Morgunblaðið - 16.03.2003, Side 51
BRÉF
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 51
VIÐ Íslendingar erum stoltir af land-
inu okkar. Við erum stoltir af ímynd
þeirri sem fer af okkur sem svolítið
villtum með víkingablóð í æðum, í
takt við stórbrotna náttúru lands
vors. Við erum stoltir af því orðspori
sem fer af okkar ómengaða og
ósnortna landi. Við förum til útlanda
til náms og leiks og þar er yfirleitt
gott að vera Íslendingur, það er litið
upp til okkar, þjóðarinnar frá hinu
ósnortna Íslandi. Og í útlöndum tog-
ar þetta land í okkur þótt að þar berj-
umst við ekki í norðanroki og næðingi
og höfum öll hugsanleg hlunnindi; Ís-
land togar. Sterk er taugin milli lands
og þjóðar, naflastrengur sem ekki
verður rofinn og við nærumst á þessu
landi. Það gefur okkur kraft, orka
þess og við erum eitt. Þetta er okkar
ríkidómur og rík erum við.
Núna er málum þannig háttað þótt
með eindæmum sé, að þetta land er á
útsölu. Misvitrir landsfeður hafa nú
með sjálfum sér ákveðið að þessi ríki-
dómur sé einskis virði og að hann
megi öðlast erlendir auðhringir fyrir
spottprís. Gullna hliðið stendur gal-
opið og þar er enginn Lykla-Pétur
fyrir og ekki vandkvæðum bundið að
koma Alcoa-álsálinni þar inn. Nei,
þar eru fyrir vinir Bush, með rauðan
dregil búnir að selja landið sitt, land-
ið okkar. Einhvern tímann hefði það
verið kölluð landráð að selja landið
sitt með þessum hætti. Nú skal reist
álver í fögrum firði með blóðugum
fórnarkostnaði fyrir náttúruna, en
skítt með það; Kaninn vill ódýra orku
– öllum stríðsyfirlýsingunum fylgir
eflaust vöntun á vopnum. Já, auðlind-
ir annarra þjóða toga í hina banda-
rísku þjóð og hvað eru hálf milljón
mannslífa og einhver öræfi þegar
þeir háu herrar girnast eitthvað? Nái
þessi gjörningur fram að ganga segir
það sig sjálft að ímynd lands og þjóð-
ar mun taka stakkaskiptum og gæfi
sú nýja ímynd Íslands ekkert tilefni
til stoltleika, heldur mundum við og
mættum dauðskammast okkar. Er-
um við
svoddan guðsvolaðir aumingjar að
við flöggum og skálum og bjóðum
þennan óþverra velkominn? Það er
skylda okkar sem ábyrgrar þjóðar að
koma í veg fyrir að okkar mestu auð-
æfi fari fyrir lítið. Nái þessi vonda-
vitlausa-virkjun fram að ganga get-
um við eins selt sálina úr okkur. Ja,
svei.
GRÉTA ÓSK
SIGURÐARDÓTTIR,
Vaði, Skriðdal, S.-Múl.
Íslendingar
sem
álverur?
Frá Grétu Ósk Sigurðardóttur:
VIÐSKIPTI mbl.is Fyrirtæki til sölu:Upplýsingar um fyrirtæki aðeins veittar á skrifstofunni.
Vinsamlega pantið tíma. Síminn er 533 4300.
Höfum til sölu nokkrar stórar sérverslanir, heildverslanir og iðnfyrirtæki í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Sérstaklega góður söluturn í miðbæ Kópavogs. Yfir 100 m. kr. ársvelta.
Myndlistargallerý leitar að meðeiganda.
Kaffihús með vínveitingaleyfi við Laugaveg. Verð 6 m. kr.
Rótgróin ritfangaverslun í verslunarmiðstöð. Góður rekstur og skemmti-
legt tækifæri.
Lítil rótgróin prentsmiðja, mikið með föst verkefni. 3 starfsmenn.
Deild úr fyrirtæki. Mjög þekkt umboð fyrir ferðatöskur. Ársvelta 8 m. kr.
Veitingahúsið Dinerinn í Ármúla. Velta 1.200 þús. kr. á mánuði. 49 sæti
+ bakkamatur. Stuttur opnunartími.
Stór og vinsæll bar í miðbænum. Mikil velta.
Flutningaþjónusta á Suðurnesjum. Þægilegt dæmi.
Framköllunarþjónusta í miðbænum. Góð tæki, frábær staðsetning.
Kaffihús á Vesturlandi. Eigið húsnæði. Auðveld kaup.
Stór austurlenskur veitingastaður í miðbænum. Mikil velta, góður
hagnaður. Eigið húsnæði.
Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur með góðri aðstöðu fyrir dans-
leiki, veislur og fundi. Ársvelta 40—50 m. kr. Gott tækifæri fyrir fag-
menn. Rekstrarleiga möguleg.
Lítið sandblástursfyrirtæki með miklum tækjabúnaði. Hentugt fyrir tvo
samhenta menn eða viðbót t.d. fyrir málningarfyrirtæki.
Deild úr fyrirtæki með útstillingarvörur.
Heildsala/smásala í snyrtivörugeiranum. Miklir vaxtarmöguleikar.
Járnsmíðaverkstæði í Kópavogi. Ársvelta 32 m. kr. Ágæt verkefna-
staða.
Matvöruverslun á uppgangsstað í nágrenni Reykjavíkur. Ársvelta 136 m.
kr. Góð afkoma.
Þekkt heildverslun með 100 m. kr. ársveltu og ágæta markaðsstöðu.
H-búðin Garðatorgi. Rótgróin fataverslun með eigin innflutning.
Skemmtilegt tækifæri fyrir tvær samhentar konur.
Lítil heildverslun/verslun í Hafnarfirði með gjafavörur.
Góð sólbaðsstofa í Breiðholti. Besti tíminn framundan.
Verslun með mjúkar vörur fyrir svefnherbergi og bað.
Tískuvöruverslun í lítilli verslunarmiðstöð. Eigin innflutningur, góð
merki.
Gott þjónustufyrirtæki í prentiðnaði.
Sólbaðstofa og naglastofa í góðu bæjarfélagi á stór-Reykjavíkursvæðinu.
6 bekkir, þar af 5 nýir. Verð 7,5 m. kr.
Lítil heildverslun með jurtabaðvörur og gjafavörur. Tilvalið sem viðbót
við annan rekstur.
Þekkt bónstöð til sölu eða rekstrarleigu fyrir réttan aðila.
Lítil skyndibitakeðja með tveimur útsölustöðum. Þekkt nafn. Gott verð.
Söluturn í atvinnuhverfi í Kópavogi. Verð 11 m. kr. Góð greiðslukjör fyrir
gott fólk.
Lítill iðnrekstur til sölu. Mjög hentugur fyrir verndaðan vinnustað.
4—6 störf.
Þekkt heildverslun með tæki og búnað fyrir byggingaverktaka.
Meðeigandi óskast að góðum veitingastað á Akureyri.
Grensásvídeó. Ágætur hagnaður. Auðveld kaup. Rekstrarlega möguleg.
Rótgróið og vel arðbært gistihús miðsvæðis í Reykjavík. 30 herbergi og
lítil íbúð fyrir eiganda. Ársvelta 40 m. kr.
Rótgróin snyrtistofa í verslunarkjarna. Verð 3 m. kr.
Dagsöluturn við Laugaveg. Fallegur og snyrtilegur staður.
Þekkt barnavöruverslun og heildverslun. Góð umboð. Ársvelta 25 m. kr.
Lítil málmsteypa. Hentar vel fyrir grafískan hönnuð á landsbyggðinni.
Stór sérhæfð trésmiðja með góðan hagnað. 10 starfsmenn. Gott tæki-
færi fyrir fyrirtæki í svipaðri starfsemi.
Dagsöluturn í atvinnuhverfi með áherslu á léttar veitingar. Lítil en vaxandi
velta og miklir möguleikar.
Höfum ýmiss góð sameiningatækifæri fyrir stærri fyrirtæki.
Skoðið nýja heimasíðu fyrirtækjadeildar
með ítarlegri söluskrá og gagnlegum fróðleik:
www.husid.is
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen)
Sími 533 4300, GSM 820 8658
Kári Eyþórsson
NLP námskeið
Neuro - Lingustic - Programming
Kennt verður daganna 31/3 til 4/4 og 7/4 til 11/4 frá kl. 18-22
Kennt er m.a.:
• Að vera mótækilegur og læra á auðveldan hátt.
• Að skapa nýtt samskiptamál.
• Að skapa þína eigin framtíð.
• Að stjórna samtölum.
• Að vekja snillinginn í sjálfum sér.
• Að leysa upp neikvæðar venjur.
• Að lesa persónuleika fólks.
• Venjur til varanlegs árangurs.
Leiðbeinandi: Kári Eyþórsson MPNLP.
Upplýsingar í síma 588 1594. Netfang: koe@islandia.is
Nánari upplýsingar um NLP má finna á www.ckari.com
NLP undirmeðvitundarfræði er fyrir alla og er okkar innra
tungumál milli hugsana og undirmeðvindundar.
NLP er notað af fólki um allan heim, sem hefur náð
frábærum árangri í lífinu.
Bakþjálfun
Þjálfun stöðugleika mjóbaks
MT stofan, Síðumúla 37, býður upp á hóp-
tíma í æfingasal stofunnar.
Fáir í hverjum tíma.
Sértæk styrktarþjálfun til að auka stöðugleika mjó-
baks. Þjálfað samkvæmt nýjustu aðferðum.
Fyrir viðkvæm ofhreyfanleg bök (instabilitet).
Eftir tognanir.
Eftir brjósklosaðgerðir.
Eftir brjóskþófaröskun.
Við slitgigt.
9 vikna þjálfun. Hádegis- og eftirmiðdagstímar.
Æft tvisvar sinnum í viku — möguleiki á fleiri skiptum.
Skráning hefst 17. mars.
Leiðbeinandi: Oddný Sigsteinsdóttir, sjúkraþjálfari.
Upplýsingar og skráning á MT stofunni í símum
568 3660 og 568 3748.
Námskeið verður haldið dagana 29., 30. og 31. mars um
meðferð ilmolía við sjúkdómum. Einnig verða kynntar þær
vísindarannsóknir, sem hafa farið fram á undanförnum
árum um virkni olíanna á líkama og sál.
Kennarar verða dr. Erwin Haringer prófessor í
heimilislækningum og lífeðlisfræðum og
Margret Demleitner, grasalæknir og ilmolíufræðingur.
Bæði frá München. Kennt verður á ensku með túlkun.
Allt áhugafólk velkomið.
Nánari upplýsingar eru í Lífsskólanum,
sími 557 7070, netfang: lifsskolinn@simnet.is
LÍFSSKÓLINN
AROMATHERAPYSKÓLI ÍSLANDS
S ími 557 7070 - Fax 557 7011 - lifskoli@simnet.is