Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 15
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 15 Reuters Tillaga arkitektahópsins THINK um tvo 500 m háa turna í stað World Trade Center í New York sem ráðist var á 11. september 2001. HÉRAÐSDÓMUR í Svíþjóð hefur komist að þeirri niður- stöðu að sænsk lög sem banna áfengisauglýsingar brjóti gegn reglum Evrópusambandsins um innri markað og séu því mark- laus. Fram kemur í blaðinu Dagens Nyheter að þetta geti þýtt auknar tekjur fyrir sænska fjölmiðla sem nemi milljörðum íslenskra króna. Mál umboðsmanns neyt- enda gegn tímariti Um var að ræða mál sem um- boðsmaður neytenda hefur rek- ið gegn tímaritinu Gourmet vegna áfengisauglýsinga en tímaritið hefur um árabil birt áfengisauglýsingar. Umboðs- maðurinn tapaði málinu í hér- aðsdómi í Stokkhólmi á síðasta ári og vísaði þeirri niðurstöðu til sérstaks viðskiptadómstóls sem nú hefur staðfest héraðsdóminn. Fleiri sænsk tímarit og dag- blöð hófu að birta slíkar auglýs- ingar í kjölfar dómsins á síðasta ári. Umboðsmaður neytenda hefur einnig stefnt þessum fjöl- miðlum. Svíþjóð Bann við áfengisaug- lýsingum ólöglegt HVER skoðanakönnunin á fætur annarri sýnir að meirihluti Norð- manna er um þessar mundir hlynntur inngöngu í Evrópusambandið. Í nið- urstöðum nýjustu könnunarinnar, sem Gallup í Noregi gerði fyrir sjón- varpsstöðina TV2 og dagblaðið Verd- ens Gang, kemur fram að 53,6% að- spurðra myndu greiða atkvæði með inngöngu, ef kosið yrði um það nú. 32,8% sögðust andvíg, 11,2% ekki hafa myndað sér skoðun. Þriðjungur svarenda segist hafa sveigzt til jákvæðari afstöðu til ESB- aðildar vegna áhyggna af áhrifaleysi Noregs í Evrópu. Er þetta í fyrsta sinn sem sérstaklega er spurt um ástæður fyrir breyttri afstöðu. 34,1% gáfu áhyggjur af áhrifaleysi Noregs upp sem helztu ástæðuna fyrir já- kvæðari afstöðu, 20,1% sagðist já- kvæðari vegna hás verðlags og vaxta- stigs í Noregi. „Allt í allt sýnir þetta áhyggjur af áhrifaleysi gagnvart ESB og af efna- hagsþróuninni í Noregi,“ hefur Verd- ens Gang eftir Bernt Aardal, sérfræð- ingi við félagsvísindastofnunina Institutt for samfunnsforskning í Ósló. „Það lítur út fyrir að það sé að ganga upp sem Gro Harlem Brundt- land spáði að myndi gerast með EES- samningnum. Að hann hafi verið hannaður sem e.k. kennslugagn til að sýna okkur fram á eigin vanmátt. Andstæðingar aðildar hafa ekkert svar við þessu,“ hefur blaðið eftir Anders Todal Jenssen, norskum sér- fræðingi í kosningarannsóknum. Meirihluti Norðmanna vill í ESB Óttast áhrifaleysi NASA, bandaríska geimvísindastofnunin, var vöruð við því fyrir að minnsta kosti níu árum, að hætta væri á, að geimferjur gætu farist með manni og mús ef hitahlífarnar yrðu fyrir skaða af völdum braks eða ein- hverra aðskotahluta. Talið er, að brot úr Kólumbíu hafi fallið til jarðar í Kaliforníu og Arizona og kann það að hjálpa til við að leysa gátuna um slysið. Paul Fischbeck, verkfræðiprófessor við Carnegie Mellon-háskólann, segir, að í skýrslu, sem hann skrifaði fyrir NASA, hafi hann varað við því, að skaði á hitahlífum gæti tortímt ferjunum. Segir hann, að starfs- menn NASA hafi gert sér fulla grein fyrir þessu og glímt við þetta vandamál árum saman án þess að finna á því fullnægjandi lausn. Fischbeck og samstarfsmenn hans gerðu fyrst bráðabirgðaskýrslu fyrir NASA 1990 og fylgdu henni síðan eftir með annarri 1994. Í henni segir Fischbeck frá rannsóknum sín- um á fyrstu 50 geimferjuskotunum en nið- urstaða þeirra var sú, að í hverju skoti urðu til jafnaðar 25 hitahlífar fyrir einhverjum skaða af völdum braks, aðallega einangrunar utan af eldsneytisgeymum. Taldi hann ferj- urnar vera viðkvæmastar undir vængjunum, rétt við bolinn, og undir áhafnarklefanum. Kemur þetta mat hans heim við þær upplýs- ingar, sem NASA fékk rétt áður en Kól- umbía fórst. Mikið vandaverk Fischbeck segir, að eitt af vandamálunum hjá NASA hafi verið að þjálfa menn til að líma keramikhitahlífarnar á ferjuskrokkinn og einnig að kanna styrkleika límingarinnar á eftir. Segir Fischbeck, að límið harðni fyrr sé það vott og einu sinni hafi maður verið staðinn að því að skyrpa á það til að flýta fyrir hörðnun. Það hafi hins vegar eyðilagt það. Til að finna lausar hlífar er notuð sérstök vél en í skýrslunni segir, að hún sé ekki nógu góð nema í höndum færustu manna. Ekki sé nóg að reyna að draga flísarnar til sín, heldur verði að reyna að mjaka þeim til hliðar um leið til að fullreynt sé, að þær séu fastar. Brakslóð þvert yfir Bandaríkin Fréttir eru um, að brak úr Kólumbíu hafi fallið til jarðar í Kaliforníu og Arizona. Er nú verið að kanna það en sé það rétt, getur það hugsanlega veitt miklar upplýsingar um það, sem gerðist. Þetta brak hefur þá verið það fyrsta, sem féll úr ferjunni, og þar með er hugsanlega unnt að rekja brakslóðina og þar með söguna frá byrjun og þvert yfir Bandaríkin. Fleiri líkamsleifar geimfaranna fundust í fyrradag og þar á meðal af ísr- aelska geimfaranum Ilan Ramon. Þrátt fyrir áfallið eru Bandaríkjamenn staðráðnir í að halda áfram að rannsaka geiminn og stunda þar rannsóknir. Kínverj- ar hafa einnig lýst því yfir að geimferða- áætlun þeirra muni ekki verða breytt. Þeir hyggjast ekki nota endurnýtanlegan farkost heldur eldflaug en fyrirhugað er að kín- verskur geimfari fari á loft síðar á árinu. Varað við hitahlíf- um fyrir níu árum Reuters Gestir í Kennedy-geimferðastöðinni í Flórída virða fyrir sér hlífðarflísar úr keramiki neðan á eftirlíkingu í fullri stærð af geimferju. Í fyrstu 50 geimferjuskotunum sködduðust 25 hlífar til jafnaðar Houston. AP, AFP. OPINBERU útgjöldin vegna lyfja- notkunar Dana hafa aukist svo mikið að stjórnmálamenn í dönsku ömtun- um hafa lagt til að Danir borgi meira úr eigin vasa áður en hið opinbera byrjar að greiða lyfin niður, að sögn danska dagblaðsins Berlingske Tid- ende. Formaður heilbrigðisráðs amt- anna, jafnaðarmaðurinn Bent Han- sen, hefur því lagt til að Danir fái ekki opinbera lyfjastyrki fyrr en þeir hafi greitt sjálfir um það bil 1.000 danskar krónur, andvirði 11.000 ís- lenskra, í stað 500 d.kr. eins og nú. „Annars þarf að ná fram sparnaði í rekstri sjúkrahúsanna og það er ekki raunhæft,“ hefur Berlingske Tid- ende eftir Hansen. Að sögn blaðsins jókst lyfjakostn- aður amtanna um 15% í fyrra. Í fjöl- mennasta amtinu, Kaupmannahöfn, jókst kostnaðurinn um 5% í fyrra, fór í 728 milljónir d.kr. og ljóst þykir að hann fari fram úr fjárhagsáætlun amtsins í ár og verði yfir 750 millj- ónum d.kr. Nina Berrig, formaður heilbrigðisnefndar amtsins, hefur því lagt til að greiðslur þeirra sem nota lyfin verði auknar. Borgi meira fyrir lyfin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.