Morgunblaðið - 29.03.2003, Síða 28
SUÐURNES
28 LAUGARDAGUR 29. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RÝMI til tilrauna nær tvöfaldast
með byggingu nýs hús við Tilrauna-
eldisstöð Hafrannsóknastofnunar-
innar á Stað við Grindavík. Árni M.
Mathiesen sjávarútvegsráðherra
opnaði húsnæðið með formlegum
hætti í gær.
Í Tilraunaeldisstöðinni hefur á
undanförnum árum verið unnið að
margháttuðum rannsóknum á eldi
ýmissa sjávardýra svo sem á lúðu,
sæeyra, sandhverfu og þorski, bæði
fjölgunar- og vaxtartilraunir, svo og
sjúkdómstengdar rannsóknir. Mark-
mið Hafrannsóknastofnunarinnar
hefur verið að auka þekkingu á eldi
þessara tegunda og miðla henni út í
samfélagið, einkum til sprotafyrir-
tækja í greininni.
Áhugi á þorskeldi og eldi annarra
sjávarlífvera hefur aukist mjög.
Starfsmenn stöðvarinnar hafa und-
anfarið náð mikilsverðum árangri
við eldi sandhverfu- og þorskseiða,
að því er fram kemur í fréttatilkynn-
ingu frá Hafrannsóknastofnuninni.
„Vonast er til að með öflugu rann-
sóknastarfi megi skapa ný tækifæri í
eldi sjávardýra.
Nýlega gerði Hafrannsóknastofn-
unin samstarfssamning um þróun
þorskseiðaeldis og kynbætur á
þorski við nokkur öflug innlend fyr-
irtæki á sviði fiskeldis. Með samn-
ingnum og endurbættri aðstöðu er
vonast til að unnt verði að kanna eld-
ismöguleika á þorski og vinna nauð-
synlegt undirbúningsstarf að hugs-
anlegu framtíðareldi,“ segir í til-
kynningunni.
Kostar 70 milljónir
Hin nýja aðstaða við Tilraunaeld-
isstöðina að Stað er nær tvöföldun á
tilraunarými, en um er að ræða 790
m2 einangrað stálgrindarhús með
öllum helsta búnaði til seiðafram-
leiðslu, svo sem 5 stór klakfiskaker,
12 lirfueldisker með hreinsibúnaði,
12 lítil seiðaker, 12 stór seiðaker og
fullkominni aðstöðu til ræktunar
hjóldýra. Í gamla húsinu eru 18 stór
ker til vaxtartilrauna en einnig að-
staða til að klekja út hrognum og
klefi til ræktunar á saltrækju sem er
ásamt hjóldýrunum nauðsynleg
fæða við framleiðslu fiskseiða. Full-
komin hitastýring er á sjónum í stöð-
inni. Til staðar er síaður svalur sjór
(7°C) og heitur jarðsjór (65°C) og
með varmadælu fæst mjög kaldur
sjór allt niður í -1°C.
Til að fjármagna nýbygginguna
fékk Hafrannsóknastofnunin 22
milljóna kr. styrk úr bygginga- og
tækjasjóði Rannís og sömu upphæð
frá sjávarútvegsráðuneytinu. Áætl-
að er að byggingin kosti fullbúin um
70 milljónir kr.
Stöðvarstjóri að Stað er Matthías
Oddgeirsson, en Björn Björnsson og
Agnar Steinarsson fiskeldisfræðing-
ar stjórna tilraunastarfinu.
Nýtt hús Tilraunaeldisstöðvarinnar á Stað tekið í notkun
Tilraunarými stöðvar-
innar nær tvöfaldast
Grindavík
Morgunblaðið/Garðar Páll Vignisson
LANDIÐ
SUNNUDAGUR 30. MARS
Holt í Önundarfirði kl. 14:00
Guðni Ágústsson, Magnús Stefánsson,
Kristinn H. Gunnarsson, Herdís Á. Sæmundardóttir
Fundarstjóri: Björgmundur Örn Guðmundsson
Húsavík kl. 20:30 – Hótel Húsavík
Halldór Ásgrímsson, Jón Kristjánsson, Dagný Jónsdóttir
Fundarstjóri: Sigurgeir Aðalgeirsson
Djúpavogur kl. 20:30 – Hótel Framtíð
Valgerður Sverrisdóttir, Birkir J. Jónsson, Jónína Bjartmarz
Fundarstjóri: Ragnhildur Steingrímsdóttir
Mosfellsbær kl. 20:30 – Háholt
Siv Friðleifsdóttir, Páll Magnússon, Una María Óskarsdóttir
Fundarstjóri: Eyjólfur Árni Rafnsson
vinna - vöxtur - velferð
Fundaferð Framsóknarflokksins 2003
til aukinnar velferðar
Leggjum áfram leiðina
FRAMSÓKNARFLOKKURINN
FÖNGULEGUR hópur nema og
kennara við hársnyrtibraut Verk-
menntaskóla Austurlands hélt í
gær til Akureyrar, þar sem þeir
munu greiða þátttakendum í
söngvakeppni framhaldsskóla, sem
þar fer fram um helgina. Gert er
ráð fyrir að allt að 60 manns taki
þátt í söngvakeppninni.
Nemendur og kennarar hafa
undanfarna daga æft sig af kappi
fyrir þetta stóra verkefni. Það var
Iðnnemasambandið sem óskaði eft-
ir því við Verkmenntaskólann að
hann tæki að sér verkefnið og var
góðfúslega orðið við þeirri beiðni,
enda spennandi viðfangsefni fyrir
hársnyrtinemana.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Hársnyrtinemar VA hafa æft söngvaragreiðslur undanfarna daga.
Nemar greiða söngvurum
Neskaupstaður
TÓMAS Ingi Olrich menntamála-
ráðherra og forsvarsmenn Síldar-
minjasafnsins á Siglufirði hafa skrif-
að undir samning um framlag
ríkisins til frekari uppbyggingar
Síldarminjasafnsins á Siglufirði.
Á fundi ríkisstjórnarinnar 11.
febrúar sl. var ákveðið að veita Síld-
arminjasafninu 35 milljóna króna
styrk, sem greiðist út á þremur ár-
um, til byggingar bátaskemmu, en
henni er ætlað að varðveita valin
sýnishorn af síldarskipum fyrri ára.
Merkar minjar eru til um síld-
veiðar Íslendinga á Siglufirði, en
Félag áhugamanna um minjasafn og
Síldarminjasafnið á Siglufirði hafa
unnið að uppbyggingu safnsins á
undanförnum árum.
Við undirskrift samningsins
kynnti menntamálaráðherra
ákvörðun Safnaráðs að tilnefna Síld-
arminjasafnið á Siglufirði til evr-
ópsku safnaverðlaunanna árið 2004
fyrir Íslands hönd, en samstarfs-
vettvangur evrópskra safna, The
European Museum Forum, veitir
verðlaunin.
Síldarminjasafnið byggt upp
Tilnefnt til evr-
ópskra verðlauna
Siglufjörður
ÁTAKAFUNDUR var haldinn í
hreppsnefnd Vopnafjarðar þar sem
tekist var á um fyrirhugað vegstæði
nýs vegar sem tengir Vopnafjörð við
þjóðveg eitt. Deilt var um það á
fundinum hvort vegurinn ætti að
liggja um Hofsárdal eða svokallaða
Hofshálsleið.
Fyrir fundinn afhenti Ingólfur
Sveinsson, talsmaður áhugamanna
um Hofsárdalsleið, Emil Sigurjóns-
syni oddvita undirskriftalista með
um 350 nöfnum Vopnfirðinga og
Bakkfirðinga, þar sem minnt var á
ályktun meirihlutans í hreppsnefnd
frá því fyrr í vetur um að styðja það
álit Vegagerðarinnar, að farinn yrði
leiðin um Hofsárdal.
Eftir nokkra orrahríð samþykkti
meirihluti hreppsnefndar að styðja
nýja tillögu Vegagerðarinnar um veg
um Hofshálsleið. Helstu rök meiri-
hlutans voru þau að ef Hofsárdalur-
inn yrði fyrir valinu væri vegagerðin
svo dýr að ekki væri von á jarðgöng-
um í gegnum Hellisheiði milli Vopna-
fjarðar og Héraðs næstu áratugina
en aftur á móti ef leiðin um Hofsháls
væri farin þá væri von um jarðgöng
vegna minni kostnaðar.
Það kom hins vegar fram hjá
tveimur hreppsnefndarmönnum úr
meirihluta að þeir vildu sjá veginn
fara niður Vesturárdal sem væri þá
þriðji kosturinn. Viðmælandi frétta-
ritara Morgunblaðsins sagði að það
væri líklegt að leiðin um Hofsháls
færi ekki í gegnum umhverfismat
vegna þess að það væri annar kostur
sem ekki myndi raska umhverfinu
eins mikið, sem væri að halda áfram
niður Vesturárdal og það væri ætlun
meirihlutans.
Þá væri kostnaðurinn næstum
jafnmikill og að fara niður Hofsárdal
því þá ætti eftir að byggja veginn
upp á um 20 km kafla frá Hauks-
stöðum og niður í þorp.
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
Fyrir fundinn afhenti Ingólfur Sveinsson Emil Sigurjónssyni undir-
skriftalista með um 350 nöfnum Vopnfirðinga og Bakkfirðinga.
Ágreiningur um
vegamál á Vopnafirði
Vopnafjörður