Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 22
BÓNUS Gildir 6.–9. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð KS frosið súpukjöt, 1. fl. 2002 slátrun ......................................... 385 Nýtt 385 kr. kg KS frosið súpukjöt lélegt ................ 199 Nýtt 199 kr. kg KS frosin svið ................................ 285 Nýtt 285 kr. kg Remia viðbit, 250 g ...................... 39 59 156 kr. kg KS reykt/saltað úrb. folaldakjöt...... 499 Nýtt 499 kr. kg ESSÓ-stöðvarnar Gildir til 28. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Móna kókósbar............................. 45 551.500 kr. kg Móna buff, 33 g............................ 65 751.860 kr. kg Sharp extra strong......................... 49 651.440 kr. kg Sharp eucalyptus .......................... 49 651.440 kr. kg Coke ½ ltr í dós og Hersheys rally peanut/caramel ........................... 189 225 Toppur sítrónu 0,5 lítra og Sóma tortilla með túnfisk ........................ 369 425 11-11 Gildir 6.–12. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð BB nautahakk............................... 599 799 599 kr. kg Kjúklingakjöt í strimlum steikt ........ 1.199 1.6991.199 kr. kg Rjómaostur m/svörtum pipar ......... 99 139 99 kr. st. Rjómaostur m/kryddbl. ................. 99 139 99 kr. st. Kínakál ........................................ 149 289 149 kr. kg FJARÐARKAUP Gildir 6.–8. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Svínabógar................................... 298 525 298 kr. kg Svínasíða m/pöru ......................... 298 525 298 kr. kg Svínahnakki m/pöru ..................... 398 698 398 kr. kg Svínahakk .................................... 298 425 298 kr. kg Saltað hrossakjöt.......................... 399 598 399 kr. kg Baconbúðingur ............................. 459 625 459 kr. kg Hrásalat, 350 g ............................ 99 167 99 kr. box KRÓNAN Gildir 6.–12. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Chicago town pizzur, 5 bragðt......... 369 448 369 kr. st. Krónu skinka sneidd...................... 599 798 599 kr. kg Krónu blandað nauta&lambahakk.. 495 699 495 kr. kg LB snittubrauð, 4 st....................... 198 229 50 kr. st. McVities homewheat kex, 300 g..... 139 189 460 kr. kg Pepsi twist .................................... 99 133 99 kr. ltr Gæða kleinur................................ 149 189 149 kr. pk. NETTÓ Gildir á meðan birgðir endast nú kr. áður kr. mælie.verð Ísfugl bringur ferskar ...................... 999 1.698 999 kr. kg Chicago town pizzur, 5 teg. ............ 399 499 1.174 kr. kg Fitnes, 375 g................................ 229 239 609 kr. kg Gatorade cool blue raspb., 750 ml. 129 199 172 kr. ltr Vilko ávaxtasúpa, 160 g ................ 149 159 931 kr. kg Vilko kakósúpa, 175 g................... 189 199 1.080 kr. kg NÓATÚN Gildir 6.–12. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð FK kjúklingasnitsel forsteikt ............ 958 1.198 958 kr. kg FK kjúklinga spareribs ................... 937 1.171 937 kr. kg Tilda basm. hrísgrjón suðupoka, 500 g .......................................... 179 199 90 kr. kg Tilda tandoori eða masala sósa, 350 g .......................................... 229 349 650 kr. kg BB stuffing mix fyrir kjúklinga ......... 199 Nýtt 199 kr. pk. Durkee buffalo wings krydd ............ 149 239 149 kr. st. Hatting míní hvítlauksbrauð, 10 st. . 199 285 20 kr. st. SAMKAUP Gildir 6.–10. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Tilda am. easy cook, 500 g............ 159 180 318 kr. kg Tilda basmati hv............................ 329 369 329 kr. kg Tilda tikka masala makh................ 299 349 854 kr. kg Tilda creamy cocn. malai sósa ....... 299 329 826 kr. kg Tilda sósa tandori, 350 g............... 299 349 826 kr. kg Tilda vegtable sabzi, 350 ml .......... 299 349 826 kr. kg Federici farfalle, 500 g .................. 89 109 178 kr. kg Ísl.fugl kjúkl.bringur skinnl. ............ 1.399 2.1601.399 kr. kg SELECT Gildir 30. jan.–26. feb. nú kr. áður mælie.verð Rís stórt ....................................... 85 110 Prins Póló stórt ............................. 55 75 Stjörnupopp, 90 g......................... 95 128 Stjörnuostapopp, 100 g ................ 105 137 Remi súkkulaði kex ....................... 130 170 Harðfiskur sýslumannskonfekt........ 290 380 Mountain Dew + Doritos, 50 g ....... 175 222 ÚRVAL Gildir 6.–10. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Tilda am. easy cook, 500 g............ 159 180 318 kr. kg Tilda basmati hv............................ 329 369 329 kr. kg Tilda tikka masala makh................ 299 349 854 kr. kg Tilda creamy cocn. malai sósa ....... 299 329 826 kr. kg Tilda sósa tandori, 350 g............... 299 349 826 kr. kg Tilda vegtable sabzi, 350 ml .......... 299 349 826 kr. kg Federici farfalle, 500 g .................. 89 109 178 kr. kg Ísl.fugl kjúkl.bringur skinnl. ............ 1.399 2.1601.399 kr. kg UPPGRIP – Verslanir OLÍS Febrúartilboð nú kr. áður kr. mælie.verð Coke/Diet Coke, 0,5 ltr ................. 119 140 MS samloka + súkkulaði ............... 295 394 Trópí appelsínusafi, 0,5 ltr ............. 109 140 Twix ............................................. 59 80 Kit Kat Chunky .............................. 59 105 ÞÍN VERSLUN Gildir 6.–12. feb. nú kr. áður kr. mælie.verð Goða pylsur.................................. 559 799 599 kr. kg 1944 lasagne og stroganoff........... 348 409 348 kr. pk. Toro ítölsk gryta............................. 199 247 199 kr. pk. Hatting hvítlauksbrauð, 350 g ........ 199 258 557 kr. kg Merrild 103 kaffi, 500 g ................ 349 358 698 kr. kg Homeblest súkkulaðikex, 200 g ..... 129 142 645 kr. kg Ballerina kremkex, 180 g............... 119 132 654 kr. kg Helgartilboð Verðupplýsingar sendar frá verslunum Svínakjöt og kjúklinga- bringur á tilboðsverði NEYTENDUR 22 FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ HÓTEL BORGARNES Sími 437 1119 hotelbo@centrum.is  Árshátíðir Ráðstefnur Fundir EFNASAMBÖND sem ekki hafa verið rannsökuð til hlítar finnast í fjölda vörutegunda í innkaupakörfu neytandans, segir fréttabréf Sam- bands evrópskra neytendastofnana (BEUC). Um er að ræða efni sem geta haft áhrif á heilsu manna og um- hverfi. „Í meðalhárlakki geta verið allt að 268 mismunandi efnasam- bönd, sem sum hver teljast til þrá- virkra lífrænna efna. Neytendur í Danmörku einni saman nota 585.000 lítra af hárlakki á hverju ári, 612.000 lítra af hárfroðu og 350.000 lítra af geli og vaxi,“ segir í fréttabréfinu. Hvítbók framkvæmdastjórnar ESB um notkun efnasambanda í framleiðslu kom út í febrúar árið 2001. Var henni ætlað að tryggja að engin efnasambönd væru leyfð í neytendavörum án þess að gengið yrði úr skugga um skaðleysi þeirra fyrst. Umbætur ennþá orðin tóm „Nú, tveimur árum síðar, eru fyr- irhugaðar umbætur ennþá bara orðin tóm. Evrópuþingið og Evrópuráðið hafa þegar lýst stuðningi við breyttar áherslur og jafnvel viljað ganga enn lengra, en svo virðist sem þrýstingur frá framleiðendum hafi orðið til þess að koma í veg fyrir að breytingarnar yrðu að lögum,“ segir ennfremur. Samband evrópskra neytenda- stofnana, EEB, Friends of the Earth, World Wildlife Fund og Greenpeace hafa hvatt framkvæmda- stjórn ESB til þess að láta tillögurnar ná fram að ganga. „Almenningur á rétt á að vita hvaða efnasambönd er að finna í neytendavarningi. Skaðleg efnasam- bönd, til að mynda svokölluð CMR- efni sem valda stökkbreytingu, krabbameini og truflun á æxlun, þrá- virk efni sem safnast upp í nátt- úrunni og efni sem trufla innkirtla- starfsemi, eiga ekki að vera leyfileg til notkunar í framleiðslu. Það er kominn tími til að marka heildstæða stefnu og beina sjónum að efnasam- böndunum sjálfum, í stað þess að ein- blína á magn í hverri vörutegund. Neytendur eiga ekki að þurfa að velkjast í vafa um hvort „efna- kokteillinn“ sem þeir komast í snert- ingu við á hverjum degi sé skaðlegur eða ekki,“ segir BEUC að síðustu. „Efnakokteill“ í algengum vörum Morgunblaðið/Emilía Snyrtivörur innihalda margvísleg efni, þótt skaðsemi sé ekki ljós. LISTIR „JÓN sagði að verkin okkar væru eins og svart og hvítt; – en hann sagði ekki hvort þeirra væri það svarta!“ sagði Atli Ingólfsson tón- skáld sposkur, undir hlátrasköllum kollega síns, Jóns Ásgeirssonar, þegar blaðamaður heimsótti þá á hljómsveitaræfingu í Háskólabíói í gærmorgun, – en í kvöld kl. 19.00 frumflytur Sinfóníuhljómsveit Ís- lands verk þeirra og tveggja ann- arra tónskálda, Jónasar Tómasson- ar og Hróðmars I. Sigurbjörns- sonar, á sinfóníutónleikum Myrkra músíkdaga. Þeir halda áfram á léttu nótunum að spjalla um stef og stefleysur, hljóma og kadensur, og það hvort eitthvað slíkt sé að finna í verki Atla. Orchestra B er fyrsta verk Atla fyrir fullskipaða sinfóníuhljóm- sveit, – alveg glænýtt, ber ártalið 2003. Í einskærri forvitni er tón- skáldið spurt að því hvort það þurfi endilega að vera meiri ögrun að semja hljómsveitarverk en önnur tónverk. „Nei, ekki þegar þú ert bú- inn að starfa við þetta í langan tíma. Þótt þetta sé fyrsta stóra hljóm- sveitarverkið mitt lít ég engan veg- inn svo á að þetta sé eitthvert sér- stakt skref. Það sem ég hef verið að gera fyrir kammersveitir er hér þýtt yfir á tungumál hljómsveitarinnar. Þetta er alls ekkert heljarstökk.“ Þegar Atli er beðinn um lýsingu á verkinu segir hann aðeins eitt orð: Landslag, – en bætir svo við: „Þetta er massi, og ekki miklar andstæður í honum. Þetta er ein þróun frá upp- hafi til enda. Í mínum verkum eru uppslátturinn og steypumótið alltaf rytmi, hitt kemur inn í það og hljóm- urinn utan á það. Það er alltaf einn mótor í gangi, alltaf sá sami, og hann felst í rytmanum. Utan á hann getur svo vaxið nóta, hljómur eða hljóð, – eða að hann getur staðið einn sér. Rytminn getur líka stund- um verið falinn – hann dulbýr sig og fer inn í litinn. Ég ímynda mér – í það minnsta framan af verkinu – að þetta sé litaferli.“ Atli segist halda mikið upp á slag- verk og notar það mikið í verki sínu. „Ég hef orðið fyrir áhrifum frá slag- verki í popptónlistinni, og slagverkið er snertipunktur milli þessara ólíku geira tónlistarinnar. Ég set það stundum inn sem einhvers konar „nærveru“. Það er ekki endilega partur af því sem ég vil segja, – heldur legg ég það bara niður eins og teppi, nákvæmlega eins og gert er í poppinu,“ segir Atli. Jón segir trompetkonsert sinn ákaflega hefðbundinn þriggja þátta einleikskonsert. „Ég leik mér að því að fara inn á svið popparanna og vera með sætar melódíur, af því mér finnst ekkert gaman að þeir skuli einir hafa rétt á því að vera með melódíur. Þeir eru búnir að stela þessu af okkur. Þannig að ég er bæði með vals og sæt lög í verkinu. Annars er maður ekkert að hugsa um ákveðnar formúlur þegar maður er að semja, þetta kemur meira og minna sjálft og fylgir einhverri eðl- ishvöt sem ræðst af því hvort maður er í góðu eða vondu skapi; – líður vel eða illa. Annars er þetta ákaflega hefðbundinn konsert og ekkert í honum sem þarf að útskýra.“ Jón er búinn að fylgjast með æfingum á verki sínu og segir að á fyrstu æf- ingu sé hljómsveitin meira að þreifa á nótunum, en svo komi þetta í þriðju, fjórðu tilraun. „Maður er alltaf svolítið hissa fyrst, en svo jafnast þetta og lagast og menn fara að spila almennilega. Þetta er allt á leiðinni.“ Stórsveitarpopp eða rómantík Jónas Tómasson segir verk sitt, Sinfóníettu I, ósköp einfaldlega það sem honum datt í hug á ferðalagi. Fjögur ný verk frumflutt á sinfóníu- tónleikum Myrkra músíkdaga „Þeir eru búnir að stela melód- íunum af okkur“ LEIKARINN Kevin Spacey hefur verið skipaður leikhússtjóri hins forn- fræga leikhúss Old Vic í London. Spacey hefur tekið virkan þátt í fjár- öflun undanfarin ár til að bjarga leik- húsinu en það liggur undir skemmd- um og kostar að sögn milljónir punda að gera bygginguna upp. Old Vic-leik- húsið þjónaði áður sem þjóðleikhús Breta áður en núverandi þjóðleikhús- bygging á Suðurbakkanum var tekin í notkun 1976. Spacey hefur tvívegis hlotið Ósk- arsverðlaun fyrir leik sinn í kvikmynd- unum The Usual Suspects og Americ- an Beauty en hann hefur einnig verið mikils metinn sviðsleikari og lék m.a. í Ísmaðurinn kemur eftir Eugene O’Neill í Old Vic-leikhúsinu 1998. Tilkynningin um skipan Spaceys var gefin út í gær við upphaf styrkt- artónleika sem fóru fram í leik- húsinu undir stjórn Sir Eltons Johns en hann er formaður stjórnar leikhússins. Fjöl- margir heims- þekktir tónlistar- menn komu fram á tónleikunum í gærkvöldi, þ. á m. Sting, Sinead O’Connor og Elvis Costello auk Sir Eltons sjálfs og fleiri. Alls söfnuðust um 700 þúsund sterlingspund á tón- leikunum en markmiðið að sögn Spac- eys er að afla 10 milljóna punda til að koma leikhúsinu sem orðið er 185 ára gamalt í sómasamlegt horf. Spacey orðinn leikhússtjóri Kevin Spacey 4Klassískar halda tónleika í Hafn- arborg kl. 20. Yfirskrift tónleikanna er Kvöldskemmtun á þorra og er efnisskráin samansett af léttklass- ískum og klassískum lögum ásamt söngleikjatónlist og kaffihúsatónum. 4Klassískar eru söngkonurnar Björk Jónsdóttir, Jóhanna V. Þór- hallsdóttir og Signý Sæmundsdóttir og píanóleikarinn Aðalheiður Þor- steinsdóttir. Gestur þeirra á tónleikunum er Tómas R. Einarsson bassaleikari. Te og kaffi, Laugavegi 27 Frey- gerður Dana sýnir málverk á sýn- ingu sem hún nefnir Tilfinningar. Verkin eru akrylverk, unnin á við- arplötur með antik brúðuandlitum. Í verkum sínum túlka hún tilfinn- ingar sínar og sálarlíf. Sýningunni lýkur um mánaðamótin. Í DAG  Sjá einnig Staður og stund á mbl.isalltaf á föstudögum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.