Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 40
ÍÞRÓTTIR
40 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EKKI verður aftur keppt sam-
kvæmt því fyrirkomulagi sem
reynt var á heimsmeist-
aramótinu í handknattleik í
Portúgal á dögunum. Fyrir
dyrum stendur að gera enn
eina breytinguna þegar heims-
meistarakeppni kvenna verður
háð í Króatíu í lok þessa árs.
Reynist þær breytingar vel má
reikna með að leikið verði eftir
því fyrirkomulagi á HM karla í
Túnis eftir tvö ár.
Áfram stendur til að leika
undankeppni með 24 liðum,
þ.e. í fjórum riðlum með sex
liðum í hverjum.
Að riðlakeppninni lokinni
verða þrjú neðstu lið hvers rið-
ils send heim en þrjú þau efstu
halda áfram keppni, alls tólf
lið.
Þá tekur við keppni í tveim-
ur sex liða riðlum þar sem liðin
úr A- og B-riðli undankeppn-
innar mætast í einum riðli og
þrjú efstu lið C- og D-riðils
verða í öðrum riðli. Liðin taka
með sér stig og markatölu úr
innbyrðis leikjum inn í milli-
riðlana eins og verið hefur
þannig að hvert þeirra léki að-
eins þrjá leiki til viðbótar í
milliriðlum.
Að þeim loknum mætir sig-
urliðið úr milliriðli eitt því liði
sem varð í öðru sæti í milliriðli
tvö og sá sem stæði uppi sem
sigurvegari í milliriðli tvö
keppir við þann sem hafnar í
öðru sæti í milliriðli eitt.
Sigurliðin úr þeim leikjum
eigast síðan við um gullið en
tapliðin bítast um bronsið.
Sami háttur verður líklega
hafður á í keppninni um 5.–8.
sætið en hugsanlegt er sam-
kvæmt þessu fyrirkomulagi að
leika um tólf efstu sætin á
heimsmeistarakeppninni.
Gunnar og Stefán héldu til Portóhinn 18. janúar sl. þar sem þeir
gengust undir skriflegt sem og lík-
amlegt próf. Þaðan
héldu þeir til eyjunn-
ar Madeira þar sem
þeir dæmdu þrjá
leiki í riðlakeppninni.
„Við dæmdum alls fimm leiki og eng-
inn þeirra var auðveldur. Í riðla-
keppninni dæmdum við þrjá leiki,
einn leik í milliriðli sem fram fór í
Pavóa de Varzim, þar sem Þjóðverjar
og Júgóslavar skildu jafnir, en síðasti
leikur okkar var undanúrslitaleikur
Spánverja og Króata sem var tví-
framlengdur. Við settum okkur það
markmið fyrir mótið að vera í hópi
fimm bestu dómarapara keppninnar
og okkur tókst það,“ sagði Gunnar
hógvær en samkvæmt fréttum frá
dómaranefnd IHF enduðu þeir í efsta
sæti þegar störf allra dómarapara
keppninnar voru metin af IHF.
Gunnar sagði að þeir hefðu ekki
sett sig í „stellingar“ á meðan þeir
voru að dæma á HM.
„Við reyndum að gera okkar besta
en teljum að við getum enn bætt okk-
ur töluvert. Í raun og veru erum við
ekki að gera neitt öðruvísi á slíku
móti en það sem við hér á Íslandi,“
sagði Gunnar og bætti því við að und-
irbúningurinn væri strangur fyrir
svona mót. Við hlaupum mikið úti,
dæmum um 70 leiki hér á landi á
hverju ári auk verkefna á erlendri
grund. Það er mikið álag á dómara-
pörum á slíku stórmóti. Þrátt fyrir að
við dæmum „aðeins“ fimm leiki vor-
um við til taks í milliriðlinum í tveim-
ur leikjum sem varadómarar auk
þess sem við vorum varaparið á úr-
slitaleiknum,“ bætti Gunnar við en í
handknattleik er skipt um dómarapar
þrátt fyrir að aðeins annar dómarinn
heltist úr lestinni.
Gunnar og Stefán dæmdu á HM
kvenna árið 2001 og „duttu“ inn sem
dómarar á HM karla sama ár í
Frakklandi á síðustu stundu. „Við
fengum tækifæri á ný á EM í Svíþjóð
í fyrra og eins og allir aðrir höfum við
sett markmiðið á Ólympíuleikana í
Grikklandi árið 2004. Við lítum á okk-
ur sem íþróttamenn, æfum mikið og
leggjum mikið á okkur til þess að ná
árangri,“ sagði Gunnar og var ánægð-
ur með útkomuna í Portúgal. „Við
dæmdum í riðlakeppni á Madeira þar
sem mikið gekk á. Þar kom Argentína
mjög á óvart með góðri spila-
mennsku. Króatía var þar einnig og
við sáum nýkrýnda meistara tapa þar
fyrir Argentínu. Við upplifðum því
aðeins jafna leiki og það eru skemmti-
legir hlutir að gerast í S-Ameríku.“
„Við dæmdum leik Ungverja og
Argentínumanna í lokaumferð riðla-
keppninnar og það átti í raun að vera
úrslitaleikur riðilsins en Sádar gerðu
sér hinsvegar lítið fyrir og náðu sér í
fyrsta sigur sinn frá upphafi á HM í
lokaumferðinni með því að leggja
Argentínu að velli, 31:30. Ég veit að
ungverska liðið var þegar búið að
gera ráðstafanir fyrir brotthvarf sitt
úr keppninni fyrir lokaumferðina en
þess í stað komust þeir í milliriðil og
tryggðu sér í kjölfarið sæti á Ólymp-
íuleikunum,“ sagði Gunnar.
Mikið hefur verið rætt um spillingu
í handknattleik á undanförnum miss-
erum og hefur kastljósinu þá verið
beint að dómurum og hafa sumir
þeirra verið grunaðir um að þiggja
mútugreiðslur. Aðspurður sagðist
Gunnar hafa heyrt þennan orðróm en
aldrei orðið var við slíkt. „Við Stefán
höfum dæmt um 60 leiki á alþjóðleg-
um vettvangi og höfum aldrei orðið
varir við slíkt. Í Portúgal var ekki gef-
in út dagskrá fyrir dómarana nema
fyrir tvo eða einn dag í einu. Það er
venjan og hefur sitt að segja í þessum
efnum en ég tel að handknattleiks-
dómarar á slíkum mótum sem HM
séu ekki að hugsa um slíka hluti,“
sagði Gunnar. Næsta verkefni á er-
lendri grund verður leikur þýska liðs-
ins Lemgo og SC Pik Szeget frá Ung-
verjalandi en um er að ræða fyrri leik
liðanna í Evrópukeppni bikarhafa.
„Þar er á ferð stór hluti þýska silf-
urliðsins frá HM og við mætum fersk-
ir til leiks í deildarkeppnina hér á
landi um helgina eftir vikufrí,“ sagði
Gunnar en hann viðurkenndi að hafa
tekið lífinu með ró eftir HM. „Veðrið
er ekki þannig að hvetja mig til þess
að fara út að hlaupa,“ sagði Gunnar.
Breytt
fyrir-
komulag
á HM
Morgunblaðið/RAX
Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson fyrir leik Króatíu og Spánar í undanúrslitum HM sem þeir dæmdu óaðfinnanlega. Á litlu
myndunum má sjá þá félaga að störfum í leiknum sem var tvíframlengdur – Stefán til vinstri, Gunnar til hægri.
Gunnar Viðarsson og Stefán Arnaldsson stóðust prófið á HM í Portúgal
Hafa sett stefnuna
á ÓL-leikana í Aþenu
„VIÐ settum okkur markmið fyrir fjórum árum þegar við hófum að
dæma saman. Þeim markmiðum höfum við nú náð og höfum sett-
stefnuna á að dæma á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004,“ sagði
Gunnar Viðarsson handknattleiksdómari í gær en hann stóð í
ströngu á Heimsmeistaramótinu í Portúgal ásamt félaga sínum,
Stefáni Arnaldssyni. Gunnar og Stefán fengu prýðiseinkunnir fyrir
frammistöðu sína í Portúgal og taldi Gunnar að framundan væru
spennandi tímar hjá þeim sem dómarapari.
Eftir
Sigurð Elvar
Þórólfsson
JÓN Arnar Magnússon, fjölþraut-
armaður úr Breiðabliki, kemur
heim frá Svíþjóð í dag og tekur
þátt í Meistaramóti Íslands sem
fram fer í Fífunni í Kópavogi um
helgina. Jón Arnar er skráður til
leiks í sex keppnisgreinum á
mótinu; 60 m hlaupi, 60 m grinda-
hlaupi, kúluvarpi, langstökki, há-
stökki og stangarstökki, og vantar
hann aðeins eina grein upp á að
ljúka sjöþraut, en undir keppni í
þeirri grein er hann að búa sig um
þessar mundir. Hann keppir um
aðra helgi á árlegu og alþjóðlegu
sjöþrautarmóti í Tallinn í Eist-
landi þar sem hann hyggst freista
þess að ná lágmarksárangri fyrir
HM innanhúss sem fram fer í
Birmingham um miðjan mars.
Þetta er í fyrsta sinn sem Meist-
aramót Íslands fer fram undir
einu þaki, en ný íþróttahöll Kópa-
vogsbúa gerir það kleift þar sem í
Fífunni er ágæt aðstaða til frjáls-
íþrótta. Vala Flosadóttir, stang-
arstökkvari úr ÍR, verður ekki á
meðal keppenda á MÍ en hins veg-
ar verður Þórey Edda Elísdóttir,
FH, í eldlínunni, en hún tryggði
sér á dögunum keppnisrétt á HM í
Birmingham fyrst Íslendinga. Þá
verður Sunna Gestsdóttir, Íslands-
methafi í langstökki úr UMSS,
einnig á meðal keppenda á MÍ og
er skráð í margar greinar.
Jón Arnar keppir í sex greinum á MÍ