Morgunblaðið - 16.03.2003, Page 46
MINNINGAR
46 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Svanlaug Hann-esdóttir fæddist á
Litlu Háeyri á Eyrar-
bakka 20. apríl 1933.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnun Suðurlands
föstudaginn 31. jan-
úar síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
hjónin Hannes Andr-
ésson frá Skúmstöð-
um á Eyrarbakka og
Jóhanna Bernharðs-
dóttir frá Keldnakoti
á Stokkseyri. Hún
var næstyngst níu
systkina. Systkini
hennar eru Gunnlaug, Guðrún
Fanney, Andrés, Bernharður, Jór-
unn Ásta, Hannes, Haraldur Ár-
mann og Garðar og þau eru öll á
lífi.
Svanlaug giftist 1961 Stefáni
Gunnari Jónssyni frá Fagradals-
tungu í Saurbæjarhreppi í Dala-
sýslu en að mestu alinn upp í
Flögu í Villingaholtshreppi. Börn
þeirra eru: 1) Jóhanna Hafdís, f.
1950. Sonur hennar og Gunnars
Þóris Þórmundssonar er Stefán
Þór, sambýliskona hans er Elísa
Rós Jónsdóttur, synir þeirra Ísak
Breki og Daníel Máni. Börn Jó-
hönnu og Þorsteins Eyvars Eyj-
ólfssonar, f. 13. 6. 1950, d. 7.7
1994, eru Atli Rúnar,
sonur hans er Sesar
Jan, móðir Ósk
Ágústsdóttir; og
Andrea Hanna. 2)
Kristín Birna, f.
1957, maki Erhard
Richard Franz
Marx. Börn þeirra
eru Andri Erhard,
Stefanía Erna og
Alexandra. 3) Þór, f.
1961, maki Sigríður
Waage. Börn þeirra
eru Alexander,
Tinna, Oliver og
Nökkvi. Svanlaug ól
upp son Jóhönnu, Stefán Þór, frá
fæðingu og Andra, son Kristínar,
frá 10 ára aldri. Kristín hefur búið
í Þýskalandi frá 1987 en hin systk-
inin eru búsett á Selfossi.
Svanlaug var heimavinnandi
húsmóðir allan sinn búskap. Stef-
án og Svanlaug byggðu sér hús á
Birkivöllum 11 og fluttu þangað
1966 og bjó hún þar til dauðadags.
Fjölskyldan keypti bústað í
Skorradal 1982. Svanlaug var
starfsmaður í hlutastarfi í Selfoss
Apóteki, síðar Lyf og heilsa, í rúm
30 ár.
Útför Svanlaugar fór fram í
kyrrþey frá Selfosskirkju 8. febr-
úar.
Svanlaug móðursystir mín dó 31.
janúar sl. eftir erfið veikindi. Hlut-
skipti allra manna er að missa, en
mest um vert er þó að hafa átt sagði
Byron eitt sinn. Við sem eftir lifum
getum glaðst yfir því að hafa átt og
kynnst Svönu. Hún var falleg og
glæsileg kona sem alls staðar var eft-
ir tekið. Svana var rólynd kona og
fáguð í framkomu en samt föst fyrir
og lét ekki aðra hafa áhrif á sig. Hún
hafði ákveðnar skoðanir á mönnum
og málefnum og setti skoðanir sínar
óhikað fram en alltaf vel rökstuddar.
Svana var vel gefin og hæfileikarík
og alltaf ein af þeim hæstu í Barna-
skóla Eyrarbakka. Á þessum árum
voru ekki margir menntunarmögu-
leikar og síst fyrir ungar stúlkur.
Menntun var dýr og langt frá því að
vera sjálfsögð hjá barnmörgum fjöl-
skyldum, þar sem unglingar þurftu
að fara að vinna og sjá sér farborða
og urðu oft að leggja eitthvað til
heimilisins til að létta undir þar.
Ungar stúlkur höfðu því ekki mikið
val um framtíðarstarfsvettvang.
Hugur Svönu stóð til mennta og
byrjaði hún að læra bókband í
Reykjavík, en ástin breytir oft ýms-
um áætlunum. Hún hafði alla tíð
gaman af bókum og var ljóðelsk og
reyndi að miðla þeim áhuga m.a. til
mín. Hún var hrein og bein, vinur
vina sinna og lét sér annt um fólk og
var skilningsrík á aðstæður annarra.
Svana fylgdist vel með mér á náms-
árum mínum í Danmörku og sendi
mér reglulega á fyrstu árum mínum
þar köku í skókassa. Þetta var hvít
lagkaka, stundum kölluð randalín, en
við kölluðum hana skókassatertu og
það er hún alltaf kölluð á mínu heim-
ili og er bökuð fyrir jólin. Alltaf þeg-
ar skókassaterta kom frá Íslandi hó-
aði ég í vini mína og efnt var til
tertukvölds. Oft hafði ég um svipað
leyti fengið blaðasendingu að heiman
og urðu þessi kvöld því oft löng og
einkenndust af vangaveltum um ým-
is málefni á Íslandi. Vinir mínir
spurðu oft: „Hvar fær konan alla
þessa skókassa? Er hún alltaf að
kaupa sér skó?“ En Svana keypti
ekki mikið á sjálfa sig, og þegar það
var gert, þá var vandað til þess, því
hún var ákaflega smekkleg. Hún var
ein af þessum konum, sem eru fínar í
öllu sem þær klæðast. Hún var list-
ræn í sér og hafði næmt auga fyrir
samræmi og saman innréttuðu hún
og Stefán maðurinn hennar heimili
sitt af smekkvísi. Þau hófu sinn bú-
skap í húsi Jórunnar systur hennar á
Selfossi, en byggðu sér húsið við
Birkivelli 11 á Selfossi og bjuggu þar
síðan. Vinum mínum fannst það mjög
merkilegt og sérstakt að móðursyst-
ir mín skyldi senda mér tertu reglu-
lega til Danmerkur og skrifast á við
mig öll námsárin. Þeir vildu gjarnan
fá að hitta þessa trygglyndu konu,
sem þeim fannst þeir standa í þakk-
arskuld við. Í einu jólafríinu fjöl-
menntum við á Birkivellina og var
tekið þar með kostum og kynjum og
slegið upp veislu. Vinir mínir höfðu
orð á því á eftir, að þeim fannst eins
og þeir hefðu komið þarna oft áður.
Hjá Svönu var allt einhvern veginn
svo sjálfsagt, og heimili hennar og
Stefáns stóð alltaf opið vinum og
vandamönnum. Að því leyti líktist
Svana mjög móður sinni og Jarþrúði
móðursystur sinni. Tvö barnabörn
Svönu ólust upp hjá henni og Stefáni.
Stefán Þór alfarið og Andri að hluta,
og hefur Stefán litið á þá eins og syni
sína. Tengsl Andra við Ísland voru
sterk þegar fjölskylda hans fluttist
til Þýskalands og var hann löng tíma-
bil hjá ömmu sinni og afa á Selfossi
og gekk þar í skóla. Hann og Stefán
eru núna einir á Birkivöllunum.
Kvæðið Kona eftir Davíð Stefánsson
er mjög lýsandi fyrir Svönu, og síð-
asta erindi kvæðisins lýsir vel skap-
höfn hennar og betur en þessi fátæk-
legu orð mín.
Þú hatar hið glóandi glingur og skraut
og girnist ei lönd eða borgir.
Þú gengir til unnustans beinustu braut,
þó biðu þín kvalir og sorgir.
Þú bergir það vín, sem skín í hans skál,
og skelfist ei dóma né sögur,
því ást þín er villt, og þín valkyrjusál
er voldug og auðmjúk og fögur.
Ég votta Stefáni og fjölskyldu
innilega samúð mína.
Brynjólfur G. Brynjólfsson.
„Að glæða og ala önn fyrir, að
framleiða en safna ekki auði, að
starfa en heimta ekki, að mega sín
mikils án þess að láta til sín taka –
það er æðsta dyggðin.“
Þessi orð Lao-tse sem hann sagði
endur fyrir löngu ætla ég að tileinka
Svanlaugu móðursystur minni því
mér finnst þau lýsa henni svo vel og
segja allt sem segja þarf í stuttu máli
um þessa mætu frænku mína. Engu
að síður ætla ég að láta hugann reika
í upprifjun um æsku mína í minningu
Svönu því hún var þar alltaf til staðar
á sinn trausta og yfirlætislausa hátt.
Fyrst dettur mér í hug svarti
BMW 318 árgerð 1983 sem keyptur
var á heimilið þegar Svana tók bíl-
próf. Hún var orðin fimmtug þegar
hún tók bílpróf og eftir það var
BMW-inn alla tíð hennar bíll. Að fara
að læra á bíl á fimmtugsaldri sýnir
bæði kjark og þor og ekki síst
ákveðni. Svana gat verið ansi ákveðin
þegar hún ætlaði sér eitthvað og er
ákveðni eitt af því sem einkenndi
Svönu og hún lét engan vaða ofan í
sig. Það gerði hún á hægan og hrein-
skilinn hátt með rökfestu, en aldrei
neinum látum. Hún lagði ekki eyrun
við kjaftasögum og tók alla tíð mál-
stað þeirra sem minna mega sín og
þeirra sem henni fannst hafa verið
beittir órétti. Hún lá ekkert á skoð-
unum sínum en bar þær heldur ekk-
ert á torg. Það var afskaplega gott að
eiga Svönu að í sínum frændgarði.
Hún sýndi ekki umhyggju sína með
faðmlögum og kossum heldur í orð-
um og öðru atlæti. Þegar ég fæddist
bjuggu þau Svana og Stefán í kjall-
aranum heima á Austurvegi 21b á
Selfossi með Stínu Birnu á sjöunda
ári og Þór nýorðinn tveggja ára.
Stefán vann þá hörðum höndum við
byggingu hússins þeirra á Birkivöll-
um 11 þar sem þau áttu síðan eftir að
búa alla sína búskapartíð og skapa
sér þar sitt notalega og fallega heim-
ili með Stínu og Þór og seinna Dísu
sem Svana hafði eignast ung að ár-
um. En Dísa ólst upp hjá afa og
ömmu á Eyrarbakka fram á ung-
lingsár og fermdist frá Eyrarbakka-
kirkju um leið og ég var skírð.
Síðar átti það líka eftir að verða
uppvaxtarheimili Stefáns Þórs, son-
ar Dísu, og að hluta til hans Andra
hennar Stínu og öruggt athvarf fyrir
öll hin barna- og barnabarnabörnin.
Þannig var það líka fyrir mig. Á
Birkivöllum 11 stóðu mér alltaf allar
dyr opnar. Það var alltaf mikill sam-
gangur á milli heimila systranna sem
voru samrýndar og þótt við mamma
værum bara tvær fannst mér ég vera
hluti af stórri fjölskyldu og börnin á
Birkivöllum voru mér sem systkini.
Hjá Svönu átti ég athvarf á daginn
þegar ég var ekki í leikskólanum og
eftir að ég byrjaði í skóla, því móðir
mín vann langan vinnudag. Og þau
voru ófá kvöldin þar sem þær Svana
og Dísa sátu við borðstofuborðið hjá
mömmu á Austurveginum og hlógu
mikið yfir svörtum kaffibollum, tal-
andi undir rós. Meira að segja heim-
ilishundinum á Birkivöllum, honum
Vippa, þótti stundum gott að eiga án-
ingarstað á Austurveginum, þegar
hann var dauðuppgefinn á leiðinni
heim af flandri sínu.
Stundum voru allir af Birkivöllum
í afmæliskaffi á Austurveginum
ásamt fleira skyldfólki. Jól og áramót
áttum við mamma alltaf með Svönu
og fjölskyldu á Birkivöllum. Stefán
reyndist mömmu liðtækur um jólin
sem alltaf og færði okkur jólatréð
sem hann setti upp fyrir mömmu,
sem vann auðvitað mikið fyrir jólin,
og við Þór ásamt Stefáni hjálpuðum
svo mömmu við að skreyta. Stefán
fór með okkur krakkana á aðfanga-
dag í Selfosskirkju til að hlusta á aft-
ansöng og mamma og Svana undir-
bjuggu hátíðarmatinn heima á
Birkivöllum á meðan. Mér eru sér-
staklega minnisstæð jólin áður en ég
varð sex ára. Svana hafði kennt mér
á klukku og gefið mér armbandsúr í
jólagjöf sem ég fékk þennan að-
fangadag áður en við fórum í kirkju.
Við messuna gat ég ekki haft augun
af úrinu og horfði á vísana silast
áfram mínútu eftir mínútu. Ó, hvað
tíminn gat verið undarlegur og lengi
að líða í þá daga þó að úrið gengi
jafnt og þétt. Síðan hefur tíminn flog-
ið áfram og er ennþá jafn óræður því
skyndilega er tíma Svanlaugar
frænku minnar lokið á jörðu hér.
En eins og predikarinn Cypraníus
sagði: „Hinir dánir eru ekki horfnir
að fullu. Þeir eru aðeins komnir á
undan.“
Það er auðvelt að hverfa aftur í
tímann í huganum og rifja upp liðnar
stundir með ástvinum sem eru farnir
á undan. Þannig lifir hún Svana
áfram í minningu okkar sem þekkt-
um hana og elskuðum. Þó að Svönu
sé sárt saknað er samt ofar í huga
þakklætið fyrir allt sem við áttum
með henni í þessari tilveru. Syni mín-
um sýndi hún alltaf hlýju og sendi
honum bæði afmælis- og jólagjafir
eins og hann væri eitt af hennar
barnabörnum og fyrir það eins og
annað á Svana alltaf stað í hjörtum
okkar.
Hugur minn er hjá börnum Svönu,
afkomendum og ástvinum öllum sem
eru í sorg, og ekki síst hjá Stefáni
sem nú hefur þurft að horfa á eftir
lífsförunaut sínum fara á undan, svo
allt of fljótt. Megi tíminn og Almætt-
ið veita þeim huggun.
Hanna Stefánsdóttir.
SVANLAUG
HANNESDÓTTIR
Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GUÐRÚN J. ÞORSTEINSDÓTTIR
píanóleikari,
Laugarásvegi 73,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
mánudaginn 17. mars kl. 13.30.
Elísabet Waage, Helgi Kristinsson,
Benedikta G. Waage, Hallur Árnason,
Jón Þorsteinn Gunnarsson, Margrét Birgisdóttir,
María S. Gunnarsdóttir, Gérard Lemarquis,
Guðmundur Óli Gunnarsson,
Hörður Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför elskulegrar dóttur minnar, móður okkar,
systur og ömmu,
ÁSTU EDITHAR PÁLSDÓTTUR
hárgreiðslumeistara,
Skarðshlíð 9D,
Akureyri.
Þórhildur Skarphéðinsdóttir,
Þórhildur Guðmundsdóttir,
Freydís Ásta Friðriksdóttir,
Jónína Pálsdóttir,
Rósa Pálsdóttir
og ömmubörn.
Ástkær sonur okkar, stjúpsonur, bróðir og
barnabarn,
JÓNAS EINARSSON WALDORFF,
Álsvöllum 4,
Keflavík,
sem lést af slysförum sunnudaginn 9. mars,
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju þriðju-
daginn 18. mars kl. 14.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamlegast bent á Regnbogabörn.
Helle Alhof,
Einar Þórðarson Waldorff, Ragnheiður Anna Georgsdóttir,
Daníel Einarsson.
Karin Alhof,
Edda María Einarsdóttir, Haukur Árnason,
Þórður Waldorff, Aðalfríður Stefánsdóttir.
Þökkum öllum, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og systur,
ELÍNAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Skólagerði 15,
Kópavogi.
Ingi Jónsson,
Guðmundur Ingason, Sólfríður Guðmundsdóttir,
Jón Ingi Ingason, Kristín Jónsdóttir,
Markús Ingason, Oddný Hólmsteinsdóttir,
Arnþrúður Guðmundsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Alúðar kveðjur og þakkir sendum öllum þeim,
sem sýndu okkur samúð og vinarhug við and-
lát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KRISTJÁNS SIGURÐSSONAR,
Háholti 18,
Akranesi.
Lifið heil.
Valgerður Sigurjónsdóttir,
Guðjóna Kristjánsdóttir, Björn Almar Sigurjónsson,
Elísabet Kristjánsdóttir, Aðalsteinn Huldarsson,
Sigríkur Eiríksson, Magnfríður Þórðardóttir,
Kristín Björk Viðarsdóttir, Sigurður Jóhannesson
og fjölskyldur.