Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 12
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ SMÁSÖLUKEÐJUR í Evrópu verða að halda áfram að vaxa til að geta sinnt því margþættu hlutverki sem þær hafa að gegna í þjóðfélag- inu. Þetta kom fram í máli Phil Myers, framkvæmdastjóra Eur- opean Reatail Round Table (ERRT), á hádegisverðarfundi sem Baugur stóð fyrir á Hótel Sögu á fimmtudag. Myers sagði að hlutverk keðjanna væru félagslegs, efnahagslegs, um- hverfislegs og siðferðislegs eðlis. ERRT er hagsmunasamtök 13 helstu smásölukeðja í Evrópu, en meðal meðlima eru C&A, Carrefour, Delhaize, Dixons, El Corte Inglés, IKEA, Marks & Spencer, Metro, Sainsbury, Tesco og Walmart Eur- ope. Myers sagði að fleiri ástæður styddu áframhaldandi vöxt keðjanna eins og til dæmis að stærð gæfi fyr- irækjunum betri samningsaðstöðu gagnvart birgjum. Eins kæmi stærð- in í veg fyrir að keðjunar yrðu fjár- festum í yfirtökuhugleiðingum að bráð, en staðnaði fyrirtæki í sam- keppninni færi það fljótt halloka á markaðnum, að mati Myers. Lítill skilningur yfirvalda Phil Myers sagði að meginástæðan fyrir stofnun ERRT fyrir fimm árum hefði verið vöntun á skilningi yfir- valda á starfsemi stóru verslanakeðj- anna en verkefni samtakanna er að gæta hagsmuna aðildarfyrirtækj- anna á Evrópuvettvangi og sérstak- lega gagnvart Evrópusambandinu. Sagði Myers að meðal þess sem hann og samtök hans reyndu að miðla til yfirvalda væru upplýsingar um hina margvíslegu kosti sem keðj- urnar hefðu fyrir efnahagslífið, fyrir hið félagslega kerfi, fyrir umhverfið og fyrir neytandann almennt, en skilningur á þessum þáttum og það hvað smásölukeðjurnar leggja af mörkum hefði verið takmarkaður að sögn Myers. Hann sagði að mikilvægt væri að lagasetning skaðaði ekki greinina og því væri það nauðsynlegt fyrir grein- ina að reyna að hafa áhrif á löggjaf- ann og hjálpa til við lagasetninguna með því að láta yfirvöldum í té upp- lýsingar. Slíkt kæmi öllum vel; neyt- andanum, umhverfinu og efnahags- lífinu í hverju landi. 350 milljarða evra velta Í máli Myers kom fram að smá- sölukeðjurnar velta 350 milljörðum evra (30.000 milljarðar króna) á ári og þær veittu tveimur milljónum manna atvinnu, sem samsvaraði alls 14% vinnuafls í Evrópu. Hann sagði að keðjurnar væru mjög atvinnuskapandi og reknar væru á þeirra vegum 30.000 búðir í 50 mismunandi löndum. Hann sagði að sem dæmi þá greiddu átta af meðlimum samtak- anna samanlagt 2,5 milljarða evra í skatt á ári og 30 milljarða í lífeyr- isskuldbindingar. Hann sagði að geirinn hefði mikil áhrif á verðbólguþróun enda hefði matarverð í Evrópu hækkað 25% minna en verðbólga almennt á und- anförnum árum. Um félagslegt hlutverk keðjanna sagði Myers að það væri mikilvægt, enda veittu keðjurnar miklum fjölda ómenntaðs fólks atvinnu auk þess að veita því starfsmenntun, sem þó væri ekki það sérhæfð að hún nýttist ekki annars staðar í atvinnulífinu, ef starfsmaður færi frá fyrirtækinu. Ennfremur sagði Myers að keðj- urnar aðhylltust stefnu sem gerði ráð fyrir því að sem breiðastur hópur manna ynni í verslununum, þannig að starfsmenn endurspegluðu við- skiptavini sem allra best. Neytendur vilja ekki umhverfismerktar vörur Myers sagði að starfsánægja mældist að jafnaði mikil í þessum fyr- irtækjum og til dæmis hefði verslun- in ASDA-Wal Mart, mælst efst í nýrri breskri könnun sem breska blaðið Financial Times lét gera. Myers sagði að keðjunar hefðu þá almennu stefnu að þær viðurkenndu að starfsemi þeirra hefði áhrif á um- hverfið og legðu því sitt af mörkum til að lágmarka umhverfisáhrif af starf- seminni. Hann sagð þó að oft gæti það verið snúið. T.d. virtist sem vörur sem merktar væru með umhverfismerki seldust verr þar sem fólk teldi þær vera dýrari en aðrar vörur. Á sama tíma væri löggjafinn að reyna að fá keðjunar til að selja fleiri vörur með þessu merki. „Það hefði þá þau áhrif að færri keyptu slíkar vörur, sem myndi skjóta dálítið skökku við,“ sagði Myers og taldi að almennra að- gerða væri þörf á þessu sviði. Enn eitt hlutverk verslananna í þjóðfélaginu er að hans sögn neyt- endauppfræðsla svokölluð en hann sagði búðirnar leggja sitt af mörkum í að uppfræða fólk um t.d. hollustu matar og endurvinnslu almennt. Myers sagði jafnframt um rekst- urinn að hann yrði að skila hagnaði til að keðjurnar gætu sinnt sínum skyldum snurðulaust. Myers kom inn á dæmi sem sam- tökin hefðu beitt sér fyrir sem sneri að hagsmunum bæði smásala og neytenda, það væri barátta við korta- fyrirtækin til að fá þau til að lækka gjöld af kortafærslum, en í Banda- ríkjunum hefði náðst góður árangur í slíkri baráttu sem færi að skila sér til neytenda. Um helstu tilhneigingu markaðar- ins í dag sagði Myers að keðjunar væru almennt að færa út kvíarnar á alþjóðlegum vettvangi sem væri þeim lífsnauðsynlegt til að viðhalda markaðshlutdeild sinni og vera arð- samar. Aðra tilhneigingu sagði hann vera þá að stórmarkaðir ykju pláss undir sérvöru inni í búðunum á kostnað matvöru, enda væri meiri framlegð af sérvörunni. Samkeppni væri einnig að aukast við alþjóðleg fyrirtæki. Evrópa ekki einn markaður Hann sagði að það væri enn vanda- mál að Evrópa væri í raun ekki ennþá einn sameinaður markaður. Ástæðan væri ólíkar reglulsetningar sem sneru að smásölu í hverju landi t.d. hvað varðaði afgreiðslutíma en tak- markanir á afgreiðslutímum hefðu margháttuð áhrif á afkomu verslana. Að lokum sagði Myers til að undir- strika mál sitt að eitt af því helsta sem geirinn þyrfti að glíma við í framtíðinni væri óhófleg reglusmíði yfirvalda, enda væri það eitt megin- verkefni samtakanna að vinna með stjórnvöldum og koma í veg fyrir að lög hefðu skaðleg áhrif á vöxt og við- gang smásölukeðjanna. Vöxtur nauðsynlegur fyrir smásölukeðjurnar AP Smásölukeðjur velta 350 milljörðum evra á ári og veita tveimur milljónum manna atvinnu, sem samsvarar alls 14% vinnuafls í Evrópu. NÁI hugmyndir félagsmálaráð- herra um aukin útlán Íbúðalána- sjóðs fram að ganga telur Grein- ingardeild Landsbanka Íslands líklegt að fasteignaverð hækki um 10–15%. Segir í mánaðarriti bank- ans að svo mikil hækkun myndi þurrka út stóran hluta þess ávinn- ings sem tillögum ráðherra er ætl- að að skila húsnæðiskaupendum. Í mánaðarritinu kemur fram að verði hugmyndir félagsmálaráð- herra að veruleika yrði um grund- vallarstefnubreytingu að ræða þar sem ríkisábyrgðir myndu aukast mikið. Greiðslubyrði lækkar um 15% Telur greiningardeildin að fjár- mögnunarhlutfall kaupenda með eigið fé geti lækkað í allt að 10% óháð fjárhagsstöðu er ljóst að margir kunni að fullnýta þennan möguleika. Þannig myndist mögu- leiki á að fjármagna neyslu, aðrar fjárfestingar eða niðurgreiðslu annarra lána með 40 ára lánum á ábyrgð ríkissjóðs. „Þetta hefði mikið hagræði í för með sér fyrir skuldsetta aðila sem gætu lækkað greiðslubyrði sína með því að greiða niður dýrari lán með skemmri lánstíma. Hins vegar gæti þetta leitt til þess að skuld- setning heimila myndi aukast á heildina litið einkum ef lánin yrðu notuð til fjármögnunar á neyslu og gæti þá einnig stuðlað að aukinni verðbólgu. Á hinn bóginn myndu uppgreiðslur dýrari lána koma nið- ur á fjármálafyrirtækjum sem og bönkum og fjármögnunarleigum. Það væri út af fyrir sig ekki óeðli- legt ef samkeppnisstaða banka og ÍLS (Íbúðalánasjóðs) væri sam- bærileg. Kjarni málsins snýr hins vegar að því hvort það eigi að vera í verkahring ríkisins að veita rík- isábyrgðir vegna lántöku einstak- linga í samkeppni við fyrirtæki sem ekki njóta ríkisábyrgðar og fylgja ströngum reglum um eig- infjárhlutföll og útlánaafskriftir en með einkavæðingu bankanna dró ríkisvaldið sig út úr almennri bankastarfsemi,“ að því er segir í Mánaðarriti Landsbankans. Í meðfylgjandi töflu er sýndur útreikningur Landsbankans á því að mánaðarleg greiðslubyrði lána vegna kaupa á 20 milljón króna eign lækki úr 95,4 þúsund krónum á mánuði í 79,3 þúsund krónur eða um 15% ef tillögur félagsmálaráð- herra verða að veruleika. Hætta á hækkun fasteignaverðs                          !" ## $  %& '  (    &          )*+ ,*+ )-+ .-+ ## $      )*+ /*+ ## $     .0+ 0/+ -+ HALLI á viðskiptajöfnuði við útlönd á fyrsta fjórðungi ársins var einn milljarður króna, sam- kvæmt bráðabirgðauppgjöri Seðlabanka Íslands. Á sama tíma í fyrra var viðskiptahall- inn 1,5 milljarðar króna. Vöru- viðskipti voru hagstæð um 6,7 milljarða króna en 2,7 milljarða króna halli var á þjónustujöfn- uði við útlönd. Á föstu gengi jókst útflutn- ingur vöru og þjónustu um 5%, en innflutningur jókst um 5,7% frá sama tímabili árið áður. Halli á þáttatekjum við útlönd var 4,6 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2003, sam- anborið við 6 milljarða króna halla á sama tíma í fyrra og rekstrarframlög voru neikvæð um 0,4 milljarða króna. Innstreymi fjármagns mæld- ist 14,1 milljarður króna á fyrsta fjórðungi ársins. Er- lendrar lántökur voru 23,5 milljarðar króna og bein fjár- festing erlendra aðila á Íslandi var 6,6 milljarðar króna. Fjár- útstreymi vegna erlendra verð- bréfakaupa nam 7,3 milljörðum króna. Aðrar fjárfestingar voru 6,4 milljarðar króna, einkum útlán bankanna til erlendra aðila, sem hafa aukist mikið á síðustu árum og nema nú um 73 millj- örðum króna. Gjaldeyrisforði Seðlabankans jókst lítillega á fyrsta fjórðungi ársins og nam hann 36 milljörðum króna í lok mars 2003. Erlendar skuldir lækka Erlendar skuldir þjóðarinnar voru 554,5 milljarðar króna um- fram eignir í lok mars sl. og hafði skuldastaðan lækkað frá ársbyrjun vegna gengishækkun- ar krónunnar. Bein fjárfesting Íslendinga erlendis minnkar frá því sem áður var talið, vegna nýrri og betri upplýsinga og endurskoðunar á endurfjárfest- um hagnaði. Þessi leiðrétting lækkar þáttatekjur og þar með viðskiptajöfnuð við útlönd. Leiðréttur viðskiptajöfnuður við útlönd sýnir 0,8 milljarða króna halla á árinu 2002 í stað ríflega tveggja milljarða af- gangs áður. Hrein erlend staða þjóðarbúsins breytist við þessa leiðréttingu og var hún neikvæð um 562,5 milljarða króna í árs- lok 2002 og 586,4 milljarða í árs- lok 2001, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá Seðlabank- anum. Minni viðskipta- halli en í fyrra MATSFYRIRTÆKIÐ Moody’s hef- ur staðfest lánshæfiseinkunnina Aaa fyrir Ísland, en það er hæsta ein- kunn sem fyrirtækið gefur. Meðal annarra landa sem fá hæstu einkunn hjá Moody’s eru hin Norðurlöndin, Bandaríkin og Þýskaland. Moody’s segir að þessi einkunn Ís- lands og mat um stöðugar horfur hér á landi byggi á aðlögunarhæfni hag- kerfisins sem hafi ítrekað sýnt getu til að takast á við verulegt ójafnvægi. Að auki séu ríkisfjármál traust, lang- vinnur pólitískur stöðugleiki ríki og lífskjör töluvert betri en að jafnaði í öðrum OECD-ríkjum. Moody’s telur væntanlega stóriðju hugsanlega geta orsakað nýtt of- þensluskeið. Í álitinu kemur fram að deila megi um frekari iðnvæðingu vegna þess að erlendar skuldir með ríkisábyrgð hækki og þar með aukist viðkvæmni þessa litla og opna hag- kerfis fyrir ytri áföllum. Þrátt fyrir þetta séu þessar framkvæmdir lyk- ilþættir í því langtímamarkmiði stjórnvalda að auka fjölbreytni í at- vinnulífinu og útflutningi. Einnig er búist við að framkvæmdirnar hægi á flutningi fólks af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Ísland með hæstu einkunn hjá Moody’s ♦ ♦ ♦ KÁRI Arngrímsson hefur tekið við forstjórastöðu Keflavíkurverktaka hf. af Róbert Trausta Árnasyni. Er Kári titlaður framkvæmdastjóri en hann gegndi áður stöðu yfirverk- fræðings fyrirtækisins. Bjarni Páls- son, eigandi Keflavíkurverktaka, sagði í samtali við fréttavef Morg- unblaðsins að um skipulagsbreyting- ar væri að ræða, fyrirtækið hefði breyst mikið undanfarin tvö ár og breytingarnar væru þáttur í aðlögun að nýju umhverfi. „Aðalveltan tengd- ist verkefnum inni á varnarsvæðun- um, núna er meirihluti veltunnar orðinn það sem við köllum utanvall- ar, við erum komnir til Reykjavíkur og austur fyrir fjall,“ sagði Bjarni og bætti við að samkomulag hefði verið um breytingarnar. Forstjóraskipti hjá Keflavíkur- verktökum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.