Morgunblaðið - 07.06.2003, Qupperneq 37
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. JÚNÍ 2003 37
✝ Bragi Jónssonfæddist á Ísa-
firði hinn 15. desem-
ber 1947. Hann lést
á heimili sínu í Hlíð-
arstræti 24 í Bol-
ungarvík hinn 28.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Jón Jóhannesson, f.
7. nóvember 1900,
d. 2. júlí 1973, og
Guðrún Guðmunds-
dóttir, f. 1. júlí 1906,
d. 24. janúar 1974.
Bragi var næst
yngstur ellefu systk-
ina. Sammæðra var Valdheiður
Margrét Valdimarsdóttir, f. 23.
ágúst 1929, d. 23. janúar 1990.
Elst alsystkina er Þóra Jóhanna,
f. 17. júlí 1931. Sigurður Páll, f.
1. ágúst 1933, d. 3. mars 1950.
Kristján Guðbjörn, f. 4. júlí
1935. Eggert Jón, f. 31. júlí
1936. Sigurhjörtur, f. 20. febr-
úar 1940, d. 15. apríl 1984. Alda
Guðrún, f. 11. janúar 1942.
Rósamunda, f. 11. janúar 1942,
d. 20. nóvember
1942. Valdemar
Magnús, f. 13. mars
1945. Baldur, 15.
desember 1947.
Barnsmóðir
Braga er Rósa Guð-
munda Benedikts-
dóttir, f. 15. júlí
1951. Þau eiga dótt-
urina Hjálmfríði
Björk, f. 13. maí
1969. Bragi kvænt-
ist Elínborgu Jóns-
dóttur, f. 9. nóvem-
ber 1950. Þau slitu
samvistum Þau
eignuðust fjögur börn.Þau eru:
Jón Kjartan, f. 15. maí 1969.
Hafþór, f. 19. september 1971.
Bjarki, f. 23. september 1975, og
Sólrún, f. 21. febrúar 1979.
Barnabörnin eru níu.
Sambýliskona Braga var Vig-
dís Bragadóttir, f. 28. maí. 1952.
Vigdís á fjögur börn.
Útför Braga fer fram frá Ísa-
fjarðarkirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 14.
Mig langar að kveðja hann
Braga tvíburabróður minn með fá-
einum orðum. Bragi var einn af
mínum bestu vinum. Þó að við höf-
um kannski ekki verið mjög líkir í
útliti þá var margt annað sem var
líkt með okkur. Við vorum báðir
rólegir að eðlisfari og ekki mikið
fyrir að vera í miklu fjölmenni. Þú
varst stríðinn og oft var ég að
reyna að þagga niður í þér, en allt-
af var þetta meint í góðu og þú
vildir öllum vel. Orðheppinn varstu
og áttir mjög auðvelt með að svara
öllu á kíminn hátt. Þú varst mesta
ljúfmenni og vildir öllum vel.
Við þurftum alltaf að vita hvor
af öðrum, þó þú byggir um tíma á
öðrum stöðum á landinu þá
hringdum við hvor í annan til að fá
fréttir. Þó að það hafi verið um
tíma sem erfiðleikar steðjuðu að
og ekki hafi verið mikið samband á
milli okkar á þeim tíma, þá var
þegar við hittumst á ný eins og við
hefðum sést í gær. Við fórum þá á
milli og heimsóttum hvor annan.
Nú varstu loksins búinn að finna
staðfestu á nýjan leik og hittir
hana Vigdísi og fórst að búa með
henni. Þið settust að hérna fyrir
vestan, það gladdi mig mikið, þá
var styttri vegalengd á milli okkar.
Þér var loksins farið að líða mjög
vel og þá hverfurðu frá okkur á
svona snögglegan hátt. Við vorum
búnir að ákveða að gera svo margt
nú í sumar. Ætluðum að fara í
veiðitúra og ferðast um á húsbíln-
um sem þið voruð nýbúin að eign-
ast, við ræddum það mikið og ég
var farinn að hlakka til þess. En
nú förum við ekki í þessar ferðir
og ég fæ þig ekki í heimsókn leng-
ur og get heldur ekki farið í bíltúr
út í Bolungarvík til að heilsa upp á
þig.
Þegar ég hitti þig síðast, á
mánudeginum áður en þú deyrð þá
bjóst ég ekki við að það væri í síð-
asta sinn sem við myndum hittast.
Mér fannst þú vera fölur og
þreyttur en samt bjóst ég ekki við
að þú færir svona fljótt. Þú sem
alltaf varst svo hress og kvartaðir
aldrei en svo í vetur fórstu að
finna fyrir verkjum fyrir brjóstinu
og fórst svo loksins til læknis og
varst sendur suður í hjartaþræð-
ingu og við bjuggumst við að þá
myndi sá verkur hverfa. En ekki
kvartaðirðu og hélst áfram að
vinna eins og ekkert væri, þó þú
værir þreyttur og slappur.
Elsku Bragi minn, nú kveð ég
þig að sinni. Ég á eftir að sakna
þín og ég á eftir að hugsa oft til
þín. Ég veit að þegar minn tími
mun koma þá munum við hittast
aftur.
Ég sendi Vigdísi, börnum hans
Braga og öðrum aðstandendum
samúðarkveðjur mínar.
Þinn bróðir
Baldur.
BRAGI
JÓNSSON
✝ Sveinn Bjarna-son fæddist á
Bakkagerði í Borg-
arfirði eystra hinn
3. október 1917.
Hann lést á sjúkra-
deild Heilbrigðis-
stofnunar Austur-
lands á Egilsstöðum
27. maí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Bjarni Sveins-
son skrifstofumaður
og bóndi, f. 7. júní
1886, d. 30. ágúst
1967, og Guðríður
Ágústa Högnadótt-
ir, f. 7. ágúst 1884, d. 4. maí
1975. Sveinn var yngstur þriggja
systkina. Hin voru: Sigfríð Katr-
ín, f. 22. júní 1909, d. 4. nóv.
1982, og Guðrún Jóna, f. 14. maí
1915, d. 27. ágúst 1965. Ennig
ólst upp hjá foreldrum Sveins,
frá sjö ára aldri, systursonur
Ágústu, Karl Sigurður Stefáns-
son, f. 3. janúar 1922, d. 30.
ágúst 1953.
Sveinn var kvæntur Önnu
Björgu Jónsdóttur frá Geitavík í
Borgarfirði eystra, f. 13. júlí
1920, d. 30. desember 2002.
Eignuðust þau tíu börn. Þau eru:
1) Geirlaug, f. 11.10. 1942, trygg-
12.7. 1945, líffræðingur á Borg-
arfirði eystra. 4) Páll, f. 17.7.
1947, lengst af bóndi en gegndi
fleiri störfum, d. 20.10. 1986. 5)
Jón, f. 2.7. 1949, bóndi á Grund í
Borgarfirði. 6) Ingibjörg, f. 2.5.
1954, bókari, búsett í Reykjavík,
gift Inga Eyjólfi Friðþjófssyni.
Þau slitu samvistir. Börn þeirra
eru Harpa Sif og Ívar Hlynur. 7)
Karl, f. 9.4. 1956, útgerðarmaður
á Borgarfirði eystra, sambýlis-
kona hans er Sigurlaug Margrét
Bragadóttir. Dætur þeirra eru
Kolbrún og Hallveig. 8) Bóthild-
ur, f. 21.1. 1958, hjúkrunarfræð-
ingur á Akureyri, gift Bernard
Gerrisma, börn þeirra eru Berg-
lind og Bjarki. 9) Guðrún Hvönn,
f. 15.10. 1959, kennari í Reykja-
vík. 10) Skúli, f. 22.1. 1962, stýri-
maður og rekur hann ferðaþjón-
ustu á Borgarfirði.
Sveinn ólst upp hjá foreldrum
sínum á Melstað í Borgarfirði.
Sveinn stundaði nám við Bænda-
skólann á Hvanneyri og lauk
þaðan búfræðinámi 1939. Sveinn
og Anna Björg hófu búskap á
heimili Sveins árið 1943. Jafn-
hliða því byggðu þau upp eyði-
býlið Hvannstóð. Þangað flytur
fjölskyldan árið 1946. Árið 1999
bregða þau búi og flytja að Vík-
urnesi í Borgarfirði. Síðustu tvö
árin dvaldi Sveinn á sjúkrahús-
inu á Egilsstöðum.
Útför Sveins verður gerð frá
Bakkagerðiskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 14.
ingafulltrúi á Egils-
stöðum, gift Sveini
Jóhannssyni, eiga
þau þrjú börn: Jó-
hann, kvæntur Haf-
dísi Guðmundsdótt-
ur. Börn þeirra eru
Sveinn Þorgeir, Guð-
mundur Gauti og
Brynjar Logi; Anna
Björg, sambýlismað-
ur Ólafur Helgi
Ólafsson, þeirra börn
eru Þórdís og Ólafur
Geir; Bjarni Ágúst,
sambýliskona Gréta
Björk Ómarsdóttir.
Börn: Elísa Björt og Alexeander
Ágúst. 2) Ágústa, f. 31.12. 1943,
starfsstúlka á Seyðisfirði, gift
Helga Eyjólfssyni, eiga þau fjög-
ur börn: Þorkell kvæntur Lukku
Sigríði Gissurardóttur. Börn:
Eyjólfur og Elínrós; Magnús
Bjarni, kvæntur Ásdísi Snjólfs-
dóttur. Þau skildu. Börn: Hug-
rún Birna og Sveinn. Barn Hug-
rúnar er Adam Ingi, fyrsta
langalangafabarn Sveins; Ósk,
gift Stefáni Tryggvasyni. Börn:
Hannes Garðar, Sævar Páll og
Sigurbjörg Arna; Anna, gift
Guðna Sigmundssyni. Börn:
Helgi og Vilborg. 3) Bjarni, f.
Nú er hann afi í Hvannstóði bú-
inn að fá hvíldina.
Þegar ég hugsa til baka finnst
mér ekki vera svo langt síðan ég
var í sveit hjá afa og ömmu en ég
var svo heppin að fá að vera hjá
þeim í Hvannstóði í nokkur sumur.
„Ertu komin, gæska, komdu með
kollinn hans afa.“ Svo kyssti hann
mig á kollinn. Þannig var afi vanur
að heilsa mér og alltaf leið mér vel
eftir þessa kveðju.
Afi ætlaði sér alltaf að verða
bóndi en það var ekki átakalaust
fyrir hann og ömmu að flytjast inn
að eyðibýlinu Hvannstóði með þrjú
börn í hálfklárað hús en afi hafði
haft kindur innfrá í nokkurn tíma
áður en þau fluttu og fór hann
gangandi eða ríðandi til gegninga.
Það var oft þröngt í litla húsinu í
Hvannstóði, hjónin eignuðust tíu
börn en þrátt fyrir það flutti Gústa
langamma til þeirra og bjó hjá
þeim til æviloka.
Gestrisin voru þau og oft man ég
eftir fullu húsi af gestum og alltaf
var nóg til handa öllum.
Ekki skipti afi sér oft af eldhús-
störfunum hjá ömmu en hann átti
það til að koma með pylsur handa
mér ef ég borðaði ekki það sem var
á borðum.
Afi var rólegur maður, heiðarleg-
ur, ósannsögli þoldi hann ekki og
var afskaplega staðfastur.
Afi hafði lifað margar breytingar
í búskap sínum. Hann var fjárbóndi
af lífi og sál og það voru mörg áföll-
in sem hann gekk í gegnum í sínum
búskap en steininn tók úr þegar
skera þurfti niður allt fé vegna riðu
og ég veit að það fékk mikið á hann.
Það sýnir hve afi var staðfastur að
eftir fjárskiptin, þá rúmlega sjö-
tugur, byggði hann sér nýtt fjárhús
og fékk sér kindur á ný.
Fyrir nokkrum mánuðum fylgd-
um við ömmu síðasta spölinn og ég
veit að hún tekur vel á móti afa
með góðum kaffisopa.
Mikið á ég eftir að sakna þess
þegar ég kem á Borgarfjörð að
hafa ekki afa og ömmu í Hvann-
stóði og finnast ég vera komin
heim.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig til að kveðja hann afa
minn. Bless, gæskur.
Anna Björg.
SVEINN
BJARNASON
Elskuleg móðir mín, amma, langamma og lang-
alangamma,
GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR,
lést á dvalarheimilinu Hlíð Akureyri laugar-
daginn 31. maí.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju fimmtu-
daginn 12. júní kl. 13.30.
Bára Guðrún Sigurðardóttir
og ömmubörnin öll, stór og smá.
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma,
ELÍNBORG SIGURDÓRSDÓTTIR
(Stella),
Háholti 27,
Akranesi,
andaðist á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 29. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Einvarður Jósefsson, Anna Sigurðardóttir,
Jón Mímir Einvarðsson,
Sigurður Unnar Einvarðsson, Birna Lárusdóttir.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
KRISTJÁN G. KRISTJÁNSSON
fyrrv. hafnarvörður,
sem lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, laugardaginn
31. maí, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni
í Reykjavík þriðjudaginn 10. júní kl. 13.30.
Kristján Birgir Kristjánsson, Anna Snæbjörnsdóttir,
Guðmunda Auður Kristjánsdóttir, Vilhelm Ingólfsson,
Ása María Kristjánsdóttir,
barnabörn og fjölskyldur.
Innilegar þakkir fyrir samúð og vináttu við
andlát og útför elskulegrar eiginkonu minnar,
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
SVANBJARGAR JÓNSDÓTTUR,
Bárugötu 6,
Dalvík.
Kristinn Þorleifsson,
Össur Kristinsson, Berglind Andrésdóttir,
Birgir Össurarson, Birna Björnsdóttir,
Björg Össurardóttir, Einar Einarsson,
Sigrún Össurardóttir, Haraldur Ólafsson
og langömmubörn.
Okkar ástkæra,
GUÐRÚN ÞORKELSDÓTTIR,
dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund,
áður Leifsgötu 7,
Reykjavík,
lést á Landspítala við Hringbraut að morgni
föstudagsins 6. júní.
Jarðarförin auglýst síðar.
Systkinin frá Arnórsstöðum
og aðrir vandamenn.
Eiginmaður minn og faðir okkar,
MATTHÍAS JÓHANN JÓNSSON
framkvæmdastjóri,
Rauðhömrum 12,
Reykjavík,
lést á heimili sínu aðfaranótt fimmtudagsins
5. júní.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 13. júní kl. 13.30.
Anita Villadsen
og börn hins látna.