íraksforseta hafa brotið
gegn ályktunum SÞ með því að flytja
inn í landið hreyfla í langdrægar eld-
flaugar.
Samstarf við
hryðjuverkamenn
Powell rakti ítarlega gögn sem
hann kvað liggja fyrir og sanna að
Saddam Hussein ætti samstarf við
hryðjuverkahópa. Powell fullyrti að
menn á vegum al-Qaeda-samtaka
hryðjuverkamannsins Osama bin
Ladens, sem gerði árásina á Banda-
ríkin 11. september 2001, hefðu
undanfarna átta mánuði haldið til í
Bagdad, höfuðborg Íraks. Powell
sýndi myndir af þjálfunarbúðum
hryðjuverkamanna og kvað bin Lad-
en hafa átt fundi með íröskum emb-
ættismönnum en sendiráði Íraka í
Pakistan hefði verið falið að halda
við þessum tengslum.
„Saddam Hussein hefur um langt
skeið nýtt sér hryðjuverkastarf-
semi,“ sagði Powell og kvað þetta
einnig eiga við um hópa í Mið-Aust-
urlöndum svo sem Hamas-samtökin
og Íslamska Jíhad, sem einkum
beittu sér gegn Ísraelum.
Bandaríski utanríkisráðherrann
lýsti yfir því að Saddam Hussein og
stjórn hans væri raunveruleg ógn
við öryggi heimsbyggðarinnar.
„Hann mun ekki hætta fyrr en ein-
hver stöðvar hann,“ sagði Powell og
hvatti ríki í öryggisráðinu til að
„taka ekki áhættuna“. Það myndu
Bandaríkin ekki gera. Kvað hann ör-
yggisráðið skuldbundið til að bregð-
ast við brotum Íraka gegn ályktun-
um þess og þá fyrr en síðar.
hættir ekki og
ur að stöðva“
Reuters
Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í öryggisráði SÞ í gær.
g-
ykt-
nn
Í RÆÐU Powells kom fram aðÍrakar hefðu haldið áfram til-raunum með smíði lang-drægra eldflauga og einnig að
þeir hefðu ekki gefið tilraunir til að
búa til kjarnorkuvopn upp á bátinn.
Þeir hefðu, þvert á ályktanir örygg-
isráðs SÞ, gert tilraunir með
ómannaðar flugvélar sem flutt gætu
gereyðingarvopn og sýndi ráð-
herrann loftmyndir og teikningar
þessu til sönnunar. Ein myndin
sýndi langa lest stórra vörubíla við
tilraunastöðvar fyrir efnavopn og
eldflaugar og var hún tekin tveim
dögum áður en vopnaeftirlitsmenn
SÞ fóru aftur til Íraks eftir fjögurra
ára hlé, að sögn CNN-sjónvarps-
stöðvarinnar.
Ráðherrann minnti á að þegar
eftirlitsmenn hefðu farið til Íraks
árið 1991 hefðu þeir í fyrsta sinn
rannsakað helstu kjarnorkustöðvar
landsmanna og ekki talið að neitt
benti til að Saddam væri að huga að
vopnaframleiðslu. En maður sem
hlaupist hefði undan merkjum hefði
í maí sama ár veitt upplýsingar sem
komið hefðu upp um Íraka. Í ljós
hefði komið að þeir hefðu staðið fyr-
ir viðamikilli, leynilegri áætlun um
smíði kjarnorkuvopna og notað
margvíslega tækni til að auðga úran.
Hefði áætlunin kostað milljarða
dollara.
En stjórn Saddams hefði eftir
sem áður staðhæft í skýrslum til Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunarinn-
ar, IAEA, í Vín að engin slík vopna-
áætlun væri í gangi. Hefði ekki verið
gripið í taumana mætti ætla að Írak-
ar hefðu verið búnir að koma sér
upp kjarnorkusprengju árið 1993,
mörgum árum fyrr en tortryggn-
ustu menn á Vesturlöndum hefðu
talið mögulegt fyrir Persaflóastríðið
1991. Árið 1995 hefði annar liðhlaupi
upplýst að Saddam hefði eftir inn-
rásina í Kúveit hleypt af stað áætlun
um að búa til í flýti frumstæða
kjarnorkusprengju.
Tvö af þrem
skilyrðum uppfyllt
Þrennt þyrfti til að smíða kjarna-
vopn, sagði Powell. Í fyrsta lagi
teikningar og þekkingu, í öðru lagi
hæfa vísindamenn og loks svonefnt
auðgað úran sem hægt er að nota í
sprengju. Stjórn Saddams Husseins
ætti einvörðungu eftir að ná síðasta
takmarkinu.
„Frá árinu 1998 hafa tilraunir
hans til að koma vopnaáætlun sinni
aftur af stað beinst að síðasta atrið-
inu; nægilegu magni af kjarnakleyfu
efni til að koma af stað kjarnorku-
sprengingu. Til þess að búa til
kjarnakleyft efni þarf hann að þróa
aðferð til að auðga úran.“
Powell sagði að fregnir hefðu
fljótlega borist af því að stjórnvöld í
Bagdad hefðu látið fela mikilvæg
skjöl um ólögleg vopn á einkaheim-
ilum þegar ljóst var að eftirlit yrði
tekið upp á ný.
„Með aðstoð upplýsinga sem við
öfluðum gátu eftirlitsmennirnir ný-
lega staðfest þessar fregnir með
dramatískum hætti. Er þeir rann-
sökuðu heimili írasks kjarnorkuvís-
indamanns fundu þeir um 2.000
blaðsíður af skjölum,“ sagði Powell
og bætti við að sum skjalanna hefðu
verið leynileg og þau tengst kjarn-
orkuvopnaáætlun Íraka. „Segið mér
eitt, verða eftirlitsmennirnir að
rannsaka hús hvers einasta embætt-
ismanns, sérhvers liðsmanns Baath-
flokksins og sérhvers vísindamanns
í landinu til að komast að sannleik-
anum, fá þær upplýsingar sem þeir
þurfa, til að fullnægja kröfum ör-
yggisráðsins?“ spurði bandaríski
ráðherrann.
Hann benti á að harðir diskar í
tölvum íraskra vopnarannsóknar-
stöðva hefðu sums staðar verið fjar-
lægðir og ekkert væri vitað hvað um
þá hefði orðið. Ljóst væri að um
væri að ræða þátt í blekkingum
Íraka og markmiðið að hindra störf
eftirlitsmanna.
Powell minnti á að eftirlitsmenn
hefðu fundið 12 sérsmíðuð álrör sem
Írakar fullyrtu að ætlunin væri að
nota í flugskeytabyssur með hefð-
bundnum sprengjuhleðslum. En
slík viðskipti væru ávallt rannsökuð
vandlega af starfsmönnum IAEA
vegna þess að hægt væri að nota þau
í skilvindur til að auðga úran og þess
mætti geta að kaup Íraka á slíkum
rörum væru óheimil.
Undarleg forgangsröðun Íraka
Skiptar skoðanir væru um það
hvort Írakar segðu sannleikann um
rörin. Bandarískir sérfræðingar
teldu að rörin hefði átt að nota í skil-
vindur. Powell sagðist ekki vera sér-
fræðingur á þessu sviði en hann
gæti þó sjálfur bent á að furðulegt
væri að rörin væru úr efni sem væri
mun sterkara en notað væri í sams
konar flugskeyti fyrir Bandaríkja-
her. „Ef til vill nota Írakar bara
strangari staðla en við þegar þeir
framleiða hefðbundin vopn en ég tel
ekki að svo sé,“ sagði ráðherrann.
Hann bætti því við að Bandaríkja-
menn hefðu upplýsingar um að
Írakar létu stöðugt endurbæta
hönnun röranna sem þeir keyptu er-
lendis en það væri undarleg ráðstöf-
un þegar haft væri í huga að rör fyr-
ir flugskeytabyssur væru einnota;
flugskeytin sundrast sem kunnugt
er þegar þeim er beint að skotmarki.
Powell sagði að Írakar væru einn-
ig að reyna að komast yfir ýmsan
annan hátæknibúnað sem notaður
sé í tæki til að auðga úran, þ.á m.
búnað fyrir gas-skilvindur. Um það
væru til margar heimildir en Írakar
hefðu meðal annars leitað hófanna
um kaup á slíkum búnaði í Rúmeníu,
á Indlandi, í Rússlandi og Slóveníu.
Reyna að auðga
úran til að
smíða sprengju
AP
Umdeild, sérsmíðuð álrör sem Írakar létu framleiða fyrir sig erlendis og
sögðu að nota hefði átt í hleðslur fyrir flugskeytabyssur. Bandaríkja-
menn telja að nota hafi átt rörin í búnað til að auðga úran í kjarnorku-
sprengju. Benti Powell á að Írakar hefðu gert undarlega miklar kröfur
um nákvæma smíði á rörum sem ættu að vera í flugskeyti og því einnota.
otað þessi
ann hefur
fólki. Síð-
fur ekkert
f beitingu
asið?
hefði tekið
na, að þeir
n af hinu
en aðeins
að drepa
iðurkennt
á Hussein
dams, en
hann flýði land en hvarf síðan aftur
til Íraks. Var hann þá tekinn af lífi.
Sagði Powell, að vitað væri úr
fjórum ólíkum áttum, að Írakar
hefðu komið sér upp fullkomnum,
færanlegum lífefnaverksmiðjum og
rannsóknarstofum, sem framleitt
gætu miltisbrand, rísín og önnur efni
í lífefnavopn. Sagði hann, að þessar
stöðvar væru að minnsta kosti sjö og
unnt að fela þær í flutningabílum og
lestum, sem færu frá einum staðnum
til annars. Vitað væri, að flutninga-
bílar, sem notaðir væru í þessu
skyni, væru a.m.k. 18 og hugsanlega
fleiri.
Reuters
navopnageymslu og sérútbúnum bíl til sótt-
10. nóvember í haust en myndin til hægri 22.
ameinuðu þjóðanna að renna í hlað. Fundu þeir
unum hafði verið, og sótthreinsa þær.
flaugar“
COLIN Powell, utanríkis-ráðherra Bandaríkjanna,hélt því fram í ræðu sinni
að „ískyggileg tengsl“ væru á
milli stjórnvalda í Írak og liðs-
manna al-Qaeda-hryðjuverka-
samtakanna. Írakar ættu í stöð-
ugum samskiptum við al-Qaeda
og háttsettur al-Qaeda-liði, Abu
Musab al-Zarqawi, hefðist við í
Norður-Írak. Sýndi Powell gervi-
hnattamyndir af búðum Zarqaw-
is.
Powell sagði að þegar Banda-
ríkjaher hefði rutt Talibana-
stjórninni í Afganistan úr vegi
haustið 2001 hefði Zarqawi fund-
ið sér nýtt hæli – hann hefði kom-
ið sér upp búðum í Norðaustur-
Írak. „Í þessum búðum er mönn-
um kennt að búa til rísín og annað
eitur,“ sagði Powell en fram kom
hjá honum að Zarqawi væri sér-
fróður um framleiðslu slíkra efna.
Sýndi Powell myndir af fjölda
al-Qaeda-manna sem hann sagði
hluta af neti hryðjuverkamanna
sem starfaði í Norður-Afríku,
Vestur-Evrópu og í Georgíu og
Tétsníu. Nokkrir nánir samstarfs-
menn al-Zarqawis væru virkir
liðsmenn skæruliðasveita í Pank-
isi-skarði í Georgíu og í Tétsníu.
Fer frjáls ferða
sinna í Bagdad
„En Zarqawi hefst ekki aðeins
við á litlu svæði í Norðaustur-
Írak,“ sagði Powell. „Hann ferð-
aðist til Bagdad í maí 2002 til að
komast undir læknishendur. Þar
dvaldi hann í tvo mánuði á meðan
hann náði fullri heilsu. Á meðan
hann dvaldist í Bagdad komu
rúmlega tuttugu öfgamenn saman
í borginni og settu þar á lagg-
irnar bækistöðvar. Þessir vopna-
bræður al-Qaeda, sem hafast við í
Bagdad, stýra nú ferðum manna,
fjármuna og aðfanga inn og út úr
Írak fyrir sellu Zarqawis og þeir
hafa getað unnið verk sitt óáreitt-
ir í höfuðborg-
inni undanfarna
átta mánuði.“
Bin Laden og
Saddam
gerðu sam-
komulag
Powell sagði
það ekki koma
á óvart að Írak-
ar hefðu skotið skjólshúsi yfir
Zarqawi og aðstoðarmenn hans.
Löng hefð væri fyrir tengslum
milli Íraks og al-Qaeda. „Ef við
förum aftur til upphafs síðasta
áratugar, þegar [Osama] bin Lad-
en var í Súdan, þá náðu Saddam
og bin Laden, að sögn heimildar-
manns úr al-Qaeda, samkomulagi
um að al-Qaeda hætti að styðja
hryðjuverk sem beindust gegn
stjórninni í Bagdad.“
Sagði Powell að íraska leyni-
þjónustan hefði átt í nánum sam-
skiptum við al-Qaeda frá því
snemma á síðasta áratug síðustu
aldar. Kom fram hjá ráðherran-
um að liðsmenn al-Qaeda, sem
Bandaríkjamenn hafa í haldi,
hefðu upplýst að Saddam Hussein,
forseti Íraks, hefði gerst áhuga-
samur um að aðstoða al-Qaeda
eftir hryðjuverkaárásir samtak-
anna á sendiráð Bandaríkjanna í
Tansaníu og Kenýa sumarið 1998.
Útsendarar stjórnarinnar í
Bagdad hefðu reglulega heimsótt
bin Laden til Afganistan. Írakar
hefðu notað sendiráð sitt í Pak-
istan sem miðstöð samskiptanna
við al-Qaeda fram til 2001.
„Sumir trúa því, sumir halda
því fram að þessi samskipti skipti
litlu. Veraldleg einræðisstjórn
Saddams og trúarofstæki al-
Qaeda eigi ekki samleið. Sú til-
hugsun róar mig ekki neitt. Metn-
aður og hatur Íraka og al-Qaeda
nægir fyllilega til að þeir séu til-
búnir til að fylkja liði saman,“
sagði Powell.
„Ískyggileg tengsl“
Íraka og al-Qaeda
Musab Zarqawi