Morgunblaðið - 29.03.2003, Side 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
þyngri
Förum með
sendingar
Öflug flutningaþjónusta Póstsins nær yfir stórar vörusendingar jafnt sem smáar.
Fáðu heildarlausn fyrir vörusendingar fyrirtækisins hjá þungavigtarliði Póstsins.
Þægileg og örugg þjónusta sem sparar þér tíma og fyrirhöfn.
Öryggi alla leið
létt
Nánari upplýsingar eru veittar hjá sölu- og þjónustudeild Póstsins
í síma 580 1030. Netfang: postur@postur.is Veffang: www.postur.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I
Y
D
D
A
/
si
a
.i
s
/
N
M
0
8
4
6
4
FÆKKUN um 20 manns í yfirstjórn
Landsbanka Íslands styrkir rekstur
bankans og eykur hagræði. Þetta er
samdóma álit bankaráðs og banka-
stjóra. Í tilkynningu frá Landsbank-
anum segir að bankaráðið og banka-
stjórinn telji jafnframt að þessar
aðgerðir styrki rekstur bankans,
auki hagræði og mæti metn-
aðarfullum fjárhagslegum mark-
miðum hans. Á sama tíma sé þjón-
ustan einfölduð, stuðlað sé að hraðari
ákvörðunum og þjónusta Lands-
bankans við viðskiptavini þannig
bætt. Þá segir að breytingar þessar
styrki Landsbankann í öflugri sókn á
innlenda og erlenda fjármálamark-
aði og auki sveigjanleika bankans til
að takast á við síbreytilegt starfsum-
hverfi alþjóðlegra fjármálastofnana.
Styður öfluga þátttöku
í umbreytingum
Halldór J. Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að fjár-
málaumhverfið einkennist af vaxandi
innlendri og erlendri samkeppni.
Landsbankinn og aðrir bankar hér á
landi þurfi að mæta því með því að
tryggja skilvirka ákvörðunartöku,
stytta ákvörðunarferla og lækka
kostnað. „Landsbankinn hefur
brugðist við þessu,“ segir Halldór.
„Við munum færa ákvarðanir nær
viðskiptavinunum og gera bankann
viðbraðgsfljótari.“
Hann segir að eitt meginmark-
miðið með breytingunum sé að ein-
falda skipurit bankans. Þá náist
veruleg lækkun á kostnaði bankans
með fækkun í yfirstjórn. Einnig sé
breytingunum ætlað að styðja við
þau markmið sem bankinn hefur sett
sér um arðbæran vöxt og öflugri
þátttöku í umbreytingum á markaði.
„Ég held að starfsfólk bankans
sýni þessum aðgerðum skilning,“
segir Halldór. „Starfsfólkið hefur
verið mjög einhuga um að taka þátt í
breytingum á bankanum. Að sjálf-
sögðu eru svona aðgerðir erfiðar en
starfsfólk í fjármálastarfsemi veit að
mikið hefur verið fjárfest í tækni,
sem einfaldar stafsemina, og því
fylgja möguleikar á fækkun starfs-
fólks, þ.m.t. í yfirstjórn. Mikið hefur
verið hagrætt í almennri starfsemi
og nú er gripið til hagræðingar í yf-
irstjórn með bættri verkaskiptingu
og fækkun millistjórnenda. Það er
skilningur fyrir því innan bankans að
það sem er í forgrunni þessara
breytinga er að stytta boðleiðir inn-
an bankans, flýta ákvörðunum og
bæta með því þjónustu við við-
skiptavinina. Það er það sem tryggir
aukna samkeppnishæfni bankans.“
Halldór segir að í kjölfar einka-
væðingar ríkisbankanna séu mikil
umskipti framundan á íslenskum
fjármálamarkaði. Samrunaferli sé
þegar farið af stað. Af hálfu Lands-
bankans hafi því verið lýst yfir að
sameining viðskiptabanka sé besti
kosturinn í hagræðingarferlinu. Þær
aðgerðir sem nú hafi verið ákveðnar
hjá bankanum búi hann frekar undir
að taka þátt í frekari samvinnu eða
samruna.
Hann segir að auðveldara sé að
grípa til aðgerða sem þessara þegar
atvinnustigið sé gott í landinu. Frá
þeim sjónarhóli sé nú heppilegur
tími til að framkvæma breytingar.
„Það er eftirsjá í góðu fólki sem nú
hverfur frá bankanum. Í þeirri upp-
byggingu sem framundan er hér á
landi í kjölfar nýrra orkufram-
kvæmda og aukins hagvaxtar er þörf
fyrir gott fólk og ég er þess vegna
fullviss að ný og spennandi tækifæri
bíða þeirra. Breytingar fela ávallt í
sér tækifæri, ef rétt er á haldið.
Fjármálamarkaðurinn er í örri þró-
un og ljóst að Landsbankinn þarf
stöðugt að huga að nýbreytni í starf-
seminni og leita leiða til að efla og
styrkja starfsemina og þjónustu við
viðskiptavini,“ segir Halldór.
Breytingar á sjö sviðum
Í tilkynningu frá Landsbankanum
til Kauphallar Íslands er gerð grein
fyrir skipulagsbreytingunum á ein-
stökum sviðum bankans. Þar segir:
„1. Alþjóða- og fjármálasvið:
Fjárstýring Landsbankans sam-
einast fjármálamörkuðum og mun
forstöðumaður fjárstýringar láta af
störfum. Gjaldskrármál, innri verð-
lagning og skýrslugjöf flytjast á
rekstrarsvið. Ábyrgðir og inn-
heimtur flytjast á fyrirtækjasvið í
nýja deild, útlánaþjónstu. Sérfræð-
ingum á Alþjóða- og fjármálasviði
verður fækkað um einn.
2. Fyrirtækjasvið:
Lánaafgreiðsla, sértæk útlán og
ábyrgðir og innheimtur sameinast í
nýrri einingu á fyrirtækjasviði, út-
lánaþjónustu undir forstöðu Árna
Þórs Þorbjörnssonar. For-
stöðumenn á sviði lánaafgreiðslu og
framtaksfjármögnunar á fyrir-
tækjasviði láta af störfum. Sérfræð-
ingum á fyrirækjasviði fækkar um
þrjá.
3. Verðbréfasvið:
Stefán H. Stefánsson, sem áður
var framkvæmdastjóri þróunarsviðs,
verður framkvæmdastjóri verð-
bréfasviðs. Sigurður A. Jónsson mun
hverfa til annarra stjórnunarstarfa.
Sjóða- og verðbréfastarfsemi í
Heritable sameinast verðbréfasvið-
inu í Reykjavík og fækkar starfs-
mönnum um þrjá.
4. Rekstrarsvið:
Starfsmannasvið verður sameinað
rekstrarsviði og mun Sigríður H.
Jónsdóttir taka við starfi starfs-
mannastjóra. Rekstrarþjónusta, ör-
yggismál og eignadeild verða sam-
einuð undir forstöðu Valgeirs
Valgeirssonar en aðrir forstöðumenn
þessara deilda láta af störfum. Eins
og áður segir munu gjaldskrármál,
innri verðlagning og skýrslugjöf
flytjast til rekstrarsviðs af alþjóða-
og fjármálasviði.
5. Viðskiptabankasvið:
Kristín Rafnar, sem áður var
framkvæmdastjóri starfsmanna-
sviðs, tekur við sem framkvæmda-
stjóri viðskiptabankasviðs. Í
tengslum við skipulagsbreytingar
hefur Björn Líndal látið af störfum
að eigin ósk. Ingólfur Guðmundsson
verður aðstoðarframkvæmdastjóri
sviðsins. Markaðsdeild flyst undir
viðskiptabankasvið.
Forstöðumaður viðskipta- og
þjónustudeildar lætur af störfum og
með sameiningu eininga mun stöðu-
gildum fækka um fjögur.
Nýr svæðisstjóri verður ráðinn
inn í aðalbanka en fyrst um sinn mun
Ingólfur Guðmundsson einnig sinna
starfi svæðisstjóra.
6. Áhættustýringarsvið:
Áherslum útlánaeftirlits verður
breytt og mun forstöðumaður deild-
arinnar láta af störfum og deildin
heyra beint undir Þór Þorláksson.
Upplýsingasvið:
Forstöðumaður viðskiptabanka-
og rekstrar á upplýsingasviði mun
láta af störfum og einingin heyra
beint undir framkvæmdastjóra,“ að
því er segir í tilkynningu til Kaup-
hallar Íslands.
Fækkað um 20 manns í yfirstjórn Landsbanka Íslands til að einfalda skipulag og hagræða í rekstri
Styður sókn
á innlenda
og erlenda
markaði
Morgunblaðið/Halldór Kolbeins
Tveir framkvæmdastjórar, tíu forstöðumenn og átta sérfræðingar, eða alls 20 starfsmenn, létu af störfum hjá
Landsbanka Íslands í gær, sama dag og tilkynnt var um breytingar á yfirstjórn bankans.
Tækifæri hafi gefist til þess í
tengslum við þær breytingar sem til-
kynnt hafi verið um í gær á yfir-
stjórn bankans, og hann hafi gengið
frá samkomulagi við Halldór J.
Kristjánsson bankastjóra um starfs-
lok sín.
Sigurður Atli Jónsson sagði ekki
tímabært fyrir hann að tjá sig um
þær breytingar sem tilkynnt var um
á yfirstjórn bankans í gær.
TVEIR framkvæmdastjórar létu af
störfum hjá Landsbankanum í gær í
tengslum við þær breytingar á yf-
irstjórn bankans sem tilkynnt var
um. Þeir eru Björn Líndal, sem var
framkvæmdastjóri viðskiptabanka-
sviðs, og Sigurður Atli Jónsson,
framkvæmdastjóri verðbréfasviðs.
Björn Líndal segir að hann hafi
velt því fyrir sér undanfarið ár eða
svo, að skipta um starfsvettvang.
Tveir framkvæmda-
stjórar hætta