Morgunblaðið - 16.03.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
INNEIGN í séreignasjóðum telst
vera hjúskapareign en ekki séreign
samkvæmt hjúskaparlögum, sam-
kvæmt niðurstöðu gerðardóms, sem
úrskurðaði í ágreiningi stjórnar líf-
eyrissjóðs og erfingja manns sem
fallið hafði frá en átti inneign í sér-
eignasjóði.
Frá þessu er skýrt á heimasíðu
Landssamtaka lífeyrissjóða, en at-
vik málsins voru þau að sjóðfélagi,
sem átti innistæðu í séreignarreikn-
ingi í lífeyrissjóði, féll frá fyrir
tveimur árum og var ágreiningur
uppi milli erfingja sjóðfélagans og
lífeyrissjóðsins um hlutfallsskipt-
ingu lífeyrissparnaðarins milli lög-
erfingja.
Töldu erfingjarnir að skilgreina
bæri inneignina sem séreign sam-
kvæmt hjúskaparlögum en ekki
sem hjúskapareign með vísan til
samþykkta lífeyrissjóðsins. Stjórn
sjóðsins taldi hins vegar að séreign
sjóðfélagans teldist til hjúskapar-
eignar og ætti að skiptast sem slík.
Sóknaraðili taldi að með vísan til
4. mgr. 11. gr. laga um skyldu-
tryggingu lífeyrisréttinda og starf-
semi lífeyrissjóða nr.129/1997, sé
vísað til erfðalaga og að innistæðan
sem um ræði falli ekki til dánarbús-
ins, heldur bæri lífeyrissjóðnum að
greiða hann út til eftirlifandi maka
og barna, en samkvæmt erfðalögum
sé skiptareglan að maki erfi 1⁄3 hluta
eigna þegar börn eru á lífi en börn
2⁄3.
Stjórn lífeyrissjóðsins taldi hins
vegar að skilgreina bæri umrædda
eign sem hjúskapareign, þannig að
útgreiðslan skiptist þannig að erf-
ingjar fengju 1⁄3 hluta lífeyrissparn-
aðarins en maki 2⁄3 hluta. Hvorki sé
í hjúskaparlögum né í lífeyrissjóða-
lögum vísað til þess að séreign rétt-
hafa í séreignasjóðum lífeyrissjóða
teljist til séreignar í skilningi hjú-
skaparlaga. Af því leiði að séreign
sjóðfélagans í lífeyrissjóðnum teljist
vera hjúskapareign og því skuli
skipta eigninni í samræmi við regl-
ur hjúskapar- og erfðalaga um það
efni og staðfesti gerðardómur þenn-
an skilning að því er fram kemur á
heimasíðu Landssamtaka lífeyris-
sjóða.
Séreign í lífeyrissjóð-
um telst hjúskapareign
SAUTJÁN björgunarsveitarmenn og starfs-
menn skíðasvæða á landinu sóttu námskeið í
skíðagæslu í Hlíðarfjalli á Akureyri um síðustu
helgi. Björgunarsveitin Súlur á Akureyri hefur
í vetur og þann síðasta haft eftirlit með skíða-
mönnum í fjallinu, með góðum árangri. Telur
Hörður Már Harðarson, skólastjóri Björg-
unarskóla Slysavarnafélagsins Landsbjargar,
að breytt skíðaiðkun kalli á nýjar aðferðir við
eftirlit skíðasvæða.
Tveir Bandaríkjamenn sem starfa á skíða-
svæðum í Colorado í Bandaríkjunum kenndu á
námskeiðinu sem stóð í þrjá daga. „Í Banda-
ríkjunum snýst skíðagæsla að miklu leyti um
að koma í veg fyrir slys,“ segir Hörður Már.
Hann segir hlutverk skíðagæslumanna að
fækka slysum í brekkum eins og mögulegt er.
Mikið unnið með þessari leið
Hörður telur jákvætt að björgunarsveit-
armenn séu farnir að taka þátt í skíðagæslu í
auknum mæli. Meðal þess sem kennt var á
námskeiðinu var hvernig gera megi skíða-
svæði notendavænni, þannig að augljóst sé
hvar megi skíða og hvar ekki. „Ég held að mik-
ið sé unnið með því að fara þessa leið, vera öðr-
um skíðaiðkendum til fyrirmyndar því það
hafa miklar breytingar orðið á skíðaiðkun síð-
ustu ár,“ segir Hörður.
Hörður segir að í Colorado séu vélknúin far-
artæki mjög sjaldan notuð til að flytja slasaða
skíðamenn úr brekkunum, heldur sé skíðað
niður með fólkið í sérstökum börum. „Það er
hægt að skíða niður með börurnar sama
hversu brött brekkan er, svo framarlega sem
menn geti staðið á skíðunum er hægt að skíða
með þessar græjur,“ segir hann. Fengu nem-
endur að reyna þetta á námskeiðinu.
Hörður segir að það hafi reynst vel í Hlíð-
arfjalli að hafa björgunarsveitarmenn í brekk-
unum. „Hlutverk þeirra er ekki endilega bara
að sinna fólki sem hefur orðið fyrir óhöppum
heldur einnig vera skíðamönnum til aðstoðar.
Það getur t.d. verið mjög erfitt að átta sig á því
hvar skíðaleiðin liggur ef skyggni er slæmt.
Síðan er það til þess að fólk virðir frekar
grundvallarreglur í skíðabrekkum ef ein-
hverjir eru að fylgjast með því,“ segir Hörður.
Aukin snjóflóðahætta
Undanfarin ár hafa talsverðar breytingar
orðið á skíðaiðkun. Margir renna sér á snjó-
brettum og einnig hafa Telemark-skíði og svo-
kölluð Carving-skíði, sem auðveldara er að
renna sér á í erfiðu færi, rutt sér til rúms.
„Tölfræðilegar upplýsingar frá Bandaríkj-
unum sýna að sífellt fleira brettafólk og aðrir
sem eru á skíðum sem geta farið ótroðnar slóð-
ir lendir í snjóflóðum. „Carving- og Telemark-
skíði eru orðin útbreidd og fólk sækir í óhefð-
bundnar leiðir. Þetta er ákveðið áhyggjuefni
sem menn hafa t.d. fyrir norðan,“ segir Hörð-
ur. Hann segir mikilvægt að gera skíðaiðk-
endum grein fyrir því hvar hætturnar liggi og
að þeir átti sig á því að þeir verði að taka
ábyrgð á sjálfum sér.
Hann segir að hugsanlega gæti fólk sem fer
utan troðinnar leiðar eða niður hengjur komið
af stað snjóflóði sem gæti jafnvel farið yfir
svæði sem er búið að troða. „Það er búið að
skilgreina þessi hættusvæði bæði á Akureyri
og í Bláfjöllum. Rekstur þessara skíðasvæða
gengur út á snjó og snjór skapar ákveðna
hættu. Það þarf ekki mikið að breytast í of-
ankomu og öðru slíku og geta aðstæður breyst
hraðar en menn gera sér grein fyrir.“
Nýjar aðferðir við
eftirlit á skíðasvæðum
Sautján manns tóku þátt í námskeiði í skíðagæslu í Hlíðarfjalli um síðustu helgi.
Farið var yfir það á námskeiðinu hvern-
ig skíða á með sjúkling í börum.
Skíðagæsla hefur gefið góða raun í Hlíðarfjalli
SKÓGRÆKT með stuðningi ríkis-
valdsins mun á næstu áratugum hafa
meiri áhrif á lífríki landsins en nokkr-
ar aðrar framkvæmdir sem nú er
unnið að. Þetta kom fram í erindi
Kristins H. Skarphéðinssonar, dýra-
vistfræðings hjá Náttúrufræðistofn-
un Íslands, á ráðstefnunni „Skógar í
umhverfinu“ sem Skógræktarfélag
Íslands og Landvernd héldu í gær.
Á ráðstefnunni fluttu sérfræðingar
á ýmsum sviðum erindi og komu
fram margþætt viðhorf til skógrækt-
ar. Fjallað var um þau áhrif sem
skógrækt hefur á umhverfi og um
umfang og framtíðaráætlanir um
skógrækt á Íslandi.
Stefnt að framkvæmdum
Í máli Kristins kom einnig fram að
búháttabreytingar muni auk áætlana
um skógrækt stuðla að miklum
breytingum á gróðurfari landsins á
næstu áratugum. Þessi þróun muni
að hluta til leiða til endurheimtar
laskaðra vistkerfa, náttúrulegir
birkiskógar og víðikjarr muni aukast
verulega og ýmis önnur gróðurlendi
styrkjast.
Brynjólfur Jónsson, framkvæmda-
stjóri Skógræktarfélags Íslands,
benti á í sínu erindi að talið væri að
mjög alvarleg jarðvegseyðing herjaði
á um 35% af flatarmáli landsins. Á
síðustu áratugum hefði skógrækt
vaxið fiskur um hrygg og ný verkefni
verið kynnt til sögunnar. Aldrei fyrr
hefði verið unnið jafn mikið að skóg-
rækt á Íslandi.
Fram kom í máli Freysteins Sig-
urðssonar jarðfræðings að skóglendi
þakti um 25 þús. ferkílómetra við
landnám en nú aðeins um 1.200 km².
Rætt væri um ræktun 2.000 km²
skóga á næstu 40 árum. Nauðalítil
skógrækt yrði á hálendinu með öllum
þess náttúruperlum. Skógrækt í
byggð og á láglendi eða neðan 200
metra yfir sjávarmáli gæti þakið 10–
20% láglendisins með birkiskógum,
blandskógum og barrskógum. Þar
þurfi því mestrar aðgátar við að fella
skógana að landslagi og annarri land-
nýtingu.
Arnlín Óladóttir skógfræðingur
sagði að skógrækt væri ræktun sem
lyti sömu lögmálum og önnur ræktun
þar sem uppskera gæti verið misjöfn
eftir því hvernig að henni væri staðið.
Nauðsynlegt væri að hafa framtíðar-
sýn þannig að skógarnir gætu gegnt
sínu hlutverki í framtíðinni.
Glókollur orðinn algengur
Ásrún Elmarsdóttir plöntuvist-
fræðingur gerði grein fyrir fyrstu
niðurstöðum samstarfsverkefnis
Náttúrufræðistofnunar og Skóg-
ræktar ríkisins þar sem kannaðar
eru breytingar sem verða á lífríki og
kolefnishringrás mólendis við skóg-
rækt og þegar náttúrulegir birki-
skógar vaxa upp. Sagði hún að fyrstu
niðurstöður gæfu til kynna að miklar
breytingar yrðu á lífríki þar sem
skógur vex upp í mólendi eða birki-
skógur vex upp í kjölfar friðunar.
Tegundir sem aðlagaðar eru ber-
svæðum láta undan síga en aðrar
koma inn eða auka hlutdeild sína.
Meðal þess sem fram kom og athygli
vakti var að nýr landnemi, glókollur,
var orðinn mjög algengur varpfugl í
lerkiskógi.
Rætt um skóga og framtíðaráætlanir á ráðstefnu um skógrækt
Hafa mikil áhrif
á lífríki landsins
Morgunblaðið/Golli
Fjölmennt var á ráðstefnu Landverndar og Skógræktarfélags Íslands.
RANNSÓKN lögreglunnar í Borg-
arnesi á barnaklámsmáli sem kom
upp í umdæmi lögreglunnar fyrir
áramót er langt komin. Einn maður
hefur verið yfirheyrður með réttar-
stöðu grunaðs manns í málinu. Hann
er talinn hafa haft í vörslu sinni
myndir af barnaklámi og dreift þeim.
Hann mun hafa hlaðið myndunum
niður af Netinu.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni í Borgarnesi hófst málið
þegar maðurinn var kærður vegna
einnar ljósmyndar með barnaklámi.
Í kjölfarið voru gerðar húsleitir á
heimili hins grunaða og á vinnustað
hans og lagt hald á tölvubúnað á báð-
um stöðum. Búnaðurinn var sendur
til rannsóknar hjá ríkislögreglu-
stjóra og er þeirri rannsókn lokið en
eftir er að vinna úr gögnum. Því er
enn ekki ljóst á hversu mörgum
myndum er barnaklám. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
maðurinn hlotið dóma fyrir kynferð-
isbrot.
Lögreglan í
Borgarnesi
rannsakar
barna-
klámsmál