Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.02.2003, Blaðsíða 14
ERLENT 14 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ G O TT FÓ LK M cC A N N -E R IC K SO N · SÍ A ÁKVEÐIÐ hefur verið að velja á milli tveggja tillagna um nýjar byggingar á lóð World Trade Cent- er sem hrundi eftir árásir hryðju- verkamanna á Bandaríkin. Í báðum tillögunum er gert ráð fyrir því að byggingarnar verði þær hæstu í heimi. Sjö hópar arkitekta lögðu fram alls níu tillögur í alþjóðlegri sam- keppni um enduruppbyggingu svæðisins og baráttan stendur nú milli tveggja þeirra. Í annarri til- lögunni, sem kom frá arkitektinum Daniel Libeskind, er gert ráð fyrir glerbyggingum við grunna tvíbura- turnanna sem hrundu í árásinni. Hin tillagan kom frá arkitektahópi sem nefnist THINK og vill að reist- ir verði tveir grindarturnar sem minna á tvíburaturnana. Í báðum tillögunum er gert ráð fyrir því að byggingarnar verði hærri en hæstu byggingar heims, Petronas-turnarnir í Kuala Lump- ur, sem eru 445 metra háir. Turnar World Trade Center voru 405 metr- ar. Libeskind leggur til að reistar verði byggingar með formum sem minna á rúmfræðimyndir og á einni þeirra á að vera 532 metra há turn- spíra (eða 1776 feta til minningar um árið sem sjálfstæðisyfirlýsing Bandaríkjanna var samþykkt). Turnarnir sem THINK- hópurinn leggur til eiga að vera 500 metra háir. Libeskind býr í Berlín og hann- aði gyðingasafnið þar í borg, bygg- ingu sem þótti marka þáttaskil í þýskum arkitektúr. Hann gerir ráð fyrir skrifstofum á 70 neðstu hæðum bygginganna og vill að á efstu hæðunum verði „garðar heimsins“ sem eiga að laða að ferðamenn. „Við viljum sýna um- heiminum að lífið sigrar og lífs- þrótturinn hefur ekkert minnkað þrátt fyrir hryðjuverkin, bjartsýni ríkir – ekki aðeins í New York, heldur úti um allan heim,“ sagði Libeskind. THINK-hópurinn, undir forystu arkitektanna Rafaels Vinolys og Frederic Schwarz, vill að reist verði „heimsmenningarmiðstöð“, meðal annars bókasafn og listasafn, á efstu hæðum turnanna. Deilt um hæð bygginganna Roland Betts, formaður nefndar sem skipuleggur enduruppbygging- unna á svæðinu, sagði að valið yrði á milli tillagnanna tveggja fyrir lok mánaðarins. Ýmsar breytingar kynnu að verða gerðar á þeirri til- lögu sem yrði fyrir valinu, m.a. af verkfræðilegum ástæðum, en meg- inhugmyndunum yrði haldið. Ekki hefur verið metið hvað bygging- arnar myndu kosta. Deilt hefur verið um hversu háar byggingarnar eiga að vera. Margir New York-búar hafa hvatt til þess að reistir verði skýjakljúfar í stað tvíburaturnanna en nýleg skoðana- könnun leiddi í ljós að 53% þeirra myndu ekki vilja vinna á efstu hæð- um bygginganna. Larry Silverstein, verktaki sem leigir lóðina, hefur kvartað yfir því að í tillögunum sé ekki gert ráð fyr- ir nógu miklu skrifstofurými. Bett sagði að haft yrði samráð við verk- takann í lokaáfanga samkeppninn- ar. Samkeppnin um enduruppbyggingu á lóð World Trade Center Eiga að vera hæstu byggingar heims Reuters Daniel Libeskind vill reisa byggingar með 532 m hárri turnspíru á lóð turn- anna. Liebeskind teiknaði safn sem reist var í Berlín um Helförina. Valið verður á milli tveggja til- lagna arkitekta New York. AP, AFP. TANKBÍLL með eldsneyti sprakk í gær í grennd við birgðastöð Samein- uðu þjóðanna í Kabúl, höfuðborg Afg- anistans, skammt frá innanríkisráðu- neyti landsins. Fulltrúi SÞ sagði að ekki hefði verið skýrt frá neinu mann- falli vegna atburðarins. Ráðist hefur verið nokkrum sinn- um á starfsmenn SÞ í Afganistan síð- ustu vikurnar. Var m.a. gerð árás á menn sem voru að gera jarðsprengj- ur óvirkar í héraðinu Farah í landinu vestanverðu. Einnig var gerð árás á bílalest samtakanna í Nangarhar í austurhlutanum. Undanfarna daga hefur nokkrum sinnum verið ráðist á bandaríska her- menn í grennd við borgina Spinbold- ak í Afganistan, skammt frá landa- mærunum að Pakistan og því er haldið áfram að sprengja hina mý- mörgu hella sem er að finna á þessum slóðum. Tilgangurinn er að svæla skæruliða talibana og al-Qaeda-sam- takanna út úr hellunum – eða ráða niðurlögum þeirra. Þrír afganskir hermenn og fimm talibanar féllu í héraðinu Kandahar í gær og bardagar héldu áfram við Kardwey í Shah Wali Kot-héraði síð- ar um daginn. Að sögn talsmanns stjórnvalda í Kabúl voru fimm talib- anar handteknir og stjórnandi þeirra, múllann Abdul Hamid, var meðal þeirra en hann særðist á átökunum. Danir gerðu loftárás Danskar orrustuþotur af gerðinni F-16 létu í fyrsta sinn til sín taka í Afganistan á þriðjudag þegar þær vörpuðu leysistýrðum sprengjum á hellakerfi í suðurhluta landsins. Svend Aage Jensby, varnarmála- ráðherra Danmerkur, skýrði frá þessu á þingi og talsmaður flughers- ins sagði, að dönsku orrustuflugvél- arnar tvær hefðu verið í reglulegu eftirlitsflugi þegar þær fengu um það boð frá bandarískum herafla á jörðu niðri að ráðast gegn hellakerfinu. Að sögn Rogers King, talsmanns Banda- ríkjahers í Afganistan, hefur verið leitað í 46 af þessum hellum frá því til síðustu orrustu við skæruliða kom hinn 27. janúar, og 15 verið eyðilagð- ir. Danski flugherinn hefur lítið látið að sér kveða í gegnum tíðina en tók síðast þátt í hernaðaraðgerðum í Kos- ovo 1999. Dönsku orrustuvélarnar, sex talsins, hafa bækistöð í nágranna- ríkinu Kírgístan ásamt sex norskum og sex hollenskum herflugvélum. Hellar talibana og liðsmanna al-Qaeda-samtakanna við pakistönsku landamærin sprengdir Ráðist á liðs- menn SÞ Reuters Bandarískir hermenn kanna einn af hellunum í grennd við landamæri Afganistans og Pakistans. Kandahar, Kabúl. AFP.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.