Morgunblaðið - 16.03.2003, Page 1

Morgunblaðið - 16.03.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 73. TBL. 91. ÁRG. SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is Hluti af náttúrunni Patrick Huse fæst við samband manns og náttúru Listir 30 Steve-O úr Kjánaprikunum er á leiðinni til Íslands Fólk 56 Píanisti Polanskis Adrien Brody er gagntekinn af hlutverkinu og leikstjóranum 26 Fíflaskapur og smekkleysa „ÞETTA er sögulegur dagur fyrir Alcoa þar sem álverið í Reyðar- firði er okkar stærsta nýja fjárfesting í meira en tuttugu ár,“ sagði Alain J. P. Belda, forstjóri og stjórnarformaður Alcoa, við Morgun- blaðið við komuna til Egilsstaða í gærmorgun en þar lenti hann í einkaþotu sinni í beinu flugi frá New York. Síðar um daginn und- irritaði hann samninga við stjórnvöld, Landsvirkjun og Fjarðabyggð vegna álvers Alcoa í Fjarðabyggð. Fjölmenni var við athöfnina í íþróttahúsinu á Reyðarfirði þar sem meðal viðstaddra voru íbúar Austfjarða, ráðherrar, þingmenn og fulltrúar fjölmargra fyrirtækja, m.a. ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo. Alls þurfti að undirrita á fjórða tug samningsskjala upp á um 200 blaðsíður, þar sem samningarnir voru bæði á ensku og íslensku og snúa að fjárfestingarsamningi við ríkið, raforkusamningi við Lands- virkjun og hafnar- og lóðarsamningum við Fjarðabyggð. Í ræðu sinni við athöfnina tilkynnti Belda m.a. að fyrirtækið hefði ákveðið að gefa Fjarðabyggð 2007 tré til plöntunar við álverslóðina og víðar í sveitarfélaginu og síðan verða 450 tré, eitt fyrir hvern starfsmann álversins, gefin árlega til ársins 2007 þar til taka á álver- ið í notkun. Alls eru þetta vel á fimmta þúsund trjáa. Í ræðu sinni taldi Belda samningsundirskriftina marka upphaf ánægjulegra og árangursríkra samskipta við íbúa Austfjarða. Blaðamenn Morgunblaðsins, sem voru á ferð eystra í síðustu viku, fundu að mikill hugur er í mörgum Austfirðingum og fram- kvæmdagleðin vakin. Íbúðarhús eru aftur tekin að rísa og nýjar verslanir bætast við. „Ég hef komið hingað austur á hverju ári og alltaf þótt þetta síga lengra og lengra niður á við,“ segir Jón Grétar Margeirsson, verslunarstjóri nýrrar BYKO-búðar á Reyðarfirði. „Í dag er hér allt annar hugsunarháttur. Menn sjá bara sólina, allt komið á fulla ferð og mikill kraftur í fólkinu.“ Morgunblaðið/RAX Systurnar Ásta María og Stefanía Sturludætur frá Reyðarfirði tóku á móti forstjóra Alcoa, Alain Belda, er hann lenti á Egilsstöðum í gær- morgun og afhentu honum blómvönd, með aðstoð Ómars Valdimarssonar. Belda sagði undirritunina vera sögulega stund fyrir Alcoa. Tveir menn ræðast við í gati á aðgöngum sem verið er að grafa niður að botni stíflustæðis Kárahnjúkastíflu. Þaðan sést vel í Kára- hnjúk en gatið er á miðjum vegg gilsins sem Jökla rennur um. Framkvæmda- gleðin vakin á Austurlandi Skrifað undir 200 blaðsíður af samningum á Reyðarfirði  Bjartsýni/Sunnudagur 1 ÚTFÖR Zorans Djindjic, forsætis- ráðherra Serbíu, fór fram í Belgrad í gær en Djindjic var ráðinn af dögum sl. miðvikudag. Kista með líki hans hafði frá því snemma í gærmorgun legið frammi í kirkju heilags Sava, stærstu rétttrúnaðarkirkjunni á Balkanskaganum, og komu tugir þúsundir manna til að votta Djindjic virðingu sína. Var kistan umvafin serbneska þjóðfánanum. Fulltrúar meira en 40 ríkja sóttu útförina. Morðingja Djindjic er enn leitað en hátt á annað hundrað manns hafa verið handtekin í tengslum við rann- sókn málsins. AP Zoran Djindjic borinn til grafar LÍTIL bjartsýni ríkti á fundi varnarmálaráðherra Evrópusambandsríkjanna í útjaðri Aþenu í gær um að koma mætti í veg fyrir hernaðarátök í Írak. Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, sagðist „ekki mjög bjartsýnn“ á að komist yrði hjá átök- um og Andre Flahaut, varnarmálaráðherra Belg- íu, var enn svartsýnni og spáði því að stríð hæfist innan fárra daga. „Því miður held ég að ef átök hefjast á morgun [í dag] eða daginn eftir þá muni þurfa að bregðast við, að jafnvel þó að stríð hafi ekki verið okkar ósk muni verða farið fram á það við okkur að sinna mannúðarverkefnum,“ sagði hann. Rétt væri að fara að huga að því hvað tæki við eftir stríðið. Bush fundar með Blair og Aznar George W. Bush Bandaríkjaforseti hittir Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, og Jose-Maria Aznar, forsætisráðherra Spánar, á Azor-eyjum í dag en markmið fundarins er að sögn að gera lokatilraun til að finna diplómatíska lausn á deil- um um Íraksmálin. Ekki er hins vegar líklegt að Bandaríkjastjórn takist að fá samþykkta í örygg- isráði Sameinuðu þjóðanna ályktun, sem fæli í sér heimild til hernaðaríhlutunar ef Írakar ekki af- vopnast. Kom fram sú skoðun í breskum fjölmiðlum í gær að fundurinn á Azor-eyjum væri eingöngu haldinn til að styrkja stöðu Blairs en mikill urgur er í flokksmönnum breska Verkamannaflokksins vegna stuðnings Blairs við Bush í þessu máli. Fulltrúi Chile í öryggisráðinu hafði á föstudag lagt fram málamiðlunartillögu um að Saddam Hussein, forseta Íraks, yrðu gefnar þrjár vikur til viðbótar til að hlíta ályktunum SÞ um afvopnun en Bandaríkjastjórn hafnaði hugmyndinni umsvifa- laust. Var haft eftir Jack Straw, utanríkisráðherra Bretlands, í gær að því miður væru nú meiri líkur en áður á hernaðarátökum. „Líkurnar á hernað- aríhlutun eru nú miklu meiri, og það þykir mér miður, en stríð er þó ekki óhjákvæmilegt,“ sagði Straw í viðtali í breska ríkisútvarpinu, BBC. Ráðist inn í Írak á næstu dögum? Vouliagmeni, Washington. AFP. HU Jintao tók í gær við af Jiang Zemin sem forseti Kína við hátíð- lega athöfn í Peking. Jiang verður hins veg- ar áfram formaður her- málanefndar Komm- únistaflokksins og heldur því umtals- verðum völdum í Kína. Hægri hönd Jiangs, Zeng Qinghong, var kjörinn varaforseti sem þykir enn frekar til marks um að Jiang muni ráða miklu á bak við tjöldin. Annað sem bar til tíðinda var að Wu Bangguo var valinn forseti þingsins í stað Li Peng. Nýr forsætisráðherra verður kjörinn í dag og þykir líklegt að fyrir valinu verði Wen Jiabao. Með þessum breytingum eiga sér stað kynslóðaskipti í kínverskum stjórnmálum. Athöfnin í gær þótti íburðarmikil en sérfræð- ingar segja hana hafa staðfest að Jiang yrði áfram helsti leiðtogi Kína. Til marks um þetta hafi verið sú staðreynd að kastljós fjölmiðlanna beindist að Jiang, fremur en hinum nýja forseta. Hu tekinn við af Jiang í Kína Peking. AFP. Hu kemur í humátt á eftir Jiang á fundinum í gær. ♦ ♦ ♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.