Morgunblaðið - 16.03.2003, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 16. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
1 2 3 4 5 6 7
8
9
10 11
12 13
14 15 16
17 18 19
20 21 22 23
24 25
26
27
Lárétt
1.Söngur um íslensk nes og enska sól sem sofa.
(6,5)
5.Drykkjurútur sem varð pylsa. (8)
8.Tvennd Bolla á borði. (8)
9.Ó, styrkja stuttir verða ávítur. (12)
10.Hefðbundin verðlaun í ævintýrum. (9)
11.Eyru stjúpsonar Þórs finnast við hjartarætur. (10)
12.Fimm eru þrúguð af þrákelknum? (10)
17.Steinsalt felur öðru hverju þing. (5)
19.Lögheimili Örvars og Boga? (9)
20.Lán á málmpinna. (3)
21.Borði í tré? (5)
22.Sveigja í kringum vín? (4)
24.Inna kall af hendi? (8)
25.Vatnanaðra finnst í garði þínum. (11)
26.Eftirlætisgrjót augans. (10)
27.Skans úr gaddavír til skrauts. (9)
Lóðrétt
1.Grípa buxur frá Papey og það engar venjulegar
buxur. (6)
2.Aðeins 49 ungar veiða fiska. (8)
3.Sá sem hamlar glefsar í fatnað klæðskiptings.
(9)
4.Handóður veldur andstreymi. (7)
5.Moka flikki. Góð veiði. (7)
6.Afla uns fær fyrirgefningu. (7)
7.Blaðra fleira með upphaflegu paufi. (7)
9.Ó tré elskandi er ekki enn óásættanlegur. (10)
12.Þrá sinnisveikan aftur og aftur? (9)
13.Hjón eru send lund’ frá ? (11)
14.Sá rann af bókum fullan. (8)
15.Barði ötull? Erlendur. (9)
16.Kyrjaði samlandi? Raul. (9)
18.Gat illa með uppástungu. (7)
19.Hávaði í reiðskjóta Sancho? (8)
23.Og verk finnst á fjöru. (6)
1. Hvaða dúett skipa þeir Birgir
Hilmarsson og Kjartan F. Ólafs-
son?
2. Í hvaða listageira starfar John
Sayles?
3. Hvaðan er hljómsveitin Fendrix?
4. Hvar er Breiðumýri?
5. Fyrir hvern hannar Tom Ford?
6. Í hvaða kvikmynd kemur persón-
an Kiddi beikon fyrir?
7. Hvað heitir nýi bassaleikarinn í
Metallica?
8. Hvar opnaði listmálarinn Helgi
Þorgils sýningu á dögunum?
9. Eftir hvern er leikritið Lýsistrata?
10. Hvert er fornafn frægustu systur
Kylie Minouge?
11. Hver er besta plata allra tíma
að mati breska tónlistarvikurits-
ins NME?
12. Hjá hvaða fyrirtæki starfar Skúli
Malmquist?
13. Hver leikur aðalhlutverkið í Ör-
vita af ást?
14. Lilja 4-Ever er þriðja mynd
hvaða leikstjóra?
15. Hvað heitir þessi hljómsveit og
hvaða útgáfufyrirtæki gefur þá út?
Spurt er Spurningakeppni um efni sem finna má ásíðum Fólks í fréttum í Morgunblaðinu.
1. AmPop. 2. Kvikmyndageiranum. 3. Hún kemur frá Hafnarfirði. 4. Í Þingeyjarsveit. 5. Yves Saint-
Laurent. 6. Nóa Albinóa. 7. Robert Trujillo. 8. Listasafni Reykjavíkur, Kjarvalsstöðum. 9. Ari-
stófanes. 10. Dannii. 11. Samnefnd plata The Stone Roses. 12. Zik Zak, kvikmyndagerð. 13.
Adam Sandler. 14. Lukas Moodysson. 15. Þetta er bandaríska hljómsveitin Pavement. Domino
gefur þá út.
LÁRÉTT: 1. Samtvinna. 5. Sólmyrkvi. 9.
Kvennagull. 10. Garðhrífa. 11. Afleitlega. 13.
Njúton. 15. Varnagli. 17. Guðatala. 19. Voða-
maður. 21. Skeldýr. 22. Helsingjabotn. 23.
Lúskra. 24. Gjöra. 25. Aðsókn. 28. Hnakka-
dramb. 29. Auðna. 30. Ættniður.
LÓÐRÉTT: 1. Sokkaplögg. 2. Tangerína. 3. Neg-
ulnagli. 4. Aflögun. 5. Sigyn. 6. Moð. 7. Rör. 8.
Vafningar. 12. Kjaftaskjóða. 14. Tvíburabróðir.
16. Leiðbeina. 18. Tindar. 19. Villiöndin. 20.
Bensín. 21. Sæludagar. 22. Hugskot. 26. Ansa.
27. Ambur.
Vinningshafi krossgátu
Kristín Helga Gísladóttir, Álfaskeiði 104,
220 Hafnarfirði. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Napóleonsskjölin, eftir Arnald Indriðason, frá
Vöku-Helgafelli.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Verðlaun eru veitt fyrir
rétta lausn krossgát-
unnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn með nafni
og heimilisfangi ásamt
úrlausninni í umslagi
merktu Krossgáta
Sunnudagsblaðsins,
Morgunblaðið, Kringlan
1, 103 Reykjavík. Skila-
frestur á úrlausn kross-
gátunnar rennur
út fimmtudaginn
20.mars.
Heppinn þátttakandi
hlýtur bók af bóksölu-
lista, sem birtur er í
Morgunblaðinu.
VINNINGUR ER GEFINN AF FÉLAGI ÍSLENSKRA BÓKAÚTGEFANDA.
K r o s s g á t u v e r ð l a u n
HEIMILSFANG
PÓSTFANG
NAFN
Um daginn fór ég sem dæmi í smá-vægilega læknisrannsókn sem
gerir kröfur til að vera vel fastandi. Ég
hafði haft slæma
flensu dagana á und-
an með miklum bein-
verkjum en var held-
ur skárri daginn sem
rannsóknin var svo
ég lét slag standa.
Ég skundaði út
nokkuð sóttheit og
svöng en hugsaði
einbeitt til formóður minnar Ólafar
ríku á Skarði og frammistöðu hennar
sbr. „Ekki skal gráta Björn bónda
heldur safna liði“ þegar ég sá að það
voru harðsvíraðar frostrósir á bílrúð-
unum. Mér til stórrar armæðu reyndist
raflæsingin á framhurðinni bílstjóra-
megin líka harðfrosin. Ég náði þó að
opna með hörkunni, ná sköfunni og
taka til starfa. Að gluggahreinsuninni
lokinni hugðist ég fara af stað en þá
vildu dyrnar ekki lokast, hvernig sem
að var farið. Ég var orðin tímabundin
og dóttir mín sem ætlaði að fá far var
að verða of sein. Ég ákvað því að fara af
stað með dyrnar opnar í trausti þess að
hægt yrði að loka þegar bíllinn hitnaði.
Ég hafði gripið með mér hvítan ull-
artrefil og hafði nú snarar hendur,
þræddi trefilinn inn í handfang hurð-
arinnar og fékk enda hans báða í hend-
ur dóttur minnar. Við ókum svo sem
leið lá áleiðis í skólann hennar og hafa
ábyggilega flestir sem á annað borð
litu inn í bílinn dáðst að hvað þar færu
nánar mæðgur, trefillinn var svo stutt-
ur að hún þurfti að hallast mjög að öxl
minni – einkum í beygjum.
Á leiðinni varaðist ég að hugsa um
hvað ég ætti að gera ef hurðin léti sér
ekki segjast við hlýjuna frá miðstöð-
inni. En allar ferðir taka enda – líka
ferðin í skólann. Fyrr en varði sat ég
ein með hvíta trefilinn í höndunum og
velti fyrir mér hvað ég ætti nú til
bragðs að taka, dyrnar lokuðust ekki.
Tíminn var naumur og ekki hægt að
bíða eftir leigubíl svo ég brá á það ráð
að binda trefilinn sem enn var þræddur
í handfangið utan um lærið á mér. Ég
viðurkenni að það tók talsvert í lærið í
stórum beygjum en það tók aftur nokk-
uð hraustlega á móti – þakka skyldi æf-
ingum í fótaglennutæki í heilsurækt-
arstöð. Þegar verst gegndi ók ég eins
og „Bjössi á mjólkurbílnum“ með aðra
hönd á stýri en hjálpaði hvíta treflinum
með hinni.
Jæja, ég komst á leiðarenda og var
mjög létt. Nú var bara eftir að ákveða
hvað gera ætti ef hurðin hefði enn ekki
þiðnað nóg til að lokast. Svo reyndist
ekki vera. Ég velti fyrir mér að binda
trefilinn í stýrið og skríða út farþega-
megin en hvarf frá því ráði vegna þess
að ég taldi að slíkur umbúnaður vekti
kannski athygli á að bíllinn væri opinn
– ekki að það væri neinu að stela nema
gömlu barnasæti eða þá bílnum sjálf-
um. „Verði þeim að góðu sem það ger-
ir,“ tautaði ég og lagði hurðina að stöf-
um að svo mæltu og skjögraði inn í
læknisskoðunina.
Hún tók enda og eiginmaður minn
mætti á staðinn til að taka að sér bíl-
stjórahlutverkið.
„Bíllinn vill ekki lokast. Ég hugsa að
þú verðir að binda trefil um lærið á þér,
en ég held að ég sé of máttlaus til að
halda honum,“ sagði ég veikri röddu.
„Hvað áttu við?“ sagði maðurinn
minn og leit á mig tortrygginn, - áleit
greinilega að ég hefði eitthvað ruglast í
ríminu við lyfjagjöfina fyrir aðgerðina.
En hann komst fljótlega að því hvers
kyns var með bílinn. Hins vegar leit
hann ekki einu sinni á hvíta trefilinn,
bjargvætt minn, heldur ýtti snarlega
með lyklinum upp einhverjum pinna í
lásnum og þar með skall hurðin sam-
stundis í sitt rétta far – auðvelt þeim
sem hæfileikana hafa. Eftir þess
reynslu lyfti ég ekki lengur brúnum
með vantrúarsvip þegar vinkona mín
kvartar öðru hvoru yfir því að rafsam-
læsingin á bílnum hennar fari úr sam-
bandi í frosti, þannig að dyrnar að
framan opnist ekki og hún verði því að
fara inn um afturdyrnar og skríða yfir í
framsætið með ærinni fyrirhöfn – sem
ekki síst er mikil ef hún er í þröngu
pilsi og háhæluðum skóm.
Við vinkonurnar höfum síðan þetta
gerðist átt gagnmerkar viðræður um
þetta raflásavandamál og loks ákvað ég
að hringja í bifvélavirkja til þess að fá
upplýsingar um hvað gera skuli í svona
tilvikum. Hann kvað vandamálið vera
það að stundum kæmi raki í svona lása.
Eina ráðið væri þá að rífa lásinn í
sundur, þurrka hann og bera í hann ol-
íu. – En þetta getur getur fólk varla
gert sjálft, – í það minnsta vex mér það
nokkuð í augum. Við vinkonurnar höf-
um ákveðið að sjá til því sem betur fer
er að koma vor og sumar og því engin
ástæða til að vera að ergja sig á frosn-
um lásum fyrr en þá næsta vetur.
Kannski „batnar“ líka bílnum þess
slæmska í lásnum í sumarsólinni, ef
ekki þá – „den tid den sorg“, bjartsýni
skaðar ekki.
Þjóðlífsþankar / Hvað á að gera við frosna bílhurðalása?
Vetrarævintýri
ALLIR vilja fá sitt „kikk“ út úr lífinu. Sumir fá það með því að stunda milljarða
kauphallarviðskipti en þeir sem ekki eru þannig í sveit settir fá sitt „kikk“ eigi
að síður – amstur hversdagslífsins sér um það. Hver dagur ber í skauti sér mis-
jafnlega ævintýralega viðburði og/eða erfiðleika sem reyna jafnvel á stundum
til hins ýtrasta á hugmyndaflug og útsjónarsemi.
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur