Morgunblaðið - 07.06.2003, Page 1
STOFNAÐ 1913 153. TBL. 91. ÁRG. LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Listasumar á
Sólheimum
Kabarett, leikhús og útimarkaður
verða fastir liðir Fólk 50
Nýstárleg dansleikhúskeppni í
Borgarleikhúsinu Lesbók
Eiður í
forsvari
Eiður Smári Guðjohnsen verður
fyrirliði landsliðsins Íþróttir 1
LANDBÚNAÐARRÁÐHERRA,
Guðni Ágústsson, hefur með bréfi til
forráðamanna Kjötmjöls ehf. fyrir-
skipað innköllun á öllum áburði und-
ir heitinu Brumi, sem unninn er úr
kjötmjöli, og gert fyrirtækinu að
hætta sölu á honum þegar í stað.
Áburðurinn hefur verið seldur í
Garðheimum og á Olís-stöðinni á
Selfossi og beinir Halldór Runólfs-
son yfirdýralæknir því til kaupenda
að þeir skili áburðinum þangað.
Fyrirskipun ráðherra er gefin út
á grundvelli laga um dýrasjúkdóma
og varnir gegn þeim. Bannið tengist
m.a. nýlegu riðutilfelli á bæ í Ölfusi.
Forráðamenn Kjötmjöls höfðu
farið þess á leit við ráðherra að nýta
mjölið til skógræktar og land-
græðslu sem áburð. Guðni Ágústs-
son segir að þeirri beiðni hafi alfarið
verið hafnað. Í því ljósi hafi það
komið verulega á óvart að verið
væri að dreifa áburðinum í almennri
sölu án viðhlítandi merkinga.
Áburðurinn hafi verið auglýstur
með ófullnægjandi hætti og töluverð
hætta sé á því að hann verði notaður
sem skepnufóður og alhliða áburður
á bithaga.
Kjötmjöl innkallað
Óheimilt að selja
mjölið sem áburð
Framtíð/4
FLOKKAR uppreisnarmanna og stjórnar-
her Líberíu börðust ákaft í Monróvíu, höf-
uðborg landsins, í gær. Átökin urðu til þess
að viðræður um að binda enda á borgara-
stríðið í landinu stöðvuðust, en sáttasemj-
arar segja vopnahlé og þátttöku allra upp-
reisnarhópa skilyrði þess að þær haldi
áfram.
Tugir þúsunda íbúa í útjaðri Monróvíu
höfðu flúið heimili sín í gær af ótta við komu
uppreisnarmannanna.
Forsetinn ákærður fyrir stríðsglæpi
Borgarastyrjöld hefur geisað í Líberíu
síðan 1999 er flokkar uppreisnarmanna
hófu að reyna að bola forseta landsins,
Charles Taylor, frá völdum. Alþjóðlegur
dómstóll í Sierra-Leone hefur nú ákært
Taylor fyrir stríðsglæpi vegna þátttöku
hans í tíu ára stríði sem þar geisaði. „Það er
engin stjórn í landinu. Við erum tilbúin til
viðræðna við alla flokka landsins, en ekki
glæpamanninn Taylor,“ sagði Kabineh
Ja’hneh, foringi samtakanna Sameinaðrar
Líberíu fyrir sættir og lýðræði (LURD).
AP
Íbúar í Monróvíu fylgjast með útvarps-
fréttum af ákæru á hendur Taylor forseta.
Hart barist
í Líberíu
Akosombo í Ghana. AFP.
HIN róttæku Hamas-heittrúarsamtök Palest-
ínumanna sögðust í gær hafa slitið viðræðum
við Mahmud Abbas, forsætisráðherra Palest-
ínustjórnar, um að stöðva vopnaðar árásir á
Ísraela. Abbas sagði á fundi með Ariel Shar-
on, forsætisráðherra Ísraels, fyrir skömmu að
hann hefði náð samkomulagi við Hamas um
að gert yrði vopnahlé.
Abbas hefur heitið því að fullnægja skil-
málum Vegvísisins svonefnda, friðaráætlunar
stórveldanna, um að stöðva allt ofbeldi Palest-
ínumanna gagnvart Ísraelum gegn því að
Sharon kalli herinn burt frá hernumdu svæð-
unum og leggi niður ólöglegar byggðir gyð-
inga þar.
Hamas sagði í gær að niðurstöður fundar
Abbas með Ísraelum og George W. Bush
Bandaríkjaforseta í Jórdaníu í vikunni væru
„hættulegar“ og hvatti til þess að efnt yrði til
mótmæla á Gaza-ströndinni gegn Vegvísinum.
Ljóst þykir að yfirlýsing Hamas geti valdið
mikilli spennu og jafnvel átökum við örygg-
issveitir stjórnar Abbas. Bandaríkin hafa
heitið því að leggja stjórninni til fé til að efla
öryggissveitirnar en margir Palestínumenn
óttast blóðbað og borgarastyrjöld, reyni
Abbas að afvopna Hamas og fleiri herská
samtök með valdi.
Önnur hryðjuverkasamtök, Íslamska Jihad,
hvöttu hins vegar í gær til viðræðna milli her-
skárra hópa og Abbas, aðeins nokkrum stund-
um eftir að Hamas hafði sent frá sér yfirlýs-
inguna. Leiðtogi Jihad, Mohammed al-Hindi,
sagði þó að Abbas yrði að útskýra hvers
vegna hann hefði „fordæmt andspyrnu“ hóps-
ins við hernám Ísraela og hvers vegna hann
hefði ekki minnst á hernámið í ávarpi sínu á
fundinum í Aqaba í Jórdaníu.
Hamas slítur viðræðum
við Abbas um vopnahlé
Gazaborg. AFP.
HAMAS-LIÐAR með grímur fyrir andlitinu í
kröfugöngu á Gaza í gær. Mahmud Abbas for-
sætisráðherra var fordæmdur fyrir að sam-
þykkja kröfur um afvopnun herskárra hópa.
Reuters
Kröfuganga á Gaza
FINNUM mun innan skamms bjóðast
að láta útbúa frímerki með andlits-
mynd af sjálfum sér að því er finnska
póstþjónustan tilkynnti á fimmtudag.
Þannig geta þeir sem dreymir um að
skipa sér í lið með konungbornu fólki,
frægum landkönnuðum og Nóbelsverð-
launahöfum nú látið drauminn rætast.
„Fólk sem hefur viljað láta útbúa
eitthvað sérstakt fyrir brúðkaup eða af-
mæli hefur oft farið þess á leit við okkur
að það geti látið útbúa eigið frímerki,“
sagði Marja Pihlman, talsmaður
finnsku póstþjónustunnar.
Þeir sem vilja nýta sér þessa þjón-
ustu koma til með að þurfa að borga lít-
ið eitt aukalega, eða sem samsvarar 56
krónum, fyrir hvert frímerki.
Eigið andlit
á frímerki
Helsinki. AFP.
NÝR tölvuormur, kallaður W32/
Bugbear.B@mm, hefur náð gíf-
urlegri útbreiðslu undanfarna
daga. Höfundurinn virðist hafa
sérstakan áhuga á bankastofn-
unum og er ormurinn með lista
yfir lén hjá bönkum um allan
heim, þar á meðal tveimur ís-
lenskum, Íslandsbanka og Bún-
aðarbanka.
Tæknideildir bankanna voru að
eigin sögn vel í stakk búnar til að
mæta ógninni og telja enga hættu
á ferðum. Höfundur ormsins virð-
ist ekki hafa haft nýjustu upplýs-
ingar um íslensku bankana því lén
Íslandsbanka sem hann var með á
skrá er ekki lengur í notkun.
Ormurinn herjar líka á einka-
tölvur og ef viðeigandi varúðar-
ráðstafanir eru ekki gerðar, svo
sem að hafa vírusvörn og „eld-
vegg“ í tölvunni, getur ormurinn
stolið notendanöfnum, lykilorðum
og greiðslukortanúmerum.
„Ormurinn sjálfur er dæmi-
gerður, það hafa komið hundruð
svona orma,“ segir Erlendur S.
Þorsteinsson, verkefnisstjóri hjá
Friðriki Skúlasyni ehf. „Það sér-
staka við hann er að hann beinist
að bankastofnunum.“
Tölvuormur
herjar
á banka
og 85 skipverjar taka þátt í keppninni sem er nú
haldin í annað skipti í minningu sjómanna sem sigldu
frá Frakklandi fyrr á öldum til veiða við Íslands-
strendur. Frakkar eru miklir kappsiglingamenn og
löng hefð fyrir siglingakeppnum þar. Skúturnar tíu
lögðu upp frá Paimpol í Frakklandi sl. sunnudag.
SKÚTAN Arcelor Dunkerque lagðist að bryggju í
Reykjavíkurhöfn í gærkvöldi og hafði þar með sigur
í frönsku siglingakeppninni Skippers d’Isande.
Arcelor var fimm daga og níu klukkustundir á sigl-
ingu og bætti um 39 mínútur met íslenskrar áhafnar
sem sigldi þessa leið fyrir þremur árum. Tíu skútur
Morgunblaðið/Kristinn
Siglt til sigurs
Líkamlegt
leikhús