Morgunblaðið - 17.03.2003, Síða 17
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2003 17
SKIPA
ÞJÓNUSTA
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
Greiðsluáskorun
Innheimtumenn ríkissjóðs skora hér með á gjaldendur eftirtalinna
gjalda að gera skil nú þegar eða í síðasta lagi innan 15 daga frá dag-
setningu áskorunar þessarar:
Gjöldin eru: Staðgreiðsla og tryggingagjald sem fallið hafa í eindaga til og með 15. mars 2003,
virðisaukaskattur sem fallið hefur í eindaga til og með 5. mars 2003 og önnur gjaldfallin álögð
gjöld og ógreiddar hækkanir er fallið hafa í eindaga til og með 15. mars 2003 á staðgreiðslu, trygg-
ingagjaldi og virðisaukaskatti, virðisaukaskatti í tolli, áfengisgjaldi, launaskatti, bifreiðagjaldi, úr-
vinnslugjaldi, slysatryggingagjaldi ökumanna, föstu árgjaldi þungaskatts, þungaskatti skv. ökumæl-
um, viðbótar- og aukaálagningu söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskatti og miðagjaldi,
virðisaukaskatti af skemmtunum, tryggingagjaldi af skipshöfnum ásamt skráningargjöldum, búnað-
argjaldi, iðgjaldi í Lífeyrissjóð bænda, vinnueftirlitsgjaldi, vörugjaldi af innlendri framleiðslu,
vörugjaldi af ökutækjum, eftirlitsgjöldum, aðflutningsgjöldum og útflutningsgjöldum, skilagjaldi á
umbúðir, verðbótum á ógreiddan tekjuskatt og verðbótum á ógreitt útsvar, fasteignagjöldum, skipu-
lagsgjaldi, skipagjaldi, fisksjúkdómagjaldi, jarðarafgjaldi og álögðum opinberum gjöldum, sem
eru:
Tekjuskattur, útsvar, aðstöðugjald, sérstakur tekjuskattur manna, eignarskattur, sérstakur eignar-
skattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iðnlánasjóðs- og iðnaðarmála-
gjald, þróunarsjóðsgjald, kirkjugarðsgjald, markaðsgjald, gjald í framkvæmdasjóð aldraðra og
skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæði, ofgreiddar barnabætur, ofgreiddur barnabótaauki og of-
greiddar vaxtabætur.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara að þeim tíma liðnum fyrir vangoldnum eftirstöðvum
gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði, sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða, á
kostnað gjaldenda.
Athygli skal vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnám í för með sér verulegan kostnað fyrir gjald-
anda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að 11.500 kr. fyrir hvert fjárnám. Þinglýsingargjald er 1.200
kr. og stimpilgjald 1,5% af heildarskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur
hvattir til að gera full skil sem fyrst til að forðast óþægindi og kostnað.
Þá mega þeir gjaldendur, sem skulda staðgreiðslu, staðgreiðslu tryggingagjalds, vörugjald, afdreg-
inn fjármagnstekjuskatt og virðisaukaskatt, búast við því að starfsemi þeirra verði stöðvuð án frek-
ari fyrirvara. Loks mega þeir gjaldendur er skulda bifreiðagjöld og þungaskatt eiga von á að skrán-
ingarnúmer verði tekin af ökutækjum þeirra án frekari fyrirvara. Fyrrgreindur 15 daga frestur frá
dagsetningu áskorunar þessarar gildir ekki í þessum tilvikum.
Reykjavík, 17. mars 2003.
Tollstjórinn í Reykjavík
Sýslumaðurinn í Kópavogi
Sýslumaðurinn í Hafnarfirði
Sýslumaðurinn í Keflavík
Sýslumaðurinn á Keflavíkurflugvelli
Sýslumaðurinn á Akranesi
Sýslumaðurinn í Borgarnesi
Sýslumaðurinn í Stykkishólmi
Sýslumaðurinn í Búðardal
Sýslumaðurinn á Ísafirði
Sýslumaðurinn í Bolungarvík
Sýslumaðurinn á Patreksfirði
Sýslumaðurinn á Hólmavík
Sýslumaðurinn á Siglufirði
Sýslumaðurinn á Sauðárkróki
Sýslumaðurinn á Blönduósi
Sýslumaðurinn á Akureyri
Sýslumaðurinn á Húsavík
Sýslumaðurinn á Ólafsfirði
Sýslumaðurinn á Seyðisfirði
Sýslumaðurinn á Eskifirði
Sýslumaðurinn á Höfn
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
Sýslumaðurinn á Selfossi
Sýslumaðurinn í Vík
Sýslumaðurinn á Hvolsvelli
Gjaldheimta Vestfjarða
Gjaldheimta Austurlands
Gjaldheimtan í Vestmannaeyjum
NÚ standa yfir í Hafnarfjarðarleik-
húsinu æfingar á nýju barnaleikriti,
Gaggalagú, eftir Ólaf Hauk Sím-
onarson. Leikritið fjallar um
Nonna, níu ára strák sem lendir í
þeim hremmingum að dvelja sum-
arlangt í sveit. Fyrir strák sem veit
ekkert skemmtilegra en að leika sér
í fótbolta allan daginn með vinum
sínum er sveitin ógeðsleg. Vond
lykt, kúaskítur úti um allt, salt-
fiskur alla daga, nema sunnudaga
þá er saltkjöt, stanslaus rigning og
stelpa sem er alltaf að reyna að
kyssa mann. Leikritið segir sögu
Nonna litla og samskipta hans við
bæði heimilisfólkið og dýrin á bæn-
um sem eru hvert öðru kynlegra.
Þetta er annað sinn sem Ólafur
Haukur vinnur fyrir Hafnarfjarð-
arleikhúsið, fyrst skrifaði hann leik-
ritið Vitleysingana.
Leikstóri sýningarinnar er Erling
Jóhannesson, búninga og leikmynd
gerir Þórunn María Jónsdóttir og
leikararnir í sýningunni eru þrír:
Halla Margrét Jóhannsdóttir, Jón
Páll Eyjólfsson og Vala Þórsdóttir.
Frumsýning verður um næstu
mánaðamót.
Morgunblaðið/Jim Smart
Frá samlestri á leikritinu Gaggalagú í Hafnarfjarðarleikhúsinu: Erling Jóhannesson, Halla Margrét Jóhann-
esdóttir, höfundurinn Ólafur Haukur Símonarson, Jón Páll Eyjólfsson og Vala Þórsdóttir.
Nýtt leikrit í Hafnarfjarðarleikhúsinu
LEIKHÚSKÓRINN á Akureyri
er dálítið óvenjulegur kór, sem sækir
sér efnivið einkum í kórlög úr söng-
leikjum, óperettum og óperum. Kór-
inn er ekki fjölmennur en raddirnar
vel þjálfaðar og geta margir kórlimir
leyft sér að bresta í nett sóló og ráðið
við það og jafnvel meira. Tónleikarn-
ir hófust á lokakór úr Töfraflautunni
sem heyrist ekki oft á tónleikum en
er hin áheyrilegasta tónsmíð eins og
margt annað eftir meistara Mozart
og tókst flutningurinn bærilega. Því
næst kom Kór brúðkaupsgesta úr
Luciu di Lammermoor þar sem Ari
var í einsöngshlutverkinu sem og í
söng Barinkays úr Sígaunabarónin-
um. Ari er efni í mikinn tenór, hann
hefur mikla og breiða rödd sem að-
eins þarf að slípa dálítið til. Elvý G.
Hreinsdóttir mezzósópran söng sóló
í Skálsöng úr Helenu fögru (eins og
hún gerði í fyrra þegar kórinn flutti
þessa óperettu Offenbachs í heild) og
því fræga Habanera úr Carmen og
fór vel með. Elvý hefur snotra rödd
og á framtíðina fyrir sér en hún
mætti vera dálítið öruggari, einkum
á lægstu tónunum. Hildur Tryggva-
dóttir hefur stórfallega rödd og
mætti heyrast mun oftar á tónleik-
um. Hún syngur líka af næmi og
passar sig á að syngja veikt þegar
það á við en sumum söngvurum
hættir til að syngja alltaf mezzoforte
til forte. Hildur fór sérlega vel með
Summertime úr Porgy og Bess og
sóló hennar úr Gloríu, úr Messu
Bernsteins, var hrífandi. Messan,
„leikhúsverk fyrir söngvara, leikara
og dansara“, er mjög skemmtileg
tónsmíð en hún var afar umdeild
þegar hún var fyrst flutt upp úr
1970. Hrynmynstur eru gjarna
óvenjuleg, hröð og synkóperuð, og
þegar kórinn flutti Gospel sermon úr
Messunni reyndi töluvert á hrynvísi
flytjenda. Michael Jón fór með barí-
tónhlutverkið og söng af mikilli prýði
og greinilegt að löng reynsla hans
sem tónlistarmanns nýttist honum
vel. Hann syngur af innlifun og hlýju
og honum tókst líka vel upp í It ain’t
necessarily so úr Porgy og Bess.
Eins og fyrr var minnst á sungu
nokkrir kórfélagar styttri sóló og
komust flestir vel frá sínu, t.d. hæfði
laglega krakkaleg rödd Heiðrúnar
Snæbjörnsdóttur vel sólói hennar í
Matchmaker úr Fiðlaranum á þak-
inu eftir Boch. Einnig átti Jóhann G.
Möller ágæta takta í lokalaginu, sem
reyndar er ekki merkileg lagasmíð.
Kórsöngurinn var í aðalatriðum
hreinn og frambærilegur en reyndar
vantaði stundum sterkari bassatón í
hljóminn, sem hefði komið betur út
með tveimur góðum kórbössum til
viðbótar. Hljómburðurinn í Sam-
komhúsinu er ekki ákjósanlegur og
stundum var eins kórinn tæki of mik-
ið á vegna þess að hið lifandi end-
urkast í hljóðrýminu, sem er nauð-
synlegt fyrir afslappaðan flutning,
lét á sér standa. Einnig hefði verið
æskilegra að sólistarnir hefðu allir
kunnað hlutverk sín það vel að þeir
hefðu ekki þurft að veifa nótnaheft-
um um leið og þeir voru leika og
syngja. En hvað um það, tónleikarn-
ir voru mjög skemmtilegir og þeir
eru kærkomið krydd í músíkflóru
bæjarins. Styrkur kórsins felst ekki
síst í þeim möguleikum sem fjöl-
breytilegar sólóraddir veita og það
er gaman að þeim leikrænu töktum
sem koma fram í atriðunum. Undir-
leikarinn Aladár Rácz skilaði sínu
frábærlega og kynningar Steinþórs
Þráinssonar við upphaf hvers lags
komu vel út. Megi Leikhúskórinn
dafna á komandi árum og halda
áfram að gleðja eyru tónleikagesta í
framtíðinni.
Söngperlur
leikhússins
TÓNLIST
Samkomuhúsið á Akureyri
Leikhúskórinn á Akureyri. Auk félaga úr
kórnum sungu einsöng þau Ari Jóhann
Sigurðsson tenór, Hildur Tryggvadóttir
sópran og Michael Jón Clarke barítón en
Aladár Rácz sá um píanóundirleik. Roar
Kvam, sem hefur stýrt músíkuppákomum
í áratugi á Akureyri, var við stjórnvölinn.
Fimmtudagskvöldið 13. mars.
KÓRLÖG
Ívar Aðalsteinsson
HOMER Avila er listdansari að
mennt og starfar sem slíkur. Hann
er þó frábrugðinn starfsbræðrum
sínum að því leyti að hann er ein-
fættur. Hægri fótur hans var fjar-
lægður vegna sjaldgæfrar tegund-
ar krabbameins fyrir tveimur
árum.
Avila lét þó ekki deigan síga og
meðfylgjandi mynd var tekin af
honum á æfingu í Frankfurt í
Þýskalandi nýverið, þar sem hann
var að búa sig undir sýningu.
„Þrátt fyrir aðgerðina efaðist ég
aldrei um að ég ætti eftir að dansa
á ný,“ segir Avila sem búsettur er
í New York.
Einfættur
dansari
Reuters
Fyrirtæki • stofnanir • heimili
Hreinsum rimla-, viðar-, strimla-
og plíseruð gluggatjöld
Einnig sólarfilmur
Eru rimlagardínurnar óhreinar?
sími 897 3634
dgunnarsson@simnet.is