Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ        ! "#$ %  &'#$           BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. FÁ mál hafa verið jafnmikið í um- ræðunni og virkjunaráform Lands- virkjunar við Kárahnjúka og álver við Reyðarfjörð. Sennilega er leitun að öðru máli sem hefur verið viðkvæm- ara og snortið jafndjúpt stóran hluta þjóðarinnar. Um er að ræða mestu breytingu á náttúru þessa lands, óaft- urkræfa framkvæmd sem ekki er vit- að hvort skili nokkrum ávinning nema fyrir vissa aðila sem stefna á skjót- fenginn gróða á kostnað íslensku þjóðarinnar. Með gríðarlegri röskun á náttúru Austurlands er farið í framkvæmd sem hefur vakið undrun víða erlendis. Þýska tímaritið GEO sem er eitt það virtasta og besta rit um landafræði ekki aðeins í Þýskalandi heldur í öll- um heiminum, hefur tekið þessar fyr- irhuguðu framkvæmdir upp á sína arma. Í júlíhefti þess frá síðasta ári má lesa ítarlega úttekt þýsku blaða- mannanna á fyrirhuguðum fram- kvæmdum á hálendinu. Eru m.a. birt viðtöl við virta íslenska fræðimenn sem útlista nánar þessi mál. Síðustu þættirnir í þessu endemis máli sem ber öll einkenni að vera fremur ómerkilegur kosningavíxill, minnir einna helst á leikhús fáranleik- ans. Þeir geta vart verið heiðarlegum íslenskum stjórnmálamönnum til framdráttar: Í deiglunni eru samn- ingar við stórfyrirtæki sem hafa verið í mjög umdeildum framkvæmdum, brotið lög og rétt í hinum ýmsu lönd- um, jafnvel framið mannréttindabrot. Annað þessara fyrirtækja hefur margsinnis verið bendlað við mútu- hneyksli enda með aðalstöðvar sínar í landi þar sem önnur siðalögmál gilda en í litla samfélaginu okkar hér á norðurhjara. Og það nýjasta í þessum farsa er n.k. strompleikur þar sem byggja á himinháa strompa til að koma óþrifnaðarstybbunni sem fyrst í burtu úr þessu bræðsluvíti álstassjón- ar. Megi landvættir grípa í taumana og létti álögum þeim sem verið er að leggja á land og þjóð. GUÐJÓN JENSSON, Arnartanga 43, 270 Mosfellsbæ. Með lögum skal land byggja Frá Guðjóni Jenssyni MIKIÐ hefur verið skrifað og rætt um stöðu Landhelgisgæslunnar að undanförnu. Ýmis gagnrýni hefur fallið á dómsmálaráðherra vegna meintrar slælegrar frammistöðu hennar í málefnum LHG. Vert er að hafa í huga að ábyrgð stjórn- enda LHG er einnig þónokkur. Forstjóri LHG hefur tilkynnt að LHG vanti um 92 milljónir króna til þess að endar nái saman. Er hægt að ná þessum peningum með smá ráðdeild og öðrum aðgerðum án beinna fjárveitinga til LHG? Ég held að það sé hægt og ekki bara hægt heldur frekar auðvelt. 1. Bjóða út öll aðföng til LHG: Þegar strætó bauð út eldsneyt- iskaup á síðustu vormánuðum þá náðu þeir 28% sparnaði. Ef við yf- irfærum þetta til LHG, og miðum við 1.200.000 lítra af eldsneyti á tvö skip. Verðið er um 32 kr./ lítrinn, heildarverð á eldsneytinu yrði þá um 38.400.000 kr. Ef sama sparnaði yrði náð og hjá strætó, þ.e. 28%, þá eru, það 10.752.000 á ári. Þá er ótalin ýmis annar sparn- aður sem hægt er að fá við útboð, t.d. hjá flugflotanum, í matvælum o.fl. o.fl. 2. Breytt útgerðarfyrirkomulag: Í dag eru skipin gerð út samkv. 18/21 fyrirkomulagi. Þ.e. 18 dagar á sjó af 21 og 3 í landi. Þetta þýðir að það þurfa að vera um þrjár áhafnir á tveim skipum svo menn gætu tekið út frídagana sína. Ef tekið yrði upp fyrirkomulagið 12/ 21 þ.e. 12 dagar á sjó frá mánu- degi til annars föstudags, myndu allir frídagar verða teknir út í inni- veru, þrír virkir dagar fást í við- haldsvinnu hjá áhöfninni o.fl. Þetta þýðir að hægt yrði að komast af með um tvær áhafnir á tvö skip. Hægt yrði að spara laun og launa- tengd gjöld af um 18 manns. Ef við reiknum með að hver einstak- lingur kosti um 5.000.000 kr á ári þá fáum við sparnað upp á 90.000.000 á ári. 3. Tryggingarfélög greiði þann kostnað sem til fellur vegna sjúkraflugs: Verið getur að það þurfi að breyta ýmsum trygginga- lögum, en sjálfum finnst mér að þau eigi að greiða þann kostnað sem fellur á LHG vegna ýmissa sjúkraflutninga. Ef bílslys verður og þyrla er kölluð út til að flytja slasaða á spítala er að sjálfsögðu eðlilegt að það sé inni í trygg- ingum bifreiðanna að slíkur kostn- aður sé greiddur. Þurfi LHG að fara í almennt sjúkraflug þá ættu heimilis- og ýmsar sértryggingar að greiða það. Þegar um leit að veiðimönnum er að ræða þá er hægt að hugsa sér að inni í gjöld- um fyrir veiðikort sé trygging sem greiðir kostnað LHG við slíkt flug- .Þetta ætti að greiða fyrir um 70 – 80% af öllu flugi þyrlna LHG. Ég vona að þessar hugleiðingar kveiki í mönnum og þeir skoði hvað hægt er að gera til að bæta rekstur LHG. Það er ekki bara hægt að segja: Þetta er allt dómsmálaráðherra að kenna. Menn þurfa stundum að líta í kringum sig og lagfæra það sem ekki er í lagi. KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, vél-, rekstrar- og iðnaðartækni- fræðingur, Blikahöfða 6, 270 Mosfellsbæ. Fjármál Land- helgisgæslunnar Frá Kristjáni Kristjánssyni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.