Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 33
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 33 SJÁ NÆSTU SÍÐU Guð gefi mér æðruleysi til að sætta mig við það, sem ég fæ ekki breytt, kjark til að breyta því, sem ég get breytt, og vit til að greina þar á milli. (Æðruleysisbænin.) Halldór. Ísland er land þitt, og ávallt þú geymir Ísland í huga þér, hvar sem þú fer. Ísland er landið, sem ungan þig dreymir. Ísland í vonanna birtu þú sér. Ísland í sumarsins algræna skrúði, Ísland með blikandi norðljósatraf. Ísland, er feðranna afrekum hlúði. Íslands er foldin, sem lífið þér gaf. Íslensk er þjóðin, sem arfinn þinn geymir. Íslensk er tunga þín, skír eins og gull. Íslensk sú lind, er um æðar þér streymir. Íslensk er vonin af bjartsýni full. Íslensk er vornóttin albjört sem dagur. Íslensk er lundin með karlmennsku þor. Íslensk er vísan, hinn íslenski bragur. Íslensk er trúin á frelsisins vor. Ísland er land þitt, því aldrei skal gleyma. Íslandi helgar þú krafta og starf. Íslenska þjóð, þér er ætlað að geyma íslenska tungu, hinn dýrmæta arf. Ísland sé blessað um aldanna raðir, Íslenska moldin, sem lífið þér gaf. Ísland sé falið þér, eilífi faðir. Ísland sé frjálst meðan sól gyllir haf. (Margrét Jónsdóttir.) Megi minning um góðan dreng lifa. Með bróðurkveðju, Einar. Elsku besti Jón Otti mágur minn. Ég kveð góðan dreng með sárum söknuði. Allt frá því ég kynntist þér, en þá varstu bara ungur drengur innan við fermingu, hefurðu litað líf mitt með gæsku, gleði og einstakri vinsemd. Þú varst alltaf uppátækjasamur, kraftmikill og vildir að hlutirnir gerðust hratt. Ég sé þig fyrir mér þegar við í sameiningu gerðum her- bergið þitt hreint fyrir fermingar- veisluna þína og þú stakkst upp á því að við notuðum óblandað klór og hendur voru látnar standa fram úr ermum. Þú vildir alltaf vera nálægt okkur Ragga, enda ekki nema fjögurra ára aldursmunur á okkur, og við gerðum ýmislegt saman. Þið Raggi voruð óaðskiljanlegir bræður en við deild- um vinskapnum við hann í bróðerni. Vorum saman, poppuðum, gerð- um nákvæm skipti, sátum síðan og spjölluðum og þið bræðurnir gerðuð endalaust að gamni ykkar með sér- stökum húmor sem ég hreifst af og fékk alla til að líða vel. Seinna þegar við byrjuðum að búa var alltaf spennandi að fá þig í heim- sókn, brandararnir flugu og alltaf fjör og alltaf eitthvað ófyrirséð. En undirliggjandi var það sem hefur verið einkennandi í þínu fari, vinsemd og óbilandi virðing fyrir öllu fólki og þú hefur alltaf verið til í að rétta öðrum hjálparhönd. Ég fann líka alltaf fyrir því hve bróður þínum þótti innilega vænt um þig og naut þess að hafa þig hjá okk- ur. Börnunum okkar og barnabörn- um hefur þú líka alltaf verið einstak- lega kær. Þú eignaðist líka þína góðu fjöl- skyldu og aldrei hefur borið skugga á okkar vináttu og þeirra. Við höfum margs að minnast og mikið að þakka. En nú ert þú farinn frá okkur og ég bið guð að blessa þig og varð- veita og veita þér líkn. Berglindi, börnunum þínum og bræðrum bið ég Guðs blessunar í þessari þungu raun. Ingibjörg Gunnarsdóttir. Það er með miklum trega og sökn- uði að ég kveð Nonna bró eins og ég kallaði hann alltaf. Þó að Jón Otti væri föðurbróðir minn, fannst mér hann alltaf vera eins og stóri bróðir minn. Þannig hugsaði ég ávallt til hans. Þess vegna var hann bara Nonni bró, kannski líka til aðgrein- ingar frá öðrum Jón Ottum fjöl- skyldunnar. Nonni var uppáhalds- frændi minn að öðrum ólöstuðum og vissi svo sannarlega af því, því þann- ig kynnti hann sig alltaf þegar við töluðum saman í síma. „Hæ,“ sagði hann, „þetta er uppáhaldsfrændi þinn.“ Svo hló hann eins og honum einum var lagið, því léttleiki hans og gamansemi var aldrei langt undan. Nonni var 12 ára gutti á leið inn í unglingsárin þegar ég fæddist. Fyrstu árin mín bjuggum við á sama bletti á Bergstaðastrætinu, sem og reyndar megnið af stórfjölskyldunni. Mínar fyrstu minningar snúast um hljómsveitaæfingar í gömlu Brennu, þar sem Nonni og Raggi bróðir hans voru með afdrep. Þeir bræður báðir, sýndu litlu frænku sinni ómælda þolinmæði og natni í orðum og verki og fékk ég stundum að hanga með þeim og sitja ofan á magnaranum þegar hljómsveitin hans Ragga var að æfa Bítlalögin. Þegar við fluttum til Hafnarfjarðar, liðu ekki mörg ár þangað til Nonni var líka fluttur þangað og bjó þar um nokkurra ára skeið. Þegar svo Birna Dögg frænka mín fæddist, fékk ég oft að passa hana og gisti þá gjarnan hjá þeim. Nonni lagði mikla rækt við að kynna fyrir mér íslenska sem og erlenda tónlist, tónlist sem ég held upp á enn þann dag í dag. Á þessum sömu árum bjó Nonni um tíma einn og fékk hann mig oft til að hjálpa sér við að þrífa íbúðina. Allir sem þekkja mig vita að það var svo sannarlega ekki eitt af mínum uppáhaldsverk- um á þessum árum, fremur en nú! Nonna tókst hins vegar að gera þessi verk ákaflega skemmtileg og eftirsóknarverð fyrir mig hundfúlan unglinginn, því hann setti einfald- lega plötu á fóninn og skrúfaði upp í tækjunum. Við dúndrandi tónlist fórum við svo bæði hamförum með tuskuna og allt varð skínandi hreint og við skemmtum okkur vel. Að launum fyrir hjálpina gaf hann mér gjarnan þá plötu sem við hlustuðum á. Mér þótti þessar stundir mjög skemmtilegar og sóttist jafnvel eftir að fá að þrífa með honum. Nonni hafði einstakt lag á að láta manni líða sem jafningja. Aldur skipti ekki miklu máli. Ég fékk vissu þess all- nokkru sinnum hversu mikið hann bar hag minn fyrir brjósti og þótti mér vænt um það. Eftir að hann hóf störf í lögreglunni, varð hann án efa meðvitaðri um hættur samfélagsins. Ég man sérstaklega eftir einu skipti, þar sem Nonni hringdi heim í for- eldra mína til að biðja þau um að passa að ég væri ekki ein úti að þvælast á kvöldin. Þrátt fyrir að mér þætti flest það sem kom frá mér eldra og vitrara fólki glatað, þá var það nú svo að ég virti þessi skilaboð hans, tók mark á þeim og varð þess vegna kannski eilítið meðvitaðri en áður. Eftir að ég fór sjálf að búa átti hann það einnig til að hringja og hafa áhyggjur af frænku sinni. Aldr- ei nokkurn tímann gagnrýndi hann þær leiðir eða þá valkosti sem ég valdi mér, þó að ég vissi oft að hann væri ekki sammála þeim. Ef svo bar undir, benti hann mér gjarnan á aðr- ar leiðir og möguleika vænlega til ávinnings. Yfirleitt reyndi ég að fara að ráðum hans og mörg hver reynd- ust mér og Úlfi afar farsæl. Ég var og er ofsalega stolt af frænda mínum og fannst hann mikil hetja. Ekki spillti fyrir að hann átti það til að renna við á bernskuheimili mínu íklæddur lögreglubúningnum og á móturhjóli. Á þessum stundum fannst mér hann flottastur allra og hjarta mitt fylltist stolti. Bónus fylgdi ávallt þessum heimsóknum, því við systur og krakkarnir hans Ragga sem bjó í næstu götu, gátum þarna náð ómældri athygli allra krakkanna í hverfinu og það var nú ekki lítils virði. Lífið fór ekkert alltof mjúkum höndum um Nonna. Endurtekið löðrungaði blákaldur veruleikinn hann og reyndi á styrk hans og dug. Nonni stóð byljina af sér, sýndi styrk og auðmýkt og stóð keikur upp Símar 581 3300 - 896 8242 Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is Sverrir Olsen, útfararstjóri. Sverrir Einarsson, útfararstjóri. Bryndís Valbjarnardóttir, útfararstjóri. Baldur Frederiksen, útfararstjóri. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Föðurbróðir okkar, EINAR GUÐJÓNSSON frá Sjóarlandi í Þistilfirði, lést á dvalarheimilinu Nausti, Þórshöfn, föstu- daginn 31. janúar. Útförin fer fram frá Svalbarðskirkju laugar- daginn 8. febrúar kl. 14.00. Bræðrabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, JENNÝ MAGNÚSDÓTTIR, Tryggvagötu 7, Selfossi, verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 13.30. Ragnar Hermannsson, Anna Ósk Ragnarsdóttir, Ingvar S. Garðarsson, Sólveig Sjöfn Ragnarsdóttir, Sigurður Grétarsson, Ragna Björk Kristjánsdóttir og barnabörn. Minningarathöfn um séra BJÖRN SIGURBJÖRNSSON, Dambakken 47, 3460 Birkerød, verður í Hallgrímskirkju föstudaginn 7. febrúar kl. 15.00. Lilian Sigurbjörnsson, Magnea Þorkelsdóttir, Sigurbjörn Einarsson og fjölskyldur. Elskuleg dóttir mín, fósturdóttir, systir, mágkona, barnabarn og frænka, MARÍA JÓNA GEIRSDÓTTIR, Hátúni 12, andaðist á heimili sínu mánudaginn 3. febrúar. Signý Þ. Óskarsdóttir, Aðalsteinn Helgason, Sigríður Ósk Geirsdóttir, Jón Eiríksson, Þorkell G. Geirsson, Sigríður I. Ólafsdóttir, Egill Þorkelsson, Agnes Þorkelsdóttir. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, BJÖRN JÓN ÞORGRÍMSSON, Grund l, Hofsósi, lést á líknardeild Landspítalans Kópavogi að morgni þriðjudagsins 4. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Guðbjörg Guðnadóttir, Kristinn Björnsson, Edda Hjaltadóttir, Gunnar Björnsson, Erla Bjargmundsdóttir, Guðrún Björnsdóttir, Gunnar Magnússon, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir minn, SNÆBJÖRN GUNNAR GUÐMUNDSSON frá Skjaldvararfossi á Barðaströnd, verður jarðsunginn frá Hagakirkju laugardaginn 8. febrúar kl. 14.00. Unnur Guðmundsdóttir, Stað.Sími 562 0200 Erfisdrykkjur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.