Morgunblaðið - 16.03.2003, Síða 43
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 43
Umhverfisviðurkenning
Reykjavíkurborgar
Borgarstjórinn
í Reykjavík auglýsir
eftir tilnefningum til
Umhverfisviðurkenningar
Reykjavíkurborgar
2003
Tilnefningum ber að skila á sama
stað eigi síðar en 11. apríl 2003
Umhverfis- og heilbrigðisnefnd Reykjavíkurborgar
mun óska eftir frekari upplýsingum frá tilnefndum
fyrirtækjum eða stofnunum og frá þeim
aðilum sem tilnefna.
Skúlagötu 19, 108 Reykjavík, sími 563 2700.
Frekari upplýsingar fást hjá
Umhverfis- og heilbrigðisstofu Reykjavíkur
Umhverfisviðurkenning Reykjavíkur-
borgar er veitt fyrirtæki eða stofnun,
sem leitast við að haga rekstri sínum
eða einstökum rekstrarþáttum í sam-
ræmi við grunnregluna um sjálfbæra
þróun. Til greina koma fyrirtæki eða
stofnanir í Reykjavík, sem á einhvern
hátt hafa sýnt slíka viðleitni. Viður-
kenningin verður veitt formlega á
umhverfisdegi Sameinuðu þjóðanna
þann 5. júní nk. Viðurkenningin kom
í hlut Farfuglaheimilisins í Reykjavík
2002 og var það í sjötta sinn sem hún
var veitt.
Þeir, sem óska eftir að koma til greina
í ár eða óska eftir að tilnefna fyrirtæki
eða stofnun til Umhverfisviðurkenn-
ingarinnar, eru vinsamlegast beðnir
að fylla út sérstök eyðublöð, sem
liggja frammi hjá Umhverfis- og heil-
brigðisstofu Reykjavíkur, Skúlagötu
19, og hjá Upplýsingaþjónustu Ráð-
húss Reykjavíkur.
Nýbýlavegi 12, Kóp., sími 554 4433.
Er ferming framundan?
Mikið úrval af drögtum, toppum og blússum
fyrir mömmu, ömmu og langömmu.
Opið frá kl. 10—18
laugardaga frá kl. 11—15
Föt fyrir alla frá tvítugu
VÍKURBAKKI 32 - OPIÐ HÚS
Í dag milli kl. 14:00 og 17:00 er til sýnis þetta fallega og mik-
ið endurnýjaða endaraðhús á 2 hæðum með innbyggðum bílskúr
og yfirbyggðum svölum. Stórar stofur og 3-4 góð herbergi. Stutt í
skóla og aðra þjónustu. Áhvílandi húsbréf 6,8 millj.
Verð 21,9 millj.
„ÞETTA er alveg dýrlegt fólk, þessir
unglingar okkar,“ sagði Arndís Sig-
urðardóttir í Miðfelli í Hrunamanna-
hreppi er hún gaf skýrslu frá um-
ræðuhópi sínum í Skálholti á
fimmtudaginn var. Þar voru sam-
ankomin um 60 manns, helmingurinn
eldri borgarar úr uppsveitum Árnes-
sýslu sem þar hittast ársfjórðungs-
lega, hinn helmingurinn gestir
þeirra, nemendur 10. bekkjar í
Flúðaskóla og Reykholtsskóla.
Kynslóðirnar áttu fjörugar og lær-
dómsríkar samræður m.a. um sið-
ferðileg álitamál og var gagnkvæm
ánægja með samfundina.
Eldri borgararnir höfðu rætt
breytilegt gildismat á síðustu sam-
fundum sínum í oktober sl., hvaða
gildum þeir vildu miðla ungu kyn-
slóðinni á nýrri öld, hvort gömlu gild-
in væru enn í gildi. Þar kom fram að
slík samræða, svo áhugaverð og
skemmtileg sem hún var, væri eig-
inlega eintal og spurt hvort ekki væri
hægt að fá unga fólkið til viðræðu um
þetta málefni.
Stjórnendur skólanna í Reykholti
og á Flúðum tóku fyrirspurn þar að
lútandi mjög vel og sendu alla nem-
endur sína í 10. bekk til samfunda við
eldri kynslóðina í Skálholtsskóla. Þar
var hópnum skipt niður í níu smá-
hópa, með sex til átta þátttakendum
af báðum aldursflokkum. Þau fengu í
hendur sameiginleg umræðuefni:
rímur og rapp, valið á lífsstarfi auk
tilbúins siðferðilegs álitamáls sem
svo hljóðaði:
Hvor á að ráða?
„Þið eruð stjórn styrktarfélags
mállausra og þurfið að taka ákvörðun
í eftirfarandi máli:
Páll Pálsson hefur verið fram-
kvæmdastjóri félagsins í 24 ár og
gengið vel. Fjáröflunarleiðir hafa
verið vinsælar og heppilegar, svo að
félagið er vel stætt og vel metið af al-
menningi.
Fyrir rúmu ári fékk Páll slæmt
taugaáfall og hefur verið í veik-
indaleyfi síðan. Hann hefur þó fylgst
vel með félaginu og tekið allar meiri-
háttar ákvarðanir.
Jóna Jónsdóttir, ungur viðskipta-
fræðingur, hefur gegnt starfi Páls af
miklum krafti á meðan. Hún hefur
þegið boð Leikfélagsins Gleðibank-
ans að styrktarfélagið fái ríflegan
hluta af hagnaði félagsins af sýningu
Gleðibankans á klámfengnum söng-
leik, sem víða hefur verið bannaður.
Þetta yrði auglýst opinberlega.
Heilsa Páls er að verða góð. Hann
er algjörlega mótfallinn því að taka
þessu boði og getur ekki sætt sig við
að vinna fyrir félag sem beitir slíkum
vinnuaðferðum. Jóna er á allt öðru
máli, þarna sé örugg fjáröflunarleið,
sem er nauðsynleg þar sem útgjöld
hafa aukist vegna vaxandi starfs.
Verði boðinu hafnað af stjórninni, sé
hún niðurlægð og hætti á stundinni.
Stjórnin verður að taka ákvörðun.
Hvort þeirra, Páll eða Jóna, á að vera
framkvæmdastjóri Styrktarfélags
mállausra í framtíðinni?“
Hóparnir kusu sér talsmenn sem
gáfu skýrslu til heildarhópsins og það
vakti athygli að fleiri unglingar en
eldri borgarar voru í því hlutverki og
voru þeir sannarlega jafnskilmerki-
legir og hinir eldri. Í skýrslunum
kom fram að meirihlutinn eða tveir
þriðju hópanna völdu Pál Pálsson
sem framkvæmdastjóra, enda væri
hann farsæll stjórnandi, ekki væri
rétt að henda út eldra fólki og klám
myndi skaða félagið þegar til lengri
tíma væri litið. Þrír hópar kusu Jónu
Jónsdóttur, því að hennar væri fram-
tíðin, með nýjar hugmyndir til fjár-
öflunar.
Það kom líka í ljós að niðurstöð-
urnar fóru ekki eftir aldri, ýmsir eldri
borgarar vildu heldur ráða Jónu
Jónsdóttur.
Það var almennt álit eldri borg-
aranna að unglingarnir hefðu verið
sjálfum sér, heimilum sínum og skól-
um til mikils sóma. „Fordómarnir
hrundu eins og fis,“ sagði einn bónd-
inn á níræðisaldri, „þau voru sko með
allt sitt á hreinu og svo almennileg.“
Eftir hádegið kom Sigurbjörn
biskup Einarsson, 92 ára að aldri, og
ræddi um ýmsar tilvistarspurningar
sem blasa við eldri borgurum. Að lok-
um var hraustlega tekið undir gömul
og ný lög við undirleik Vilmundar
Jónssonar í Skeiðháholti áður en þeg-
ið var veislukaffi og síðan far-
arblessun í Skálholtskirkju.
Fordómarnir
hrundu sem fis
Beðið eftir að umræður hefjist í fræðslustofu Skálholtsskóla.
DAGANA 19. og 20. september nk.
verður haldin norræn ráðstefna um
leikskólamál í Safnaðarheimili Akur-
eyrarkirkju. Yfirskrift ráðstefnunn-
ar er „Að mæta barni nútímans“.
Að ráðstefnunni standa Akureyr-
arbær, Randers í Danmörku, Ála-
sund í Noregi og Västerås í Svíþjóð.
Fyrirlesarar verða: Guðrún Alda
Harðardóttir, lektor við Háskólann á
Akureyri, Stig Broström, lektor við
danska uppeldisháskólann, og Mara
Westling Allodi, fil. dr. við kenn-
araháskólann í Stokkhólmi.
Auk þess verða vinnusmiðjur frá
hverju landi: Arnar Ingvarsson frá
leikskólanum Iðavelli á Akureyri
fjallar um tölvur og börn. Frá Rand-
ers kemur Vibra Svejstrup, hún
fjallar um norræna frásagnarhefð í
starfi með börnum. Morten Jahren
frá Álasundi veltir fyrir sér hugtak-
inu nýja foreldrakynslóðin og Anne-
Christine Söderström frá Västerås
fjallar um hæfileikaríka barnið og
hvernig sýn hins fullorðna á barnið
hefur áhrif.
Ráðstefnan er opin öllum. Vakin
er athygli á að allir fyrirlestrar fara
fram á dönsku, norsku eða sænsku
og ekki verður túlkað. Nánari upp-
lýsingar er að finna á heimasíðu ráð-
stefnunnar, þar fást einnig umsókn-
areyðublöð:
http://www.idavollur.akureyri.is/
radstefnanorraent.htm.
Norræn ráðstefna
um leikskólamál