Morgunblaðið - 07.06.2003, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.06.2003, Qupperneq 17
ERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 17 Grænakinn 17, Hf. - Opið hús 71 fm 3ja-4ra herb. efri hæð ásamt 34,6 fm bílskúr á frábærum stað. Stórkostlegt útsýni, gróið hverfi, stutt í alla þjónustu. Vegna sérstakra ástæðna er verðið sérlega hagstætt. Aðeins kr. 11.500.000. Ingibjörg verður með opið hús í dag, laugardag, milli kl. 14.00 og 16.00. Allar nánari upplýsingar gefur Halldór í síma 897 3196. Halldór Svavarsson, Fjarðargötu 11, sími 595 9095/ 897 3196, fax 595 9096. halldor@holl.is MARTHA Stewart er fyrir löngu orðin að vörumerki í Bandaríkj- unum. Hún gefur út tímaritið Martha Stewart Living og fram- leiðir sjónvarpsþátt undir eigin nafni, þar sem hún kennir áhorf- endum að baka, skipuleggja sokka- skúffur, smíða girðingu og fjöl- margt annað sem tengist heimilishaldi. Og allt gerir hún þetta með fumlausri ákveðni þess sem veit að sér muni ekki mistakast. Auk tímaritsins og sjónvarpsþátt- arins, sem sýndur er á morgnana á CBS, einni af stærstu sjónvarps- stöðvunum í Bandaríkjunum, selur hún ýmislegt til heimilisins, eins og til dæmis handklæði, í eigin nafni. Þetta veldi sitt, fyrirtækið Martha Stewart Living Omnimedia Inc., hefur hún verið að byggja upp síðan hún gaf út fyrstu bók sína – sem fjallaði um hvernig halda skal heim- boð – 1982. Nú er verðmæti fyr- irtækisins margir milljarðar doll- ara. Þannig hefur Stewart verið ekki ósvipað fyrirbæri í bandarísku þjóð- lífi og Oprah Winfrey, sem líka er með sjónvarpsþátt og gefur út tíma- rit, hvort tveggja undir eigin nafni. Báðar eru orðnar vörumerki og báðar eru orðnar einskonar tákn- myndir ákveðinna eiginleika, Oprah vellíðunar og andlegs þroska; Stew- art vinnusemi, vandvirkni, full- komnunar og nákvæmni – sumir myndu segja smámunasemi. En undanfarið ár hefur hallað undan fæti hjá Stewart, og á fimmtudaginn keypti hún heilsíðu- auglýsingu í útbreiddasta dagblaði Bandaríkjanna, USA Today, og lýsti yfir sakleysi sínu. Daginn áður hafði hún komið fyrir rétt í New York þar sem hún var formlega ákærð fyrir innherjaviðskipti. Henni er gefið að sök að hafa selt fjögur þúsund hlutabréf í líftækni- fyrirtækinu ImClone eftir að hafa með ólöglegum hætti fengið upplýs- ingar um að krabbameinslyf sem fyrirtækið framleiddi, Erbitux, myndi ekki hljóta náð fyrir augum bandaríska matvæla- og lyfjaeft- irlisins, og því ekki verða sett á markað. Daginn eftir að hún seldi bréf sín urðu þessar upplýsingar op- inberar og verðið á hlutabréfum í ImClone hrundi. Hún var einnig ákærð fyrir að hafa reynt að villa um fyrir fjár- festum í hennar eigin fyrirtæki með því að neita opinberlega að hafa að- hafst nokkuð rangt. Verð á hluta- bréfum í Martha Stewart Living Omnimedia Inc hefur lækkað um helming síðan fregnir fóru fyrst að berast af því að opinber rannsókn væri hafin á meintum innherja- viðskiptum hennar, sem var í des- ember 2001. Fyrir réttinum á miðvikudaginn lýsti hún sig saklausa af öllum ákærum. „Ekki sek,“ sagði hún ró- leg, yfirveguð og svipbrigðalaus við dómarann. En verði hún fundin sek á hún yfir höfði sér fangelsisdóm og bann við stjórnarformennsku í fyr- irtæki sínu. Það er algerlega óljóst á hvorn veg dómur fellur. Jeffrey Toobin, blaðamaður sem hefur kynnt sér mál Stewarts í þaula og tekið viðtal við hana í kjölfar rannsóknarinnar, tjáði CNN fyrr í vikunni að hann hefði aldrei, í rannsókn sinni á mál- inu, séð neitt sem benti til að Stew- art hefði aðhafst eitthvað ólöglegt. Lögmaður Stewarts, Robert Morvillo, sagði aðdróttanirnar gegn skjólstæðingi sínum mætti rekja til þess hve fræg hún væri. „Er þetta vegna þess að hún er kona sem hef- ur í krafti hæfileika sinna, vinnu- semi og kröfuhörku náð árangri í harðri baráttu í karlaheimi?“ En saksóknarar segja hana sæta lög- sókn vegna þess sem hún hafi gert, ekki vegna þess hver hún er. Martha Kostyra fæddist 1941, dóttir Edwards Kostyra, sölumanns í New Jersey, og pólskrar eiginkonu hans. Á táningsárum sínum var Martha tekin til við að baka smá- kökur og sníða kjóla. Í byrjun átt- unda áratugarins stofnaði hún lítið matsölufyrirtæki í Connecticut, og það var upphafið að veldi hennar. Hún hafði líka útlitið með sér og starfaði um hríð sem fyrirsæta, en hætti því og lærði sagnfræði í há- skóla. Þar kynntist hún Andy Stew- art, giftist honum 1961 og varð Martha Stewart. Hjónabandið entist til 1987, en er þar var komið hafði Martha náð hagstæðum samningi við Kmart-stórverslanakeðjuna um sölu á heimilisvörum hennar. Í kjöl- farið fylgdu samningar við Time Warner um útgáfu á tímariti og bókum. Þótt Martha eigi sér dygga vini, og suma háttsetta, eins og til dæmis Hillary Rodham Clinton, fyrrver- andi forsetafrú og öldungadeild- arþingmann, eru þeir líka margir sem telja óþarft að hlífa henni. Fjöl- miðlar hafa ekki tekið hana neinum vettlingatökum, og í síðasta mánuði sýndi NBC-sjónvarpið kvikmynd byggða á ævi hennar og lék Cybil Shepherd þar Mörthu. Ef marka má umfjöllun veftíma- ritsins Salon.com um myndina er Martha þar sýnd sem yfirgangssöm og frek og ef til vill ekki fjarri því að vera haldin „jaðarpersónuleik- aröskun“, eins og tímaritið National Enquirer hafði eftir einhverjum sál- fræðingi og sætti lögsókn af hálfu Mörthu fyrir vikið. Dómsátt náðist um málið. Í auglýsingunni sem birtist á fimmtudaginn fullvissaði Martha „stuðningsmenn sína og vini“ um að hún væri saklaus og myndi leggja allt í sölurnar til að hreinsa nafn sitt. En þar til ákæran á hendur henni var formlega gefin út virtist hún ekki hafa miklar áhyggjur af málinu. Hún kom fram í morg- unþætti CBS í júní í fyrra og þegar hún var spurð um málið hélt hún ótrauð áfram að skera niður græn- meti og sagði: „Ég vil bara einbeita mér að salatinu.“ „Ég vil bara einbeita mér að salatinu“ AP Umsetin fjölmiðlafólki kemur Martha Stewart út úr dómssalnum í New York þar sem henni var birt ákæra. Washington, New York. AFP, AP. Martha Stewart, sem verið hefur táknmynd vandvirkni og ná- kvæmni í bandarísku þjóðlífi, er nú ákærð fyr- ir innherjasvik. Hún neitar sök og ætlar að leggja allt í sölurnar til að hreinsa nafn sitt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.