Morgunblaðið - 31.03.2003, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. MARS 2003 31
Nýr og betriHverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.30. B.i 16.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i 12 Sýnd kl. 5.30 og 8. B.i. 12.
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
6
ÓSKARSVERÐLAUN M.A.
BESTA MYNDIN
SV MBL
Þegar röðin er komin að þér þá
flýrðu ekki dauðann!
NICOLE KIDMAN BESTA LEIKKONA Í
AÐALHLUTVERKI 2 ÓSKARSVERÐLAUN
Sýnd kl. 10. B.i. 16.
HOURS
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.20. B.i 12 .
www.laugarasbio.is
RADIO X
SV MBL
KVIKMYNDIR.COM
SG DV
ÓHT RÁS 2
Sýnd kl. 5.30.
Sýnd kl. 8 og 10.
Eingöngu sýnd um helgar.
Þegar röðin er komin að þér
þá flýrðu ekki dauðann!
Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i.16.
Þeir líta bara
út eins og
löggur!
Grínið er farið
í gang með
tveimur
geggjuðum -
Steve Zahn
og Martin
Lawrence!
Tvö sóltjöld
fylgja öllum
bílstólum
til páska.
ANNA Katrín Guðbrands-
dóttir, nemi í 1. bekk
Menntaskólans á Akureyri,
sigraði í söngkeppni fram-
haldsskólanna sem haldin
var í Íþróttahöllinni á Ak-
ureyri á laugardagskvöldið.
Anna Katrín bræddi tón-
eyru og hjörtu dómnefndar
og áheyrenda með splunku-
nýrri útsetningu af hinu
kunna þjóðlagastefi Vísum
Vatnsenda-Rósu. Jón Ás-
geirsson tónskáld gerði
þetta fallega stef ódauðlegt
á sínum tíma en strákar
tveir úr MA, þeir Styrmir
Hauksson og Ólafur Haukur
Árnason, tóku sig til í vetur
og útsettu vísurnar upp á
nýtt með glæsilegum ár-
angri. Með Önnu Katrínu á
sviðinu var strengjasveit úr
MA skipuð þeim Björk Ósk-
arsdóttur, Maríu Hrund
Stefánsdóttur, Ragnheiði
Korku Jónsdóttir og Tom-
asz Kolosowski.
Svo skemmtilega vildi til
að Anna Katrín átti afmæli
eftir miðnætti, varð 17 ára
30. mars, og Birgitta Hauk-
dal, söngkonan snjalla og
einn dómnefndarmanna, upplýsti
salinn um þá staðreynd og tvö þús-
und áhorfendur sungu afmælis-
sönginn saman sigurvegaranum til
heiðurs.
Syngjandi barnalæknir?
„Þetta er það besta sem ég hef
nokkurn tíma lent í. Ég er búin að
bíða eftir þessu mjög lengi,“ sagði
Anna Katrín sigri hrósandi í sam-
tali við Morgunblaðið skömmu eftir
að úrslit voru kunngjörð og hún
hafði flutt sigurlagið aftur. „Já, ég
hef lengi átt mér þann draum að
verða söngkona, en ég held samt ég
verði læknir,“ sagði hún svo. Anna
Katrín er í 1. bekk MA sem fyrr
segir og stefnir á náttúru-
fræðibraut næsta vetur. Hún mót-
mælti ekki þeirri hugmynd blaða-
manns að líklega yrði hún
syngjandi læknir þegar þar að
kæmi. Hún mun stefna að því að
verða barnalæknir, þannig að söng-
urinn getur örugglega komið sér
vel.
Í öðru sæti í keppninni lenti Sig-
þór Árnason, fullrúi Fjölbrauta-
skóla Suðurlands, og Sigþór hlaut
jafnframt verðlaun fyrir bestu
sviðsframkomu.
Í þriðja sæti var Elísabet Eyþórs-
dóttir úr Borgarholtsskóla, en þar
er á ferðinni dóttir tónlistarfólksins
Ellenar Kristjánsdóttur og Eyþórs
Gunnarssonar. Söng Elísabet lag
eftir systur sína, Sigríði Eyþórs-
dóttur, söngkonu í hljómsveitinni
Santiago. Margir þeirra sem komu
fram í söngkeppninni að þessu sinni
stóðu sig geysilega vel og er greini-
legt að mikill efniviður á þessu sviði
leynist í framhaldsskólum landsins.
Í raun er það ótrúlegt hve margir
hæfileikaríkir krakkar voru þarna
saman komnir, þegar haft er í huga
að um er að ræða fólk um eða innan
við tvítugt.
Dómnefnd hafði enda orð á því
að verkefni hennar hefði verið afar
erfitt að þessu sinni. Nefndina skip-
uðu útvarpsmennirnir Ólafur Páll
Gunnarsson og Gestur Einar Jón-
asson og söngvararnir Birgitta
Haukdal og Pálmi Gunnarsson.
Til að mynda vakti fulltrúi Verk-
menntaskólans á Akureyri, Stefán
Jakobsson, mikla og verðskuldaða
athygli fyrir söng sinn en hann
hlaut ekki náð fyrir augum dóm-
nefndarinnar. Einhvern tíma hefði
hann líklega farið með sigur af
hólmi í keppninni.
Anna Katrín Guðbrandsdóttir úr MA sigraði í Söngkeppni FF með glæsilegri útsetningu á Vísum Vatnsenda-Rósu
Söngfuglinn sem vill verða
læknir fékk sigur í afmælisgjöf
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Anna Katrín Guðbrandsdóttir úr MA, sem sigraði í keppninni, átti 17 ára afmæli 30.
mars – og úrslitin lágu fyrir um miðnætti. Birgitta Haukdal, sem var í dómnefndinni,
upplýsti að sigurvegarinn ætti afmæli eftir að hún hafði veitt verðlaununum viðtöku,
og Birgitta stjórnaði kór allra viðstaddra þegar afmælissöngurinn var sunginn Önnu
Katrínu til heiðurs. Hér kyssir hún svo afmælisbarnið á kinnina í tilefni dagsins!
skapti@mbl.is
Guðmundur Sveinn Bæringsson úr
Menntaskólanum á Laugarvatni
naut m.a. aðstoðar eldspúandi
kappa meðan hann flutti lag sitt.
Anna Katrín Guðbrandsdóttir, sem
söng sigurlagið, ásamt þeim sem út-
settu. Til vinstri er Ólafur Haukur
Árnason og Styrmir Hauksson til
hægri.
NÁÐST hafa samningar við fram-
leiðendur verðlaunamyndarinnar
Chicago, Craig Zadan og Neil Mer-
on, um að endurgera kvikmyndina
Fótafár (Footloose) sem gerði allt
vitlaust 1985 með Kevin Bacon í að-
alhlutverki.
Þeir Zadan og Meron segjast ætla
að hafa myndina minna í anda Chic-
ago og meira tilraunakennda í stíl
líkt og Rauða Myllan (Moulin
Rouge), en þeir hyggjast hafa unga
leikara í aðalhlutverkunum sem
munu sjálfir dansa og syngja, og til
stendur að útsetja mörg lögin úr
fyrri myndinni á nýmóðins máta.
Þau eru enda ófá sígild popplögin
sem litu dagsins
ljós með upp-
runalegu útgáf-
unni sem Herb
Ross leikstýrði,
og er skemmst að
minnast „Foot-
loose“ og „Let’s
Hear It for the
Boy“. Eins og
flestir muna seg-
ir myndin sögu
piltsins Ren McCormack sem að
ákveður að ögra dans- og rokkbanni
sem lagt hefur verið á í bandarískum
smábæ með því að skipuleggja dans-
leik.
Fótafár endurgerð
Kevin Bacon
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111