Morgunblaðið - 16.03.2003, Side 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
PENETRATION er yfirskrift
sýningar norska myndlist-
armannsins Patrick Huse, sem var
opnuð í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsi í gær. Náttúran er
viðfangsefni Huse á sýningunni og
er hún sú síðasta af þremur í trí-
lógíunni Rethinking Landscape,
sem listamaðurinn hefur unnið að
á níu ára tímabili. Tvær fyrri sýn-
ingarnar voru „Norrænt lands-
lag“, sem sett var upp í Hafn-
arborg árið 1995 og „Rift“ á
Kjarvalsstöðum árið 1999.
Listin veitir vernd
gegn náttúrunni
„Sýningin leitast við að velta
upp pælingum um hvernig við
kjósum að skilgreina okkur sem
hluta af náttúrunni. Við reynum
að beisla hana, meðal annars af
öryggisástæðum, sem er auðvitað
þversögn við þá staðreynd að við
sem menn erum sjálf hluti af nátt-
úrunni, ein af tegundum hennar.
Við sjálf erum lífræn,“ segir Huse.
Hann segist hafa leitað fanga og
innblásturs á norðlægum slóðum,
mestmegnis á Íslandi, en einnig í
Noregi og Svíþjóð. Verkin á sýn-
ingunni eru afar fjölbreytileg, þar
gefur að líta stóra striga af lands-
lagi, sem sumir hverjir minna á
blöndu af Kjarval og Jackson Poll-
ock í sömu andrá, videoverk, stál-
skúlptúra með vel völdum setn-
ingum á borð við „Listin veitir
vernd gegn náttúrunni“ og „Þegar
listin hættir að vera þjóðfélags-
gagnrýni verður hún eingöngu af-
þreying“, auk textaverka sem ætl-
að er að vekja athygli á
hugmyndum listamannsins um
hugtakið náttúru. „Það fer eftir
því hvað það er sem ég er að
vekja athygli á hverju sinni hvaða
miðil ég nota. Stundum hentar
málverkið betur til að lýsa því sem
ég vil koma á framfæri, en stund-
um virkar hreinn texti betur,“ út-
skýrir Huse, sem segist nota fjöl-
breytta miðla á þennan hátt nú til
dags. Hann viðurkennir þó að
hann hafi verið nokkuð hefð-
bundnari í framsetningu á árum
áður.
Huse segir ómögulegt fyrir sig
að draga nokkrar ályktanir útfrá
því sem hann setur fram á sýning-
unni. Enginn myndi vilja taka af-
leiðingunum. „Sýningin verður því
frekar eins og áminning. Það er
ekki eins og þessi mál hafi ekki
verið rædd áður – markmiðið er
frekar að taka þau upp aftur og
koma náttúrunni inn í hringiðu
þjóðfélagsumræðunnar á nýjan
leik. Það er athyglisvert að á
Norðurlöndunum lifir fólk í mjög
miklu návígi við náttúruna, og þó
er náttúran ekki stærri hluti en
svo af umræðunni,“ segir Huse
sem sjálfur á heimili í Noregi um-
kringdur náttúrunni.
Í samtali við erlendan listamann
sem lætur sig náttúruna og þjóð-
félagsumræðu um hana svo miklu
varða, er ekki úr vegi að minnast
á virkjanaáform á Austurlandi og
hvað Huse finnist um það mál.
„Það eina sem hægt er að segja
um það er að þið verðið að ákveða
hvað þið þurfið og hversu mikið
þið eruð tilbúin að borga fyrir
það. Allir vilja fara í heitt bað að
loknum löngum vinnudegi, en ég
hugsa að í raun snúist ykkar um-
ræður um hversu mikið baðkarið
kosti ykkur,“ segir Huse að lok-
um.
Í dag kl. 15.00 býður Listasafn
Reykjavíkur upp á listamanns-
spjall Patricks Huse í tengslum
við leiðsögn um sýninguna, en hún
stendur til 27. apríl.
„Þegar listin hættir að gagnrýna
verður hún eingöngu afþreying“
Morgunblaðið/Sverrir
„Allir vilja fara í heitt bað að loknum löngum vinnudegi, en ég hugsa að í
raun snúist ykkar umræður um hversu mikið baðkarið kosti ykkur,“ segir
norski listamaðurinn Patrick Huse um virkjanaáform á Austurlandi. Náttúr-
an er meginviðfansefni sýningar hans í Hafnarhúsinu sem var opnuð í gær.
TÓNLISTARHÓPURINN Contrasti
heldur tónleika í Hafnarborg kl. 20
í kvöld. Flytjendur að þessu sinni
eru þau Marta Guðrún Halldórs-
dóttir sópransöngkona, Camilla
Söderberg blokkflautuleikari og
Snorri Örn Snorrason lútu- og gít-
arleikari.
Flutt verður endurreisnartónlist,
snemmbarokk og nútímatónlist
m.a. eftir Claudio Monteverdi, Luc-
iano Berio og Benjamin Britten.
Verkið eftir Monteverdi er eins-
konar Kantata „Et é pur dunque
vero“ fyrir sópran, blokkflautu og
fylgirödd. Þá verða flutt fimm þjóð-
lög fyrir sópran og gítar í útsetn-
ingu Benjamíns Britten og verk eft-
ir Luciano Berio fyrir sópranrödd.
Þetta verk var samið fyrir sópr-
ansöngkonuna Kathy Barberian
sem var eiginkona tónskáldsins og
er eitt af svokölluðum „Sequenz-
um“ sem Berio samdi fyrir ýmiss
hljóðfæri. Röddin er hér nýtt á ný-
stárlegan máta og gerir miklar
kröfur til flytjandans.
Á efnisskránni er einnig verkið
Musica da Camera fyrir blokkflautu
og gítar eftir þýska flautuleikarann
og tónskáldið Hans Martin Linde
frá árinu 1972. Þetta verk sem er í
fjórum köflum er á léttum nótum og
oft stutt í húmorinn, en síðasti kafl-
inn ber yfirskriftina „Serenata, mit
freundlichen Grüssen an Kaspar
Fürstenau“ (1772-1819). Þá verða
einnig fluttir grímudansar (Masque
Dances) sem voru mjög vinsælir í
Englandi á fyrri hluta 17. aldar og
nokkur ítölsk sönglög samtíma-
manna Monteverdis.
Morgunblaðið/Kristinn
Snorri Örn Snorrason, Marta G. Halldórsdóttir og Camilla Söderberg.
Snemmbarokk og
nútímatónlist kallast á
Krýningarhátíðin
eftir Boris Ak-
únin í þýðingu
Árna Bergmann
er komin út í
kilju. Sögurnar
um Fandorin ger-
ast í lok 19. ald-
ar og sameina
anda rússnesku
meistaranna, Dostojevskís, Túrgenj-
evs og Tolstojs, og þá spennu sem
einkennir glæpasögur nútímans.
Augu heimsins beinast að
Moskvu og tignarfólk streymir til
borgarinnar. Krýningarhátíð Nikulás-
ar II og Alexöndru drottningar fer í
hönd. Skyndilega berast skelfileg
tíðindi um hallarsalina í Kreml:
Míka prins hefur verið numinn á
brott og ræninginn, dr. Lind, heimt-
ar stærsta gimsteininn í veld-
issprota keisarans að lausn-
argjaldi. Hver er þessi dr. Lind sem
reynir að grafa undan öruggi rík-
isins með því að hóta að myrða
saklaust barn?
Erast Fandorin er talinn slyngasti
rannsóknarlögreglumaður Rúss-
lands og hann er sá eini sem von
er til að geti leyst þessa gátu og
fundið „doktorinn“.
Útgefandi er Mál og menning.
Bókin er 344 bls., prentuð í Dan-
mörku. Kápuhönnun: Skaparinn
ehf.
Verð: 1.599 kr.
Kilja
Moggabúðin
Íþróttataska, aðeins 2.400 kr.