Morgunblaðið - 07.06.2003, Blaðsíða 22
LANDIÐ
22 LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Fræðslufyrirlestur
Stafganga - Nordic walking
Stafganga eða Nordic walking á rætur sínar að rekja til Finnlands og er stunduð af
milljónum manna og kvenna um heim allan. Þetta er hreyfing, sem hentar jafnt ungum
sem öldnum, trimmurum sem og keppnisfólki. Stafganga hefur einnig verið mikið not-
uð sem sem hluti af endurhæfingu, t.d. baksjúklinga og hjartasjúklinga.
Tími: Þriðjudagurinn 10. júní kl. 17:00 - 19:00
Staður: Íþróttamiðstöðin í Laugardal, 3. hæð
Cris Griffin, sjúkraþjálfari, mun kynna niðurstöður rannsókna, sem gerðar hafa verið á
áhrifum stafgöngu fyrir heilsu fólks. Hvernig getur fólk í misgóðu líkamsástandi og á
mismunandi aldri nýtt stafgöngu sér til ánægju og heilsubótar.
Hvernig nýtist stafganga sem endurhæfing?
Jóna Hildur Bjarnadóttir, íþróttakennari og þjálfari hjá Almenningsíþróttadeild
Fram, greinir frá reynslu sinni af þjálfun tilraunahóps Kvennahlaups ÍSÍ í stafgöngu.
Aki Karihtala forseti Alþjóða stafgöngusambandsins kynnir sambandið og starfsemi
þess.
Í lokin verður þátttakendum boðið út fyrir þar sem farið verður yfir grunntækni í
stafgöngu.
Fyrirlestrarnir eru á ensku (Chris og Aki) og opnir öllu áhugafólki um heilsueflingu al-
mennings s.s. læknum, hjúkrunarfræðingum, sjúkraþjálfurum, íþróttafræðingum,
íþróttakennurum og þjálfurum.
Þátttaka er án endugjalds!
FRAMHALDSSKÓLANUM á Laug-
um í Reykjadal var slitið við fjöl-
menna og hátíðlega athöfn 24. maí
síðastliðinn í Íþróttahúsinu á Laug-
um. Lauk þar með fimmtánda
starfsári skólans. Í ávarpi Val-
gerðar Gunnarsdóttur skólameist-
ara kom m.a. fram að 119 nem-
endur víðsvegar af landinu hófu
nám við skólann í haust. Þá sagði
hún útskriftarhópinn aldrei hafa
verið stærri í sögu skólans.
Auk ávarps skólameistara fór
Hallur Reynisson áfangastjóri yfir
starfsárið í bundnu máli við góðar
undirtektir hátíðargesta. Þá var
fjölbreytt dagskrá þar sem m.a.
komu fram með tónlistaratriði
Kaldo Kiis, skólastjóri Tónlistar-
skóla Reykdæla, og kona hans,
Margot Kiis.
Viðstaddir útskriftina voru hópar
nemenda sem útskrifuðust frá
Laugaskóla fyrir 40 og 50 árum.
Fluttu Sigurður Þórisson og Hálf-
dán Björnsson ávörp fyrir þeirra
hönd og færðu skólanum pen-
ingagjafir til stofnunar myndverka-
sjóðs Framhaldsskólans á Laugum.
Halldór Halldórsson, læknir á Ak-
ureyri, færði skólanum áletraðan
skjöld til að festa á listaverkið Ljóð-
ið við rokkinn eftir Ásmund Sveins-
son sem er í eigu skólans og stendur
á skólalóðinni. Verkið gaf móðir
hans til skólans á sínum tíma er hún
lauk sínu ævistarfi á Laugum. Þá
færði Ragna Heiðbjört Þórisdóttir
skólanum bókargjöf.
Að þessu sinni útskrifuðust 20
nemendur frá Framhaldsskólanum
á Laugum, 18 með stúdentspróf og
2 af almennri námsbraut, ávarp ný-
stúdenta flutti Hildur Vésteins-
dóttir. Að venju voru útskrift-
arnemar verðlaunaðir fyrir góðan
árangur í námi og störf að fé-
lagsmálum. Eftirtaldir fengu verð-
laun: Jenný Lára Arnórsdóttir,
verðlaun stúlkna fyrir að hafa lokið
flestum námseiningum á skóla-
árinu. Sólveig Ingólfsdóttir hlaut
verðlaun fyrir góðan námsárangur í
dönsku frá Danska sendiráðinu. Há-
varður Örn Matthíasson fékk verð-
laun fyrir mikla framför í námi frá
Hár-Ellý á Laugum. Guðbjörg Eva
Guðbjartsdóttir fékk verðlaun fyrir
góðan námsárangur á almennri
námsbraut frá Ferðaþjónustunni
Narfastöðum ehf. Ragnar Bjarni
Jónsson fékk verðlaun fyrir gott
starf að félagsmálum frá Smur- og
hjólbarðaþjónustunni Smáragrund
á Laugum. Birna Óskarsdóttir fékk
verðlaun úr Sigurðarsjóði fyrir
mjög góðan námsárangur í ís-
lensku, fyrir góðan námsárangur í
félagsfræði frá Laugabíói og frá
Þýska sendiráðinu fyrir fyrir góðan
námsárangur í þýsku. Eva Braga-
dóttir fékk verðlaun frá Bókaversl-
un Þórarins Stefánssonar á Húsavík
fyrir góðan námsárangur í íslensku.
Heiða Bragadóttir fékk verðlaun
fyrir góðan námsárangur í íslensku
frá Gistiheimilinu Rauðuskriðu í
Aðaldal og fyrir góðan náms-
árangur í þýsku frá Þýska sendi-
ráðinu. Þórey Kristín Aðalsteins-
dóttir fékk verðlaun frá Laugafiski
hf. á Laugum fyrir að vera góður
skólaþegn. Hildur Vésteinsdóttir
fékk verðlaun fyrir góðan náms-
árangur í stærðfræði frá Sparisjóði
Suður-Þingeyinga, fyrir góðan
námsárangur í þýsku frá Þýska
sendiráðinu og fyrir góðan náms-
árangur í íslensku frá Eddu/Máli og
menningu. Sara Rós Grétarsdóttir
fékk verðlaun fyrir góðan náms-
árangur í sögu frá Norðurpólnum
ehf. á Laugum. Elías Björnsson
fékk verðlaun pilta fyrir að hafa
lokið flestum námseiningum á
skólaárinu 2002–2003, alls 49 ein-
ingum frá versluninni Laugaseli á
Laugum og fyrir góðan náms-
árangur í íþróttum frá Þingeyj-
arsveit. Jóhann Jóhannsson braut-
skráðist með flestar námseiningar á
stúdentsprófi, alls 175 einingar, frá
Framhaldsskólanum á Laugum vor-
ið 2003 og fékk fyrir það verðlaun
frá Framhaldsskólanum á Laugum.
Að lokinni athöfn var öllum við-
stöddum boðið að þiggja veitingar.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Nýstúdentar frá Framhaldsskólanum á Laugum 2003 ásamt Valgerði Gunnarsdóttur skólameistara.
Stærsti út-
skriftarhóp-
urinn í sögu
skólans
Þingeyjarsveit
Framhaldsskólinn
á Laugum
SUNNA Guðmundsdóttir opnaði á
dögunum myndlistargallerí í verbúð-
arbyggingunni Húsavík sem hún
hyggst starfrækja í sumar. Gallerí
10 nefnir hún það en það er einmitt
til húsa í verbúð númer 10.
Sunna Guðmundsdóttir er borinn
og barnfæddur Húsvíkingur og
stundar nú nám við Listaháskóla Ís-
lands þar sem hún hefur lokið einum
vetri á myndlistarbraut. Opnunar-
sýning Gallerís 10 var einmitt sýning
á verkum Sunnu. Að sögn Sunnu er
það ætlun hennar að settar verði upp
nýjar sýningar á tveggja vikna fresti
í sumar. Nú þegar séu nokkrar sýn-
ingar ákveðnar og aðrar í uppsigl-
ingu sem hún muni kynna síðar. Opið
verður í Galleríi 10 alla daga frá kl.
10–17.
Í verbúð númer 10 var Útgerðar-
félagið Korri hf. á árum áður með
beitningar- og veiðarfæraaðstöðu og
var húsnæðið í daglegu kallað Korra-
skúrinn þó ekki væri þetta skúr í
bókstaflegri merkingu. Síðar var
Hvalasafnið til húsa í verbúðinni sem
og annarri til, þangað til það var flutt
yfir í núverandi húsnæði.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Sunna Guðmundsdóttir við eitt
verka sinna í Galleríi 10.
Gallerí 10
opnað í verbúð
númer 10
Húsavík
YFIRLÖGREGLUÞJÓNNINN á
Akureyri Daníel Guðjónsson, Erna
Sigfúsdóttir lögreglufulltrúi Ríkis-
lögreglustjóra og Þorsteinn Péturs-
son, forvarnarfulltrúi lögreglunnar á
Akureyri, komu nýverið og héldu
fundi með Grímseyingum um umferð
í þéttbýli og dreifbýli og mikilvægi
forvarna. Steini Pje sem fer á milli
allra skóla í Eyjafirði talaði við
yngstu vegfarendurna um Lúlla lög-
gubangsa og ræddi við grunnskóla-
börnin umnauðsyn þess að kunna
umferðarreglurnar hvort sem er í
Grímsey – uppi á landi eða erlendis.
Alls staðar þurfum við að fylgja
reglum svo hlutirnir gangi sem best
fyrir sig, á götunni og í samskiptum
manna á meðal.
Daníel yfirlögregluþjónn upplýsti
að 30 lögreglumenn gæta öryggis
íbúa á Akureyri en af þeim eru þó 2
sem stunda sín störf á Dalvík. 20 lög-
regluþjónar ganga vaktir og hefur sú
tala haldist óbreytt síðan 1973. Daníel
sagði að flest brot tengdust of hröð-
um akstri en eftir að lögreglan varð
sýnilegri í umferðinni og sektir aukn-
ar, hefði umferðaróhöppum fækkað
og dregið úr hraðakstri um 10 km.
Ölvunarbrotum hefur stórfækkað
eftir því sem lögreglan er virkari og
meira fyrir augum manna.
Erna fulltrúi Ríkislögreglustjóra
sagði að Grímsey væri draumastaður
fyrir lögreglumann. Byggðin öll eins
og eitt lítið hverfi í Reykjavík. Aðal-
áhugasvið Ernu eru forvarnir. Allir
lögregluþjónarnir töluðu um breyt-
ingar og hörku samfara eiturlyfjum.
Skelfilegt væri að sjá hvað eitrið her-
tæki fólk og svipti það allri dómgeind
og virðingu við lög og rétt. Brýnast
töldu þau að foreldrar litu vel eftir
börnum sínum og innprentuðu þeim
að kunna og þora að segja NEI í vina-
hópnum þegar boðið væri upp á eit-
urlyf. Foreldrar ættu að ræða við
börn sín í tíma og leiðbeina þeim til að
velja rétta svarið. Þyngst af öllu
sögðu þau vega fyrirmyndina sem
hinir fullorðnu sýna unga fólkinu í
sínu lífi. Fyrirmynd og fræðsla er
besta og öflugasta forvörnin.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Skólabörn og skólastjóri með Ernu Sigfúsdóttur lögreglufulltrúa, Daníel
Guðjónssyni yfirlögregluþjóni og Þorsteini Péturssyni forvarnarfulltrúa.
Lögregla heim-
sækir Grímsey
Grímsey