Morgunblaðið - 16.03.2003, Blaðsíða 38
UMRÆÐAN
38 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RC húsin og sumarhúsin eru öll byggð úr KJÖRVIÐI, sem er sérvalin,
hægvaxin og þurrkuð, norsk fura af 1. sorteringu. Það fylgir allt með,
sem til þarf til að byggja RC húsin og þú þarft því aldrei út í búð á
byggingartímanum. Efnið í RC húsin kemur tilsniðið. Teikningar koma
númeraðar og með sömu númerum og efnispakkarnir.
Það fylgja einnig frágangs-og smíðateikningar fyrir smiðina.
„RC hús þar sem gæðin skipta máli“
RC Hús
Sóltún 3, 105 Reykjavík
Sími: 511 5550
Veffang: www.rchus.is
Netfang: rchus@rchus.is
Bjóðum RC íbúðarhús, sumarhús og fjölnotahús, stór og lítil
„RC hús þegar
gæðin skipta máli“
IDÉ HUS&
TEGNING
NÝTT Á ÍSLANDI
RC Hús bjóða nú NÝJA „Royal“ þrýstifúavörn, þar sem
allt útitimbur, er nú soðið í 4 tíma í olíum við undirþrýsing.
Eftir þessa meðferð þarfnast timbrið ekki eftirmeðferðar
fyrr en eftir 6-10 ár.
OPIÐ Í DAG MILLI KL. 12 OG 14
Tröllaborgir 11 - Opið hús í dag
Mjög fallegt og bjart 164 fm
raðhús á tveimur hæðum m. 4
svefnherbergjum og 27 fm bíl-
skúr. Parket og flísar á gólf-
um. Eldhús með fallegri birki-
innrétt. og góðum tækjum. Tvö
flísalögð baðherbergi. Norður-
svalir með fráb. útsýni. Hátt til
lofts á efri hæð með fallegum
þakglugga. Stór suðurverönd
með góðum garði. Húsið er í mjög góðu standi.
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 13-17 - ARNAR OG GUÐRÚN
MUNU TAKA VEL Á MÓTI YKKUR. Áhv. 10,7 millj. VERÐ:
20,9 MILLJ. (3611)
Rjúpufell 31 - Opið hús í dag
Virkilega góð 108 fm 4ra
herb. íbúð á 2. hæð. 3 rúmgóð
herb. Gott skipulag. Húsið er
allt klætt að utan og sameign í
mjög góðu ástandi. Opið hús í
dag á milli kl. 14:00 og 17:00.
Jónas tekur vel á móti ykkur.
V. 11,2 millj. (3496)
WWW.EIGNAVAL.IS
Til sölu ein rótgrónasta og glæsilegasta
blómabúðin í dag, sem selur fjölbreytta
blómaflóru og mjög vandaða gjafavöru.
Verslunin er sérlega vel staðsett. Traustur
kúnnahópur. Góð velta. Föst verkefni.
Starfsemin er í traustu ca 100 fm leigu-
húsnæði. Fullkominn blómakælir. Allar
innréttingar, tæki og tól til rekstursins
fylgja í kaupunum, auk þess sem lager
fæst keyptur með. Heildarverð m/lager
12,0 millj. Upplýsingar gefur Björgvin í
síma 698 2567.
Blómstrandi verslun
Skúlagata 17 - Sími 595 9000
Hlíðarsmári 15 - Kópavogur - Sími 595 9090
holl@holl.is - www.holl.is
Opið virka daga kl. 9-18
laugard. kl. 12-14
ALLAR goðsagnir um sköpun
heimsins segja frá stórkostlegum
náttúruhamförum.
Fjöllin bylta sér og skjálfa og
festingunni er svipt upp með
tunglum og stjörnum. Frumkraft-
arnir sprengja af sér fjötrana og
jörð rís úr sæ með öllum sínum
gersemum, gróðri, dýrum og
mannskepnunni að lokum. Ekki
vantar að náttúruhamfarirnar taka
þátt í heimsslitum og dómsdegi
með jarðskjálftum, eldum og flóð-
um og skrímslið í iðrum jarðar
gleypir á endanum sjálfa sólina.
Náttúran er í senn hættuleg og
aðlaðandi, ógnandi og yndisleg,
hún hefur aldrei verið kyrr eða
saklaus þar sem mannleg örlög
eru annars vegar. Guð Ísr-
aelsmanna setti sig yfir þessar
hamfarir þegar hann gerði sátt-
mála við þjóð sína og fól henni
ráðsmennsku í víngarðinum þar
sem hún skyldi ávaxta talentur,
þ.e.a.s. hæfileika sína og þekkingu,
sér og öðrum til farsældar.
Ábyrg ráðsmennska mannsins
gagnvart náttúrunni er forsendan
fyrir langlífi hans í landinu. Vegna
þessarar ráðsmennsku eigum við
nú þjóðgarða og náttúruperlur
sem við verndum og verjum. Við
búum yfir þekkingu sem hreinsar
menguð náttúrusvæði og færir líf
aftur í vötn sem skólp hefur drep-
ið. Slík þekking væri ekki til ef við
græfum hæfileika okkar í jörðina
og þyrðum ekki að snerta náttúr-
una.
Áveitur og álver
Menn hafa frá því að menning
tók að blómgast byggt stíflur, hall-
ir, píramída og dómkirkjur bæði til
að bæta kjör sín og til að lofa
skaparann.
Fyrir augliti Guðs er því viti
borin manneskjan þátttakandi í
sköpunarverkinu og getur aldrei
skorast undan ábyrgð sinni gagn-
vart náttúrunni. Mannkynssagan
sýnir okkur að oft hefur skelfing
og ótti verið svo ríkjandi í afstöðu
mannsins til náttúruaflanna að
hann hefur með engu móti getað
lifað í sátt við hana.
Nú er öldin önnur og úr grasi
eru vaxnar kynslóðir sem aldrei
hafa lifað í snertingu við náttúr-
una, aldrei þurft að takast á við
náttúruöflin upp á líf og dauða og
halda því að náttúran sé fyrst og
fremst viðkvæm, saklaus, eilíf og
óumbreytanleg. Sú skoðun er al-
geng að náttúran sé bara til að
skemmta okkur og endurnæra
þegar við erum þreytt eftir vinnu-
daginn og hún geri þetta bara ef
hún er ósnert og í jafnvægi.
Sakleysi til eilífðar
Við förum í flugferð með Ómari
Ragnarssyni og upplifum hálendið
í fallegum myndskeiðum af Kára-
hnjúkum og komandi Hálslóni.
Hvað eftir annað rennum við okk-
ur eftir farvegi Jöklu, yfir Kring-
ilsárrana, klettinn með mannshöfð-
inu, Sandfellið, gljúfrin,
sethjallana og stíflustæðið. Lands-
lagið, birtan og litirnir bókstaflega
springa út fyrir framan gluggann
með þeim krafti og ferskleika sem
íslenskum öræfum einum er gefið.
Enginn getur varist þessari hugs-
un: Á þetta virkilega allt að
hverfa, allt lenda á kafi í skítugu
jökulvatni sem fyllir allt þetta fal-
lega landslag af ljótum leir sem
svo fýkur út um allt? Má breyta
þessu fallega landi í flag þar sem
leirinn hylur allt, hraukana, gljúfr-
in og sethjallana? Já, hina dásam-
legu guðspjallabók sjálfrar náttúr-
unnar, sethjallana sem geyma
jarðsöguna sem enn hefur ekki
verið skilin til fulls? Er þessi set-
hjallabók ekki gjöf náttúrunnar
með hennar eigin sögu, geymir
hún ekki sáttmála lands og lýðs
sem ber að varðveita og gæta um
aldir alda?
Nýr himinn og ný jörð
Náttúruvísindin hafa fært okkur
heim óræka sönnun þess að sam-
band menningar, samfélags og
náttúru er náið og margbrotið.
Lönd byltast og brotna í sæ niður.
Heilu höfin þorna og koma aftur.
Hamfaraflóð skekja undirstöður
landsins svo að heilu sethjallarnir
geta horfið á tíu mínútum.
Fjöllin molna og setjast í lög á
sjávarbotni sem harðna og
springa, umbyltast og koma síðan
upp aftur sem ný fjöll. Náttúrulög-
málin halda áfram að vinna sitt
verk á landinu uns sólin gleypir
jörðina og fellur svo saman í agn-
arlítið svarthol sem sendir tifandi
rafsegulbylgjur út í heiminn, ekk-
ert meir.
Einu sinni var vatn þar sem
Hálslón á að koma. Náttúran varð
leið á því, skar með plógi sínum
gljúfur í gegnum landið og hleypti
því út.
Sethjallarnir urðu eftir. Stíflan
við Kárahnjúka endurreisir vatnið
nokkurn veginn í upphaflegri
mynd. Jarðgöngin beina vatninu
niður í næsta dal, þaðan leitar það
út í sama ós og áður. Er þetta
synd? Velmegun og sjálfstæði ís-
lensku þjóðarinnar hófst um sama
leyti og náttúruöflin voru beisluð í
þágu efnahagsins. Álver hefur ver-
ið starfrækt á Íslandi í áratugi og
skilað drjúgum tekjum í þjóðarbú-
ið. Þekkingu á lífríkinu fleygir
fram og rannsóknir og kynning-
arstarf hafa skilað árangri.
Trúin á náttúruna
Eftir Jónas Elíasson og
Pétur Pétursson
„Velmegun og sjálf-
stæði hófst um sama
leyti og náttúruöflin
voru beisluð.“
Jónas
Elíasson
Pétur
Pétursson
SKYLDI hass vera meinhollt,
gott fyrir heilsuna og enn betra
fyrir sálartetrið? Það eru skila-
boðin sem ung stúlka kom með í
Kastljósið fimmtudaginn 6. mars
og sagði svo: „Við erum bara að
fræða fólk um kannabis – fólk
verður að vita hið sanna.“
Það er nefnilega það. En það
sem stúlkan gleymdi að segja frá,
var að vefurinn sem hún hefur ver-
ið fengin til að vera í forsvari fyrir
er ekki „fræðsluvefur“ heldur er
hann hreinn auglýsingavefur fyrir
kannabis og sést það best ef skoð-
aðir eru auglýsingaborðarnir á síð-
unni. Að minnsta kosti er ekkert á
síðunni sem segir frá skaðsemi
kannabisefna og þannig bara önn-
ur hliðin tíunduð. Það er ekki
merki um góðan fræðsluvef.
Síðast þegar ég vissi var bannað
að auglýsa og selja fíkniefni á Ís-
landi, líka kannabisefni. Það hefur
ef til vill breyst?
Máttlaus rök
Og hver eru svo sterku rökin
fyrir vefnum og lögleiðingu kann-
abisefna? Jú, ríkið er nefnilega að
selja voða, voða hættuleg efni.
Áfengi og tóbak. Þau eru miklu
hættulegri en hass! Því má hver
sem er opna vef sem auglýsir
kannabis – sem er ekkert hættu-
legt, hreint ekki vanabindandi og
þegar allt er tekið með í reikning-
inn, þá er það eiginlega bara með-
al og þar að auki er það svo ró-
andi.
En bíðum aðeins við. Ef kanna-
bisefnin eru svona hættulaus og
jafnvel gagnleg eins og þarna er
verið að fullyrða, af hverju finnst
okkur þá ekki í lagi að kennarar
skreppi út í frímínútum og fái sér í
pípu? Af hverju finnst okkur ekki í
lagi að bifvélavirkinn okkar, lækn-
irinn eða tannlæknirinn, fái sér
kannabisefni og haldi áfram störf-
um? Getur verið að áhrifin, sem að
sögn þessara aðila eru engin og
jafnvel jákvæð, séu ef til vill þau
að dómgreind viðkomandi verði
ekki treyst?
Lesandi góður, spurðu sjálfan
þig þessarar spurningar áður en
þú ákveður hvort þú sért tilbúinn
til að samþykkja auglýsinga-
mennskuna og lögleiðingu fíkni-
efna.
Vont+vont=gott?
Ég get ekki samþykkt að tvennt
vont geri eitt gott. Það getur ekki
orðið afsökun eða réttlæting á sölu
annarra fíkniefna að ríkið selji tób-
ak og áfengi. Og ekkert getur rétt-
lætt þann mikla áróður sem þarna
er fyrir allra augum. Það er að
vísu forsíða þar sem spurt er um
aldur. En hver fylgist með því að
yngra fólk fari ekki þarna inn?
Hvað gerist ef 12 ára styður á
hnappinn og segist vera 18? Verð-
ur skjárinn auður? Hverjir verða
fyrir mestum áhrifum af áróðr-
inum? Jú, þeir sem eru ungir og
auðvelt að sannfæra.
Lögleiðing
fíkniefna
Hann er lífseigur draugurinn
„Lögleiðum fíkniefni – það virkar í
Hollandi“. Viðbáran er: „Það nota
hvort sem er allir kannabisefni og
öll löndin í kring um okkur eru að
lögleiða kannabis og allir glæpir
Við mótmælum!
Eftir Vigdísi
Stefánsdóttur
„Það getur
ekki orðið
afsökun eða
réttlæting á
sölu annarra
fíkniefna að ríkið selji
tóbak og áfengi.“
GAGNASAFN
MORGUNBLAÐSINS
mbl.is DILBERT mbl.is