Morgunblaðið - 06.02.2003, Síða 20
AKUREYRI
20 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÁSTA Árnadóttir var kjörin íþrótta-
maður Þórs fyrir árið 2002 en út-
nefningin fór fram í Hamri, félags-
heimili Þórs. Ásta var jafnframt
kjörin knattspyrnumaður ársins og
er þetta annað árið í röð sem hún
hlýtur þá nafnbót. Ásta hefur leikið
lykilhlutverk í kvennaliði Þórs síð-
ustu ár og hún er vel að þessum titl-
um komin.
Ásta lék með U-21 árs landsliði Ís-
lands á síðasta ári og á að baki 10
leiki með liðinu. Þá hefur hún á und-
anförnum árum verið leikmaður í
U-19 ára landsliði og á 13 leiki að
baki með því liði. Þá var Ásta valin
til æfinga með A-landsliði kvenna en
náði ekki að leika með liðinu. Aigars
Lazdins var kjörinn handknattleiks-
maður ársins, Hermann Daði Her-
mannsson körfuknattleiksmaður
ársins og Rut Sigurðardóttir tae-
kwondomaður ársins.
Alls voru átta íþróttamenn til-
nefndir að þessu sinni, tveir frá
hverri deild. Aðrir sem fengu til-
nefningu voru Óðinn Ásgeirsson,
Helgi Þór Leifsson, Jóhann Þór-
hallsson og Páll Viðar Gíslason, sem
kjörinn var íþróttamaður félagsins
fyrir árið 2001.
Sem fyrr var það Ragnar Sverr-
isson kaupmaður í JMJ sem gaf öll
verðlaunin í kjörinu og hann bauð
jafnframt gestum til kaffisamsætis
að verðlaunaafhendingu lokinni.
Morgunblaðið/Kristján
Ásta Árnadóttir, íþróttamaður Þórs 2002 og knattspyrnumaður ársins.
Ásta Árnadóttir
íþróttamaður Þórs
KARLMAÐUR á fimmtugsaldri
hefur í Héraðsdómi Norðurlands
eystra verið dæmdur í þriggja mán-
aða fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn stúlku sem var 14 ára er brot-
ið var framið. Viðurkenndi maður-
inn að hafa snert kynfæri hennar í
eitt skipti. Stúlkan bjó á heimili
mannsins og fjölskyldu hans haust-
ið 2000, en kona mannsins var móð-
ursystir stúlkunnar. Maðurinn
hafði m.a. starfað sem nuddari og
var að nudda stúlkuna vegna
eymsla í baki þegar umræddur at-
burður gerðist.
Maðurinn var sýknaður af ákæru
um að hafa þuklað brjóst stúlk-
unnar utanklæða, en hann neitaði
staðfastlega sök.
Maðurinn var dæmdur í þriggja
mánaða fangelsi, en fullnustu refs-
ingar frestað haldi maðurinn skil-
orð í þrjú ár. Manninum var gert að
greiða helming sakarkostnaðar, þar
með talinn réttargæslu- og máls-
varnarlaun skipaðs verjanda síns,
Benedikts Ólafssonar hdl, 150 þús-
und krónur og 35 þúsund krónur til
réttargæslumanns síns, Berglindar
Svavarsdóttur. Helmingur sakar-
kostnaðar greiðist úr ríkissjóði.
Ragnheiður Harðardóttir saksókn-
ari sótti málið. Ólafur Ólafsson hér-
aðsdómari kvað upp dóminn.
Skilorðsbundið
fangelsi vegna
kynferðisbrots
Guðbjörg Gissurardóttir flytur fyr-
irlestur sem hún kallar „Skapandi
hugsun í eldhúsinu“ í Deiglunni í
kvöld, fimmtudagskvöldið 6. febrúar
kl. 20.30. Mun hún skoða elda-
mennsku út frá skapandi ferli lista-
mannsins og hvernig hægt er að
nota eldhúsið í skapandi þroska.
Einnig kynnir hún nýútkomna bók
sína „Hristist fyrir notkun – skap-
andi matargerð með því sem til er í
eldhúsinu.“ Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
og Bogi Pálsson formaður Versl-
unarráðs Íslands hafa framsögu á
hádegisverðarfundi Verslunarráðs
Íslands í dag, fimmtudaginn 6. febr-
úar. Á fundinum verður fjallað um
skattamál atvinnulífsins – stöðu og
stefnu og stendur hann frá kl. 12 til
13.30. Fundurinn er öllum opinn en
tilkynna þarf þátttöku til ráðsins.
Í DAG
www.nowfoods.com
VAGNHJÓL
ALLAR GERÐIR OG STÆRÐIR
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02 Skeifunni 2
108 Reykjavík
Sími 530 5900
www.poulsen.is
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
©
20
02
Nýr listi
www.freemans.is