Morgunblaðið - 07.06.2003, Síða 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 27
Á TÓNLEIKUM Kirkjulistahá-
tíðar Hallgrímskirkju sl. mánudags-
kvöld var boðið upp á kvartettsöng
af þeirri ættinni sem munkar frömdu
fyrrum og var fyrst sótt til Perotín-
usar er starfaði á 12. og 13 öld, við
Maríukirkjuna í París (síðar Notre
Dame) en hann tók við af Leoninusi
og samdi fjögurra radda „organa“.
Báðir höfðu þeir mikil áhrif á
framþróun kirkjutónlistar. Eftir
Perotinus söng söngkvartettinn
Quattro Stagioni (norskur söng-
kvartett) tvo organa og brá sér svo
fram á 16. öldina og söng þrjá söngva
úr spádómum Sybillu eftir William
Cornyshe (d.1523) en hann starfaði
við hirð Hinriks VIII. og auk þess að
sjá um menntun kórdrengja við kon-
ungskapelluna, samdi hann alls kon-
ar söngtónlist, bæði trúarlega og til
skemmtunar. Það verður að segjast
eins og er að er komið var fram á 16.
öld voru drengjaraddir ráðandi í öll-
um meiri háttar kirkjum, svo nokkru
munar á þeim söng, sem Orlando di
Lasso (1532–1594) hefur þekkt og
söng þeirra félaga, sem og hafa tam-
ið sér sérstaka raddbeitingu. Tallis,
Morales, Palestrína og Byrd hefðu
trúlega ekki þekkt verk sín í söng-
gerð Quattro Stagioni, til þess var
söngurinn of „affekteraður“.
Nútímaverkin eftir Lewkovitch
(1927 danskur) Kruse, Plagge (1960
norskur) og Habbestad (1955 norsk-
ur) voru vel flutt en það sem ein-
kennir tónsmíðar þeirra, sem fluttar
voru á þessum tónleikum, er að þeir
leitast við að sameina tónmál forn-
kirkjunnar nýjum vinnuaðferðum og
tekst það að mörgu leyti mjög vel og
voru nútímaverkin besti hluti þeirr-
ar efnisskrár sem Quattro Stagioni
sáu um.
Karlakórinn Fóstbræður undir
stjórn Árna Harðarsonar söng síð-
asta hlutann af tónleikunum og þá
fyrst hluti kórsins með Quattro
Stagioni og síðan allur kórinn, fal-
lega gerðan morgun-kóral, eftir
Snorra Sigfús Birgisson, við textann
Fagur er söngur í himnahöll sem
Bjarni Þorsteinsson segir að sé frá
katólskri tíð. Þessi fallega en ein-
falda tónsmíð var sérlega vel sungin
af Fóstbræðrum er síðan fluttu fjög-
ur stutt lög eftir Poulenc, við texta
eftir Franz frá Assisi. Þessi fagra
tónlist eftir Poulenc var einstaklega
vel flutt og lauk tónleikunum með
samsöng kvartetts og kórs í Ave
Maríu eftir Bruckner.
Quvattro Stagioni er að mörgu
leyti vel syngjandi kvartett, þó á
stundum nokkuð tilbúinn eða til-
gerðarlegur í raddbeitingu og einnig
að háröddin (kontratenorinn) var
einum og stíf svo að tónstaðan var
nokkuð skörp á köflum, hljómaði ein
og sér á hásviðinu og samlagaðist
ekki lágröddunum sem skyldi. Göm-
ul kirkjutónlist býr yfir seiðandi
hugleiðslu sem þarf að varast að
verði tilbreytingarlaus og án styrk-
leikabreytinga sem kvartett eins og
Quattro Stagioni ræður ekki yfir
nema í litlum mæli. Þrátt fyrir þetta
var nokkur skemmtan í uppfærslu
norska kvartettsins með ítalska
nafnið.
Meginuppistaðan í kirkjutónlist er
eðli sínu samkvæmt að mestu samin
fyrir söng því eins og Frakkar héldu
fram á 18. og 19. öld var hljóðfæra-
tónlist merkingarlaus og aðeins hæf
sem undirstrikun á sungnum texta.
Þetta er ein af ástæðum þess að
Frakkar eignuðust ekki sinfónísk
tónskáld fyrr en leið á rómantíska
tímann. Það var samt ekki fyrr en á
seinni hluta 19. aldar og þó nær alda-
mótunum, með Duparc, Faure,
Debussy og Ravel að Frakkar eign-
uðust söngverk, sömu ættar og þýski
liederinn.
Alvarleg og íhugul ljóðatónlist
Andreas Schmidt og Helmut
Deutsch komu fram á vegum Kirkju-
listahátíðar Hallgrímskirkju í Saln-
um sl. sunnudagskvöld og fluttu mið-
evrópsk trúarleg ljóðasöngverk eftir
Beethoven, Brahms, Dvorák og
Wolf. Tónleikarnir hófust á Gellert
söngvunum, op. 48. eftir Beethoven.
Í þessum sex laga flokki þekkja allir
fjórða lagið Die Ehre Gottes (Þitt
lof, ó, Drottinn) en lögin eru sérlega
einföld nema það síðasta, Busslied,
þar sem meistarinn bregður á leik í
píanóinu. Lögin voru flutt af látleysi
og sama má segja um fjóra alvarlega
söngva, op. 121, eftir Brahms, trega-
fulla söngva um dauðann. Brahms
sækir efni sitt í Biblíuna og endar á
hluta af frægri ræðu Páls postula, úr
fyrra Korintubréfi hans. Þessi
söngvar voru mjög áhrifamiklir í hóf-
stilltri túlkun, sem féll einkar vel að
alvöruþrungnu tónmáli meistarans.
Tíu Biblíusöngvar, op 99, eftir
Dvorák voru eftir hlé og þar er efni
sótt í Davíðssálma. Nokkuð skyggði
það á að lögin voru sungin í annarri
þýðingu, sennilega á gamalli þýsku,
því þó að textinn væri efnislega eins
var orðalag allt annað hjá söngvar-
anum en í efnisskrá sem er eins og í
útgáfu Supraphon, frá Prag. Þrátt
fyrir textaruglið voru þessir fögru og
tilfinningaþrungnu söngvar sem
einnig eru sérkennilega glaðlegir
mjög vel fluttir og sama má segja um
þrjá söngva við ljóð eftir Michelang-
elo sem eru sérlega fallegur tónvefn-
aður, sérstaklega annað ljóðið, Alles
endet.
Andreas Schmidt er mikill ljóða-
túlkandi en frá því sem fyrr var
heyrt til hans hefur rödd látið nokk-
uð á sjá, er orðin mattari og hefur
þyngst en túlkun hans er djúp og
einlæg. Með Schmidt var frábær pí-
anóleikari, Helmut Deutsch, er aldr-
ei setti sig framar en að falla sem
best að túlkun söngvarans á blæ-
brigðum lags og texta. Þetta voru
tónleikar sem bornir voru uppi af
listfengi og alvarlegri og íhugulli
ljóðatónlist.
Seiðandi
hugleiðsla
TÓNLIST
Hallgrímskirkja
Quattro Stagioni og
Karlakórinn Fóstbræður
fluttu kirkjutónlist frá 12. og
allt til 21. aldar. Stjórnandi
Fóstbræðra var Árni Harðarson.
KÓRSÖNGUR
Salurinn
Andreas Schmidt og Helmut Deutsch,
fluttu söngverk eftir Beethoven, Brahms,
Dvorák og Wolf.
LJÓÐATÓNLEIKAR
Jón Ásgeirsson
„Andreas Schmidt er mikill ljóðatúlkandi,“ segir í umsögninni.
BSRB heldur sína árlegu Menning-
arhátíð í Munaðarnesi í dag klukkan
14:00. Myndlistarsýning Önnu
Gunnlaugsdóttur verður opnuð, Sig-
rún Hjálmtýsdóttir syngur við und-
irleik Jónasar Ingimundarsonar og
Pétur Gunnarsson rithöfundur les
upp.
Menningar-
hátíð BSRB
KIRKJULISTAHÁTÍÐ stendur til
9. júní. Yfirskriftin er „Ég ætla að
gefa regn á jörð“.
Laugardagur
Hallgrímskirkja kl. 18: Hátíð heil-
ags anda hringd inn. Leikið á
klukkuspil Hallgrímskirkju.
Barokktónleikar kl. 18.15: Antonio
Vivaldi: Gloria f. einsöngvara, kór og
hljómsveit. Johann Sebastian Bach:
Hvítasunnukantatan Erschallet, ihr
Lieder, BWV 172, f. einsöngvara,
kór og hljómsveit. Kammerkórinn
Schola cantorum. Barokkhljómsveit-
in Das Neue Orchester frá Köln.
Einsöngvarar: Rannveig Sif Sigurð-
ardóttir sópran, Guðrún Edda Gunn-
arsdóttir alt, Þorbjörn Rúnarsson
tenór og Davíð Ólafsson bassi.
Stjórnandi: Hörður Áskelsson.
Laugardagur
Sveinshús í Krýsuvík kl. 11: Ma-
onnuhlaup að Suðurbæjarlaug.
Súfistinn kl. 15: BS–KS – samsýning
Birgis Sigurðssonar og Kristjáns
Helgasonar.
Bæjarbíó kl. 16: Juha, kvikmynd eft-
ir finnska leikstjórann Aki Kauris-
mäki.
Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 20: Leik-
rit Auðar Haralds, „Patreksharm-
ur“, frumsýnt í samstarfi við Hafn-
arfjarðarleikhúsið.
Bjartir dagar
í Hafnarfirði
HAFIÐ, leikrit eftir
Ólaf Hauk Símonar-
son, verður frumsýnt
í New York 13. júní.
Það er leikhópurinn
The Luminous Group
undir stjórn Kristina
O’ Neal, sem bæði
leikur í sýningunni og
leikstýrir henni.
Þýðing Hafsins var
í höndum Bernards
Scudders. Frumsýn-
ing verður fimmtu-
daginn 13. júní en
sýnt verður fram til
29. júní alls 8 sýn-
ingar í Sande Shurin
Theater við 43. stræti
á Manhattan.
Hafið var frumsýnt á Stóra sviði
Þjóðleikhússins 19. september
1992 og varð gríðarlega vinsælt
og var sýnt 39 sinnum þann vetur.
Sumarið 1993 var það leikið 11
sinnum á leikferð um landið og
1994 var það valið sem framlag Ís-
lands á leiklistartvíæringinn í
Bonn. Hafið var frumsýnt af Borg-
arleikhúsinu á Norrænu menning-
arhátíðinni í Greifswald í Þýska-
landi og einnig var það frumsýnt í
vor í borgarleikhúsinu Stralsund.
Kvikmynd byggð á leikritinu
eftir Baltasar Kormák hefur síðan
borið hróður Hafsins víða um
heim á undanförnum misserum.
„Verkið var leiklesið á norrænni
leikritunarkynningu í Norræna
húsinu í New York
vorið 2001. Kristina
sá í verkinu eitthvað
sem hún vildi vinna
áfram að og telur að
eigi erindi við banda-
ríska áhorfendur.
Mér skilst að leikhóp-
urinn sé mjög góður
og þar séu nokkuð
þekktir leikarar.
Kristina kom hingað í
vetur og leitaði eftir
stuðningi íslenskra
fyrirtækja og ráðu-
neytis og fékk já-
kvæðar undirtektir
hjá flestum,“ segir
Ólafur Haukur.
Í haust verður frumsýnt nýtt
verk, Græna landið, eftir Ólaf
Hauk í Þjóðleikhúsinu. „Verkið er
sérstaklega skrifað fyrir leikarana
Gunnar Eyjólfsson og Kristbjörgu
Kjeld og verður væntanlega frum-
sýnt á bernskuslóðum þeirra í
Keflavík. Þriðja hlutverkið er í
höndum Björns Thors, nýútskrif-
aðs leikara frá LÍ.“
Leikritið Hafið
frumsýnt í
Bandaríkjunum
Ólafur Haukur
Símonarson
♦ ♦ ♦
♦ ♦ ♦