Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Sími 588 1200
Lágmúla og Smáratorgi
opið kl. 8-24
alla daga
„ÉG trúi því að maður uppskeri eins og
maður sáir,“ segir Olga Sigríður Jóhanns-
dóttir, 27 ára atvinnulaus kona, sem gefst
ekki upp og hefur sótt um 70 störf og farið
í um 10 atvinnuviðtöl frá því hún hóf at-
vinnuleit í nóvember síðastliðnum.
Skráð atvinnuleysi hefur aukist um tæp
19% frá áramótum. Fólki, sem hefur verið
atvinnulaust í sex mánuði eða lengur,
fjölgar. Í samtali við Morgunblaðið í dag
lýsa þrír einstaklingar því hvernig það er
að vera atvinnulaus á Íslandi. Öll ráð eru
notuð til að finna nýja vinnu; fylgst er með
auglýsingum í blöðum, á Netinu og farið
reglulega á vinnumiðlanir. Einnig sendir
fólk umsóknir til fyrirtækja sem ekki aug-
lýsa eftir fólki til að leita af sér allan grun.
Sigurbjörg Jakobsdóttir, einn viðmæl-
enda Morgunblaðsins, hefur verið atvinnu-
laus í fjóra mánuði. Hún hefur verið í fjar-
námi undanfarið en segist hafa áhyggjur
af fjármálunum enda sé erfitt að standa
við fjárhagslegar skuldbindingar, t.d.
vegna íbúðar sem hún og maður hennar
festu nýverið kaup á.
„Maður getur ekki leyft sér margt,“
segir Ólafur Örn Ólafsson, sem hefur ver-
ið atvinnulaus síðan í október. Hann segir
að ekki megi mikið út af bregða til að fjár-
málin fari á verri veg. Bæturnar nægi þó
fyrir mat og því allra nauðsynlegasta.
Öll ráð eru
notuð til að
finna vinnu
Brekkurnar eru brattar/6
NÝLEGAR niðurstöður úr stærstu rannsókn
á blóðþrýstingslyfjum sem gerð hefur verið
til þessa, og fór fram í Bandaríkjunum,
benda til þess að eldri og ódýrari lyf séu
fyllilega sambærileg við nýrri og allt að því
þrítugfalt dýrari lyf.
Samkvæmt samantekt á vegum heilbrigð-
isráðuneytisins er áætlað að spara hefði mátt
allt að 5 milljarða króna hér á landi á tíma-
bilinu frá árinu 1983 til dagsins í dag, ef
notkun nýju blóðþrýstingslyfjanna hefði al-
farið verið sleppt en eldri lyf, svonefnd þvag-
ræsislyf, hefðu verið notuð í staðinn. Í frétta-
pistli á heimasíðu ráðuneytisins segir að
jafnvel þótt gert sé ráð fyrir að ekki væri
raunhæft að notast alfarið við eldri lyfin sé
ljóst að sparnaðarmöguleikar séu miklir og
að mikið fé hafi farið fyrir lítið með tilkomu
hinna nýju blóðþrýstingslyfja.
Eldri lyf ávallt fyrsti kostur
Niðurstöður blóðþrýstingsrannsóknarinn-
ar, sem nefnd hefur veið ALLHAT-rann-
sóknin, voru birtar í riti bandarísku lækna-
samtakanna, Journal of the American
Medical Association (JAMA), í desember síð-
astliðnum. Rúmlega 33 þúsund einstaklingar
tóku þátt í rannsókninni, sem stóð yfir í átta
ár.
Höfundar rannsóknarinnar segja að hin
eldri lyf, þ.e. þvagræsislyfin, ættu ávallt að
vera fyrsti kosturinn sem valinn er fyrir
sjúklinga með of háan blóðþrýsting.
Samkvæmt rannsókninni fækkaði tilvísun-
um lækna í Bandaríkjunum á þvagræsislyfin
úr 56% af öllum tilvísunum við háum blóð-
þrýstingi á árinu 1982 í 27% á árinu 1992.
Ný rannsókn á samanburði á nýjum og gömlum blóðþrýstingslyfjum
Spara mátti allt að 5 milljarða
Öllum ráðum beitt/B6
GENGISVÍSITALA krónunnar fór í gær
undir 120 stig og hefur ekki verið lægri frá
því í desemberbyrjun árið 2000. Gengisvísi-
talan mælir verð erlendra gjaldmiðla og
lækkar þess vegna þegar gengi krónunnar
styrkist. Krónan hefur styrkst jafnt og þétt
frá því í haust, þegar vísitala krónunnar fór
yfir 130 stig og í gærmorgun var vísitalan
komin í 119,83 stig samkvæmt gengisskrán-
ingu Seðlabankans.
Lokagengi var þó 121,34, enda tilkynnti
Seðlabankinn eftir lokun millibankamark-
aðar að hann myndi kaupa 1,5 milljónir
Bandaríkjadala hvern viðskiptadag, í stað-
inn fyrir þrisvar í viku. Krónan veiktist því
um 0,29% í gær.
Peningastefnu Seðlabankans var breytt í
mars árið 2001 þegar vikmörk gengisvísi-
tölu krónunnar voru afnumin og tekið var
upp verðbólgumarkmið í stað gengisviðmið-
unar, en gömlu vikmörkin voru 104,66 og
125,36 stig. Eftir að hætt var að miða við
vikmörkin hækkaði krónan mikið eins og
áður er lýst.
Greining Íslandsbanka reiknar með því
að krónan eigi eftir að styrkjast frekar á
þessu ári og því næsta. Í Gjaldeyrismálum
Ráðgjafar og efnahagsspár sagði í gær að
hækkun gengis krónunnar hefði aukið líkur
á vaxtalækkun Seðlabankans vegna áhrifa
gengishækkunarinnar á útflutningsgreinar.
*
*
$+
,- " &
776 77 K7
5'C
5! !'%
.!776
Gengisvísi-
talan ekki
lægri í tvö ár
SVO virðist sem lögreglunni í
Keflavík hafi aðeins borist ein
ábending um Magnús Leópolds-
son eftir að leirmynd var birt í fjöl-
miðlum síðla árs 1974, en myndin
var gerð eftir lýsingum vitna á
manni sem var talinn tengjast
hvarfi Geirfinns Einarssonar. Í op-
inberri umræðu af hálfu rannsókn-
araðila í Keflavík hefur hins vegar
komið fram að fjöldi ábendinga
hafi borist varðandi hann.
Þetta er meðal þess sem kemur
fram í skýrslu Láru V. Júlíusdótt-
ur sem var skipuð til að rannsaka
tildrög þess að Magnús Leópolds-
son var á sínum tíma grunaður um
aðild að hvarfi Geirfinns Einars-
sonar og saklaus látinn sæta
gæsluvarðhaldi í 105 daga.
„Mér finnst það sem ég hef lesið
í skýrslunni mjög athyglisvert,“
segir Magnús Leópoldsson, en
segist þó ekki átta sig fyllilega á
niðurstöðum hennar miðað við
gefnar forsendur. Nánar spurður
um þetta vildi Magnús ekki tjá sig
þar sem hann hefur ekki lesið
skýrsluna ítarlega. „En hún leiðir
margt í ljós sem ég hef reyndar
talið mig vita. Ég er ánægður með
að henni skuli lokið og lít svo á að
baráttunni fyrir að endurheimta
mannorð mitt sé nú endanlega lok-
ið.
Mér fannst mikill ávinningur af
því þegar ég fékk því framgengt
að þessi rannsókn færi fram og
sönnun þess að ég var ekki að fara
með neitt fleipur. Ég var aldrei í
vafa um að skýrslan yrði mér hag-
stæð. Nú hefur það verið gert fyrir
mig sem ég bað um og því mun ég
ekki hafa frekari afskipti af þessu
máli. Ríkissaksóknara hefur verið
sent bréf varðandi nokkur atriði
sem koma fram í skýrslunni með
tilliti til þess hvort frekari rann-
sókn á Geirfinnsmálinu eigi að fara
fram, en það eru atriði sem snúa
ekki að mér, þannig að ég mun
ekki skipta mér af málinu. Ég er
bara mjög ánægður og feginn að
þessu skuli lokið, þetta hefur ekki
verið neitt smávegis mál, þau 27 ár
sem liðin eru síðan ég var settur í
gæsluvarðhald. Það er ekkert grín
að ná mannorðinu aftur.“
Lára kemst að þeirri niðurstöðu
að það hafi verið framburður
þriggja sakborninga í Geirfinns-
málinu sem varð til þess að Magn-
ús var hnepptur í gæsluvarðhald.
Telur Lára ekki óvarlegt að ætla
að einhverjar hugmyndir kunni þá
að hafa kviknað sem síðan hafi
leitt af sér sögusagnir sem mögn-
uðust með tímanum og náðu há-
marki fljótlega eftir handtöku
Magnúsar.
Valtýr Sigurðsson, héraðsdóm-
ari við Héraðsdóm Reykjavíkur,
var fulltrúi bæjarfógetans í Kefla-
vík þegar Geirfinnur hvarf og fór
með stjórn lögreglu í umboði hans.
Í samtali við Morgunblaðið í gær
sagði Valtýr að skýrslan staðfesti
það sem hann hafi alltaf haldið
fram. Rannsókn lögreglunnar í
Keflavík hafi verið vandvirknis-
lega unnin og að ásakanir um mis-
ferli lögreglu séu út í hött.
Magnús Leópoldsson kveðst ánægður með skýrslu saksóknara
Segir lokið baráttu fyrir
endurheimt mannorðs
Mál Magnúsar/2, 11–12
VERSLUNARSKÓLI Íslands frumsýndi í Loftkastalanum í gærkvöld
nýjan söngleik eftir Jón Gnarr sem nefnist „Made in USA“. Um er að
ræða gamansaman söngleik „með bandarísku bragði“.
Mikil stemning var á frumsýningunni og var leikendum og söngv-
urum ákaft fagnað í sýningarlok af frumsýningargestum. Tónlistin í
verkinu er frá síðustu þrjátíu til fjörutíu árum í rokksögunni. Leikstjóri
sýningarinnar er Jóhann G. Jóhannsson, Jón Ólafsson er tónlistarstjóri
og dansana samdi Ástrós Gunnarsdóttir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verslingar syngja og dansa á bandaríska vísu