Morgunblaðið - 16.03.2003, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 53
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Persóna þín er viðkvæm og
heillast af andlegum mál-
efnum. Hún er einnig úr-
ræðagóð og aðlagast breytt-
um aðstæðum betur en
margar aðrar persónur.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú ert í uppnámi því deilt er
á hugmyndir þínar og þú
þarft að svara gagnrýni á
vinnustað.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú ert ekki sömu skoðunar
og yfirmaður þinn um mál-
efni fyrirtækisins og aðra
hluti sem því tengjast.
Sýndu þolinmæði.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Sýndu vinum og ættingjum
sérstaka þolinmæði, einkum
konum. Þú hefur mikinn
áhuga á útgáfumálum, fjöl-
miðlum, skólum, útlöndum
og lagalegum málefnum.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert ráðríkur ein-
staklingur og það getur
komið þér í vanda í vinnu og
dregið úr samvinnu við ann-
að fólk.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn hentar vel til þess
að þess að ræða fjármálin og
eyða tíma með börnum. Þá
má rómantíkin ekki verða
útundan.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Misklíð innan fjölskyld-
unnar eða ósætti við við-
skiptafélaga mun draga dilk
á eftir sér. Mikil spenna er
til staðar á heimilinu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það getur eyðilagt góða vin-
áttu ef menn reyna að
þröngva sínu fram án nokk-
urs tillits til annarra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú þarft að horfast í augu
við ákveðnar staðreyndir og
ættir að leita liðsinnis vinar
þíns. Farðu varlega svo
þessi vonbrigði bitni ekki á
þér.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Forðastu að láta smámuni
valda þér áhyggjum, reyndu
heldur að einbeita þér að
þeim atriðum sem máli
skipta.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Nú er að grípa tækifærið og
gera tilboð í það sem þú hef-
ur lengi haft augastað á.
Láttu hendur standa fram
úr ermum.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú lendir í deilum vegna
fjármála og eigna annarra.
Reyndu að sýna skilning svo
og finna leið til þess að
sætta ólík sjónarmið.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Forðastu óþarfa deilur í
dag. Nú skiptir máli að fara
varlega og segja ekki hluti
sem þú munt sjá eftir síðar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÍSLAND ÖGRUM SKORIÐ
Ísland ögrum skorið,
eg vil nefna þig
sem á brjóstum borið
og blessað hefur yfir mig
fyrir skikkun skaparans.
Vertu blessað, blessi þig
blessað nafnið hans.
Eggert Ólafsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
SUÐUR lendir í óvenju-
legri stöðu. Hann er með
21punkt og átta slagi og til
að byrja með snúast hug-
renningar hans um það
hvort betra sé að opna á
einu hjarta eða tveggja
laufa alkröfu. En þær pæl-
ingar verða fljótt óþarfar,
því austur vekur á undan
honum á STERKU grandi
(14-17).
Norður gefur; NS á
hættu.
Norður
♠ 97
♥ 85
♦ G962
♣DG942
Suður
♠ ÁK63
♥ ÁKDG9
♦ 105
♣Á3
Vestur Norður Austur Suður
-- Pass 1 grand Dobl
2 spaðar Pass Pass 3 grönd !
Pass Pass Dobl Allir pass
Suður tekur þann kostinn
að dobla fyrst og veðja síðan
á þrjú grönd þegar vestur
flýr í spaðann. Austur dobl-
ar og vestur kemur óvænt
út með hjarta. Hvernig á að
spila?
Eftir sagnir má spila nán-
ast á opnu borði. Austur
hlýtur að eiga þrjá efstu í
tígli og laufkóng, og senni-
lega aðeins tvílit í spaða.
Spilið kom upp í 8-liða úr-
slitum NEC-bikarsins í leik
japanskrar sveitar og
pólska landsliðsins. Jap-
aninn Yamada var fljótur að
ákveða sig. Hann tók fimm
slagi á hjarta (og henti
þremur laufum úr borði),
ÁK í spaða og spilaði sér
síðan út á tígultíu.
Norður
♠ 97
♥ 85
♦ G962
♣DG942
Vestur Austur
♠ G10852 ♠ D4
♥ 1074 ♥ 632
♦ 74 ♦ ÁKD83
♣875 ♣K106
Suður
♠ ÁK63
♥ ÁKDG9
♦ 105
♣Á3
Austur hafði henti einu
laufi og einu tígli. Hann gat
tekið þrjá slagi á tígul, en
restina átti sagnhafi.
Pólverjar spiluðu hjarta-
bút á hinu borðinu og töp-
uðu því stórt á spilinu, en
unnu þó leikinn örugglega.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3
g6 4. f3 Bg7 5. Be3 O-O 6.
Dd2 c6 7. O-O-O b5 8. Kb1
a5 9. g4 a4 10. Rce2
Ra6 11. h4 b4 12. h5
Db6 13. Rc1 Bxg4
14. hxg6 fxg6 15.
Bc4+ d5 16. exd5
cxd5 17. Bxa6 Hxa6
18. fxg4 Re4 19.
Dh2 Rc3+ 20. bxc3
bxc3+ 21. Rb3 h5
22. gxh5 axb3 23.
cxb3 Hfa8 24. hxg6
Dxg6+ 25. Dc2
Staðan kom upp í
seinni hluta Ís-
landsmóts skák-
félaga sem lauk fyr-
ir skömmu í
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Pálmi Pétursson
(2105) hafði svart gegn
Degi Arngrímssyni (2180).
25...Hxa2! og hvítur gafst
upp þar sem hann yrði
mátaður eftir 26. Dxg6
Hb2+ 27. Kc1 Ha1+.
Ljósmynd/Svanur Jónsson
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 24. ágúst 2002 í Neskirkju
af sr. Birgi Ásgeirssyni þau Laufey Einarsdóttir og Eiður
Páll Birgisson. Heimili þeirra er á Reynimel 44. Með þeim á
myndinni er sonur þeirra Einar Loki.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Frú, er þér ekki kunnugt um lögin sem banna þeim sem
ráðist er á að svara fyrir sig með höggi undir beltisstað!
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira
lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmæl-
istilkynningum og/
eða nafn ábyrgð-
armanns og síma-
númer. Fólk getur
hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík Alltaf á þriðjudögum
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 28. mars og
laugardaginn 29. mars í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Leirmótun í Leirkrúsinni
Síðustu námskeið vetrarins
Handmótun byrjendur
góður grunnur í leirmótun.
Mótun á rennibekk
spennandi framhald.
Blöndun glerunga
fyrir lengra komna.
Rakú brennslur
sérstök upplifun.
Allar nánari upplýsingar á www.leir.is
Leirkrúsin, Hákotsvör 9, Álftanesi. S. 564 0607
G
æ
ð
i
á
N
e
tt
o
v
e
rð
i.
..
TILBOÐIÐ STENDUR
13/3 – 1/4
P
R
E
N
T
S
N
I
Ð
ASKALIND 3 - KÓPAVOGI - SÍMI: 562 1500
35% afsláttur af öllum Nettoline
innréttingum - frábær tilboð á ELBA
og Snaigé raftækjum...
NÚ ER LAG!35%
Eldhús Bað Fataskápar Þvottahús
laugardag 15/3 kl. 10–15
sunnudag 16/3 kl. 13–16
opið aðra daga kl. 9–18
OFNAR - HELLUBORÐ - VIFTUR ELDHÚS - BAÐ - FATASKÁPAR KÆLI- OG FRYSTISKÁPAR
HELGAROPNUN:
Ertu að fara í sólina?
Sundbolir, bikiní, kvartbuxur og bolir
Meyjarnar, Austurveri,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.