Morgunblaðið - 16.03.2003, Page 29
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 29
Allt að
sparnaður
Optical Studio
í leiðinni til útlanda
Aðeins
15 mínútur
að útbúa öll
algengustu
gleraugu
40%
OPTICAL STUDIO DUTY FREE STORE
FLUGSTÖÐ LEIFS EIRÍKSSONAR • SÍMI 425 0500 • FAX 425 0501
VERIÐ VELKOMIN Í VERSLANIR OKKAR ÞAR SEM ÞJÓNUSTAN ER Í FYRIRRÚMI.
Þjónustu- og ábyrgðaraði lar fyrir Optical Studio Duty Free Store:
GLERAUGNAVERSLUNIN Í MJÓDD • GLERAUGNAVERSLUN KEFLAVÍKUR • OPTICAL STUDIO RX, SMÁRALIND • GLERAUGNAVERSLUN SUÐURLANDS
le
tu
rv
al
-
hb
k
Staða og
framtíðar-
sýn leiklist-
arkennslu
FRÆÐSLUDEILD Þjóðleikhússins
stendur fyrir opnum fundi um stöðu
og framtíðarsýn leiklistarkennslu í
grunn- og framhaldsskólum á mánu-
dagskvöldið kl. 20:00 á Smíðaverk-
stæðinu. Meðal frummælenda er
menntamálaráðherra, Tómas Ingi Ol-
rich.
Á liðnum árum hefur verið vaxandi
áhugi fyrir því að styrkja stöðu leik-
listarinnar í skólakerfinu, en hún er
ekki viðurkennd sem kennslugrein í
dag nema að takmörkuðu leyti. Til að
ræða stöðu leiklistarkennslu og fram-
tíð hennar í grunn- og framhaldsskól-
um stendur fræðsludeild Þjóðleik-
hússins fyrir umræðufundi og hefur
fengið frummælendur úr ýmsum
geirum menntakerfisins.
Sem fyrr segir mun menntamála-
ráðherra, Tómas Ingi Olrich, ávarpa
fundinn en auk hans tekur til máls
Gerður G. Óskarsdóttir fræðslustjóri,
Anna Flosadóttir kennari í Hlíðaskóla
og Guðlaug María Bjarnadóttir kenn-
ari í Borgarholtsskóla segja frá
reynslu sinni af því að byggja upp
leiklistarkennslu í skólum sínum,
Ragnheiður Skúladóttir deildarfor-
seti leiklistardeildar LHÍ talar um
undirbúning leiklistarnáms á há-
skólastigi, Sigrún Sól Ólafsdóttir,
leikkona og leiklistarkennaranemi,
segir frá framtíðarsýn sinni í leiklist-
arkennslu fyrir grunn- og framhalds-
skólanema og nokkrir framhalds-
skólanemar segja frá eigin reynslu af
leiklistarkennslu.
Umræður verða að framsögum
loknum. Aðgangur er ókeypis.
Logaland kl. 16
Bergþór Pálsson
óperusöngvari,
Auður Hafsteins-
dóttir fiðluleikari
og Nína Margrét
Grímsdóttir píanó-
leikari flytja dag-
skrána „Mozart,
hver var það?“
Með tali, tónum og leikrænum til-
burðum munu þau upplýsa tón-
leikagesti um tónskáldið og per-
sónuna Wolfgang Amadeus
Mozart. Eftir hlé verða flutt ís-
lensk og erlend sönglög eftir ýmsa
höfunda og verk fyrir fiðlu og pí-
anó eftir m.a. Þórarin Jónsson og
Fritz Kreisler.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Bergþór
Pálsson
Skipafréttir eftir
Annie Proulx í
þýðingu Svein-
björns I. Baldvins-
sonar er komin út
í kilju.
Quoyle er þriðja
flokks blaðamað-
ur frá New York.
Hann hefur hvorki
þegið hæfileika né heppni í vöggugjöf
og er auk þess ófríður með af-
brigðum. Þegar kona hans ferst svip-
lega í bílslysi er hann sem frjáls und-
an oki og heldur norður á bóginn með
föðursystur sinni og dætrum – Bunny
og Sunshine – burt frá beiskum minn-
ingum. Þau stefna á ystu strendur Ný-
fundnalands, þangað sem þau eiga
rætur að rekja, og setjast að í húsi
forfeðranna. Þá lýkst upp nýr og
magnaður heimur fyrir litlu fjölskyld-
unni og í nábýli við náttúruöflin vaknar
Quoyle smám saman til lífsins.
Annie Proulx hlaut Pulitzer-
verðlaunin í bókmenntum árið 1994
fyrir Skipafréttir og National Book
Award í bókmenntum árið 1993.
Útgefandi: Mál og menning. Bókin
er 377 bls., prentuð í Danmörku.
Kápuhönnun: Anna Cynthia Leplar.
Verð: 1.799 kr.
Kilja