Morgunblaðið - 06.02.2003, Qupperneq 23
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 23
„Það er oft þannig með mín sinfón-
ísku verk, – maður verður oft svo
innblásinn á ferðalögum. Sinfóníett-
urnar sem ég hef verið að semja síð-
ustu ár eru allar meira og minna
innblásnar af ferðum mínum hér
innanlands, – íslenska náttúran er
kannski hvatinn að þessu. Þetta
verk varð þannig til á ferðalagi
norðan Vatnajökuls. Að öðru leyti er
þetta ekki ferðalýsing eða neitt
slíkt, – bara það sem mér datt í hug
þarna. Best að fara ekkert nánar út
í það, svo fólk fari kannski ekki að
festa sig í einhverjum landslags-
myndum. Ég vil að fólk hafi bara op-
inn huga þegar það hlustar. En eftir
á að hyggja er óneitanlega áhrifa-
ríkt að ganga þarna um, vitandi það
núna að þarna skildi ég eftir fótspor,
sem sennilega verða horfin undir
vatn áður en langt um líður.“
Jónas segir grunnhugmyndina í
verkinu felast í andstæðum, sem eru
auðheyrðar. „Það eru þessi læti, og
svo óskapleg kyrrð inn á milli, en í
rauninni er þetta afskaplega einfalt.
En fólk í hljómsveitinni hefur verið
að viðra alls konar hugmyndir um
verkið. Sumum finnst kaflar í því
vera bigband popp og fjör, en öðrum
finnst þetta afskaplega rómantískt.
Það er gaman ef fólk hlustar með
opnum huga.“
Hróðmar segir að verk hans, Sin-
fónía, sé að smella saman, en að
þetta hafi þó verið nokkuð erfitt.
„En það er gaman að koma hingað.
Hljómsveitin er svo jákvæð. Þetta
er búið að vera mjög ánægjulegur
tími. Sinfónía er svolítið rómantískt
hugtak; – þetta er heimur sem menn
hafa búið til, og á að endurspegla lit-
róf tilfinninga allt frá gleði niður í
sorg og allt þar á milli. Fyrsti kafl-
inn er því hraður rondókafli, annar
hægur en í þeim þriðja reyni ég að
blanda þessu tvennu saman, með
hröðum danskafla í lokin.“ Hróðmar
segir að þótt verk hans sé sinfónía
sé innihald verksins ekki byggt upp
eins og klassísk sinfónía, sem byggð
er upp á stefjum og úrvinnslu
þeirra. „Ég er að vinna miklu meira
beint með rytma og hljóm. Auðvitað
er þarna fullt af nótum, og vísir að
einhvers konar línum og jafnvel
stefjum hér og þar, en hugtakið er
miklu víðara í dag en það var þá.
Allur hljóðheimur sinfóníuhljóm-
sveitarinnar er undir sem efnivið-
ur.“ Hróðmar segir að fyrsta æfing
á nýju verki sé alltaf erfið, þótt hann
þekki það vel. „Smátt og smátt tek-
ur maður það aftur í sátt. Maður
verður að reyna að sjá fyrir vanda-
málin sem kunna að koma upp á æf-
ingum, – til dæmis það sem snýr að
jafnvægi í styrk. Svo kemur auðvit-
að fyrir að maður er ekki alveg viss
með ákvarðanir sem maður hefur
tekið, og þarf kannski að endur-
skoða; – til dæmis hvort fiðlurnar
eigi að leika ákveðna hluti með
víbrató eða ekki, eða hvort kúabjall-
an eigi að vera skær eða dimm. Það
er margt að hugsa um í þetta löngu
verki. En hljómsveitin er svo já-
kvæð, og gaman að vinna með henni,
– þannig að þessi tími hefur reynst
vera mjög góður.“
Einleikari í trompetkonsert Jóns
verður Ásgeir Hermann Stein-
grímsson, en stjórnandi á tónleik-
unum verður Bernharður Wilkin-
son.
Morgunblaðið/Golli
Tónskáldin fjögur með Sinfóníuhljómsveitinni: Jónas Tómasson, Jón Ás-
geirsson, Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Atli Ingólfsson.
I N T E R N A T I O N A L
Sérfræðingur Kanebo mun kynna þessa
nýjung ásamt því nýjasta í förðun
í Andorru fimmtudag og föstudag
kl. 13-18.
Smooth Away Wrinkles
Horfðu á línurnar hverfa!
Strandgötu 32, Hafnarfirði
Skilvirkar varnir gegn búðarhnupli
og annarri skaðsemi fyrir verslanir
Thor Martin Bjerke öryggissérfræðingur hjá norsku samtökunum
Handels- og Servicenæringens Hovedorganisasjon
Varnir gegn vágestum
Emil B. Karlsson verkefnastjóri SVÞ
Kaffihlé
Samskipti starfsmanna verslana og lögreglu
Guðmundur Gígja yfirmaður forvarnardeildar Lögreglunnar í Reykjavík
Vernd eigna – vinnsla persónuupplýsinga
Elsa S. Þorkelsdóttir lögfræðingur Persónuverndar
Rýrnun í smásöluverslun
- tæknibúnaður sem skilar mælanlegum árangri
Andrew Hunter sérfræðingur öryggis- og þjófavarnabúnaðar
hjá Sensormatic í Bretlandi
Umræður og fyrirspurnir
Markmið ráðstefnunnar er að stuðla að aukinni þekkingu
lykilfólks í verslunum um hvernig hægt er að auka öryggi og
lágmarka rýrnun. Verða þar m.a. kynntar aðferðir sem hafa
skilað góðum árangri í verslun á hinum Norðurlöndunum.
Erlendu fyrirlesararnir hafa getið sér gott orð fyrir sérhæfingu
á þessu sviði. Þeir tala á ensku.
Ráðstefna 10. febrúar kl. 13:00 á Grand Hótel Reykjavík
ÖRYGGI Í VERSLUNUM
Skilvirkar leiðir til að koma í veg fyrir rýrnun
Engin þátttökugjöld eru en þátttakendur verða að skrá sig á svth@svth.is
eða í síma 511 3000
Fundarstjóri: Sigurður Jónsson framkvæmdastjóri SVÞ
Skráðu þig í tíma!
Að ráðstefnunni standa: