Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 47 Á MÁNUDAGINN var lauk hinni tíu daga alþjóðlegu kvikmyndahátíð í Gautaborg en þar gerði mynd Dags Kára Péturssonar, Nói albínói, það gott eins og áður hefur komið fram. Fálkar Friðriks Þórs og stuttmyndin Memphis nutu einnig sérstakrar at- hygli sem keppnis- og verðlauna- myndir. En þá er ónefnd stuttmyndin Litla lirfan ljóta eftir Gunnar Karls- son svo og eftirfarandi heimildar- myndir Íslendinga sem sýndar voru í öðrum deildum hátíðarinnar: Möhöguleikar (Possibihilities) eftir Ara Alexander Ergis Magnússon; Hver hengir upp þvottinn? (Who Hangs the Laundry? Washing, War and Electricity in Beirut) eftir Hröbbu Gunnarsdóttur, Hlemmur (Last Stop) eftir Ólaf Sveinsson og Kóndórmaðurinn (Kondormannen) eftir Helga Felixson og Torgny And- erberg. Ari Alexander Ergis var mættur í eigin persónu og kynnti mynd sína Möhöguleika um myndlistarmanninn Sigurð Guðmundsson. Erindi Ara Al- exanders á hátíðina var raunar tví- þætt því hann er önnum kafinn við nýja heimildarmynd, að þessu sinni um Friðrik Þór Friðriksson, sem sat fyrir svörum um sína eigin og íslenska kvikmyndagerð sunnudaginn 26. jan- úar á svonefndum Talking Heads-yf- irheyrslum. „Gömul um leið“ Helgi Felixson er kvikmyndagerð- armaður sem hefur sérhæft sig í heimildarmyndargerð og rekur fyrir- tækið Idé Film Felixson AB í Stokk- hólmi, þar sem hann framleiðir bæði eigin verk og annarra. Sem framleið- andi hafnar hann þó ekki endilega leiknum myndum, myndina Tár úr steini átti hann t.d. þátt í að framleiða. Kondórmaðurinn er tekin í Suður- Ameríku og er einblínt á indjána regnskóganna í Perú líkt og í heimild- armynd hans frá 1998, Aðeins ein sól (Det finns bara en sol). Helgi segist hamingjusamur með móttökurnar sem myndin fékk, en hann var viðstaddur fumsýninguna á hátíðinni og þótti myndin fá afar hlýj- ar móttökur. „Þetta er tilfinningarík mynd sem snertir fólk,“ segir Helgi og lýsir því hvernig örlögin gripu inn í myndina sem hann byrjaði að vinna að árið 2000 ásamt félaga sínum Torgny Anderberg. Það kom þó í hlut Helga að ljúka myndinni einsamall þar sem Torgny veiktist og bað Helga að fara einan til Perú í upptökur. „Svo hringdi hann þangað til mín og sagðist eiga aðeins fáa daga eftir ólifaða. Það sem byrjaði með maga- verk reyndist beinkrabbi sem var að éta hann. Hann bað mig að halda áfram og ljúka myndinni án sín.“ Myndin fjallar um hvernig indján- arnir heyja lífsbaráttu sína. „Þeir lenda þarna eins og milli steins og sleggju, milli hryðjuverka- manna og þjóðhersins,“ segir Helgi. „Annars finnst manni mynd orðin gömul um leið og búið er að frumsýna og nú er ég með hugann við næstu mynd sem ég er að taka upp í Suður- Afríku. Little Stars mun hún heita (Litlar stjörnur). Hún fjallar um stúlku sem heitir Frieda … fjallar annars vegar um þann heim sem götubörn lifa í og hins vegar um heim frama og frægðar. Frieda býr yfir sönghæfileikum og lifir í báðum þess- um heimum.“ Helgi sér fram á fleiri ferðir til Suð- ur-Afríku og svo klippingu í ágúst og lofar að myndin verði tilbúinn að ári – fyrir næstu kvikmyndahátíð í Gauta- borg. Íslendingar áberandi Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg slitið Það voru ekki bara leiknar myndir Íslendinga sem vöktu athygli í Gautaborg. Kristín Bjarnadóttir ræddi við Helga Felixson, einn framleiðenda heimildarmyndarinnar Kondór- mannsins sem var frumsýnd á hátíðinni. Helgi við tökur á Kondórmanninum. www.laugarasbio.is Náðu þeim í bíó í dag. í mynd eftir Steven Spielberg. Sýnd kl. 5.15, 8 og 10.30. Sýnd kl. 4 og 6. Sýnd kl. 4.30. B.i. 12.Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14.  SV MBL  RADÍÓ X www.regnboginn.is Nýr og betri DV RadíóX Sýnd kl. 5.30 og 10. B.i 12 áraSýnd kl. 6, 8 og 10. B.i 14 ára Suma vini losnar þú ekki við...hvort sem þér líkar betur eða verr Hverfisgötu  551 9000 Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. B. i. 12.  kvikmyndir.com Á bakvið rómantíkina, glæsileikann og ástríðurnar var átakanleg og ögrandi saga einstakrar konu. Ein allra besta myndin sem þú sérð í ár! Salma Hayek er stórkostleg sem listakonan Frida. Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. GRÚPPÍURNAR www.urvalutsyn.is Úrval-Úts‡n Lágmúla 4: 585 4000 • Hlí›asmára: 585 4100 • Keflavík: 420 6000 Akureyri: 460 0600 • Selfossi: 482 1666 • og hjá umbo›smönnum um land allt ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S U RV 2 01 60 2/ 20 03 Betri fer›ir – betra frí Tilbo›sver› á mann m.v. lágmark tvo saman í íbú›/stúdíói. Innifali›: Flug, flugvallarskattar, gisting, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Sí›ustu sætin í vetur Kanaríeyjar Bókunarsta›a: 8. feb. Uppselt 15. feb. Uppselt 22. feb. Uppselt 1. mars Uppselt 8. mars Örfá sæti laus 4 vikna fer› Tilbo›sver› 99.900 kr. 15. mars Örfá sæti laus 3 vikna fer› Tilbo›sver› 89.900 kr. 22. mars 2 vikna fer› Tilbo›sver› 74.900 kr. 29. mars Viku fer› Tilbo›sver› 62.900 kr. 5. apríl PÁSKAR - Örfá sæti laus 12. apríl Uppselt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.