Morgunblaðið - 18.03.2003, Síða 56
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
REKSTRARKOSTNAÐUR lífeyris-
sjóðakerfisins í heild nam rúmum ein-
um milljarði króna á árinu 2001 og
hafði þá hækkað um tæpan þriðjung á
tveimur árum frá árinu 1999 þegar
kostnaður af rekstri lífeyrissjóðakerf-
isins var um 760 milljónir króna, sam-
kvæmt tölum sem er að finna í árs-
skýrslum Fjármálaeftirlitsins um
rekstur lífeyrissjóðanna í landinu.
Hækkunin nemur 59% á fimm árum
og er enn meiri þegar einnig er tekið
tillit til þess skrifstofu- og stjórnunar-
kostnaðar lífeyrissjóða sem færður er
sem fjárfestingargjöld. Sá kostnaður
hefur tvöfaldast á ofangreindu tímabili
og að honum viðbættum hefur rekstr-
arkostnaður lífeyrissjóðakerfisins vax-
ið um 77% á fimm ára tímabili.
Þegar kostnaður við rekstur lífeyr-
issjóðakerfisins í heild er skoðaður,
þ.e.a.s. sá hluti sem færður er sem
rekstrarkostnaður, kemur í ljós að
hann var 633 milljónir kr. á árinu
1997, hækkaði í 680 milljónir 1998 og
760 milljónir 1999. Kostnaðurinn
hækkaði síðan í 891 milljón árið 2000
sem er rúmlega 17% hækkun milli ára
og í 1.006 milljónir kr. 2001 sem er
tæplega 13% milli ára. Hækkunin á
þessu fimm ára tímabili nemur 59%.
Vísitala neysluverðs hækkaði um 24%
frá 1997 til 2001.
Á sama tíma hefur lífeyrissjóðun-
um fækkað um 12 úr 66 sjóðum árið
1997 í 54 sjóði á árinu 2001. Þar af eru
40 sjóðir sem reknir eru án ábyrgðar
annarra og 14 þar sem launagreið-
endur ábyrgjast skuldbindingar sjóð-
anna. Hins vegar hefur sjóðfélögum
og lífeyrisþegum lífeyrissjóðanna
fjölgað verulega. Þannig fjölgaði sjóð-
félögum úr 139.086 árið 1997 í 194.453
árið 2001 eða um tæp 40% og lífeyr-
isþegum fjölgaði úr 41.045 í 52.523
eða um tæp 28%.
Hluti rekstrarkostnaðar færður
sem fjárfestingargjöld
Þessar kostnaðartölur segja hins
vegar ekki alla söguna, þar sem hluti
rekstrarkostnaðar lífeyrissjóðanna er
færður sem fjárfestingargjöld. Skrif-
stofu- og stjórnunarkostnaður sem
færður er undir fjárfestingargjöld
meira en tvöfaldaðist á ofangreindu
tímabili. Hann nam 303 milljónum ár-
ið 1997 en hefur hækkað jafnt og þétt
síðan og nam 653 milljónum 2001.
Rekstrarkostnaður lífeyrissjóða-
kerfisins í heild að viðbættum þessum
kostnaði hefur því hækkað úr 936
milljónum kr. árið 1997 í 1.659 millj-
ónir króna árið 2001 eða sem nemur
77% á ofangreindu tímabili.
Tölur um rekstrarkostnað lífeyris-
sjóðanna í fyrra liggja enn ekki fyrir.
Sjóðfélögum og lífeyrisþegum í lífeyrissjóðum hefur fjölgað verulega
Rekstrarkostnaður hefur
vaxið um 59% á fimm árum
Lífeyrissjóðum hefur fækkað
um tólf á undanförnum árum
!
" #
$
& 7$8 ,9 -%/
%/ $ # "
"
"$ ) %/ $
: %) )%'
#$ $
#
ATVINNULEYSI mælist nú ríflega 4% og hef-
ur að mati forstjóra Vinnumálastofnunar, Giss-
urar Péturssonar, líklega náð hámarki. Hann
telur líklegt að atvinnuástandið skáni á næstu
vikum. Atvinnuleysið hefur ekki verið meira í
nærri sjö ár, eða frá árinu 1996, en atvinnuleysi
það ár var að meðaltali 4,4%. Um síðustu mán-
aðamót voru 6.212 einstaklingar skráðir at-
vinnulausir, eða 4,1% af mannafla á vinnumark-
aði. Í gær voru skráðir 6.224 einstaklingar hjá
Vinnumálastofnun, sem er aðeins 0,2% aukning
á tveimur vikum. Í janúar sl. fjölgaði atvinnu-
lausum um eitt þúsund og nokkur hundruð í
febrúar.
„Ég held að atvinnuleysistalan verði ekki
hærri og leiðin liggi niður á við aftur,“ segir
Gissur og byggir það mat að nokkru leyti á árs-
tíðinni. Venjan sé sú að atvinnuleysi minnki í
apríl og maí. Einnig hafi tíðindi borist að und-
anförnu af framkvæmdum sem séu að fara í
gang og það hafi áhrif í ýmsum greinum sam-
félagsins.
Að sögn Gissurar spáði Vinnumálastofnun að
atvinnuleysi í marsmánuði yrði á bilinu 3,8 til
4,2% og allt stefnir í að talan fari á ný undir 4%
og haldi áfram að lækka. Gera megi ráð fyrir um
3% atvinnuleysi að meðaltali yfir árið. Það sé
reyndar meira en verið hefur síðustu ár en muni
fara lækkandi á næstu árum vegna stóriðju-
framkvæmda á Austurlandi og annarra fram-
kvæmda víða um land.
„Það er mikil hreyfing í skráningu vinnumiðl-
ana hjá okkur. Á sumum stöðum sópast fólk út
af listunum,“ segir Gissur en bendir á að við-
brögðin séu hægari á landsbyggðinni en á höf-
uðborgarsvæðinu. Þó geti aflabrögð eða tíðarfar
haft mikil áhrif. Þannig hafi atvinnulausum í
Vestmannaeyjum fækkað á fáum dögum um 60
manns vegna fleiri fiskvinnslustarfa.
Áhyggjur af sumarstörfum
Gissur segist hins vegar hafa nokkrar
áhyggjur af sumarstörfum fyrir skólafólk. Sá
hópur standi utan við mælingar Vinnumála-
stofnunar að undanförnu en geti haft áhrif á
þær í sumar. Fregnir hafa borist af því að und-
anförnu, einkum af stærri fyrirtækjum, að færri
verði ráðnir til sumarstarfa en áður.
Fjöldi umsókna hefur víða verið mikill, þann-
ig sóttu 800 manns um sumarafleysingar hjá
Alcan í Straumsvík, áður Ísal.
Forstjóri Vinnumálastofnunar telur að atvinnuástand fari brátt batnandi
Atvinnuleysið nær hámarki
OPINBER heimsókn Ólafs Ragnars Gríms-
sonar, forseta Íslands, og fylgdarliðs til Ung-
verjalands hófst í gær þegar forseti Ungverja-
lands, Ferenc Mádl, tók á móti honum með
heiðursverði á Szent-György torginu í Búda-
pest. Ólafur snæddi síðan hátíðarkvöldverð í
boði forsetans eftir að hafa átt fund með for-
sætisráðherra landsins, Péter Medgyessy.
Ólafur telur í samtali við Morgunblaðið að
heimsóknin skili árangri fyrir viðskiptahags-
muni Íslendinga í Ungverjalandi og einnig
fyrir aukin tengsl landanna á alþjóðavett-
vangi.
Yfirvofandi stríð í Írak kom m.a. til umræðu
á fundi með Medgyessy og að sögn Ólafs ætla
Ungverjar ekki að verða aðilar að því stríði.
Ólafur segist ætla að halda áfram för sinni þó
að stríðsátök brjótist út, en í dag fer hann í op-
inbera heimsókn til Slóveníu. Hann segir það
gagnlegt og upplýsandi fyrir íslensku sendi-
nefndina að heyra sjónarmið og afstöðu full-
trúa Ungverja og Slóvena gagnvart stríðs-
rekstri.
Reuters
Ferenc Madl, forseti Ungverjalands, tók á móti Ólafi Ragnari Grímssyni í gær með heiðursverði á Szent-György-torginu í Búdapest.
Aukin
tengsl við
Ungverja
Ungverjar/6
ÞAÐ hefur verið einstök veðurblíða
á Austurlandi síðustu daga. Fyrir
hádegi í gær mældist hitinn 12°C á
Egilsstöðum og mátti sjá blómstr-
andi krókusa í hverri garðholu og
glaðnandi mannlíf í bænum. Það
var því mikið fjör í sundlauginni á
Egilsstöðum í gær, gusurnar gengu
yfir unga sem aldna.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
12 stiga hiti á
Egilsstöðum
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ sam-
þykkti í gær kaup hins svokallaða S-
hóps á 45,8% í Búnaðarbanka Íslands,
en setti skilyrði sem kaupendur ætla
að samþykkja. Þeir ætla að reiða fram
rúmlega sjö milljarða króna, af 11,9
milljarða kaupverði, í vikunni til þess
að hafa 27,48% atkvæða á aðalfundi
bankans á laugardaginn.
Meðal annars setur Fjármálaeftir-
litið það skilyrði að kaupendur skuld-
bindi sig til að tilkynna því með nægj-
anlegum fyrirvara tímasetningu fullra
aðilaskipta að hinum seldu hlutum í
bankanum.
Kaup á BÍ
samþykkt
Meirihluti/15