Morgunblaðið - 06.02.2003, Síða 35
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. FEBRÚAR 2003 35
Í SAMVERUSTUND eldri borg-
ara, Neskirkju, laugardaginn 8.
febrúar kl. 14 mun Matthías Jo-
hannessen, skáld og fyrrverandi
ritstjóri, rifja upp gamlar minn-
ingar úr vesturbænum í safn-
aðarheimili kirkjunnar. Fram
verður borin létt máltíð sem kost-
ar 300 kr. Þeir sem ætla að neyta
matarins þurfa að tilkynna þátt-
töku í síma 511 1560 milli kl. 10–
13 fram á föstudag.
Umsjón með starfi eldri borg-
ara í Neskirkju hefur sr. Frank
M. Halldórsson.
Harmonikkuball
í Kirkjuhvoli
NÚ er aftur komið að harm-
onikkuballi eldri borgara í
Garða- og Bessastaðasókn. Ballið
verður haldið í safnaðarheimilinu
Kirkjuhvoli föstudaginn 7. febr-
úar kl. 14–17. Harmonikkuböllin
eru samstarfsverkefni sóknanna í
Garðaprestakalli og félaga eldri
borgara í Garðabæ og í Bessa-
staðahreppi. Þau eru ágæt æfing
fyrir þorrablótin, sem nú standa
sem hæst, en fyrst og fremst góð
skemmtun í glöðum hópi fólks.
Prýðis góð harmonikkuhljómsveit
leikur fyrir dansi, en að auki
verða flutt gamanmál og lesið
upp. Þá fylgir fínasta vöflukaffi,
en aðgangseyrir er kr. 500,-.
Allir eru velkomnir, en á síð-
asta harmonikkuball okkar
mættu um 80 manns. Rúta fer frá
Hleinum kl. 13.45. Prestarnir.
Opið hús hjá
Nýrri dögun
FIMMTUDAGINN 6. febrúar
verður opið hús hjá Nýrri dögun,
samtökum um sorg og sorg-
arviðbrögð, kl. 20–22, í safn-
aðarheimili Háteigskirkju, 2.
hæð. Á opnu húsi gefst fólki í
sorg kostur á að eiga samtal um
reynslu sína og þannig miðla
stuðningi hvert til annars. Um-
ræðurnar leiðir sr. Halldór Reyn-
isson. Allir syrgjendur eru vel-
komnir og þátttaka er ókeypis.
Minningar úr
vesturbænumÁskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópakl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Sönghópur
undir stjórn Kára Þormar, organista. Kaffi
og með því eftir sönginn. Allir velkomnir.
Biblíulestur kl. 20 í safnaðarheimilinu.
Lúkasarguðspjall lesið og skýrt. Allir vel-
komnir. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja. Foreldramorgunn kl. 10–
12 í umsjá Lovísu Guðmundsdóttur.
Dómkirkjan. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 14–16 í safnaðarheimilinu Lækj-
argötu 14a. www.domkirkjan.is
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund í hádegi kl.
12. Léttur málsverður í safnaðarheimili
að stundinni lokinni.
Háteigskirkja. Taizé-messa kl. 20. Eldri
borgara starf. Á morgun kl. 13.30 sam-
vera í Setrinu (brids aðstoð).
Landspítali Háskólasjúkrahús, Arnar-
holt. Guðsþjónusta kl. 15. Sr. Gunnar
Rúnar Matthíasson.
Laugarneskirkja. Kyrrðarstund í hádegi
kl. 12. Gunnar Gunnarsson leikur á orgel
kirkjunnar frá kl. 12–12.10. Að stundinni
lokinni er léttur málsverður á kostnaðar-
verði í safnaðarheimilinu. Einfalt, fljótlegt
og innihaldsríkt. Samvera eldri borgara
kl. 14. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson heim-
sækir og segir frá fornbókasafni sínu og
sýnir m.a. upprunalegar Guðbrandsbiblíur
o.fl. gersemar. Alfa-fundur í safnaðar-
heimilinu kl. 20. (Sjá síðu 650 í Texta-
varpi).
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra laugar-
daginn 8. febrúar kl. 14. Matthías Jo-
hannessen, skáld og fyrrverandi ritstjóri,
rifjar upp gamlar minningar úr vesturbæn-
um. Þátttaka tilkynnist í síma 511 1560
milli kl. 10 og 13 til föstudags. Allir vel-
komnir. Sr. Frank M. Halldórsson. Nedó,
unglingaklúbbur, kl. 17. 10. bekkur og
eldri. Nedó, unglingaklúbbur, kl. 19.30.
8. og 9. bekkur kl. 19.30. Munda og
Hans.
Breiðholtskirkja. Biblíulestrar á vegum
Leikmannaskóla kirkjunnar og Reykjavík-
urprófastsdæmis eystra sem bera heitið
Ábyrgð og frelsi í boðun ritningarinnar.
Kennari á námskeiðinu er sr. Sigurjón
Árni Eyjólfsson héraðsprestur dr.theol.&
dr.theol. Á námskeiðinu verður farið í
nokkra grundvallartexta Biblíunnar og
skoðað hvernig hin ýmsu rit hennar fjalla
um frelsi og ábyrgð mannsins. Í sam-
hengi við þá umfjöllun verður greint frá
nokkrum þeim fyrirmyndum sem menn
hafa viljað sjá í Jesú frá Nasaret. Áhersla
verður lögð á nýlegar rannsóknir um hinn
sögulega Jesú. Kennt verður í Breiðholts-
kirkju kl. 20–22 fimmtudaga frá 30 jan-
úar til 3. apríl. Skráning fer frá í síma 535
1500 eða á vef Leikmannaskólans:
www.kirkjan.is/leikmannaskoli. –
Mömmumorgnar föstudag kl. 10–12.
Digraneskirkja. Fjölskyldumorgnar kl.
10–12. Kirkjustarf aldraðra, Leikfimi ÍAK
kl. 11.15. Bænastund kl. 12.10. Ung-
lingakór Digraneskirkju kl. 17-19. (Sjá
nánar: www.digraneskirkja.is)
Fella- og Hólakirkja. Biblíulestur og helgi-
stund í Gerðubergi kl. 10.30–12. Starf
fyrir 8–10 ára stúlkur kl. 16.30.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir, ýmiss konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin. Kirkjukrakkar í Húsaskóla fyrir
7–9 ára börn kl. 17.30–18.30. Kirkju-
krakkar í Grafarvogskirkju kl. 17.30–
18.30 fyrir 7–9 ára. Æskulýðsfélag í Graf-
arvogskirkju fyrir 8. bekk kl. 20–22.
Æskulýðsfélag í Engjaskóla kl. 20–22 fyr-
ir 9. og 10. bekk.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Samvera eldri borgara í
dag kl. 14.30–17 í safnaðarheimilinu
Borgum. Kyrrðar- og bænastund í dag kl.
17. Fyrirbænaefnum má koma til sókn-
arprests eða kirkjuvarðar.
Seljakirkja. Alfa-námskeið hefst kl. 19.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund í
kirkjunni kl. 22. Gott er að ljúka deginum
og undirbúa nóttina í kyrrð kirkjunnar og
bera þar fram áhyggjur sínar og gleði.
Bænarefni eru skrá í bænabók kirkjunnar
af prestum og djákna. Boðið er upp á
molasopa og djús að lokinni stundinni í
kirkjunni.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheimilinu
Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund í dag kl.
13. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman í
notalegu umhverfi og eiga skemmtilega
samverustund. Barnastarf fyrir 10–12
ára börn í dag kl. 17.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. TTT-starf fyrir 10–
12 ára kl. 16.30–18.
Lágafellskirkja. Barnastarf Lágafells-
kirkju, kirkjukrakkar, er í Varmárskóla í
dag fyrir 6–7 ára börn kl. 13.15 og 8–9
ára börn kl. 14.30. Umsjón Þórdís djákni.
TTT-starf Lágafellskirkju er í dag, fimmtu-
dag, kl. 16. Mikið fjör, mikið gaman. Allir
krakkar á aldrinum 10–12 ára velkomnir.
Safnaðarstarf Lágafellskirkju. Æskulýðs-
starfið Sound. Æskulýðshópurinn okkar
er með fundi alla fimmtudaga kl. 17. Frá-
bær hópur fyrir frábært ungt fólk í 8.–10.
bekk. Safnaðarstarf Lágafellskirkju.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Keflavíkurkirkja. Fermingarundirbúningur
í Kirkjulundi kl. 16–16.45 8. MK í Heið-
arskóla og 8. KÓ í Heiðarskóla.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 10
mömmumorgunn í safnaðarheimilinu. Sr.
Kristján Björnsson. Kl. 16.30 Litlir læri-
sveinar, yngri hópur. Kórstjóri Guðrún
Helga Bjarnadóttir.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Aðaldeild KFUM. Fundur í kvöld kl. 20.
Steinunn Jóhannesdóttir, kristniboði,
læknir og prestur, í umsjón Sr. Sigurðar
Pálssonar. Allir karlmenn velkomnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Léttur hádegisverður á
vægu verði í Safnaðarheimili eftir stund-
ina. Opið hús fyrir eldri borgara kl. 15.
Ræðumaður Jón Hjaltason sagnfræðing-
ur. Prímadonnurnar syngja undir stjórn
Sigríðar Schiöth. Almennur söngur.
Safnaðarstarf
Morgunblaðið/Árni SæbergNeskirkja
STJÓRN Fuglaverndarfélags Ís-
lands telur niðurstöðu Jóns Krist-
jánssonar, setts umhverfisráðherra,
viðunandi varðandi Þjórsárver og
Norðlingaöldumiðlun.
Í frétt félagsins segir m.a.: „Norð-
lingaöldumiðlun í þessari nýju útgáfu
verður afturkræf framkvæmd. Því er
alls ekki loku fyrir það skotið að í
framtíðinni verði hægt að stækka
friðlandið og jafnvel færa það niður
með Þjórsá svo að Gljúfurleit geti
orðið hluti þess.
Umhverfisáhrif frá setlóni í norð-
urhluta Þjórsárvera þarf að skoða ít-
arlega og vinna alla hönnun þannig að
lónið endist sem best og falli vel að
umhverfinu. Jafnframt sé lónið þann-
ig úr garði gert, að þegar það hefur
lokið hlutverki sínu verði hægt að
fjarlægja og Landsvirkjun verði gerð
ábyrg fyrir því. Við þessar fram-
kvæmdir er ljóst, að rennsli Þjórsár
verður talsvert skert um Þjórsárver
og Gljúfurleit, en rennslið hefur nú
þegar verið skert um 40% með gerð
Kvíslaveitna.
Brýnt er að endurskoða lögin um
friðlandið í Þjórsárverum og fella úr
lögunum undanþáguheimildina um-
deildu um Norðlingaöldulón. Æski-
legt væri að skoða hvernig megi bæta
aðgengi fólks að svæðinu, svo að nátt-
úruunnendur geti heimstótt Þjórsár-
ver í sátt við umhverfi og fuglalíf.“
Telja niður-
stöðu um
Þjórsárver
viðunandi
FRÉTTIR
LÖGREGLAN í Hafnarfirði lýsir
eftir vitnum að árekstri er varð á
gatnamótum Hafnarfjarðarvegar og
Lyngáss í Garðabæ miðvikudaginn
29. janúar síðastliðinn um kl. 18.22.
Ágreiningur er um stöðu umferðar-
ljósa á gatnamótunum er árekstur-
inn varð.
Þær bifreiðir er lentu saman voru
VW Vento, rauð að lit, sem ekið var
suður Hafnarfjarðarveg og Volvo
bifreið, dökkgrá að lit, sem ekið var
norður Hafnarfjarðarveg með áætl-
aða akstursstefnu vestur Lyngás.
Lýst eftir
vitnum
♦ ♦ ♦
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á henni sjálfri
sem hér segir:
Hrímnir ÁR 051, skipaskrárnr. 1468, þingl. eig. Skin ehf., gerðarbeið-
endur Íslandsbanki hf. og Olíuverslun Íslands hf., fimmtudaginn
13. febrúar 2003 kl. 9:30.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
5. febrúar 2003.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Auðsholt, Ölfusi, eignarhl. gerðarþ. Landnr. 171670, þingl. eig. Run-
ólfur Björn Gíslason, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi,
fimmtudaginn 13. febrúar 2003 kl. 11.45.
Austurmörk 20, Hveragerði. Fastanr. 220-9843, þingl. eig. Runólfur
Björn Gíslason, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtu-
daginn 13. febrúar 2003 kl. 13.30.
Austurmörk 20, Hveragerði. Fastanr. 223-4365, þingl. eig. Runólfur
Björn Gíslason, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtu-
daginn 13. febrúar 2003 kl. 13.45.
Austurvegur 33, Selfossi, 50%. Fastanr. 218-5439, þingl. eig. Guð-
mundur Lárus Arason, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi,
fimmtudaginn 13. febrúar 2003 kl. 10.30.
Álftarstekkur 4, Þingvallahreppi. Fastanr. 220-9203, þingl. eig. Arn-
heiður Ragnarsdóttir, gerðarbeiðandi AX-hugbúnaðarhús hf., föstu-
daginn 14. febrúar 2003 kl. 15.00.
Bláskógar 2, Hveragerði. Fastanr. 220-9855, þingl. eig. Brynhildur
Áslaug Egilson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., fimmtu-
daginn 13. febrúar 2003 kl. 14.15.
Brautarholt 10B, Skeiðahreppi, eignarhl. gerðarþ. Fastanr. 220-1796,
þingl. eig. Jónas Yngvi Ásgrímsson, gerðarbeiðendur Kreditkort
hf. og Vélaverkstæði Guðmund/Lofts sf., fimmtudaginn 13. febrúar
2003 kl. 16.00.
Heiðarvegur 5, Selfossi. Fastanr. 218-6328, þingl. eig. Jens Ingvi
Arason, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Ker hf., fimmtudaginn
13. febrúar 2003 kl. 11.00.
Heiðmörk 2, Selfossi. Fastanr. 218-6350, þingl. eig. Björn Fannar
Björnsson, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Sveitarfélagið Árborg
og Tal hf., fimmtudaginn 13. febrúar 2003 kl. 10.00.
Kaldárhöfði, Grímsnes- og Grafningshreppi, eignarhl. gerðarþ. Fasta-
nr. 220-7689, þingl. eig. Sigríður Sigurðardóttir, gerðarbeiðandi
Ingvar Helgason hf., föstudaginn 14. febrúar 2003 kl. 11.45.
Kirkjuhvoll, Eyrarbakka. Fastanr. 220-0391, þingl. eig. Ingunn Guðna-
dóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Selfossveitur bs, fimmtu-
daginn 13. febrúar 2003 kl. 15.00.
Launrétt 1, Biskupstungnahreppi. Fastanr. 220-5534, þingl. eig. Helgi
Sveinbjörnsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi, föstudag-
inn 14. febrúar 2003 kl. 11.00.
Lóð undir gistiheimili og gamla íbúðarhúsið að Efri-Brú. Spilda úr
óskiptu landi Efri-Brúar og Brúarholts og úr 2 ha spildu úr landi Brúar-
holts, Grímsnes- og Grafningshreppi, ásamt rekstrartækjum og
búnaði skv. samningsveðlögum nr. 75/1997, þingl. eig. Böðvar Guð-
mundsson, gerðarbeiðandi Ferðamálasjóður, föstudaginn 14. febrúar
2003 kl. 14.00.
Lóð úr landi Efri-Brúar, Grímsnes- og Grafningshreppi, þingl. eig.
Sigrún Lára Hauksdóttir, gerðarbeiðendur Grímsnes- og Grafnings-
hreppur, Íbúðalánasjóður og Leikskólar Reykjavíkur, föstudaginn
14. febrúar 2003 kl. 14.30.
Spilda úr landi Efri-Brúar nr. III, ásamt 2.905 fm eignarlóð, Grímsnes-
og Grafningshreppi, þingl. eig. Ferðaþjónustan Efri Brú ehf., gerðar-
beiðendur Ferðamálasjóður, Grímsnes- og Grafningshreppur, Húsa-
smiðjan hf., Landssími Íslands hf., innheimta, Rafmagnsveitur ríkisins,
Reykjavík, Sláturfélag Suðurlands svf. og sýslumaðurinn á Selfossi,
föstudaginn 14. febrúar 2003 kl. 14.15.
Úrskiptur eignarhl. Stígs Sæland úr nýbýlinu Espiflöt, Biskupstungna-
hreppi, þingl. eig. Garðyrkjustöðin Stóra-Fljót ehf., gerðarbeiðendur
Íbúðalánasjóður, Lánasjóður landbúnaðarins og sýslumaðurinn
á Selfossi, föstudaginn 14. febrúar 2003 kl. 10.30.
Vesturbyggð 6, Biskupstungnahreppi. Fastanr. 220-5565, þingl.
eig. Jakob Narfi Hjaltason, gerðarbeiðendur Biskupstungnaveita,
Húsasmiðjan hf., Innheimtustofnun sveitarfélaga, Íbúðalánasjóður
og Kaupás hf., föstudaginn 14. febrúar 2003 kl. 10.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
5. febrúar 2003.
ÝMISLEGT
Kerfismót og
byggingarkrani
Vegna nýrra verkefna þá óskum við eftir
notuðum Hunnebeck lofta- eða veggja-
mótum. Einnig óskast öflugur sjálfreis-
andi byggingarkrani.
Áhugasamir hafi samband við skrifstofu
Eyktar í síma 595 4400.
Eykt ehf. sérhæfir sig í að veita stofn-
unum og fyrirtækjum sérhannaðar
heildarlausnir varðandi skrifstofu-
húsnæði.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
UPPBOÐ