Morgunblaðið - 07.06.2003, Qupperneq 13
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 13
siminn.is
N‡ttu flér möguleika
heimilissímans!
fiÍN HRINGING er frábær n‡jung frá Símanum sem virkar
einfaldlega flannig a› flú fær› flér aukahringingu í heimilissímann.
Eftir fla› heyrir flú á hringingunni flegar einhver hringir í flig
– e›a dótturina, e›a eiginkonuna…
• Hægt er a› fá allt a› flrjár aukahringingar í heimilissímann
sem allar hafa sérstakt símanúmer.
• fiÍN HRINGING – ótrúleg flægindi fyrir a›eins 90 kr. á mánu›i.
Síminn til flín
– og bara til flín
fijónustuver Símans 800 7000
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
/
s
ia
.i
s
N
M
0
9
4
0
0
Ali
cante
N‡ vetraráætlun til
Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Kynningarver›
á fyrstu 200 sætunum
Ver› frá
Ver› frá
14.900kr.
22. október, 5. nóvember,
19. nóvember, 3. desember,
18. desember og 5. janúar.
Vegna gífurlegrar eftirspurnar höfum
vi› fengi› örfá vi›bótarsæti á
eftirfarandi dagsetningar:
Fyrstir koma - fyrstir fá!
Beint leiguflug
me› Icelandair
í allan vetur
fyrir sumarhúsa-
eigendur og a›ra
farflega til Spánar!
27.930kr.
Flug fram og til baka með flugvallarsköttum.
11. júní 8 sæti – 25. júní 10 sæti – 9. júlí 8 sæti
23. júlí 15 sæti – 13. ágúst 10 sæti. – 27. ágúst 10. sæti.
3., 10., 17. og 24. september 40 sæti.
Flug aðra leið með flugvallarsköttum.
VERÐ á stórri línuýsu, slægðri, er
22,4% lægra nú en á sama tíma í
fyrra. Meðalverð slægðrar ýsu (allir
stærðarflokkar) í maí 2002 var 185
krónur en er nú 97 krónur, sem þýðir
48% lækkun. Þrátt fyrir þetta hefur
verð á ýsu út úr búð ekki lækkað þar
sem meðalverð hefur nánast staðið í
stað milli áranna 2002 og 2003.
Verð til neytenda óbreytt
Um miðjan febrúar sl. kannaði
Samkeppnisstofnun verð á fiski í 19
fiskbúðum og 13 matvöruverslunum
á höfuðborgarsvæðinu. Sambæri-
legar kannanir hafa gerið gerðar ár-
lega í nokkur ár.
Niðurstöður könnunarinnar sýna
að fiskverð stóð í stað (innan við 1%
hækkun) á síðasta ári eftir miklar
verðhækkanir á árunum 1998–2002
en þá hækkaði meðalverð á t.d. ýsu-
flökum um 70% á meðan vísitala
neysluverðs hækkaði um 21,4%.
Gengismunur og offramboð
Að sögn Gunnars Bergmann, sölu-
stjóra hjá Fiskmarkaði Íslands, hef-
ur verð stórrar ýsu lækkað um 30% í
samanburði við gengið í maí í fyrra og
svo núna. „Í fyrra var dollarinn á um
um 100 krónur en er um 70 krónur í
dag, mismunurinn um 30%. Sama eft-
irspurn er eftir stóru ýsunni og var í
fyrra, það er bara gengismunurinn.“
Mun meiri lækkun hafi orðið á smá-
ýsunni, um 55%, en það sé meira
markaðstengt, segir Gunnar, þar sé
offramboð. Erfitt sé að selja smáýs-
una nema á lægra verði, þar spili inn í
bæði gengismunur og offramboð.
Helgi Helgason, einn eigenda
Fiskbúðar Hafliða, segir spurningu
hvort hluti skýringarinnar á mis-
ræmi í innkaupsverði og smásölu-
verði fisksala sé ekki leiðrétting á
milli ára. Annað sé að allur dreifing-
arkostnaður og flutningskostnaður
hafi hækkað gríðarlega mikið. Til
skýringar segir Helgi að aðeins tvö
félög séu ráðandi á flutningamark-
aðnum, Eimskip og Samskip, og
flutningskostnaður hafi hækkað
„rosalega“. Fyrirtækið sé einnig með
verktaka sem dreifi fiski í verslanir,
launagjöld og annað hafi hækkað og
þarna sé hluti skýringarinnar.
„Mögur ár í rekstri eru hluti skýr-
ingarinnar á mismuni innkaupsverðs
og útsöluverðs,“ segir Helgi, „og ég
tel þessa álagningu eðlilega.“ Fisk-
búð Hafliða kaupi fiskinn á mörkuð-
unum, vinni hann og selji síðan til
stórmarkaðanna. Hinn almenni fisk-
sali kaupi á mörkuðunum, vinni fisk-
inn og selji síðan beint úr búðinni,
þeirra álagning verði því meiri þar
sem þeir losni við milliliðina.
Helgi minnti á að árið 2001 hefði
dollarinn farið upp í um 110 krónur
en þá hefði sama verð verið í fiskbúð-
unum sem hefðu verið reknar með
stórtapi.
Eiríkur Auðunn Auðunsson hjá
Fiskbúðinni Vör vildi að fram kæmi
að Fiskbúðin Vör hefði lækkað verð
sinnar vöru um 100–400 krónur kílóið
í október í fyrra og að sú lækkun væri
enn í gildi. Ýsan hefði verið lækkuð
um eitt hundrað krónur kílóið út úr
búð hjá þeim, lúðan um fjögur hundr-
uð og laxaflök um tvö hundruð krón-
ur.
„Við getum ekki rekið fyrirtækin
okkar eins og kjúklingabændur, að
safna skuldum og fá þær svo bara
felldar niður,“ segir Eiríkur.
Að taka til sín aftur
það sem tapaðist
– En er samræmi á milli innkaups-
verðs og útsöluverðs hjá fisksölum?
„Við reynum að halda ákveðnu
jafnaðarverði. Það eru alltaf sveifl-
ur,“ svarar hann. Fisktegundir
hækki og lækki mismikið og menn
reyni að miða út eitthvert jafnaðar-
verð sem jafni út sveiflurnar. „Frá
um miðju ári 2001 fram til áramóta
2002 hafði aldrei verið eins hátt fisk-
verð í sögu fiskmarkaðanna og þá
fengum við stundum lítið sem ekkert
fyrir okkar flök út úr versluninni á
sama tíma og kjúklingar og svínakjöt
voru gefins,“ segir Eiríkur, „þannig
að það var mjög erfitt tímabil og það
er í góðu lagi þótt verð hafi ekki
lækkað alveg í samræmi við það sem
ætti að geta verið í dag. Við erum
svolítið að taka til okkar aftur það
sem við töpuðum á þeim tíma þannig
að við erum að halda ákveðnu jafn-
ræði.“
Eiríkur bendir á að mikill munur
sé á verði fisksala og stórmarkaða,
því megi menn ekki gleyma, verð í
stórmörkuðum sé hærra. Eiríkur
vildi ekki taka undir raddir sem halda
því fram að fiskneysla hefði minnkað,
neyslumunstrið hefði bara breyst.
Verðlækkun á ýsu skil-
ar sér ekki til neytenda
Fisksalar segjast
m.a. vera að bæta
sér upp mögur ár